Morgunblaðið - 16.02.1980, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
Borgarafundur
Lífs og lands
im Mann og list
í DAG kl. 10 fyrir hádegi hefst
Korgarafundur, sem Líf og land
eínir til á Kjarvalsstöðum og
neíiiist Maður og list. Fundurinn
Eru Berlínar-
myndir Finns
málara fundnar
FINNUR Jónsson listmálari
sýndi árið 1925 alls átta málverk
á listsýningu Der Sturm hópsins
í Berlín, en þessi listaverk komu
aldrei til skila og hefur ekkert til
þeirra spurst þar til fyrir stuttu
að Frank Ponzi í Brennholti í
Mosfellssveit tók að sér að
kanna nánar fyrir Finn mðgu-
Jeika á því að nokkrar þessara
mynda séu nú í eigu hins kunna
listaverkasafns Yale háskólans í
Bandaríkjunum. Frank hefur
grun um að í sérstöku safni þar,
sem kennt er við Kathrin S.
Dreier, kunnan bandarískan
málverkasafnara séu tvær til
þrjár myndir af umræddum átta
myndum Finns og er verið að
ganga úr skugga um það.
„BSRB getur
boðað verkfalT
HVAÐ líður samningum BSRB?
— heitir grein, _ sem birt er í
nýútkomnum Ásgarði, blaðs
Bandalags starfsmanna rikis og
bæja. Þar segir m.a. undir fyrir-
sögninni „BSRB getur boðað verk-
fall“:
„Lögin um kjarasamninga
BSRB gera ráð fyrir því, að
samtökin geti, eftir að kjarasamn-
ingar eru lausir, komið í veg fyrir
óeðlilegan drátt á samningagerð
með því eina móti að beita verk-
fallsvopninu.
Samninganefd BSRB og stjórn
bandalagsins geta samþykkt að
boða til verkfalls. Samkvæmt 19.
gr. laga um kjarasamninga ber þá
að tilkynna slíka ákvörðun um
vinnustöðvun bæði ríkissáttasemj-
ara og þeim, sem hún beinist gegn
(þ.e. fjármálaráðherra) skemmst
15 sólarhringum áður en hún skal
hefjast.
Sáttanefnd er þá skyldug að
leggja fram sáttatillögu 10 dögum
síðar, og getur frestað boðuðu
verkfalli um 15 daga.
Sáttatillagan yrði síðan lögð
undir dóm ríkisstarfsmanna um
allt land í allsherjaratkvæða-
greiðslu, sem sáttanefnd stjórnar.
Hún telst samþykkt, ef minna en
helmingur tekur þátt í atkvæða-
greiðslunni eða ef meirihluti þeirra
sem kjósa er því fylgjandi að láta
hana gilda sem kjarasamning fyrir
næstu tvö árin.
Verði sáttatillaga felld, þá hefst
verkfall mánuði eftir að það er
boðað.
hefst með því að Jón óttar
Ragnarsson, formaður, flytur
ávarp og verða síðan flutt 20
stutt erindi og lýkur ráðstefnu-
deginum með gerningi kl. 17.10.
Matarhlé er frá 12—12.30. Fyrir
hádegi stjórnar fundi Guðmund-
ur Steinsson og eftir hádegi Elín
Pálmadóttir.
Erindin í dag eru um stöðu
listar: Guðbergur Bergsson nefnir
sitt Staða ísl. listar, Aðalsteinn
Ingólfsson Hvers vegna list?, Ól-
afur Jónsson Ritlist í rénun?,
Hörður Ágústsson Islenzk mynd-
list í hnotskurn, Atli Heimir
Sveinsson íslensk tónlistarsaga,
Richard Jóhannesson Valtingojer
Staða myndlistar, Hannes Lárus-
son Nýlist, Arnór Hannibalsson
Hámenning í verstöð, Gunnar
Kristjánsson List og kirkja.
Eftir hádegi verður fjallað um
aðstöðu listafólks. Thor Vil-
hjálmsson nefnir sitt erindi Lista-
fólk og ríkisvald, Vilhjálmur
Hjálmarsson Aðstaða íslenzks
listafólks, Rannveig Ágústsdóttir
Styrkir og starfslaun, Þóra Krist-
jánsdóttir Að koma list á fram-
færi, Ásta Ólafsdóttir og Níels
Hafstein Listasöfn, Jón Þórarins-
son List og fjölmiðlun, Hrafnhild-
ur Schram Að skoða list, Björn
Björnsson List og sjónhverfing,
Hans Kristján Árnason Opinber
listastefna í Hollandi, Ólafur
Björnsson Fjármögnun íslenzkrar
listar.
Ráðstefnunni verður framhald-
ið kl. 10 á sunnudagsmorgun.
Varðbergsfundur:
Hvað er framundan
í utanríkismálum?
VARÐBERG, félag ungra
áhugamanna um vestræna sam-
vinnu, gengst fyrir hádegisverð-
arfundi með ólafi Jóhannessyni
utanrikisráðherra i dag klukk-
an 12.00 í Átthagasal Hótel
Sögu.
Ólafur mun fjalla um umræðu-
efnið: Hvað er framundan í
utanríkismálum?, auk þess sem
ráðherrann mun svara spurning-
um fundarmanna.
Fundurinn er opinn öllum fé-
lögum Varðbergs svo og félögum
í Samtökum um vestræna sam-
vinnu og gestum þeirra..
