Morgunblaðið - 16.02.1980, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
41
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
I0100KL. 10— 11
, FRÁ MÁNUDEGI
íslenzka þjóð, einn stór starfshóp-
ur á stórum starfsvettvangi, og við
hljótum að verða að gefa þeim,
sem við felum stjórn mála okkar,
starfsfrið og tóm til að leiða
vandamálin til lykta. Það getur
enginn stjórnað á stóru búi, ef allt
er rifið niður jafnóðum og upp er
byggt. Stjórnarandstöðu ber að
gæta hófs í andstöðu sinni, hafa
heiðarleika í hávegum og veita
stjórninni aðhald á þann hátt, að
engan skaði.
Sjálfstæðismöjnum er mikill
vandi á höndum, að sigla fleyi sínu
svo, að ekki steyti á skeri í þeim
átökum sem framundan gætu orð-
ið. Gætum þess að þeir sjálfstæð-
ismenn, sem þessa ríkisstjórn
hafa myndað og styðja, eru sannir
sjálfstæðismenn, ábyrgir og þjóð-
hollir. Sjálfstæðisfíokkurinn er
flokkur allra stétta og forusta
hans má gæta þess að huga jafnt
að öllum sínum börnum, að hlaða
ekki um of undir einn á annars
kostnað.
Flokkurinn verður að leita eftir
stuðningi fólksins í landinu til
þess að koma málum sínum fram.
Stefnumálin verða að vera þess
eðlis, að fólk hafi á þeim trú,
treysti flokknum og fylgi og styðji
hann til góðra hluta. Sjálfstæðis-
flokkurinn er stærsti og bezti
flokkur þjóðarinnar. Þar í spilar
margt og vegur þungt hin góða
málefnastaða flokksins í gegnum
árin, og þá ekki síður sú stað-
reynd, að flokkurinn bar lengi
gæfu til þess að eiga afburða
forystumenn, sem mótuðu stefn-
una, enda hefur hann lengi borið
þess merki.
/
• Vandi á höndum
Nú hefur hins vegar um sinn
sigið á óhæfuhlið, sundurþykkja
hefur skotið upp kollinum og
menn eru ekki á eitt sáttir. Slíkar
öldur verður að lægja, eigum við
að koma heil úr hildinni. Flokkn-
um er mikill vandi á höndum að
vísa og rata hina réttu leið út úr
þeim myrkviði sem hann hefur
ratað í.
Við verðum að líta á það og
viðurkenna, að eitt og annað hefur
mistekist í seinni tíð, og af því
eigum við að læra. Til þess eru
vítin að varast þau. Flokkurinn
átti góð spil á s.l. hausti, þegar
vinstri stjórnin var að hrökklast
frá völdum. En það er ekki sama
hvernig farið er með hin góðu
Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í Novi
Sad í Júgóslavíu í haust kom þessi
staða upp í viðureign júgóslavn-
esku stórmeistaranna Rajkovics
og Gligorics, sem hafði svart og
átti leik.
21.... Dd6 (Hvítur varð að gefa
manninn til baka, því hefði ridd-
aranum verið vikið undan átti
hvítur Bxf7+, eða ef 21..., Rb6 þá
22. Bc4) 22. Bxd5 - Dh6!, 23. Hel
— Dh4, 24. Dc2 — Hh6 og hvítur
gafst upp.
spilin. Svo illa er hægt að spila úr
þeim, að allt gloprist niður.
Sjálfstæðisflokknum var í lófa
lagið að stórauka fylgi sitt í s.l.
kosningum, jafnvel að ná meiri-
hluta á Alþingi, eftir hið alvarlega
sýndarspil og ábyrgðarleysi
vinstri flokkanna frá kosningun-
um ’78. Sú vinstri stjórn, sem féll
haustið ’79, átti skilið skell hinn
stóra, en sú varð ekki gæfa
Sjálfstæðisflokksins, stjórnar-
andstöðunnar, að veita henni þá
hirtingu sem hún átti skilið. Það
var líkt og sundurlyndi vinstri
flokkanna hefði smitað út frá sér
og gripið um sig í röðum Sjálf-
stæðisflokksins fyrir kosningarn-
ar. Hver höndin varð uppi á móti
annarri, ekki samstaða, eins og
þekkt er frá vinstri. Hér mátti
vera prófkjör — ekki þar, og
mikill tími fór í innbýrðis þras og
skýringar.
• Falla í
vonlaus sæti
Um prófkjörin vil ég segja
það, að þau geta orðið viðsjáll
fleinn og illa hitt samherjana, eins
og dæmin sanna. Þeir, sem stýra
málefnum flokksins úti í hinum
einstöku kjördæmum, hljóta að
vera hæfari til þess að steypa upp
góðan framboðslista, sem fólkinu
fellur vel, fremur en Pétri og Páli.
