Morgunblaðið - 16.02.1980, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
HÉR Á landi eru staddar
þessa dagana Margrét Pálma-
dóttir, ung hafnfirsk söng-
kona. sem stundar nám í
Vínarborg, og Machiko Sak-
urai, japönsk stúlka, sem á
þessu ári lýkur námi frá sama
skóla, Tónlistarháskólanum i
Vínarborg.
Þær stöllur munu halda
tónleika í Fjölbrautaskólan-
um á Akranesi á morgun,
laugardag, klukkan 16. Á
sunnudag munu þær halda
tónleika í Njarðvíkurkirkju
klukkan 17 og fimmtudaginn
21. febrúar verða þær með
tónleika í Góðtemplarahúsinu
i Hafnarfirði klukkan 20.30.
Á efnisskránni eru ljóð og
aríur eftir Schubert, Schu-
mann, Strauss, Pál ísólfsson,
Mozart, Puccini og fleiri. Auk
þess mun Machiko svo leika
einleiksverk á píanó.
Margrét sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins nú
fyrir helgi, að hún hefði verið
einnig hef ég sungið í Póly-
fónkórnum, Þjóðleikhúskórn-
um og Kirkjukór Hafnarfjarð-
ar.“
Margrét sagðist læra hjá
íslenskum kennara í Vín,
Svanhvíti Egilsdóttur, sem
kennir við Tónlistarháskólann.
Margrét er hins, vegar eini
Islendingurinn við skólann
sem er í söngnámi. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem Mar-
grét heldur tónleika hér
heima, því áður hélt hún tón-
leika ásamt Hrefnu Eggerts-
dóttur píanóleikara á Húsavík,
Neskaupstað og Ólafsfirði.
„Það er mjög jákvætt fyrir
nemendur í söng að fá tæki-
færi til þess að koma fram á
tónleikum, en úti er mjög
erfitt að komast að. Einkum er
það erfitt fyrir útlendinga í
Austurríki að fá að halda
tónleika, sem og raunar fyrir
Austurríkismenn sjálfa, því
þar eru svo margir í þessari
listgrein.
Halda þrenna tónleika næstu daga:
íslensk
og
söngkona
japanskur píanóleikari
LJAsm: ðlafur K. Maffnússon.
Margrét Pálmadóttir og Machiko Sakurai, en þær stunda báðar
nám við Tónlistarháskólann í Vínarborg.
við söngnám í Vínarborg í þrjú
og hálft ár, en áður hefði hún
verið við nám hér heima.
„Þetta byrjaði nú eiginlega á
því að ég var í kór Oldutúns-
skóla hjá Agli Friðleifs, en
síðar fór ég svo í nám til
Elísabetar Erlingsdóttur í
Tónlistarskóla Kópavogs, þar
sem ég var í fjögur ár,“ sagði
Margrét. „Á sama tíma var ég
svo í kór Flensborgarskóla, en
Það er ein ástæða þess að við
erum hér nú, en svo kemur
einnig til að við erum nú í
vetrarfríi við skólann og ætl-
um að nota tækifærið til að
koma hingað heim, og Machiko
ætlar að sjá sig um hér á
landi.“
Machiko sagðist vera búin
að vera í átta ár við nám í
Vínarborg, en hún lýkur sem
fyrr segir námi í vor. Hún
kvaðst vera frá Tokyo, en
reiknaði hins vegar varla með
því að fara þangað til starfa að
námi loknu, þar sem ekki væru
miklir möguleikar fyrir hendi
fyrir tónlistarmenn í
klassískri tónlist. Sinfóníu-
hljómsveit væri að vísu starf-
andi, en ekki ópera, og mögu-
leikarnir á þessu sviði ef til vill
ekki öllu meiri en hér á
íslandi.
Margrét sagðist heldur ekki
vita hvað tæki við hjá sér eftir
að hún lyki námi, framtíðin
ein gæti þar skorið úr. Hún
sagðist þó geta sagt það
hreinskilnislega að ef henni
gæfist kostur á einhverju hlut-
verki erlendis þegar þar að
kæmi myndi hún að öllum
líkindum taka því, en hvort
það yrði vissi enginn.
