Morgunblaðið - 16.02.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
BSRB leigir land undir
30 orlofshús á Eiðum
Útlit fyrir að Sigurður
verði enn aflahæstur
NÝLEGA var gengið frá 75 ára
leigusamningi milli BSRB og rikis-
ins á um það bil 20 hektara
landspildu i Eiðalandi á Héraði og
ætlar Bandalag starfsmanna rikis
og bæja að reisa þar 30 orlofshús
fyrir félagsmenn sína. Fyrir á
BSRB Munaðarnes, þar sem nú eru
68 orlofshús ásamt þjónustmiðstöð
og starfsmannahúsi.
Samkvaemt upplýsingum Krist-
jáns Thorlacius, formanns BSRB
hefur ekki verið gengið endanlega
frá samningnum, þar sem enn hefur
ekki verið fullnægt fyrirvörum að
undirritun samninganna, sem eru
samþykki menntamálaráðherra og
stjórnar BSRB. Kristján kvað við-
ræður um leigu þessa lands hafa
hafizt haustið 1976, en þá náðjst
samkomulag um málið milli BSRB
og þáverandi menntamálaráðherra
um viðræður. Vísaði ráðuneytið
siðan á skólanefnd og skólastjóra
sem aðila málsins og var gengið frá
samkomulaginu sem tillögu til
menntamálaráðherra og stjórnar
BSRB í fyrradag.
Kristján sagði, að í samningnum
væri heimilaður aðgangur að úti-
vistarsvæði í Eiðalandi, skógrækt-
argirðingunni, sem er stór, en sjálft
svæðið, sem BSRB fær er skógi
vaxið á svokölluðum Stórhaga, í
útjaðri skógræktarinnar á Eiðum,
mjög fallegur staður.
Hjörleifur
Guttormsson:
44
Bessastaða-
árvirkjun er
„ekki aiskrífuð
HJÖRLEIFUR Guttormsson,
iðnaðar- og orkumálaráðherra,
hafði samband við Mbl. i gær og
kvaðst vilja taka fram vegna
fyrirsagnar á frétt í Mbl. í gær,
að Bessastaðaárvirkjun hefði
„ekki verið afskrifuð“, eins og
einhverjir kynnu að lesa út úr
fyrirsögn blaðsins.
„Bessastaðaárvirkjun ein sér,
eða sem hluti af stærri heild,
verður áfram á dagskrá við
athugun virkjunarkosta," sagði
Hjörleifur. „En með nýrri ríkis-
stjórn þurfa mál af þessu tagi
athugunar við, áður en ákvörðun
er tekin, eins og fram kemur í
samtali mínu við Morgunblaðið."
BÚAST MÁ við, að loðnuaflinn á
vertíðinni verði rétt innan við
290 þúsund tonn. Loðnuskipin
máttu hvert koma einu sinni með
fullfermi að landi frá hádegi á
miðvikudag og reikna með að sá
afli verði rúmlega 35 þúsund
lestir ef allt gengur að óskum.
Fram að síðasta túr höfðu skipin
fengið 251 þúsund tonn.
Útlit er fyrir að Sigurður RE 4
verði aflahæsta skipið á vertíðinni
eins og svo oft áður, en skipstjórar
eru þeir Kristbjörn Árnason og
Haraldur Ágústsson. Sigurður er
nú kominn með tæplega 10 þúsund
lestir, en Júpiter RE, sem er með
næst mestan afla, er með um 9
þúsund lestir og Bjarni Ólafsson
AK með tæplega 9 þúsund. Síðan
koma Víkingur AK, Pétur Jónsson
RE, Grindvíkingur GK, Börkur NK,
Eldborg HF, Hákon ÞH, Guðmund-
Stjórn SUS vill landsfund
Sjálfstæðisflokkvsins í haust
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá stjórn
Sambands ungra sjálfstæðismanna, en ályktunin var samþykkt
samhljóða á fundi stjórnarinnar þann 13. þessa mánaðar:
„Samband ungra sjálfstæð-
ismanna harmar þá stöðu sem
komin er upp í Sjálfstæðisflokkn-
um þar sem Sjálfstæðismenn eru
klofnir í afstöðu sinni til ríkis-
stjórnar.
