Morgunblaðið - 16.02.1980, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRUAR 1980
Guðmundur
H. Frímamis-
son kjörinn
formaður
Varðar FUS
GUÐMUNDUR Heiðar
Frímannsson menntaskólakenn-
ari var kjórinn formaður Varðar,
félags ungra sjálfstæðismanna á
Akureyri, á aðalfundi félagsins
sem haldinn var fyrir skömmu.
Fráfarandi formaður félagsins,
Björn Jósef Arnviðarson, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs.
Aðrir í stjórn voru kjörnir
Bjarni Árnason, Karlotta Aðal-
steinsdóttir, Svavar Alfreð Jóns-
son, Helgi Már Barðason, Halldór
Pétursson og Martha María Stef-
ánsdóttir.
Guðmundur Heiðar sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að ýmislegt
væri á döfinni í félagsstarfinu á
næstunni, og mætti til dæmis
nefna vinnslu spjaidskrár og aðra
slíka innanfélagsvinnu; þá væri
ætlunin að hefja starfsemi les-
hringa á næstunni, og einnig væri
hugmyndin að skipuleggja fundi
um ýmis þjóðmál einu sinni til
tvisvar í mánuði fram til vors, og
væri það nú í undirbúningi.
Blaðamenn kynna sér nokkra af
boðstólum meðan á „síldarævintýri*-
matvæla hf. stendur.
Ljósm. Mbl. ól.K.M.
sildarréttunum sem verða á
Hótels Loftleiða og íslenzkra
„Síldarævintýri44 á
Hótel Loftleiðum
Frá dagskrá nemendamóts VÍ.
Verzlunarskóli íslands:
Nemendamótsskemmt-
un fyrir almenning
NÝTT „síldarævintýri“ hófst á
Hótel Loftleiðum i gærkvöldi.
Þetta er i annað sinn sem hótelið
ásamt fyrirtækinu íslensk mat-
væli, býður gestum til slíks
„ævintýris.“
Gefst fólki enn á ný tækifæri til
að upplifa síldarárin í myndum og
réttum. Blómasalurinn í Hótel
Loftleiðum, þar sem síldarævin-
týrið fer fram, hefur verið
skreyttur myndum og ýmsu öðru,
og til þess að auka á stemmning-
una leikur Sigurður Guðmundsson
tónlist í samræmi við þá tíma sem
hin fyrri síldarævintýri gerðust.
Þá skemmtir Skagakvartettinn
tvö fyrstu kvöldin og syngur
vinsæl sjómannalög frá þessum
árum. Kvartettinn skipa þeir Sig-
urður Ólafsson, Sigurður Guð-
mundsson, Hörður Pálsson og
Helgi Júlíusson.
Auk síldarréttanna gefst gest-
um síldarævintýrisins kostur á að
kynnast nýjum réttum svo sem
gravlúðu og reyksoðinni lúðu, ufsa
og karfa. Þá verður heitur kjöt-
réttur í potti og saladhlaðborð
með alls kyns grænmeti.
Fyrirtækið íslensk matvæli,
annast framleiðslu á síld og öðr-
um fiskreftum og flytur m.a. út til
margra landa beggja vegna Atl-
antshafs.
„Síldarævintýrið" stendur til og
með 24. febrúar.
48. NEMENDAMÓT Verslun-
arskóla íslands var haldið í
Háskólabíói síðastliðinn mið-
vikudag 13. febrúar.
Að venju var þar fjölbreytt
og skemmtileg dagskrá, t.d.
var þar sýndur dans, sem
nemendur höfðu sjálfir samið,
leikþáttur o.fl. að ógleymdum
Verslunarskólakórnum sem
söng lög úr ýmsum áttum
undir stjórn Jóns Kristins
Cortes, við mjög góðar undir-
tektir. Eins og venja hefur
verið undanfarin ár verður
haldin aukasýning á öllum
helstu atriðum fyrir þá sem
ekki komust á frumsýningu.
Sýningin verður haldin í Há-
skólabíói laugardaginn 16.
febrúar kl. 14. Óllum er heimill
aðgangur.
