Morgunblaðið - 16.02.1980, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
Með Jules Verne *
umhverfis jörðina í/t
Á æfingu: Helga Leifsdóttir og Bjarni Guðmarsson.
Herranótt M. R:
Umhverfis jörðina á átta-
tíu dögum
eftir Bengt Ahlfors.
Lauslega byggt á samnefndri
sögu Jules Verne.
Þýðandi. Stefán Baldursson.
Leikstjóri: Jórunn Sigurðar-
dóttir.
Leikmynd: Geir óttar Geirsson
og Stefán Benediktsson.
Búningar: Guðbjörg Pálsdóttir
og Hildur Jóhannesdóttir.
Ljósamenn: Magnús Baldurs-
son og Gunnar Sigurjónsson.
Skraparrótarprédikun: Mar-
grét Rún Guðmundsdóttir.
Skáldsaga Jules Verni Um-
hverfis jörðina á áttatíu dögum
kom út 1872. Það er til marks um
langlífi sögunnar og vinsældir
að 1969 semur Bengt Ahlfors
eftir henni leikrit sem nú er sýnt
á Herranótt Menntaskólans í
Reykjavík. í Herranæturspjalli í
leikskrá skrifar Guðrún Bald-
vinsdóttir m.a. að „okkar mark-
mið er að hressa upp á skamm-
degið, gera lífið léttara". Þetta
hefur tekist, enda val viðfangs-
efnis í þeim anda.
Leikritsgerð Bengts Ahlfors á
sögu Jules Verne er trú hinni
ævintýralegu frásögn og ágæt-
lega gamansöm. Að vísu er
nokkur áhersla lögð á félagslega
hlið verksins. Það bil sem er á
milli þjóns og herra, fátækra og
ríkra. Hér gefst tækifæri til að
sýna áhorfandanum inn í hug-
arheim framandi þjóða, siði
þeirra og kreddur. Hinn enski
herramaður Phileas Fogg lætur
hvergi undan síga. Hugkvæmni
hans eru engin takmörk sett.
Hann ætlar sér að vinna veðmál-
ið um að hann komist kringum
Lelklisl
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
jörðina á áttatíu dögum. Á
tilteknum tíma verður hann að
hitta félaga sína í Umbóta-
klúbbnum heima í London. Mæti
hann alvarlegum hindrunum á
leiðinni veifar hann seðlum og
þá er eins og greiðist úr öllu.
Meðal skemmtilegra atvika
þessa dæmalausa ferðalags er
það þegar þeir hittast Phileas
Fogg og Buffalo Bill, en fullt er
af kátlegum atriðum í sýning-
unni. Fogg og hinn trúi þjónn
hans Passepartout eru eltir á
leiðarenda af leynilögreglu-
manninum Fix sem hefur fengið
þá flugu í höfuðið að Fogg sé
eftirlýstur ræningi. En þótt Fix
geri allt til að tefja fyrir þeim
félögum bregst Fogg að lokum
gagnvart honum eins og sönnum
heiðursmanni sæmir. Fogg upp-
sker líka það sem mest er um
vert: hamingjuna sjálfa í gervi
indversku fríðleikskonunnar
Aúdu.
Bjarni Guðmarsson leikur
Phileas Fogg og er túlkun hans
kunnáttusamleg og markviss af
svo ungum leikara. Ekki er
Stefán G. Stefánsson síðri í
hlutverki Passepartout og sama
er að segja um Ingólf S. Guð-
jónsson sem er Fix spæjari.
Hlutverk eru mörg. Meðal minn-
isstæðrar túlkunar má nefna
fílaeiganda Skúla Gunnarssonar
og Buffalo Bill í höndum Bjarna
Lárussonar. Helga Leifsdóttir
kom Aúdu prýðilega til skila.
Þannig mætti lengi halda áfram
að telja upp því að furðu lítill
viðvaningsbragur er á þessari
sýningu.
