Morgunblaðið - 16.02.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
3
VERÐLÆKKANIR urðu fyrir nokkru á Banda-
ríkjamarkaði á ýmsum íslenzkum fiskafurðum. Þorsk-
blokkin lækkaði um 5 sent, úr 108 sentum í 103 sent eða
um 4,6%. Ufsaflök lækkuðu sömuleiðis um 6 sent, úr 96
sentum í 90 sent hvert pund eða um rúm 5%. Ýsublokk
lækkaði um 5 sent, úr 130 sentum í 125 sent eða um 3,8%.
Loks varð um 10 senta lækkun á karfaflökum og
karfabíokk.
Til að grennslast fyrir um helztu ástæður fyrir
þessum lækkunum hafði Morgunblaðið samband við
Þorstein Gíslason, forstjóra Coldwater Seafood í Scars-
dale í Bandaríkjunum. Var Þorsteinn fyrst spurður um
ástæðurnar.
— Verðlækkanir á ýmsum fisk-
afurðum á Bandaríkjamarkaði,
sem við ákváðum nýlega, voru
aðallega gerðar af tveimur ástæð-
um:
Ufsa- og karfaflök voru lækkuð
sem liður í ráðstöfunum til að
auka sölu þeirra vegna mikilla
birgða. Fiskblokkir voru lækkaðar
til samræmis við markaðsverð,
sem auðvitað mótast alltaf af
framboði og eftirspurn. Við höf-
um ekki lækkað verð á þorskflök-
um eða ýsuflökum, sem eru þó í
mjög háu verði miðað við framboö
annarra.
— Sá hluti fiskafurðanna er sá
langmikilvægasti að verðmætum í
útflutningi fiskafurða íslendinga
til Bandaríkjanna. Þótt þorsk-
blokkir séu oft nefndar sem við-
miðun í verðum, þá eru þær nú í
rauninni orðnar aukaafurðir, sem
skipta minnkandi máli, hvað
heildarverðmæti snertir. Það er
ekki hægt að greiða hærra verð
fyrir þær en það sem myndast á
markaðnum almennt.
— Eins og kunnugt er, hefur
framleiðsla á karfa og ufsa fyrir
Bandaríkjamarkaðinn aukist
mjög verulega vegna veiðitak-
markana á þorski og mikillar
afkastagetu veiðiflotans. Þess
vegna er nú mjög nauðsynlegt að
auka sölur á þessum tegundum í
Bandaríkjunum enn meira en
áður, og þarf sú aukning að geta
orðið á miklu styttri tíma en
venjulega myndi þurfa til þess.
Þetta er verið að gera með því að
beita sölukerfinu og verksmiðjum
okkar eins og hægt er, og koma af
stað nýrri og aukinni notkun á
þessum afurðum, sem markaður-
inn er raunverulega ekki að kalla
eftir. Nauðsynlegur liður í þessari
herferð er að verðleggja þannig,
að slík söluaukning sé möguleg.
„Sala okkar á þorskflökum
stendur á traustum fótum“
Hörð verðsamkeppni
Þá var Þorsteinn spurður hverj-
ar horfurnar væru framundan og
hvort ástæða væri til að óttast
frekari lækkanir.
— Það lítur út fyrir að mikil
söluaukning á karfa og ufsa muni
takast, en það mun sýna sig á
næstu mánuðum. Samkeppni í
sölu allra fiskafurða á Banda-
ríkjamarkaði hefur harðnað mjög
í seinni tíð. Umsetning veitinga-
húsa hefur minnkað verulega
vegna minni fjárráða almennings.
Þetta ástand útheimtir, að við
seljum til fleiri aðilja en áður til
Útlit fyrir
að söluaukn-
ing á ufsa
og karfa
takist
þess að bæta upp minni notkun
hvers og eins.
— Sala okkar á þórskflökum
stendur á mjög traustum fótum
og við vonumst til að geta staðið
af okkur hina óvenjulegu, hörðu
verðsamkeppni, aðallega frá
Kanada. í þeirri samkeppni er það
okkur til hjálpar, að Kanadamenn
selja hver um annan þveran án
sérstakra sölusamtaka.
— Hvað verðbreytingar snert-
ir, þá vil ég ekki spá um þær.
Þegar þær eru nauðsynlegar eru
þær alltaf gerðar fyrirvaralaust
og ástæðurnar, sem valda þeim,
ber oft brátt að. Það er auk þess
ekki mögulegt að leysa vel af
hendi verðlagningu með því að
gefa fyrirfram miklar yfirlýs-
ingar um útlit.
— Verðin eru alltaf hækkuð
þegar birgðastaða og sölumögu-
leikar gera það mögulegt. Hins
vegar getur sérstök markaðs-
tregða og mikil birgðaaukning
gert verðlækkanir algjörlega
nauðsynlegar. Sé þeim beitt jafn-
framt víðtækri sölustarfsemi, þá
eiga þær að leiða til aukinnar
neyzlu á þeim tegundum, sem við
höfum að bjóða, sem síðar renna
stoðum undir það háa verð, sem
við höfum alltaf verið þekktir
fyrir, sagði Þorsteinn Gíslason að
lokum.
Loftmynd af verksmiðju Coldwater i Everett i Massachusetts og neðst á myndinni er Goðafoss.
Þorsteinn Gíslason forstjóri Coldwater:
MIT5UBISHI
MOTORS
COLT er framhjóladrifinn.
COLT er sparneytinn (eyösla 7I./100 km.).
coa er rúmgóður.
COLT er fáanlegur 3 og 5 dyra.
Sá besti frá JAPAN
Komiö, skoðið og reynsluakið COLT1980 frá MITSUBISHI.
Varahluta og viðgerðarþjónusta Heklu hf. er landskunn.