Stjórn Sambands ungra sjálf-
stæðismanna skorar á alla for-
ustumenn Sjálfstæðisflokksins að
forðast nú allt það sem getur gert
sættir sjálfstæðismanna erfiðari.
Jafnframt skorar stjórn SUS á
sjálfstæðismenn um land allt að
vinna eftir mætti að samkomu-
lagi og sáttum innan flokksins.
Stjórn sambands ungra sjálf-
stæðismanna telur að unnt sé að
leysa innanflokksvandamál Sjálf-
stæðisflokksins án þess að til
beins klofnings komi og skorar á
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins að
boða til landsfundar flokksins
síðar á þessu ári er hafi lausn
þessara mála að markmiði."
Þá var rætt um afstöðu S.U.S.
til ríkisstjórnarinnar, er ákveðið
að víða með að boða endanlega
afstöðu, til Sambandsráðsfundar
sem haldinn verður 23. febrúar
n.k., en þar eiga rúmlega 100
forustumenn ungra sjálfstæð-
ismanna um land allt rétt til
fundarsetu.
ur RE, Hrafn GK, Óli Óskars RE,
Gullberg VE og Haförn (áður Loft-
ur Baldvinsson). Þessi röð kann þó
að breytast, því burðargeta skip-
anna er mismikil og er byggð á
áætluðu aflamagni.
I fyrrakvöld lagaðist veður á
loðnumiðunum og er leið á nóttina
var komið allgott veður. Sex skip
tilkynntu þá um afla og héldu til
lands með síðasta farminn í þessari
lotu. Aflinn fékkst út af Þistilfirði.
Eftirtalin skip tilkynntu um afla í
fyrrakvöld og fyrrinótt: Hilmir II
350, Náttfari 515, Óskar Halldórs-
son 410, Albert 580, Seley 430, Örn
580.
Flugvel til sölu
TF-AIE NAVION A 205 ha. Flugvélin er í mjög góöu
standi meö nýuppgeröum mótor nýlegri ársskoöun og
nýsprautuö. Nánari upplýsingar í vinnusíma 51714 eða
heimasíma 52522.
Til ágóða fyrir Skálatúns-
heimilið
verður haldin skemmtun í Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði,
laugardaginn 16. febrúar kl. 21. Fjölbreytt efni. — Flytjendur: Elva
Gísladóttir, Svana Thompson, Guöbrandur Valdemarsson — og
Magnús Kristjánsson með gamlar revíu- og gamanvísur.
Fjölmenniö og styrkið gott málefni.
Bifreidastjórafélagið Sleipnir
Aðalfundur
félagsins veröur haldinn mánudagskvöldiö 18.
febrúar n.k. í Iðnaðarmannahúsinu, Hallveigarstíg
1, og hefst kl. 20.00.
Dagskrá.
1. Venjulega aöalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Áríðandi aö mæta vel og stundvíslega.
F.H. Bifreiðastjórafélagsíns Sleipnis,
Alþýöusamband íslands
Þú geturbyggt tvívegis
með Elite-plötunni
Elitc-platan frá „Norske Skog“ er vatnsþolin, hún þolir með öðrum orðum að notast
fyrir steypumót. En þessar stcypumótspiötur eru mjög sérstakar — það má nota þær
aftur sem t.d., þakklæðningu.
Elife platan frá „Norske Skog“ er einnig fyrirtaks klæðningarefni þar sem mikiar
kröfur eru gerðar tii rakaþols, til dæmis í baðherbergjum, þvottahúsum, gripahúsum,
í geymslum og svo framvegis.
Ending Elite-plötunnar fullnægir ströngustu kröfum varðandi vatnsþol og
veðurþol, og er hún því mjög hentug til allra bygginga.
Orkla spónaplötur fást hjá flestum timbursölum og byggingavöruverzlunum um
land allt.
&
Norske Skoe
Norgke Skogindustrier AS °
Einkaumboð á íslandi MJÖLNIR IIEILDVERZLUN h.f., Síðumúia 33,
105 Reykjavík. Sími 84255.