Leikstjórinn Jórunn Sigurðar-
dóttir sem lært hefur leikhús-
fræði og leiklist í Þýskalandi
hefur skilað ágætu verki. Hún
hefur áður komið við sögu
Herranætur. Leikmynd var að
vonum einföld, en við hæfi hins
þrönga sviðs Austurbæjarskól-
ans.
Þessa sýningu ættu sem flestir
að sjá.
Leikhópur M.R.
Jóhann F. Guðmundsson:
Komið til mín, allir!
Ný hárgreiðslustofa
Tvíburasysturnar Guðrún og Margrét Sigurðardætur hafa opnað
hárgreiðslustofuna Turkis að Langholtsvegi 17. Á boðstólum er öll
hársnyrting, svo sem dömu- og herraklipping, permanent, litun,
blástur og hárgreiðsla.
Bandalag íslenskra námsmanna:
Efnahagslegt jafnrétti til
náms að loknum grunnskóla
Mitt í önn dagsins, gegnum
skarkala heimsins, hvort sem þú
ert einn eða í margmenni, á
sjúkrahúsi, í fangelsi eða frjáls,
hvort sem í hjarta þínu ríkir gleði
eða sorg, þá kallar þessi rödd
kærleikans til þín:
„Komið til mín, allir þér, sem
erfiðið og þunga eruð hlaðnir og
ég mun veita yður hvíld."
Hér er ekki farið í manngrein-
arálit, öllum stendur til boða að
koma til Jesú krists með erfið-
leika, áhyggjur, sjúkdóma, von-
brigði, sorg, allt, sem þjakar líf
þitt, öll vandamál þess, hið
minnsta og stærsta. Hvernig sem
staða þín er fyrir guði og
mönnum, þegar þú lest þessi orð,
þá,' engu að síður, segir Jesús:
Komið til mín — Jesús fylgir
þessum orðum eftir með því að
segja: „Engan sem til mín kemur
mun ég burtu reka.“ Hvernig
skeður þetta? Að koma til Jesú?
Kannski er stærsta hindrunin, hve
einfalt það er. Engin skilyrði eru
sett af hendi Jesú. Hann þekkir
þegar allt, sem varðar líf þitt, veit
um hvert smáatriði, ekkert sem
þig varðar er honum hulið. Þrátt
fyrir það, elskar Hann þig og þráir
að hjálpa þér, styðja þig og leiða.
Menn æða heimsálfa á milli í
leit að lækningu, hvíld, friði.
Allt þetta er að finna hjá Jesú, í
kirkjunni þinni, á heimili þínu,
sjúkrahúsum, vinnustöðum, í
gönguferð, bílnum þínum, Jesús er
ávallt nálægur. „Hvert get ég flúið
ffa augliti þínu,“ segir Davíð í 139.
sálminum.
Dag og nótt er Hann til viðtals,
aldrei of upptekinn til þess að
hlusta á öll þín vandamál. Hann
biður þig að hlusta á sig í orði
sínu. „Þetta er mitt boðorð, að þér
elskið hver annan, eins og ég hef
elskað yður.“
Þannig stendur Jesús við dyr
hjarta þíns, knýr á og segir:
„Barnið mitt, ég keypti þig með
lífi mínu á Golgata. Kom þú til
mín.“
Jesús notar ekki vald sitt, Guð
gaf þér frelsi til þess að velja og
hafna, en Jesús kallar á þig í
kærleika sínum og vill gefa þér
himin sinn. Hann sem er konung-
ur konunga lýtur niður að hjarta
þínu og segir: „Fylg þú mér.“
Bíður þér í kærleik sínum að rétta
af áttavita lífs þíns og setja
stefnuna á himin Guðs. Hver sem
þú ert, hvar sem þú ert. — Allir —
enginn er undanskilinn. Komið til
mín.
Jesús Kristur segir ekki: „Farið
frá mér til kuklara — miðla —
andalækna."
