Morgunblaðið - 16.02.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
Rhódesía:
Flokkur Smiths fékk
öll þingsæti hvitra
Salisbury, 15. febrúar. AP.
FLOKKUR Ian Smiths fyrrum
forsætisráðherra Rhódesíu vann
öll þau 20 þingsæti, sem hvítir
menn i landinu eiga rétt á, i
kosningum, sem fram fóru fyrr i
vikunni. Úrslitin voru tilkynnt i
dag. Ian Smith, sem nú er i
fyrirlestrarferð i Bandarikjun-
um, sagði að úrslitin sýndu að
hvitir menn i Rhódesíu stæðu
saman. Niu flokkar hafa boðið
fram til þeirra 80 þingsæta, sem
blökkumenn i landinu ráða yfir.
Miklar óeirðir hafa verið í
Rhódesíu undanfarið. Tveir menn
biðu í dag bana, þegar sprengja
sprakk í bíl þeirra í svertingja-
þorpi ekki langt frá Salisbury.
Lögreglan varaði í dag við því, að
hætta væri á frekari hryðjuverk-
um dagana fram að kosningunum,
sem fyrirhugaðar eru seinast í
febrúar. Fjórtan sinnum hefur að
undanförnu verið reynt að ráða
stjórnmálamenn úr röðum
blökkumanna af dögum. Brezki
landstjórinn í landinu, Soames
lávarður, hefur bannað kosninga-
fundi og áróður á sumum stöðum í
landinu til að reyna að halda uppi
lögum og reglu.
Bandaríska Ólympíunefndin um þátttöku í ÓL:
Carter tekur
lokaákvöröun
Lake Placid, London, Strasbourg, 15.
febrúar. AP.
BANDARÍSKA ólympiunefndin
samþykkti i dag að veita Jimmy
Carter forseta úrslitavald til að
ákveða hvort bandariskir
iþróttamenn verði sendir til ól-
ympiuleikanna i Moskvu i sumar.
„Við munum beygja okkur fyrir
ákvörðun forsetans,“ sagði í til-
kynningu nefndarinnar i dag.
Robert Kane formaður nefndar-
innar sagði að nefndin yrði þó að
afgreiða málið formlega á fundi
sínum í Colorado 11. eða 13. apríl
næstkomandi, og yrði þá að fullu
tekið tillit til sjónarmiða Carters.
Síðast á miðvikudag hvatti Carter
Sakharov
fær boð frá
Harvard
Moskvu. Cambridge, 15. febrúar. AP.
VEITZT var í dag að Andrei
Sakharov i greinum sem birtust
m.a. í blaði unglingadeildar sov-
ézka kommúnistaflokksins,
Komosomolskaya Pravda. Var
þvi m.a. haldið þar fram að það
hcfði alltaf verið draumur eðlis-
fræðingsins að verða n.k. Cesar,
leiðtogi mannkynsins.
Eðlisfræðideild Harvard há-
skólans bauð í dag Sakharov að
halda fyrirlestra við skólann.
Talsmaður skólans sagði að unnið
væri að því að koma skilaboðum
til Sakharovs þar sem hann hefð-
ist við í Gorki.
til þess að bandarískir íþrótta-
menn sætu heima ef Sovétmenn
hyrfu ekki á brott úr Afganistan
með heri sína.
