Morgunblaðið - 16.02.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980 29
Ámundi Loítsson:
Sjálfstæðisflokk
ur í fernu lagi
Það er óneitanlega hálfgert
vandræðaástand í herbúðum
Sjálfstæðisflokksins um þessar
mundir, þó ekki sé meira sagt. Öfl
sátta og málamiðlunar hafa orðið
undir öflum sundrungar og ósam-
stöðu.
Hefur þetta borið þann ótví-
ræða árangur, að flokkurinn er nú
í fernu lagi, þ.e. Jón G. Sólnes og
félagar, Eggert Haukdal og félag-
ar, Gunnar Thoroddsen og félagar,
og svo Sjálfstæðisflokkurinn undi
r forustu Geirs Hallgrímssonar.
Hver er svo ástæðan fyrir öllu
þessu?
Ellert B. Schram sagði í fram-
söguræðu á fulltrúaráðsfundi
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
að þeir væru ýmsir spámannlega
vaxnir þessa dagana og þættust
hafa ástæðurnar fyrir óförum
Sjálfstæðisflokksins yfirleitt á
reiðum höndum en leituðu þó
sjaldnast orsakanna til sjálfra sín.
Víst getur það rétt verið, að
orsökin sé enn ófúndin þar sem
enn eitt reiðarslagið hefur dunið
yfir Sjálfstæðisflokkinn. Ekki þori
ég nú að ábyrgjast að skoðun mín
sé nægilega á rökum reist og vera
kann að hún sé nokkuð óljós, en sú
afstaða sem þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins hefur tekið til
stjórnar Gunnars Thoroddsens
mælist yfirleitt illa fyrir hjá
almenningi, fram hjá því verður
ekki litið. Víst finnst mörgum það
verulegur kostur hennar að það er
þó sjálfstæðismaður sem veitir
henni forustu, og það maður sem
bersýnilega lætur ekki fara með
sig annað en hann sjálfur vill.
Ég held að þessi vandræði hafi
byrjað þegar þingflokkurinn hafn-
aði því að Gunnar Thoroddsen
ræddi við forustumenn Framsókn-
ar og Alþýðubandalagsins í nafni
flokksins, um myndun ríkis-
stjórnarinnar, en ítrekaði þess í
stað stuðning við að Geir Hall-
grímsson hefði með allt slíkt að
gera enda vinnubrögð Gunnars
óverjandi. Það stóð heldur ekki á
því að Geir Hallgrímsson slægi
um sig í fjölmiðlum. með því að
hann hefði fengið traustsyfirlýs-
ingu þingflokksins og gat manni
skilist á honum, að honum hefði
varla þótt veita af eftir allt sem á
hefur gengið í flokknum undan-
farna mánuði.
Það er raunar sama hvernig á
þessu er tekið, niðurstaðan er ætíð
sú sama, þ.e. að fólk vill skrifa
ófarirnar á reikning Geirs Hall-
grímssonar fyrir þær sakir að
hafa tekið fljótfærnislegar og lítt
yfirvegaðar ákvarðanir þegar Jón
Sólnes bauð sig fram, og sama
gegndi um Eggert Haukdal. Hon-
um hefði ekki tekist þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir að koma 1 veg
fyrir þann klofning sem bersýni-
lega hafði orðið. Fólk varð aldrei
nógu vart við tilburði í þá veru að
þarna væri reynt að koma á
sáttum. Sama er uppi á teningn-
um varðandi Gunnar Thoroddsen,
þá gefur hann út andstöðuyfirlýs-
ingu í fjölmiðlum á hina nýju
stjórn rétt áður en flokksráðs-
fundur Sjálfstæðisflokksins var
kallaður saman og menn fengju
þar rætt málin í rólegheitum og af
yfirvegun. Þarna er æsingablóði
hleypt í mannskapinn og kynt
undir fljótfærni og sundrung. Með
öðrum orðum: Þarna virðist Geir
Hallgrímsson hafa gleymt því að
flokkurinn er flokkur sátta og
málamiðlunar.
Útkoma Sjálfstæðisflokksins í
kosningunum er dapurleg eins og
ég hef áður sagt hér í Morgunblað-
inu og það er honum sjálfum að
kenna. Menn sem söguna þekkja,
segja að meðbyrinn hafi aldrei
verið meiri en þegar vinstri
stjórnin leystist upp, en samt
tókst, virtist vera, með hnitmið-
uðu klúðri að hafa útkomuna með
því versta sem menn muna.
Öll umræða fyrir kosningar var
um Sjálfstæðisflokkinn vegna
þess að fólk sá betur en fyrr, að
vinstri stjórnir eru gagnslausar,
og menn sneru sér af alvöru og
áhuga að Sjálfstæðisflokknum og
meir en áður hafði þekkst. Þá
ætlaði hins vegar allt af göflunum
að ganga, sundrungin og ósam-
staðan varð allsráðandi, og upp-
hófst þetta ömurlega manntafl.