Jesús á allt vald á himni og
jörðu. Hann segir: „Komið til
mín.“
Jesús segir í Matt. 24.5: „Gætið
þess að enginn leiði yður í villu því
að margir munu koma í mínu
nafni."
Þetta er stærsta vandamál
íslendinga í dag að verðbólgu
meðtalinni.
Margir munu koma í mínu
nafni. Guðspeki — Spíritismi —
Bahai — Vottar — Mormónar —
Anada Marga — Moons — o.fl.
Lesa má í Matt 24.23: Ef einhver
segir við yður, Sjá, hér er Kristur,
eða hér, Þá trúið því ekki, því að
upp munu rísa falskristar og
falsspámenn og þeir munu gjöra
stór tákn og undur til þess að leiða
í villu jafnvel útvalda.
Tökum dæmi. Bresk kona, talin
huglæknir, var nýlega hér á landi.
Hún segir aðspurð í tímaritsgrein
(Líf 4. tbl. 2. árg 1979). Hver er
leiðbeinandi þinn að handan?:
„Hvíti örninn er aðalleiðbeinandi
minn“!!!
Hverjum getur dottið í hug að
dauður indiáni, jafnvel þótt heitið
hafi Hvíti örninn, sé þess umkom-
inn að lækna íslendinga í dag?
Það hefur hula sezt á augu allt of
margra, þannig að þeir trúa á verk
hins dauða indiána, en gleyma
Jesú Kristi, frelsara heimsins.
Jesús Kristur er í dag lifandi
staðreynd í lífi milljóna manna
um allan heim. Þeirra sem trúa á
mátt blóðs Hans til frelsunar frá
synd og dauða, manna sem trúa á
upprisu Hans og endurkomu.
Manna sem lifa í Honum og Hann
í þeim, sem hafa reynt áhrifamátt
bæna til Jesú Krists fyrir þeim
sem sjúkir eru.
Baráttan sem vér eigum í er
ekki við hold og blóð, heldur við
tignirnar og völdin, við heims-
drottna. Þessa myrkurs, við anda-
verur vonskunnar í himingeimn-
um (EF. 6.12).
Guð gefi íslensku þjóðinni að
þekkja sinn vitjunartíma, að hún
láti sættast við Guð.
„Gætið þess því vandlega.
— Líf yðar liggur við — að
elska Drottinn, guð yðar.“ (Jós.
23.11.)
„Komið til mín, allir þér, sem
erfiðið og þunga eruð hlaðnir og
ég mun veita yður hvíld." (Matt.
11.28.)
Jóhann F. Guðmundsson.
SAMÞYKKT var á stjórnarfundi
Bandalags íslenskra námsmanna
laugardaginn 26. jan. s.i. að
skora á stjórnvöld að sjá til þess
að efnahagslegt jafnrétti sé til
náms að loknum grunnskóla.
Þá var samþykkt ályktun þess
efnis, að þau réttindi sem sérskól-
arnir hafa nú innan L.Í.N. verði
ekki skert og að stjórnvöld sjái
fyrir þeirri fjárveitingu til L.Í.N.
sem þarf til að taka inn eftirfar-
andi nýjar bekkjardeildir:
1. ár Fósturskóla íslands, 1. ár
Iljúkrunarskóla íslands, 1. ár
Bændaskóians á Hvanneyri, 1 ár
Þroskaþjáifaskóla íslands og 1.
og 2. ár Myndlista- og handiða-
skóla Islands. Að lokum var
samþykkt áiyktun um að stjórn-
völd sjái fyrir fjárveitingu handa
L.Í.N. sem farið er fram á í
f járhagsáætlun sjóðsins.
Alfreð for-
stöðumaður
Kjarvalsstaða
I blaðinu í gær segir í myndar-
texta, að Þóra Kristjánsdóttir sé
forstöðumaður Kjarvalsstaða.
Þetta er ekki rétt, Alfreð Guð-
mundsson er forstöðumaður húss-
ins, en Þóra Kristjánsdóttir list-
ráðunautur.