Framkvæmdastjóri alþjóða 61-
ympíunefndarinnar sagði að ef
bandarískir íþróttamenn tækju
ERLENT
Veður
víða um heim
Akureyri 3 skýjaó
Amsterdam 8 skýjaó
Aþena 9 skýjaó
Barcelona 14 háifskýjaó
Berlín 3 heióskírt
BrUssel 8 skýjaó
Chicago 1 snjókoma
Oyflinni 12 heióskirt
Feneyjar 7 heiðskírt
Frankfurt 8 skýjaó
Genf 9 heiðskírt
Helsinki 2 skýjaó
Jerúsalem 10 skýjaó
Kaupmannahöfn 2 þoka
Las Palmas 18 skýjaó
Lissabon 18 skýjaö
London 12 heiðskírt
Los Angeles 18 rigning
Madrid 16 heióskírt
Malaga 19 hálfskýjaó
Mallorca 13 skýjaó
Miami 24 skýjaó
Moskva +8 heiðskírt
New York 9 skýjaö
Ósló 1 skýjaó
París 7 skýjað
Reykjavík 7 alskýjaó
Rio de Janeiro 35 heióskírt
Rómaborg 10 heiðskírt
Stokkhólmur 2 skýjað
Tel Aviv 16 skýjaó
Tókýó 9 heióskírt
Vancouver 5 skýjaö
Vínarborg 1 skýjaó
ekki þátt í leikunum fengju
blaðamenn bandarískra blaða og
tímarita ekki aðgang að ólýmpíu-
mannvirkjunum.
Þing Efnahagsbandalagsríkja
hvatti ríki heims í dag til að senda
ekki íþróttamenn til leikanna í
Moskvu. Ennfremur að Sovét-
mönnum yrðu ekki seldar vörur,
einkum neyzluvörur. Jafnframt
var meðhöndlun yfirvalda í Kreml
á Sakharov fordæmd.
Muhammed Ali, fyrrum heims-
meistari í hnefaleikum, sagði í dag
að honum hefði orðið mjög ágengt
í ferð sinni til ýmissa Afríkuríkja
þar sem hann reyndi að afla
tillögum Carters forseta varðandi
Ólympíuleikana í Moskvu fylgis.
Hann sagði að þegar hefðu 57
þjóðir fallist á að senda ekki
íþróttamenn til Moskvu.
Fyrrum sovézkur íþróttamaður,
sem nú þjálfar fimleikalið
Clemson-háskóla, sagði að ef
Bandaríkjamenn yrðu ekki meðal
þátttakenda í Moskvu, misstu
leikarnir að mjög miklu leyti
áróðursgildi sitt fyrir Rússa.
25 saknað
í Amazon
Manaus. 15. febrúar. AP.
TUTTUGU og fimm manns var
saknað af báti sem í dag sökk á
Amazonfljótinu, og er óttast að
þeir hafi drukknað, að sögn
yfirvalda. Þrjátiu og fimm björg-
uðu sér á sundi.
Lögreglumaður í Salisbury virðir fyrir sér skaðann sem varð, þegar
tvær sprengjur sprungu í kirkju einni i borginni i fyrrinótt. Miklar
róstur hafa verið í Rhodesíu að undanförnu, eins og fram kemur í
meðfylgjandi frétt. (Simamynd AP)
V íkingasýningin:
Búast við 4 þúsund
gestum dag hvern
London, 15. janúar. AP.
HÓPUR danskra gesta á
vikingasýningu British Museum
öskraði striðsöskur og veifaði
sverðum og skjöldum á lóð safns-
ins að vikinga sið, en að þvi búnu
gekk hópurinn friðsamlega i sali
safnsins og skoðaði sýninguna.
í forystu fyrir hópnum, sem
kom frá bænum Hobro, var borg-
arstjóri Hobro, Kristen Schultz.
Ibúar Hobro fagna því um þessar
mundir að eitt þúsund ár eru liðin
frá því að víkingar reistu virkið
Fyrkat við borgina.
„Það kom okkur spánskt fyrir
sjónir að sjá dönsku gestina með
hyrnda hjálma á höfði. David
Wilson forstöðumaður safnsins,
sem er sérfróður um víkinga-
tímann, segir að víkingar hafi
aldrei haft hyrnda hjálma," sagði
talsmaður safnsins í dag.
Hann sagði að í gær, fyrsta
sýningardaginn, hefðu 3.175 gestir
sótt sýninguna. Búist er við að um
4.000 manns sæki sýninguna dag-
lega, og að aðgangseyririnn
hrökkvi til að greiða kostnaðinn af
sýningunni, um 500.000 sterlings-
pund, eða jafnvirði 500 milljóna
króna. Sýningin stendur í fimm
mánuði.
