Morgunblaðið - 16.02.1980, Side 28
2 8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Stokkseyri Umboösmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaöið. Upplýsingar hjá afgreiðslunni í Reykjavík sími 83033. Iltagtttilfttftife Blaðburðarfólk óskast í Ytri-Njarðvík. Uppl. í síma 3424. Fiskiðnaðarmaður — útgerðartæknir Ungur maður með áðurnefnda menntun auk haldgóðrar starfsreynslu óskar eftir fram- tíðarstarfi. Tilboö ásamt uppl. sendist á Augl.deild Mbl. sem fyrst merkt: „F — 4876.“
Kjötvinnslumaður Óskum aö ráöa kjötvinnslumann eða mat- svein sem getur unnið sjálfstætt, nú þegar eöa síöar. Verslunin Nonni og Bubbi, Keflavík, sími 92-1580.
Heilsugæslustöö Selfossi Óskar eftir starfskrafti viö símavörslu og vélritun. Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg. Umsóknarfrestur er til 1. marz. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 99-1667 og 99-1767. Óskum aö ráða rafvélavirkja til viðgeröa á rafkerfum í bílum og bátum. Þarf aö geta unniö sjálfstætt. Góö vinnu- aðstaöa. Uppl. gefur Oskar í síma 94-4033 og á kvöldin í síma 94-3082. Póllinn h.f. ísafirði.
Viljum ráöa í fasta vinnu járniðnaðarmann með rafsuðuréttindi. Upplýsingar í síma 34550.
Framleiðslustjóri Óskum eftir að ráöa framleiðslustjóra í verksmiðju vora sem fyrst. Umsóknir ásamt uppl. um menntun og fyrri störf óskast sendar fyrir 20. febrúar. Prjónastofan Dyngjan hf, Egilsstöðum.
Staða ráðgjafa að Eftirmeðferðarheimili S.Á.Á. Sogni er laus til umsóknar. Uppl. um menntun og fyrri störf óskast sendar skrifstofu S.Á.Á, Lágmúla 9, fyrir 25. febrúar.
Sölumenn óskast miklir tekju- möguleikar Stórt útgáfufyrirtæki vill ráða nokkra sölu- menn. Sjálfstæð atvinna, miklir tekjumögu- leikar. Sendið nafn, heimilisfang, símanúmer og upplýsingar um fyrri störf og reynslu til afgreiðslu blaðsins fyrir 22. þ.m. merkt: „Sölustarf — 4878.“
Laus störf Sjúkrasamlag Reykjavíkur auglýsir eftir starfsfólki, annars vegar til afgreiðslustarfa og hins vegar til vélritunar og skrifstofu- starfa. Umsóknir sendist á skrifstofu S.R., Tryggva- götu 28 fyrir 25. þ.m. Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Sprautumálun Framtíðarvinna. Maður vanur sprautumálun óskast sem fyrst. Uppl. hjá verksmiðjustjóra. Stálumbúðir h.f. v/Kleppsveg, sími 36145.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
300—400 ferm
gott geymsluhúsnæði
óskast í Hafnarfiröi fyrir hreinlætisvöru.
Tilboö sendist Mbl. merkt: „Geymsluhúsnæði
— 4881.“
VERÐLAUNA-
SAMKEPPNI
Sjómannablaðiö Víkingur hefur ákveðið að
efna til samkeppni um sögur er fjalli um
sjómannalíf, sjávarútveg eða tengsl manns
og sjávar. Greidd verða tvenn verðlaun: fyrir
bestu frumsömdu söguna kr. 200 þúsund, og
fyrir bestu lýsingu á sannsögulegum atburði
kr. 200 þúsund. Handrit, eigi lengra en sem
nemur 20 vélrituðum síðum A4, berist
Sjómannablaðinu Víkingi, Borgartúni 18, 105
Reykjavík fyrir 1. mars 1980, merkt: Sam-
keppni, svo og dulnefni. Rétt nafn höfundar
fylgi í lokuðu umslagi.
Dómnefnd skipa: Guðlaugur Arason, Ási í
Bæ og Guöbrandur Gíslason. Sjómanna-
blaöið Víkingur áskilur sér birtingarrétt gegn
höfundarlaunum, á öllu efni sem berst til
keppni. Niöurstöður dómnefndar verða
kynntar í aprílblaöi Sjómannablaðsins
Víkings 1980.
Ríkisskattstjóri
hefur ákveðið framlengingu á skilafresti
eftirtalinna gagna til 20. mars nk. í stað 20.
febrúar nk., sbr. auglýsingu ríkisskattstjóra
frá 1. janúar 1980.
1. Landbúnaöarafuröamiöa ásamt samtaln-
ingsblaöi.
2. Sjávarafuröamiöa ásamt samtalnings-
blaöi.
3. Greiöslumiöa, merktra nr. 1, um aðrar
greiðslur sem um getur í 1. og 4. mgr. 92. gr„
aðrar en þær sem koma fram á launamiðum,
svo sem þær tegundir greiöslna sem um
getur í 2.-4. tl. A-liðar 7. gr. nefndra laga,
þó ekki bætur frá Tryggingastofnun ríkisins.
Reykjavík 14. febrúar 1980
Ríkisskattstjóri.
Útboö
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboöum í að
gera Grundarskóla á Akranesi fokheldan og
ganga frá húsinu að utan. Tilboösgagna má
vitja á Verkfræöi- og teiknistofunni s.f.,
Heiðarbraut 40, Akranesi, gegn 50 þús. kr.
skilatryggingu. Tilboöum skal skilað á sama
stað, eigi síöar en þriðjudaginn 11. marz
1980, kl. 11 f.h.
Bæjarstjóri.
Aðalfundur
Knattspyrnuþjálfarafélags íslands verður aö
Hótel Esju mánudaginn 18. febrúar kl. 20.00.
Félagar fjölmenniö.
Stjórn K.Þ.Í.
Lögtök
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og aö
undangengnum úrskuröi veröa lögtök látin
fram fara án frekari fyrirvara, á kostnaö
gjaldenda en ábyrgö ríkissjóös, aö átta
dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýs-
ingar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti
og miðagjaldi, svo og söluskatti af skemmt-
unum, vörugjaldi af innlendri framleiöslu,
vörugjaldi, skipulagsgjaldi af nýbyggingum,
söluskatti fyrir okt. nóv. og des. 1979, svo og
nýálögöum viöbótum við söluskatt, lesta-,
vita- og skoöunargjöldum af skipum fyrir árið
1979, skoðunargjaldi og vátryggingaiögjaldi
ökumanna fyrir áriö 1979, gjaldföllnum
þungaskatti af dísilbifreiðum samkvæmt
ökumælum, almennum og sérstökum útflutn-
ingsgjöldum, aflatryggingasjóðsgjöldum, svo
09 tryggingaiðgjöldum af skipshöfnum ásamt
skráningargjöldum.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík,
13. febrúar 1980.