Morgunblaðið - 16.02.1980, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
Bollur í matinn
Bolludagur
Svo er nú nefndur mánudagur-
inn í föstuinngang. Þetta heiti
hans mun reyndar vera tiltölu-
lega ungt, en fyrirbærið sjálft er
þó a.m.k. nálægt hundrað ára
gamalt hérlendis. Flest bendir
til að siðurinn hafi borist hingað
fyrir dönsk eða norsk áhrif á
síðari hluta 19. aldar, líklega að
frumkvæði þarlendra bakara,
sem settust hér að . Þó hefur
hann öðlast hér nokkra sérstöðu.
Aðalþættir hans eru tveir: að
flengja menn með vendi, áður en
þeir komast úr bólinu, og fá í
staðinn eitthvert góðgæti, hér
rjómabollur.
Fyrra atriðið mun eiga rót
sína að rekja til þeirra hirtinga
og písla, sem menn lögðu á sig og
aðra sem iðrunarmerki á föst-
unni til að minnast pínu frelsar-
ans. En eftir siðbreytinguna
þróaðist þetta hvarvetna smám
saman yfir í gamanmál.
Bolluátið mun hinsvegar vera
leif frafþví að „fasta við hvítan
mat“ nema nú var hann mun
betur úti látinn en fyrrum.
Þesskonar bolluát eða feitmetis-
át virðist á öðrum Norðulöndum
reyndar hafa verið meir bundið
við þriðjudaginn næsta. En á
íslandi hafa menn fest þennan
sið við mánudaginn, sennilega til
að trufla ekki hefðbundinn mat-
arsið morgundagsins.
Vitað er, að ekki síðar en milli
1880—90 höfðu börn í Hafnar-
firði og Reykjavík fyrir sið að
fara fylktu liði um götur á
bolludaginn, búin stríðsklæðum
og trévopnum með bumbuslætti
og söng, og sníkja peninga eða
sælgæti í verslunum. Er þetta
arfur frá „föstugangshlaupum"
þeim, sem einnig verður vikið að
í sambandi við næstu tvo daga.
(Þ.e. í næstu tveim köflum bók-
arinnar, sem fjalla um sprengi-
dag og öskudag).
Úr bókinni Sa(?a dacanna, eftir
Árna Bjórn.sson, sem i$efin var út
1977.
Richard Rodgers
o g lögin hans
Það er nær óhugsandi, að þeir
menn finnist, sem ekki hrífast af
ljúfu lögunum hans Rodgers.
Þegar hann lést í lok síðasta
árs, 77 ára að aldri, lét hann
eftir sig á annað þúsund sönglög
og meira en fjörutíu söngleiki.
Mörg af þessum lögum eru
hreint ógleymanleg, eða hver
man ekki „Hello Young Lovers",
„With a Song in my Heart",
„June is Busting Out All Over“
og „My Funny Valentine"?
Richard Rodgers fæddist í
New York árið 1902, afkomandi
rússneskra innflytjenda. Faðir
hans var efnaður læknir, sem fór
með fjölskylduna til að hlusta á
óperur og annan tónlistarflutn-
ing. Móðir Rodgers spilaði á
píanó, og fjögurra ára gamall
gat drengurinn spilað lög eftir
eyranu á það hljóðfæri. Tónlist-
argáfan var greinileg, en áhugi
fyrir æfingum og námi var
takmarkaður.
Meðan Rodgers stundaði nám
við Columbia University samdi
hann nokkur lög við ljóð annars
skólasveins, Lorenz Hart, fyrir
skólasýningar árin 1920 og 21.
Nítján ára gamall hætti Rodg-
ers í skóla til að geta helgað sig
tónsmíði. Það gekk ekki eins vel
og hann hafði vonað, að koma
verkum sínum á framfæri. Þegar
hann var 22 ára gamall hafði
hann nær því gefist upp, taldi
sjálfan sig „mislukkaðan"
tónsmið og var kominn á
fremsta hlunn með að ráða sig
sem sölumann við barnaundir-
fatagerð.
Richard Rogers: 1902—1979.