Loðnuf lotinn enn á dólinu
Þessar myndir tók Tómas Helgason flugmaður út af Langanesi í gær þar sem
loðnuflotinn var að veiðum. Alls voru 46 skip á svæðinu, sum með fullfermi á leið til
lands, önnur tóm að leita að loðnu. Skipið fjær er Huginn VE 56 frá
Vestmannaeyjum, en skipið nær er eitt nýjasta skip flotans, Hilmir SU 171. Eins og
sjá má var blíðuveður á miðunum.
Tilboð í smíði strætisvagna:
Embættismenn skoða
vagna í Ungverjalandi
Stjórn SVR ekki með í ráðum
og mótmælir málsmeðferð
Á fundi stjórnar Strætisvagna
Reykjavíkur í gær voru til um-
ræðu tilboð í smíði 20 vagna, en
þau voru opnuð hinn 30. janúar
sl. Tiu fyrirtæki skiluðu tilboðum
og var hið lægsta í fullbúna
vagna frá Ungverjum og hljóðar
upp á 45 milljónir króna á vagn,
en hið hæsta var 87 milljónir
króna.
Innkaupastofnun Reykjavíkur sá
um gerð útboðsgagna og hefúr að
undanförnu unnið að samræmingu
tilboðanna, en þau voru ýmist gerð
Engin hrogn fryst nema
breyting verði á afstöðu
Japana á allra næstu dögum
JAPANIR hafa nú svarað því
verðtilboði íslendinga og Norð-
manna, þar sem framleiðendur
loðnuhrogna í þessum löndum
buðu Japönum sameiginlega
1950 dollara lágmarksverð
fýrir tonnið af hrognum. Svar
Japana var á þá leið, að þeir
hefðu ekki áhuga á hrognunum
á þessu verði, en gerðu gagntil-
boð, sem hljóðaði upp á 1.000
dollara fyrir tonnið.
I fyrra seldu Islendingar Jap-
önum tonnið á 2.400 dollara, en
upphaflegt tilboð Japana í vetur
var upp á 800 dollara.
Ólafur Jónsson hjá Sjávaraf-
urðadeild Sambandsins sagði í
gær að útilokað væri að semja
um hrognasölu á þessu verði. —
Það þarf verulegar breytingar á
þeirra tilboðum áður en við
verðum í þeirri aðstöðu að geta
hafið viðræður við þá, sagði
hann. — Það liggur alveg ljóst
fyrir, að ef það verður ekki
breyting á afstöðu Japananna á
allra næstu dögum, þá verða
engin hrogn fryst, það liggur
ljóst fyrir, sagði Ólafur.
í fullbúna vagna, undirvagn eða
yfirbyggingu.
í dag halda áleiðis til Ungverja-
lands þrír embættismenn Reykja-
víkurborgar til að kanna vagnana
sem þar eru í boði og munu þeir
síðan skila álitsgerð um þá og
stjórn SVR og Innkaupastofnunin
athuga í framhaldi af því hvaða
tilboði beri að taka. Stjórn SVR,
sem boðuð var til skyndifundar í
gær þar sem henni voru kynnt
tilboðin, hefur mótmælt þessari
málsmeðferð, að fulltrúar séu
sendir utan án hennar vitundar og
án þess að henni gefist kostur á að
hafa eitthvað um þá ferð að segja,
en á fundinum í gær var tilkynnt að
ferð þessi hefði verið ákveðin. Fara
í hana þeir menn er mest hafa
unnið að málinu, borgarstjóri og
tveir tæknimenn, annar frá Reykja-
víkurborg og hinn frá SVR. Lýsti
stjórnin fyllsta trausti til þeirra
sem fara, en mótmælti vinnubrögð-
unum við undirbúning ferðarinnar,
að gengið skyldi hafa verið framhjá
henni við ákvörðun ferðarinnar.
Hafa Ungverjarnir óskað eftir svari
fyrir lok mánaðarins og þyí áríð-
andi að athuga vagna þeirra sem
fyrst. Stjórninni þykir einsýnt að
skoða beri vandlega tilboð Ungverj-
anna vegna þess hve hagstætt það
virðist og hafði verið 'talað um að
fulltrúi hennar og fulltrúi vagn-
stjóra fengju að vera með í ráðum.
Guðrún Ágústsdóttir formaður
stjórnar SVR kvað mjög áríðandi
að fá nýja vagna til notkunar fyrir
haustið og yrði m.a. að skoða
tilboðin með afgreiðslufrest í huga
og kæmi því e.t.v. til greina að taka
vagna frá fleiri en einum aðila ef
það þætti fljótlegra. Hins vegar
væri ekkert hægt að segja um
tilboðin enn sem komið væri, at-
hugun þeirra væri á frumstigi og
eftir að álitsgerðin um vagna Ung-
verjanna lægi fyrir, myndi Inn-
kaupastofnunin og stjórn SVR
fjalla um málið og síðan borgarráð
og borgarstjórn einnig og taka um
það ákvörðun.
BSRB mótmælir
mannréttinda-
brotum í Sovét
og Guatemala
STJÓRN BSRB, Bandalags starís-
manna ríkis og bæja, hefur í
samvinnu við Islandsdeild Am-
nesty International sent orðsend-
ingu til Breznevs forseta Sovét-
rikjanna, þar sem mótmælt er
meðferðinni og handtökum á þeim
einstaklingum og hópum. sem
barizt hafa fyrir óskertum mann-
réttindum í samræmi við Hels-
inki-sáttmálann frá 1975.
Einnig sendi stjórn BSRB mót-
mælaorðsendingu til Lucas Garcia
forseta Guatemala vegna fangels-
ana og dauða verkalýðsforingja
o.fl., sem framkvæmd hafa verið af
stj órnarhersveitum án dóms og
laga.