- AH.
Kaupin á Guömundi RE:
Sökin fyrnd áður en
rannsóknin hóf st
EINS og skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu voru þrír ein-
staklingar, sem ákærðir voru
vegna meintra brota í sambandi
við kaup á loðnuskipinu Guð-
mundi RE til landsins á sinum
tima, sýknaðir nýlega i sakadómi
Reykjavikur og sök þeirra talin
fyrnd.
Mennirnir voru ákærðir fyrir
brot á 248. grein almennra hegn-
ingarlaga, þ.e. fyrir fjársvik svo og
fyrir brot á ákvæðum gjaldeyris-
laga um skipan innflutnings og
gjaldeyrismála og loks fyrir brot á
147. grein hegningarlaganna, sem
fjallar um rangar skýrslur til
stjórnvalda.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér um dómsnið-
urstöðurnar voru mennirnir alfar-
ið sýknaðir af ákæru um fjársvik
en hvað varðar aðra ákæruliði,
sem að framan greinir, var sök
þeirra talin fyrnd.
I IX. kafla almennra hegningar-
laga um fyrning sakar og uppreist
æru segir svo m.a. í 81. grein: Sök
samkvæmt þessum lögum fyrnist á
þeim tíma, sem hér segir 1. 2
árum, þegar refsing sú, sem til er
unnið, fer ekki fram úr sektum eða
1 árs varðhaldi.
Gengið var frá kaupum á Guð-
mundi RE í Noregi haustið 1972 og
hefur því sök þeirra manna, sem
að kaupunum stóðu, verið fyrnd
strax haustið 1974 eða ári áður en
íslenzk bankayfirvöld hófu rann-
sókn á kaupunum, sem síðar leiddi
til meðferðar þess fyrir dómstól-
um.
Kaupverð skipsins var 6,4 millj-
ónir norskra króna en uppgefið
verð til íslenzkra gjaldeyrisyfir-
valda var 6,6 milljónir. Að sögn
kaupenda skipsins var mismunin-
um að öllu leyti varið í þágu
skipsins svo sem til kaupa á
ýmsum nauðsynlegum búnaði.
Dóminn kváðu upp Gunnlaugur
Briem sakadómari, sem var dóms-
formaður, og meðdómendurnir
Ragnar Ólafsson hrl. og Axel
Kristjánsson hrl. Lögmaður kaup-
enda Guðmundar RE var Jón
Finnsson hrl.
9.500 lestir af freð-
fiski til Sovétríkjanna
fyrir 5.4 milljarða
UNDIRRITAÐIR hafa verið í Moskvu samningar um sölu á 9.500
lestum af freðfiski að heildarverðmæti um 5.4 milljarðar
íslenzkra króna. Er hér um að ræða 6.500 lestir af flökum og
3.000 lestir af heilfrystum fiski. í samningum, sem gerðir voru í
janúar á síðasta ári var samið um sölu á 6 þúsund lestum af
flökum og 4 þúsund lestum af heilfrystum fiski. í september var
siðan gerður viðbótarsamningur um 7 þúsund lestir af flökum, en
hluta þess magns átti að afgreiða á fyrstu mánuðum þessa árs.
Morgunblaðinu barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og Sambandi íslenzkra sam-
vinnufélaga:
í gær var undirritaður í
Moskvu samningur um sölu á
9.500 lestum af freðfiski til af-
greiðslu frá íslandi til Sovétríkj-
anna á árinu 1980. Magn þetta
greinist í 6.500 lestir af flökum og
3.000 lestir af heilfrystum fiski og
er heildarverðmæti cif um 13.5
milljónir bandaríkjadala eða um
5.4 milljarðar ísl. króna, miðað
við gengi í dag. Verðin í dollurum
hækkuðu lítið eitt frá fyrra ári.