Síðan skall leiftursóknin á með
þeim ósköpum að árangursyfirlýs-
ingar gengu þvert hver á aðra hjá
þeim sem fluttu þetta fagnaðarer-
indi, en aðra setti hljóða þegar
þeir voru beðnir um útlistingu.á
þessum ósköpum.
Það virðast vera óskir velflestra
velunnara Sjálfstæðisflokksins að
þetta plagg fái að gista ruslatunn-
una eftirleiðis, menn virðast vera
sammála um að það sé búið að
skila því, sem það skilað getur.
Ég vil líka geta þess, að ég
umgengst mikið af pólitískum
andstæðingum en það er þeirra
mesta tilhlökkunarefni að leiftur-
sóknin og Geir Hallgrímsson verði
sem allra lengst á blaði hjá
Sjálfstæðisflokknum.
Nú kann einhverjum að virðast,
að hér sé ég með þessari grein
minni enn eitt sundrungaraflið á
ferðinni, og víst kann svo að vera,
en ég tel mig þó hafa hreyft máli
sem mér finnst menn hafa verið of
ragir við að tala um, hvers vegna
veit ég ekki.
Mig langar að taka undir það
með Sverri Hermannssyni, sem
hann sagði í viðtali í Vikunni nú
ekki alls fyrir löngu, að Sjálfstæð-
isflokkurinn væri á sterkum
grunni byggður, og vil ég bæta þar
við, að hann hefur öllum þeim, er
lýðræði, frelsi og mannréttindum
unna, mikinn boðskap að flytja.
Það er innileg ósk mín, að
Sjálfstæðisflokkurinn nái höndum
saman og geri okkur, sem unnum
málstað hans og viljum útbreiða
hann til sem flestra, róðurinn
léttari. Ennfremur að menn reyni
að læra af þeim mistökum sem
orðið hafa, en séu ekki sífellt að
reyna að réttlæta þau og verja.
Þarna hljóta klofningsframboðin
að vera víti til varnaðar (svo dæmi
sé tekið).
Nú kann einhverjum að finnast
ég hafa verið fullstórorður í þess-
ari grein, þess vegna vil ég geta
þess, að ég gekk í Sjálfstæðis-
flokkinn á s.l. sumri þegar hann
var í stjórnarandstöðu, og það
hvarflar ekki að mér að segja
skilið við hann þó að á móti blási
nú þar sem ég hef fundið að hann
hefur miklu hlutverki að gegna.
Þó ekki se annað nefnt, en að hann
er dyggasti vörður lýðræðis og
mannréttinda.
Vegna þess, sem ég hef sagt hér
að framan, verð ég að segja það,
að ég vona að ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsen muni takast að sitja
þetta kjörtímabil og hún komi
einhverju góðu til leiðar, þó ekki
sé hún til þess líkleg. Sjálfstæðis-
flokknum veitir ekki af öllum
þeim tíma til að rísa úr þeirri
öskustó sem hann nú er í, en ef vel
er á málum haldið mun hann rísa
upp margefldur.
Ámundi Loftsson.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Ræöunámskeiö
Heimdallur S.U.S.
Ræöunámskeiö hefst mánudaginn 18. febrúar kl. 20 í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, 2. hæö. Námskeiöiö er fyrir alla félaga í Heimdalli og
sfendur yfir í 3—4 kvöld. Þátttökugjald er kr. 1000.- Skráning á
námskeiöið er í síma 82900.
Hvað er frelsi?
Leshringur Heimdallar
um oröiö frelsi og helztu merkingar þess,
hefur göngu sína, laugardaginn 16.
febrúar kl. 14.00 í Valhöll, Háaleitisbraut
1, 2. hæö. Stjórnandi veröur Kjartan G.
Kjartansson.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AÚGLYSINGA-
SÍMINN’ F.R:
22480
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Keflavík
3ja herb. íbúö viö Mávabraut.
4ra herb. efrl hæö í tvfbýll.
2ja herb. neöri hæö í tvfbýll. Sér
inngangur.
Einbýlishús 140 ferm. Nýlegt.
Ekki fullbúið 60 ferm sökkull aö
bflskúr.
Njarðvík
Raöhús 120 ferm ásamt bOskúr.
Einbýlishús 140 ferm ásamt
bOskúr.
Grindavík
Nýtt raöhús í smíöum frágengiö
aö utan. Einangraö innan.
Glæsilegt einbýlishús ásamt
bOskúr.
120 ferm efrl hæö í tvfbýli.
Vlölagasjóöshús 122 ferm.
Raöhús 116 ferm. Aö mestu
fullbúiö.
Garður
Glæsileg einbýllshús, bæöl full-
búin og styttra komln.
Hafnir
Eldra einbýlishús í ágætu standi.
Nýlegt einbýlishús, ekki fullbúiö.
Laust fljótlega.
Höfum fjársterkan kaupanda aö
raöhúsi f Keflavík.
Eignamiölun Suðurnesja,
Hafnargötu 57, Kaflavfk,
afmi 3868.
Keflavík —
Ytri-Njarðvík
Hef góöan kaupanda aö nýlegu
einbýlishúsi eöa raöhúsi (4
svefnherb ). Mjög góö útb.