Hótel Loftleiðir:
Evrópuforsetafund-
ur JC hófst í gær
Guðmundur Heiðar Frimannsson
EVRÓPUFORSETAFUNDUR JC
hófst á Hótel Loftleiðum, í gær-
Hvað segja formenn þingflokka stjórnar-
andstöðunnar um þriggja vikna þinghlé?
„Lýsi furðu
minni á þessum
vinnubrögðum“
— segir Sighvatur
Björgvinsson formað-
ur þingflokks Alþýðu-
flokksins
„ÞAU vinnubrögð virðast hafa
verið viðhöfð í þessu máli, og er
það algjört nýnæmi, að fréttir
berast af þessu máli í fjölmiðl-
um frá ríkisstjórninni, jafnvel er
það haft beint eftir sumum
ráðherrum, án þess að það sé svo
mikið sem orðað við þingflokk-
ana,“ sagði Sighvatur Björg-
vinsson formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins í samtali við
Morgunblaðið í gær. Sighvatur
var spurður álits á þeim hug-
myndum að „þingið verði sent
heim“ í þrjár vikur á næstunni.
„Eg lýsi furðu minni á svona
vinnubrögðum," sagði Sighvatur
ennfremur, „því reglan er sú
þegar óskað er eftir frestun á
fundum Alþingis, sem vel getur
komið til greina, að þá viðhafi
menn þá sjálfsögðu og eðlilegu
kurteisi að hafa um það samráð
við þingið. Áður séu menn ekki
að gefa um það yfirlýsingar út
og suður í fjölmiðlum að þeir
ætli að senda þingið heim. En
þetta er kannski táknrænt um
þá nýju siði sem nú eru að ryðja
sér til rúms með nýjum herrum,
að þeir keppast nú við að lýsa því
yfir að þeir ætli að leysa upp
þingið.
En mér finnst sú ósk nýrrar
ríkisstjórnar að sumu leyti vel
skiljanleg að fá nokkurra daga
hlé til að skoða málin og undir-
búa sig. Hvort þrjár vikur eru
hæfilegur tími vil ég ekkert um
segja. En ég vil endurtaka það,
að það veldur mér mikilli undr-
un hvernig haldið er á þessu
máli. Það þekkist hvergi í þing-
ræðislöndum að ráðherrar bás-
úni það út og suður að þeir ætli
að senda þingmenn heim um
lengri eða skemmri tíma og láta
ekki einu sinni svo lítið að ræða
það við þingið fyrst.
Hræddur er ég um að það
þætti einkennilegt á öðrum
vinnustöðum, þó Alþingi sé að
vísu ekki sambærilegt við aðra
vinnustaði, að menn heyrðu það
skyndilega utan að sér að senda
ætti þá heim í nokkrar vikur.
Hvað myndi til dæmis Guð-
mundur J. segja ef þannig yrði
komið fram gagnvart umbjóð-
endum hans,“ spurði Sighvatur
að lokum.
„.Líst illa á þess-
ar hugmyndir“
— segir ólafur G.
Einarsson formaður
þingflokks sjálfstæð-
ismanna
„MÉR líst illa á þær,“ sagði
Ólafur G. Einarsson formaður
Veröur þingið sent
heim í þrjár vikur?
STEFNT nun því Ijúk*
mest aðkallandi þlngstörfum.
afgreWtelu skattlagafrumvarps
og konnincu I rið og nefndir,
n.k. þrtojoda* - miövikudag.
Orðrómur var um það i þing-
huslnu I g*r, að rlkiwrtjórnin
hygði á þinghlé. jafnvel i allt að
20 daga (þ.e. fram yíir Norður-
landaráðsþing. sem hér verður
háð 3.-7. marz n.k.) en stjórn
arandstaðan mun mjðg andvig
hvo langri heimsendingu þing-
manna. Ekki lá á hreinu, hvort
i óformlega frestun yrðl að
rrAa. ef til k*mL eða formlega
freetun með þingsályktun. en I
slðara tilfellinu fengi rikia-
stjórnln bráðabirgðalagarétt.
