Morgunblaðið - 16.02.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
15
Sveinn Valfells:
Dæmi um íslenzka iðn-
aðarstefnu i framkvæmd
Á undanförnum árum hefur
mikið verið fjallað um nauðsyn
iðnþróunar á íslandi og skammt
er að minnast iðnkynningarárs
þar sem haldið var á lofti slagorð-
inu „Kaupum íslenskt". Einn þátt-
ur iðnaðar sem íslendingar hafa
átt verulega markaðshlutdeild í er
byggingariðnaður. Vegna náttúru
landsins er aðeins völ á einu
alíslensku byggingarefni en það er
steinsteypa. Heyrst hefur sú full-
yrðing að íslenskur byggingariðn-
aður sé ekki í samkeppni við
erlendan byggingariðnað vegna
legu landsins. Islenskur bygg-
ingariðnaður naut tollverndar
sem nú er fallin niður og benda
má afað í Færeyjum eru flest
íbúðarhús innflutt og byggingar-
iðnaður gjörólíkur því sem hér
gerist. Undirritaður ætlar ekki að
krefjast afturhvarfs til tollvernd-
ar og hafta, heldur þess að þeir
sem framleiða úr alíslenskum
hráefnum séu ekki skattpíndir
eins svívirðilega og nú er gert með
tollum, vörugjaldi og söluskatti á
vélum er notaðar eru til fram-
leiðslu steinsteypuefna.
Það getur ekki hafa farið fram
hjá nokkrum manni hinn sívax-
andi innflutningur á stálgrindar-
húsum og timburhúsum. Fram til
ársins 1977 voru stálgrindarhús
tollflokkuð með öðrum stálgrind-
armannvirkjum en eftir það sér-
staklega. Eftirfarandi tafla sýnir
innflutning á stálmannvirkjum og
timburhúsum á árinu 1965 fyrir
samninga við E.B.E. á árinu 1971
fyrst eftir samninga við E.B.E. og
svo á árunum 1977—78.
Flóamarkaður
hjá KR-konum
K.R. KONUR hafa i vetur unnið
af miklum krafti til þess að efla
félagið og ekki láta þær deigan
siga þvi nú er komið að hinum
árlega flóamarkaði þeirra.
Þar verður á boðstólum margt
eigulegra hluta bæði gamlir, nýir
og eldgamlir munir t.d. fatnaður,
sportfatnaður, búsáhöld, skraut-
munir o.fl. o.fl.
KR.-konur vilja hvetja fólk til
að koma við í K.R.-heimilinu á
sunnudaginn og líta á úrvalið. Það
getur orðið skemmtun fyrir alla
fjölskylduna að taka þátt í mark-
aðsstemmningunni og „prúttinu".
Flóamarkaðurinn verður á
sunnudaginn 17. febr. n.k. kl. 1 eh.
í K.R.-heimilinu við Frostaskjól.
(Fréttatilkynning)
Skemmtun fyr-
ir aldraða
Hafnfirðinga
KIWANISKLÚBBURINN Eldborg í
Hafnarfirði heldur skemmtun fyrir
aldraða borgara í veitingahúsinu
Snekkjunni, Reykjavíkurvegi 1, n.k.
sunnudag kl. 3 e.h. Að venju munu
þeir félagar ásamt eiginkonum
stuðla að ánægjulegri samveru-
stund. Borið verður fram kaffi og
ennfremur verður sitthvað til
skemmtunar.
Þeir, sem óska eftir að verða
sóttir, eru beðnir að hringja í síma
52502 eftir kl. 2 á sunnudag.
Leiðrétting
í FRÉTT um maraþondanskeppnina
á bls. 19 í Mbl. í gær er sagt að
Gunnar Vilhelmsson hafi lent í öðru
sæti í keppninni. Þetta er ekki rétt,
því í öðru sæti var Sigmar Vil-
helmsson og biðst blaðið velvirð-
ingar á þessari rangfærslu.
ár stálmannvirki stálgrindarhús timburhús
1965 787,5 tonn 31,5 tonn
1971 434,4 tonn 46,2 tonn
1977 1017,8 tonn 896,1 tonn 505,9 tonn
1978 1812,6 tonn 1755,3 tonn 337,1 tonn
Eins og sjá má tvöfaldaðist steypumalar og sands. Steypuefni
innflutningur stálgrindarhúsa á
milli áranna 1977—78 og innflutn-
ingur timburhúsa hefur tífaldast
að magni síðan fyrir samninga við
E.B.E. og E.F.T.A. Löggjafinn
viðurkenndi að framleiðendur
steinsteypu ættu í samkeppni við
innflutning húsa og húshluta er
tollar voru felldir niður á steypu-
hrærivélum árið 1978 sbr. tollskrá
frá 1977.
Veigamikill þáttur steinsteypu-
gerðar er vinnsla jarðefna,
er unnið úr bergi og melum. Til
þess eru notaðar vélar er flytja,
mylja, harpa og sundurgreina
efnið og því næst er það þvegið í
tilheyrandi vélum ef þess er þörf.
Mikið er undir því komið að til
steypugerðar sé vel vandað sbr.
tjón er orðið hefur víða á mann-
virkjum vegna lélegs sements og
óþveginna steypuefna úr sjó.
Slíkar vélar er nota þarf til
jarðefnavinnslu á landi eru hátoll-
aðar svo halda mætti að hér væri
Sveinn Valfells
um munaðarvöru að ræðe.
Ámokstursskóflur falla undir toll-
flokk 8.24.30 og er 25% tollur, 24%
vörugjald og 24,2% söluskattur, er
til samans gerir 92,5% aðflutn-
ingsgjöld á slík tæki. Á vélum til
flutninga á jarðefnum í námunum
(ekki til aksturs á vegum) leggst
30% tollur, 24,2% söluskattur sem
gerir 61,5% aðflutningsgjöld. Þar
á ofan innheimtir ríkið þunga-
skatt á slík tæki sem lögreglan
bannar að aka á vegum landsins.
Á vélum til „sundurgreiningar,
sáldrunar og þvotta" steypuefnis
leggst 18% tollur, 24% vörugjald
og 24,2% söluskattur eða samtals
81,7% aðflutningsgjöld. Slíkt er
kerfið. Meðan meðferðin á íslensk-
um iðnaði, er vinnur úr alislensk-
um hráefnum, sem er í vaxandi
samkeppni við tollfrjálsan inn
flutning erlendrar vöru, er slík,
sem raun er á, má áætla að allt tal
um eflingu íslensks iðnaðar sé
meira í orði en á borði og einungis
notað til að glepja fyrir kjósend-
um. Afleiðingin af þessu er sú að
fáir eða engir hafa ráð á því að
flytja inn ný tæki til landsins þar
sem staðgreiða verður tollinn, en í
stað þess flytja inn gamlar vélar
sem leiðir til þess að fluttir eru
inn dýrir varahlutir sem kosta
þjóðina margfalt meiri gjaldeyri.
Virðingarfyllst,
Sveinn Valfells,
verkfræðingur.
nýja FACIT
kúlurítvélin
til synis
á sunnudag
Þá er Facit 1850, nýja kúluritvélin mætt til
leiks. Stórglæsileg og sérstaklega vönduð
vél með öllum þeim eiginleikum sem er hægt
að óska sér.
Við bjóðum hana velkomna með sýningu
sunnudaginn 17. febrúar milli kl. 2 og 6. Um
leið sýnum við fjölda annarra skrifstofuvéla.
skrifstofuhúsgögn. veggeiningar o.fl.
GfSLI J. JOHNSEN HF IHH
Smiðjuvegi 8 - Simi 73111