Eigna- og verðbréfasalan,
Hringbraut 90, Keffavík
afmi 92-3222.
Einhleypur
ríkisstarfsmaður
vill taka á leigu litla íbúö, helst
fyrir 1. aprO. Uppl. f sfma 44613.
Bólstrun
klϚningar
Klæöum eldri húsg., ákl. eöa
leður. Framl. hvOdarstóla og
Chesterfieldsett.
Bólstr. Laugarnesvegi 52, s.
32023.
Tek að mér
aö leysa út vörur
fyrir verzlanir og innflytjendur,-
Tilboö sendist augl. Mbl. merkt:
.Ú — 4822".
Framtalsaöstoö
Viö aöstoöum meö skattfram-
tallö.
Tölvubókhald, Síöumúla 22, sími
83280.
Skattframtöl —
Reikningsskil
Tek aö mér gerö skattframtala
fyrir einstaklinga og minni fyrir-
tæki.
Ólafur Geirsson vlösk.fr.
Skúlatúni 6, sími 21673 e. kl.
17.30.
Sumarbústaður
Nýr 40 fm sumarbústaöur til sölu
á kjarrvöxnu eignarlandi,
skammt frá Borgarnesi. Sími
92-2127.
Sýning fyrir
alla fjölskylduna
David E. Lawson mun taka ykkur
meö (hrffandi ferö í myndum og
máli um sögufrægustu lönd ver-
aldar sunnudaginn 17. febrúar
kl. 17 og 20.30 í Fríkirkjunnl.
Hringiö og pantlö sæti f síma
14913.
□ GIMLI 59802187 — 1
K.F.U.M og K.
Hafnarfirði
Kristniboðsvikan
Laugardagskvöld kristniboös-
þáttur og ræöa Katrín og Gísli
Arnkelsson. Söngur Halldór Vil-
helmsson. Sunnudagur kl. 14
kristniboðsmessa f Hafnarfjarö-
arklrkju prestur Gunnþór Inga-
son. Ræður Ástráöur Sigur-
steindórsson.
Sunnudagskvöld
Vitnisburöur Lilja Björk Jóns-
dóttlr. Ræöa Gunnar Sigur-
jónsson. Söngur Æskulýöskór
K.F.U.M. og K.
Heimatrúboðið
Óöinsgötu 6A
Samkomuvika hefst á morgun.
Samkoma veröur hvert kvöld kl.
20.30. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
Laugardags- og sunnu-
dagaskólar Fíladelfíu.
Laugardagur: Geröaskóli kl. 14.
Sunnudagur: Njarðvíkurskóli kl.
11. Grindavíkurskóli kl. 14.
öll börn velkomin. Munið svörtu
börnin.
Kristján Reykdal.
Ffladelfía
Almenn barnaguðsþjónusta kl.
14. Fjölbreytt dagskrá.
Björg Halldórsdóttir forstöðu-
kona.
Sunnudag 17. 2.
Kl. 10.30: Gullfoas (f klaka) —
Geysir meö Kristjáni M. Bald-
urssyni eöa Hestfjall í
Grímsnesi með Jóni I. Bjarna-
syni. Verö 7000 kr.
Kl. 13: Gunnunes, meö Þerneyj-
arsundi eða Esja meö Erlingi
Thoroddsen. Verö 3000 kr. fritt
f. börn m. fullorönum. Farlö frá
B.S.f benzínsölu.
Útivist.
Áríðandi tilkynning
frá Skíöafélagi
Reykjavíkur
Svigmót framhalds-
skólanna
veröur haldiö n.k. miövikudag
20. febrúar (öskudaginn) kl. 11.
f.h. viö Skíöaskálann í Hveradöl-
um. Skráning á mót þetta, verö-
ur að hafa borist Skíöafélagi
Reykjavíkur sími 12371, Amt-
mannstíg 2, eigi síöar en f.h. n.k.
mánudag.
Keppt veröur um farandbikar,
gefin af verzluninni Sportval.
Skíöafélag Psykiavíkur.
Félag kaþólskra
leikmanna
heldur skemmtlfund í húsi St.
Jósefssystra í Garöabæ í kvöld
kl. 20.00.
Safnaöarfólk og gestir þess
velkomnir.
Stjórn FKL.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
11798 og 19533.
Sunnudagur
17. febrúar
1. kl. 10.00 Hrómundartindur.
Nokkuö löng og erfiö göngu-
íerö. Fararstjóri: Sturla
Jónsson.
2. Skiöaganga á Hellisheiöi.
Fararstjóri: Hjálmar Guö-
mundsson. Athugandi er aö
hafa meö sér gönguskó ef
göngufæri fyrir skíöi er
slæmt. Verö kr. 3000 gr.
v/bílinn.
3. kl. 13.00 Hólmarnir —
Örfisey — Grótta.
Létt og róleg fjöruganga á
stórstraumsfjöru. Fararstjóri:
Þorleifur Guðmundsson. Verö
kr. 1500 gr v/bílinn.
Farlö veröur frá Umferöar
miöstööinni, austan veröu.
Þórsmerkurferð 29. febrúar.
Feröafélag íslands.