Kosningar pær, sem fram eiga
að fara á þriðjudag, munu vekja
mikla athygli. ekkj sí*t vegna
þess samkomulags, sem gert var
i þiníflokki Sjálfst»Si»nokk«in«
i deaembormánuftí s.l. um skipan
manna i nefndir, en aí því
samkomulagi stóðu m.a. þrír
núverandi ráðherrar og tveir
þeirra hlutu kjör í fjárveitinga-
nefnd, aem er áhrifamaata þing-
nefndin, ót á það aamkomulag:
Friðjón Þórðaraon og Pálmi
Jónsson
Á þriðjudag verður væntan-
lega kosið í eftirUldar nefndir
og ráð: stjórn Framkvæmda-
stofnunar, Utvarparáð, Trygg-
ingaráð, Húsnæðismáiaatjórn.
Menntamálaráð, stjórn Atvinnu
leysistryggingasjóðs, stjórn
Vísindaajóðs, Kjaradeilunefnd,
Landskjörstjóm og yfirkjör-
stjórnir, Áfengisvarnaráð og Ut-
hlutunarnefnd listamannalauna.
þingflokks sjálfstæðismanna í
samtali við Morgunblaðið í gær,
er hann var spurður hvað honum
fyndist um hugmyndir um að
Álþingi verði gefið „frí“ í þrjár
vikur. „Minn rökstuðningur er
fyrst og fremst sá,“ sagði Ólafur
ennfremur, „að þingið hefur allt
til þessa verið ákaflega lítið
starfhæft, af ástæðum sem ekki
þarf að rekja."
Ég geri mér grein fyrir því að
ríkisstjórnin þarf tíma til að
átta sig, en mér finnst þetta
langt hlé myndi aftur kosta það
að ákveðinn tíma þarf fyrir
þingið að komast aftur í gang að
því loknu. Mér sýnist því allt
benda til þess að þetta verði
afskaplega lítilfjörlegt þing, þó
ég viti að vísu ekki hvað ríkis-
stjórnin hugsar sér að láta það
starfa langt fram á vorið.
Ekki mun bæta þar úr að tekið
verði tuttugu daga hlé núna, þó
þar inn í komi að vísu hlé vegna
Norðurlandaráðsþings sem
venja hefur verið til að gera.
Þá er það einnig ámælisvert í
þessu máli, að ekki hefur verið
talað orð um þessi mál við okkur,
og þingflokkunum hefur ekki
verið tilkynnt neitt um málið.
Það eina sem ég hef heyrt er af
spjalli um þetta manna á milli í
þinginu," sagði Ólafur að lokum
og kvaðst telja, eins og nú væri í
pottinn búið, að ekki veitti af að
veita ríkisstjórninni aðhald með
starfandi þingi.
kvöldi, en þá voru alls mættir um
40 fulltrúar af 50 sem reiknað
var með en nokkrir töfðust víðs
vegar i Evrópu vegna þoku.
Að lokinni setningarathöfn í
gærkvöldi var kvölddagskrá, en
fundir halda síðan áfram í dag.
Meginmarkmið fundarins er að
ræða fjölgun í hreyfingunni í
Evrópu. Ymsir æðstu menn JC
heimshreyfingarinnar eru mættir
á fundinn, en honum lýkur um
hádegi á sunnudag.
25 þús. hafa
séð Land og
syni í Aust-
urbæjarbíói
ALLS hafa um 37.000 manns séð
kvikmyndina Land og synir
síðan hún var frumsýnd fyrir
liðlega tveimur vikum.
Þar af hafa 25.000 manns séð
myndina í Austurbæjarbíói, en
um 12.000 norðanlands þar sem
hún hefur verið sýnd á nokkrum
stöðum.
Fjölskyldu-
bingó
UM ÞESSAR mundir safna nem
endur 3. bekkjar Fósturskól
Islands fyrir námsferð sem verðu
farin í vor til írlands. Á morgur
sunnudag kl. 14, verður fjölskyldu
bingó í húsi skólans. Meðal vinn
inga þar eru þríhjól frá Ingvar
Helgasyni, gullhringur frá Gull
og silfri, rúmteppi frá Ingvari o|
Gýlfa, matarvinningar frá Esju
bergi, plötur og margt fleira.