Morgunblaðið - 16.02.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
37
fclk í
fréttum
Þriðja konan í þjóðhöfðingjastóli
+ ÞESSI fréttamynd er ný af
nálinni af verðandi þjóðhöfð-
ingjum Hollands, Beatrix prins-
essu og manni hennar Claus
prins, en þau munu setjast i
hásæti í aprilmánuði næstkom-
andi.
Langafi Beatrix prinsessu
lézt árið 1890. - Willam ffl„
hét hann. Síðan hafa konur
setið á valdastóli i Hollandi.
Drottning Williams III. var
Emma, sem tók við veidissprot-
anum og var þjóðhöfðingi til
ársins 1898. Þá tók dóttir henn-
ar, Wilhelmina, við, þá aðeins
18 ára gömul. Hún var drottn-
ing Hollendinga til ársins 1948,
en þá varð dóttir hennar, Júlí-
ana, drottning. Wilhelmina
hafði þá setið á veidisstóli í
hálfa öld. —
Júlíana doottning tilkynnti
valdaafsal sitt á 42ja ára af-
mæli dóttur sinnar. Beatrix
prinsessa, sem hlaut menntun
sina í háskólanum i Leyden,
varð doktor í lögum árið 1961.
Beatrix og Claus prins eiga
þrjá syni. Elsti sonurinn heitir
Willem-Aiexander og mun ef
Guð lofar taka við af móður
sinni. Verður þá endir bundinn
á kven-þjóðhöfðingja-keðjuna í
Hollandi, a.m.k. í bili.
Systkin svo sæl og góð
+ Við höfum ekki sagt neitt frá stórstirninu John
Travolta um alllangt skeið. — En þessi mynd var
tekin fyrir ekki mjög löngu síðan, er kappinn var í
New York. — Með honum á myndinni er systir hans,
Ellen Travolta. — Þau eru stödd í leikhúsinu „Royal
Theater" og halda á leikskrá að leiksýningunni
„Grease". — Þar í leikhúsinu hefur hin fræga
kvikmynd Travolta, Grease, verið færð upp á leiksvið.
Hefur verið fádæma aðsókn að þessari sýningu í
Royal Theater. Munu þess vart dæmi á sjálfu
Broadway.
Hiroshima-
ljósmyndarinn
er látinn
+ FRÆGASTI ljósmyndari
Japana, sá sem fór fyrstur
manna með ljósmyndavél inn í
japönsku borgina Hiroshima
eftir að Bandaríkjamenn vörp-
uðu atómsprengjunni á borgina
1945, er látinn.
Ljósmyndarinn Yuichiro
Sasaki, sem var 63ja ára er
hann lézt í Tókýó fyrir
skömmu, fór inn í hina hrundu
borg þremur dögum eftir árás-
ina. Tók hann þá þúsundir
ljósmynda í rústunum og hlaut
viðurnefnið „Ljósmyndarinn
frá Hiroshima". Lifrarsjúk-
dómur dró hann til dauða.
+ Fréttastofa Reuters skýrði frá
því fyrir skömmu að forsætisráð-
herra Austur-Þýzkalands væri
alvarlega veikur, að því er heim-
ildir í Austur-Berlín hermdu.
Forsætisráðherrann, Willi
Stoph, er nú 66 ára. Hann hefur
hvergi komið opinberlega fram
frá því í nóvember-mánuði
síðastliðnum. Austur-þýzk
stjórnvöld hafa staðfest að for-
sætisráðherrann væri veikur
maður, en ekkert látið uppi um
eðli sjúkdómsins, sem hrjéir
ráðherrann.
+ SUÐUR á Spáni hefur
menningarmálaráðuneytið
fyrir skömmu úthlutað rit-
höfundarverðlaunum, sem
þar í landi eru kölluð
Nóbelsverðlaun Kastilíu-
manna. — Þeir sem hlutu
verðlaunin að þessu sinni
voru rithöfundurinn Jorge
Luis Borges frá Arg-
entínu og spænska ljóð-
skáldið Gerardo Diego. —
Borges
og Diego
Þessi bókmenntaverðlaun
hafa numið 5 milljónum
peseta árlega, 30,5 milljón-
ir kr. ísl. — Menningar-
málaráðuneytið sagði er
verðlaunaveitingin hafði
fram farið, að í viðurkenn-
ingarskyni við þessa
skáldjafningja myndi
verðlaununum ekki skipt
bróðurlega á milli þeirra,
heldur myndu þeir hvor
um sig hljóta 5 milljónir
peseta og framvegis
myndu þessi bókmennta-
verðlaun nema 10 milljón-
um peseta.
Verið velkomin á síld Borðpantanir í síma 22322
Dagana 9. - 18. febrúar
HOTEL LOFTLEIÐIR
m:
Norrænn styrkur til bókmennta
nágrannalandanna
Fyrsti fundur norrænu ráöherranefndarinnar (mennta-
og menningarmálaráðherrarnir) áriö 1980 — til úthlut-
unar á styrkjum til útgáfu á norrænum bókmenntum í
þýöingu á Noröurlöndunum — fer fram 29.—30. maí
1980.
Frestur til aö skila umsóknum er: 1. apríl.
Eyöublöö ásamt leiöbeiningum fást hjá Menntamála-
ráöuneytinu í Reykjavík.
Umsóknir sendist til:
NORDISK MINISTERAD
Sekretariatet for
nordisk kulturelt samarbejde
Snaregade 10
DK-1205 Köbenhavn K
Sfmi: 01—11 47 11 og þar má
einnig fá allar nánari upplýsingar.
ICCFOOD
ISLENSK
MATVÆLI H
kynnir framleiðslu
sína í samvlnnu
við Hótel Loftleiði.
Nú er það síldarævintýri í Blómasalnum á
Hótel Loftleiðum.
Þar bjóðum við hverskyns lostæti úr „Silfri hafsins"
feitri Suðurlandssíld, um 25 rétti: Marineraða síld,
kryddsíld á marga vegu og reykta síld, salöt og ídýfur,
/F ásamt reyktum laxi, graflaxi, reyksoðnum laxi og
smálúðu. Sannkallaður ævintýramálsverður
á tækifærisverði.
Notið tækifærið og snæðið kvöldverð í vistlegum
salarkynnum, sem skreytt er í þessu sérstaka tilefni.
Meö kaupstefnuferð
KAUPMANNAHÖFN
- LEIPZIG
Til Leipzig
8/3 — 16/3
daglega... frá 11.20 til 12.30 IF 101 T-134
8/3 — 6/3'
daglega. . . trá 18.15 til 19.30 SK 753 Y DC-9
Frá Leipzig
9/3 — 16/3
daglega. . . trá 9.20 til 10.30 IF 100 Y T-134
8/3 — 16/3
daglega. . . trá 20.15 til 21.20 SK 754 Y DC-9
Réttur til breytinga áskilinn.
Beint samband viö vorkaupstefnu í Leipzig 1980 —
þar sem alþjóða kaupsýslufólk hittist.
Milli flugvallarins í Leipzig og miðborgarinnar eru
reglubundnar rútuferöir.
Upplýsingar
DDRs Trafikreprœsentation
Vesterbrogade 84
1620 Kebenhavn V.
Tlf.: (01) 24 68 66
Telex: 15828
Upplýsingar og bókanir
SAS Terminairejsebureau
Hammerichsgade
1611 Kebenhavn V.
eller
SAS pladsbestilling, Tlf.: (01) 59 55 22
samt hos alle lATA-bureauer
Den Tyske Demokratiske Republiks lufttartsselskab
KNTEKFM.UB