En þá var hann beðinn um að
semja lög fyrir sýningu hjá
leikarasamtökunum. Úr því varð
(árið 1925) „The Garrick Gaiet-
ies,“ sem gekk á Broadway í
hálft ár. Lag hans, úr þeirri
sýningu, „Manhattan" hlaut fá-
dæma hylli, og varð „efst á
vinsældarlistanum", svo notað
sé orðalag seinni tíma. Næstu
tvö árin sömdu þeir félagar,
Rodgers og Hart, 5 söngleiki,
sem allir voru sýndir á Broad-
way. Samstarf þeirra hélst óslic-
ið í 24 ár og afraksturinn 27
söngleikir. Eftir lát Hart, árið
1943, hóf Rodgers samstarf við
Oscar Hammerstein, sem hélst
þar til sá síðarnefndi lést, árið
1960.
Margir hafa það fyrir sið, að
borða kjöt- eða fiskibollur á
bolludaginn, auk þess að hafa
rjómabollur í ábæti eða með
kaffinu.
Gott fiskfars
í bollur
500 gr. þorsk- eða ýsuflak,
2 egg,
4 matsk. bráðið smjörlíki,
5 dl. rjómabland eða mjólk,
IV2 matsk. kartöflumjöl,
salt, pipar.
Fiskurinn hakkaður, helst
þrisvar sinnum. Síðan er hrært
saman við þeyttum eggjunum,
kældu smjörlíkinu, mjólkinni
ásamt kartöflumjölinu og krydd-
inu. Mótaðar bollur og steiktar.
Flestir baka eða kaupa ger-
bollur á bolludaginn enda eru
þær ljómandi góðar. En það er
líka hægt að baka góðar bollur
úr vatnsdeigi, þær eru hreint
ekki síðri og yfirleitt mjög auð-
veldar í meðferð.
Söngleikir þeirra urðu margir,
á 16 árum urðu til. „Oklahoma"
1943, „Carousel" 1945, „South
Pacific" 1949, „The King and 1“
1951, „The Flower Drum Song“
1958 og „The Sound of Music'*
1959.
Mörg lögin úr söngleikjum,
sem önnur, hafa hlotið mikla
hylli og víða verið sungin, rauluð
eða blístruð. Má þar nefna: „Oh
What a Beautiful Mornin’", „If I
Loved You“* „Some Enchanted
Evening", „Getting to Know
You“ og „Climb Ev’ry Moun-
tain“.
Afköst Rodgers þóttu með
ólíkindum, sagt er að það hafi
tekið hann fimm mín. að semja
lagið „Bali Ha’i“ fyrir söngleik-
inn „South Pacific". Það hafa
verið gerðar kvikmyndir eftir
mörgum þessara söngleikja og
líklega flestar, ef ekki allar
sýndar í kvikmyndahúsum hér-
lendis.
Rodgers efnaðist vel á starfi
sínu, hann bjó vel og hélt sig
ríkmannlega á flestum sviðum.
Kona hans Dorothy er þekktur
rithöfundur og arkitekt, þau
hjón söfnuðu listaverkum,
stunduðu leikhús og önnur
menningarleg mannamót.
Rodgers var ýmis sómi sýndur
síðasta áratugiiin, sem hann
lifði, meðal annars var honum
veitt viðurkenning „Kennedy
Center“-stofnunarinnar fyrir ár-
ið 1978.
Rétt fyrir lát Rodgers var
fyrsti söngleikur þeirra Hamm-
erstein, „Oklahoma" tekinn til
sýningar á Broadway að nýju.
Fólk á öllum aldri stóð í biðröð-
um til að ná í aðgöngumiða. Það
er ekki ótrúlegt að slíkt hið sama
eigi eftir að gerast, með fleiri
söngleiki þeirra um ókomin ár.
I London, síðastliðið haust,
voru nokkrir ferðalangar af
Fróni svo heppnir að komast á
„Vandbakkelse“
3 dl. vatn,
2 tsk. sykur,
150 gr. smjörlíki,
150 gr. hveiti,
4 egg.
Vatn, smjörlíki og sykur sett
í pott og soðið saman. Pottur-
inn tekinn af piötunni á meðan
að hveitinu er hrært út i, sett
yfir hita aftur og hrært í.