Svo fremi þó, að tekist hafi að
velja hina hæfustu menn til starfa
fyrir flokkinn. Þegar svo er komið,
að í prófkjöri falla út af lista, eða
í vonlaus sæti, hinir beztu og
hæfustu þingmenn fyrir nýsvein-
um, þá er sannarlega mjög yfir
markið skotið og mál að taka í
taumana.
Framboðsmál sjálfstæðismanna
fóru mjög úr skorðum við haust-
kosningarnar síðustu, eða vetrar-
kosningarnar, og í sumum kjör-
dæmum komu fram listar sjálf-
stæðismanna, sem ekki hlutu við-
urkenningu sem slíkir, enda þótt
öllum væri ljóst, að sjálfstæðis-
fólk kysi þá öðrum fremur. Þetta
var ekki nógu gott, enda var
útkoman eftir því.
Sjálfstæðisflokkurinn náði að-
eins hluta af því fylgi, sem hann
missti í ’78 kosningunum. Hann
var ekki einu sinni hálfdrættingur
á við hinn óskaplega Framsóknar-
flokk, sem stórjók fylgi sitt og
náði öllu sem hann missti ’78,
enda þótt hann væri í stjórn,
þeirri vinstri stjórninni sem gæfu-
laust var og hrikti í frá fyrsta
degi. Sjálfstæðismenn mega huga
betur að stöðunni, standandi
frammi fyrir slíkum staðreyndum.
Það þarf nýtt blóð — nýja
forustu. Hvers vegna ekki að fela
hinum nýja forsætisráðherra for-
ustu fyrir flokknum um þetta
kjörtímabil? Hann er reyndur og
sannur sjálfstæðismaður, sem
staðið hefur í fremstu röð og
starfað af heilindum fyrir land
sitt og þjóð í langan tíma. Nú
síðast hefur hann unnið það þrek-
virki, sem brýnt var þessari þjóð í
dag, að mynda starfhæfa ríkis-
stjórn til þess að leysa hin ýmsu
vandamál, sem bíða úrlausnar.
• Ekki sprengi-
kraftar
Til þess ætti nú að vera tóm,
sé stjórnarandstaðan vanda sínum
vaxin. Ríkisstjórnin nýja hýsir
ekki þá sprengikrafta, sem fyrri
stjórn laut, þá ólánsmenn, sem
hafa lýst því í heyranda hljóði,
þeir sprengdu hverja þá ríkis-
stjórn, sem þeir yrðu í, og ekki léti
að kröfum þeirra. Slíka ógæfu-
menn verður að útiloka frá þátt-
töku í stjórn landsins.
Alþýðuflokkurinn hlaut mikinn
frama í ’78 kosningunum. En það
er víst alveg óhætt að fullyrða
það, að aldrei hafa nokkrir sigur-
vegarar farið verr með glæstan
kosningasigur heldur en flumbru-
gosar þeir, sem stóðu með pálm-
ann í höndunum að loknum kosn-
ingum vorið ’78, hinn mikla kosn-
ingasigur, sem þjóðin veitti þeim
þá.
En þeir voru því miður ekki
menn til að mæta sigrinum, og því
hafa þeir nú hrökklast frá völdum
með slæma einkunn.
Nú eru stjórnartaumar í hönd-
um annarra manna, og það hygg
ég að margir sjálfstæðismenn, og
raunar allur þorri þjóðarinnar,
telji það þjóðargæfu að Gunnari
Thoroddsen tókst að koma á þeirri
ríkisstjórn, sem nú er sezt að
völdum, þótt Sjálfstæðisflokkur-
inn sem slíkur hafi kosið sér að
vera í andstöðu við hana, því
miður.
Við skulum öll sameinast í
þeirri ósk og von, að ríkisstjórn-
inni nýju takist að leysa farsæl-
lega þau málin, sem í brennidepli
eru, og brýnast er að leysa vel til
heilla fyrir land og þjóð. Að því
eiga allir sannir sjálfstæðismenn
að vinna.
Gunnar Gunnarsson.
HÖGNI HREKKVÍSI
NÝ6T6FRAÐAK EFTIClÁJNA6Jt>£> HuHQAFyVlóACA"
SUINNUDAGSHADECI
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Vegna 15 ára afmælis Hótel Holts bjóðum
við svínakjöt á kynningarverði
SUNNUDAGUR 17/2
Fylltur svínahryggur
m/gratineruðum kartöflum
og eftirrétti.
Kr. 3.980.-
Hálft gjald fyrir börn
ára og yngri
4i
B E R G S T AÐ AST R/í TI 37
SIMI 210II
@Blóma
framleióendur
Er ekki veturinn tómlegur án blóma?
Þvi ekki aÖ breyta örlítið til og láta
veturinn blómstra á heimilinu og
vinnustaðnum?
Því ekki gera sumar að vetri og njóta
sumarsælu?
Gera tilveruna bjartari og ánœgjulegri
Slikt er unnt með örfáum litmildum
túlí'pönum eða öðrum ylhýrum lauk-
blómum.