Seljendur eru Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og Samband ís-
lenskra samvinnufélaga en kaup-
andi V/O Prodintorg. Samnings-
gerð fyrir hönd íslensku fyrir-
tækjanna önnuðust Árni Finn-
björnsson frá S.H og Sigurður
Markússon frá Sjávarafurðadeild
S.Í.S.“
Samkvæmt viðskiptasamningi
milli íslands og Sovétríkjanna,
sem gildir til loka þessa árs, er
gert ráð fyrir árlegum freðfisk-
sölum héðan, sem nemi 12—17
þúsund lestum af flökum og 4—7
þúsund lestum af heilfrystum
Verð á bein-
um, slógi og
fiski til mjöl-
vinnslu
YFIRNEFND Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins hefur ákveðið eftir-
farandi lágmarksverð á fiskbein-
um, fiskslógi og heilum fiski til
mjölvinnslu frá 1. janúar til 31.
mai 1980:
a) Þegar selt er frá fiskvinnslu-
stöðvum til fiskimjölsverk-
smiðja:
Fiskbein og heill fiskur, sem
ekki er sérstaklega verðlagður,
hvert kg kr. 10.40
Karfabein og heill karfi, hvert
kg kr. 14.70
Steinbítsbein og heill steinbítur,
hvert kg kr. 6.75
Fiskslóg, hvert kg kr. 4.70
b) Þegar heill fiskur er seldur
beint frá fiskiskipum til fiski-
mjölsverksmiðja:
Fiskur, hvert kg kr. 9.05
Karfi, hvert kg kr. 12.80
Steinbítur, hvert kg kr. 5.90
Verðið er miðað við að selj-
endur skili framangreindu
hráefni í verksmiðjuþró.
Karfabeinum skal haldið að-
skildum.
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins hefur ennfremur ákveðið
eftirfarandi lágmarksverð á lifur
frá 1. janúar til 31. maí 1980:
Lifur bræðsluhæf, seld frá veiði-
skipi til lifrarbræðslu.
1) Lifur, sem landað er á höfnum
frá Akranesi austur um til
Hornafjarðar, hvert kg kr. 70.00
2) Lifur, sem landað er á öðrum
höfnum, hvert kg kr. 55.00
Verðið er miðað við lifrina
komna á flutningstæki við hlið
veiðiskips.
Verðið er uppsegjanlegt með
viku fyrirvara frá og með 1. mars.
Verðið á fiskúrgangi var ákveðið
af oddamanni og fulltrúum kaup-
enda gegn atkvæðum fulltrúa selj-
enda.
Verðið á lifur var samþykkt
samhljóða.
í yfirnefndinni áttu sæti: Ólafur
Davíðsson, sem var oddamaður
nefndarinnar, Guðmundur Kr.
Jónsson og Gunnar Ólafsson af
hálfu kaupenda og Ágúst Einars-
son og Eyjólfur Martinsson af
hálfu seljenda.
(Frétt frá VerðlagHrádi sjávarútvcgsins.)
JNNLENTV
fiski. Þeir samningar, sem nú
hafa verið gerðir eru talsvert
langt frá þessum rammasamn-
ingi. Síðasta ár varð mikil fram-
leiðsluaukning á þeim afurðum,
sem íslendingar hafa selt Sovét-
mönnum, t.d. karfa og grálúðu.
Ólafur Jónsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri Sjávarafurða-
deildar Sambandsins sagði í gær,
að það magn af heilfrystum fiski,
sem nú hefði verið samið um,
væri í samræmi við óskir íslend-
inga. Hins vegar hefðum við
viljað selja þeim meira af flökum
og stefnt væri að því, að ná því
magni með viðbótarsamningi
síðari hluta ársins. Ólafur sagði
að þau verð, sem náðst hefðu
væru viðunandi og samkeppnis-
fær við þau verð, sem fengjust á
öðrum mörkuðum. íslendingar
hafa einkum selt karfa til Sovét-
manna, einnig talsvert magn af
grálúðu og nokkurt af löngu,
keilu, steinbít og ufsa. Skipting
fisktegunda í þeim samningi, sem
gerður hefur verið, liggur ekki
fyrir.