Griin látinn
Vínarborg, 15. febrúar. AP.
PRÓFESSOR Victor Griin, einn
þekktasti arkitekt vorra tíma,
lézt í dag. Grun var 77 ára. Hann
giftist fjórum sinnum. Grun
fæddist í Vínarborg, en var
neyddur til að flytjast til Banda-
ríkjanna 1938.
Þetta gerðist
Rússi rekinn úr
landi á Spáni
Madrld, 15. febrúar. AP.
YFIRMANNI sovézka flugfélags-
ins Aeroflot, Oleg Suranov, i
Madrid var i dag visað úr landi á
Spáni og hélt hann þegar til
Moskvu með viðkomu í Varsjá.
Suranov var handtekinn í gær í
miðborg Madrid og sakaður um
að hafa vopn i fórum sinum og
stunda njósnir fyrir Sovétríkin.
Sovézka sendiráðið í Madrid
mótmælti í dag þeim aðferðum,
sem notaðar voru í handtöku og
brottvísun Suranovs, en ekki var
þrætt fyrir þær ásakanir, sem á
hann voru bornar. Suranov er
fimmti Sovétmaðurinn, sem vikið
er úr landi á Spáni, frá því Spánn
og Sovétríkin tóku upp stjórn-
málasamband fyrir þremur árum
eftir þrjátíu ára hlé.
1978 — 20 milljarða dollara
viðskiptasamningur Japana og
Kínverja undirritaður í Peking.
1977 — Erkibiskup og tveir
ráðherrar handteknir í Uganda.
1970 — Rússar heita Aröbum
„nauðsynlegum stuðningi“ gegn
Israel.
1962 — Óeirðir í Georgetown,
Brezku Guiana.
1961 — Kýpurbúar greiða at-
kvæði með aðild að brezka Sam-
veldinu.
1959 — Fidel Castro verður
forsætisráðherra Kúbu.
1945 — Bandaríkjamenn taka
Bataan, Filippseyjum — Stór-
felldar loftárásir á Tokyo.
1943 — Rússar taka Kharkov.
1942 — Þýzkur kafbátur skýtur
á oiíuhreinsunarmannvirki í
Aruba, Hollenzku Vestur-
Indíum.
1936 — Manuel Azana verður
forsætisráðherra Spánar;
Stjórnarskráin frá 1931 endur-
reist.
1933 — Fastaráð Litla banda-
lagsins stofnað.
1918 — Þýzkur kafbátur skýtur
á Dover, Englandi.
1916 — Rússar taka Erzerum.
1873 — Lýðveldi stofnað á
Spani.
1871 — Virkið í Belfort gefst
upp fyrir þýzka hernum og ófriði
Frakka og Prússa lýkur með
ósigri Frakka.
1808 — Frakkar gera innrás í
Spán.
1804 — Samsæri gegn Napoleon
afhjúpað — Bandarískir land-
gönguliðar laumast inn í Tripoli-
höfn og brenna freigátuna
„Philadelphia".
1666 — Hollendingar gera
bandalag við stórkjörfurstann í
Brandenburg.
Afmæli — Gaspard de Coligny,
franskur hermaður (1519—1572)
— Friðrik Vilhjálmur stórkjör-
fursti (1620—1688) — Henry
Adams, bandarískur sagnfræð-
ingur (1838-1927) - G.M.
Trevelyan, brezkur sagnfræðing-
ur (1876-1964).
Andlát - 1754 Richard Mead,
læknir.
Innlent 1187 d. Böðvar Pálsson t
Görðum — 1782 Fyrsti landpóst-
ur, Ari Guðmundsson, kemur að
Haga á Barðaströnd — 1939 Hlíf
stöðvar vinnu — 1953 d. Einar E.
Sæmundsen skógarvörður.
Orð dagsins — Næst á eftir
góðri dómgreind eru demantar
og perlur fágætustu hlutir í
heimi — Jean de la Bruyére,
franskur rithöfundur (1645—
16%).