Deigið á að vera eins og þykk-
ur, uppbakaður jafningur og er
nú kælt áður en eggjunum er
hrært út í, einu í senn. Deigið er
sett í litlar kúlur eða toppa á
smurða plötu og bakað við
meðalhita í ca. 20—25 mín. Það
má ekki opna ofninn fyrstu
mínúturnar.
Lok skorið af bollunum,
rjómi, eða krem og rjómi, sett á
milli. Flórsykri stráð á bollurn-
ar eða þær smurðar með súkku-
laðibráð.
sýningu á „The King and I“, eftir
þá félaga Rodgers og Hammer-
stein, með sjálfum Yul Brynner í
aðalhlutverkinu.
Er skemmst frá því að segja,
að sú sýning varð öllum til
óblandinnar ánægju, jafnt tán-
ingunum okkar sem okkur full-
orðnu.
Barðstrendinga-
félagið í
Reykjavík
Nú er aðalsveitakeppninni lok-
ið og varð sveit Ragnars Þor-
steinssonar efst með 184 stig.
Auk Ragnars eru í sveitinni
Eggert Kjartansson, Þórarinn
Árnason og Ragnar Björnsson,
röð næstu sveita var þessi:
stig
Sv. Baldurs Guðmundss. 140
Sv. Sigurðar ísakss. 139
Sv. Viðars Guðmundss. 123
Sv. Ágústu Jónsd. 115
Sv. Sigurðar Kristjánss. 107
Næstkomandi mánudagskvöld
18. febrúar förum við með 12
sveitir í heimsókn til bridge-
deildar Víkings í félagsheimili
þeirra við Hæðargarð.
Mánudaginn 25. febrúar hefst
hjá okkur Barómeterkeppni og
þurfa þátttökutilkynningar að
berast í síðasta lagi þriðjudag-
inn 19. febrúar til Ragnars í
síma 41806.
Bridgefélag
Reykjavíkur
Barometertvímenningskeppn-
in er nú hálfnuð. 42 pör taka þátt
í keppninni en alls verður spilað
í sex kvöld.
Staða efstu para:
Helgi Jónsson — Helgi Sigurðss. 338
Jón Ásbjörnss. — Símon Símonars. 231
Sigurður Sverriss. — Valur Sigurðss. 208
Skúli Einarss. — Þorlákur Jónss. 185
Aðalsteinn Jörgensen — Ásgeir Ásbjörnss. 173
Ómar Jónss. — Jón Þorvarðars. 166
Næst verður spilað á miðviku-
daginn kemur í Domus Medica.
Bridge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélag kvenna
Mánudaginn 11. febrúar var
spiluð fimmta umferð í sveita-
keppni hjá Bridgef. kvenna.
I meistaraflokki fóru leikar
þannig:
Alda Hansen —
Gunnþórunn 3—17
Guðrún Bergsd. —
Hugborg 10—10
Guðrún Einarsd. —
Aldís Schram 0—20
Sigríður Ingib. —
Kristjana K. 17—3
Staðan í meistaraflokki eftir 5
umferðir er því þessi:
Hugborg 88
Guðrún Bergsd. 75
Gunnþórunn 74
Aldís Schram 41'
Guðrún Einarsd. 38
Alda Hansen 37
Sigríður Ingibergs 31
Kristjana K. 16
I fyrsta flokki er nú: lokið
keppni þar sem aðeins spiluðu
sex sveitir í þeim flokki. í
fimmtu umferð fóru leikar á
þessa leið:
Anna Lúðvíksd. —
Sigríður Guðmundsd. 3—17
Kristín Jónsd. —
Sigrún Pétursd. 4—16
Gróa Eiðsd. —
Þuríður Möller 19—1
Staðan að lokinni keppni er
því sem hér segir:
Kristín Jónsd. 59
Gróa Eiðsd. 56
Sigrún Pétursd. 53
Sigríður Guðmundsd. 51
Anna Lúðvíksd. 42
Þuríður Möller 39
Tvær fyrst töldu sveitirnar
flytjast því upp í meistaraflokk.
Árshátíð félagsins verður
haldin laugardaginn 8. mars að
Hótel Sögu og hefst með borð-
haldi kl. tólf á hádegi, en síðan
verður spilaður tvímenningur.
Þeir sem ekki hafa nú þegar
tilkynnt um þátttöku vinsam-
lega hafið samband við formann
félagsins í síma 17987.