Morgunblaðið - 16.02.1980, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
Einar hefur varið
ellefu vítaköst!
HVAÐ varðar að aígreiða víta-
köst, ber Einar Þorvarðarson
markvörður HK höfuð og herðar
yfir félaga sína i öðrum 1. deildar
liðum. Hann hefur varið hvorki
fleiri né færri en 11 vítaköst það
sem af er keppnistímabilinu.
Annars er Einar athyglisverður
markvörður. Á síðasta keppnis-
timabili var hann einn af betri
markvörðum 1. deildar, en eftir
frábæran leik í fyrsta leik móts-
ins nú, datt hann niður um tíma.
í siðustu leikjum liðsins hefur
hann hins vegar verið í farar-
broddi og varið af mikilli snilld.
Einar hefur alla burði til að vera
yfirburða markvörður á íslandi
og hann myndi styrkja landsliðið
mjög ef rétt er á spilunum haldið.
Hvað hafa þá aðrir markverð-
ir deildarinnar varið: Samanlagt
hafa markverðir 1. deildar varið
62 vítaköst, má því sjá hve afrek
Einars er mikið. Næstur á eftir
Einari kemur hinn sérkennilegi
markvörður ÍR, Þórir Flosason, en
hann hefur hirt 8 vítaköst. Ólafur
Guðjónsson, Haukum, og Pétur
Hjálmarsson, KR, hafa varið 6 víti
Evrópukeppnin í handknattleik
Valur leikur fyrri
leikinn 1. mars
Leiknum veröur sjónvarpað
beint um allan Spán
NÚ hefur verið gengið endanlega
frá leikdögum Vals i Evrópu-
meistarakeppninni í handknatt-
leik, en eins og skýrt hefur verið
frá eru mótherjar þeirra í undan-
úrslitum keppninnar spænska
liðið Atletico Madrid. Fyrri leik-
ur liðanna fer fram í Madrid 1.
marz og síðari ieikurinn hér
heima i Laugardalshöliinni þann
9. marz á sunnudegi og mun sá
leikur hef jast kl. 19.00.
Lið Vals æfir af miklum krafti
fyrir leikina og ekkert er til
sparað að vel takist til. Meðal
FH
AÐALFUNDUR knattspyrnu-
deildar FH fer fram í Dverg,
laugardaginn 23. febrúar og
hefst kl. 16.00. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Stjórnin.
annars eru nú komnar til landsins
tvær myndsegulbandsspólur af
spænska liðinu, báðir leikir þess
við Danmerkurmeistarana Fred-
recia, og munu Valsmenn skoða og
fara yfir þær af mikilli kostgæfni
áður en leikið verður ytra. Sá
leikur kemur til með að ráða
mestu um leikinn hér heima. Er
þetta í fyrsta skipti sem íslenskt
lið á möguleika á að komast í
úrslitakeppnina sem fram fer í
Dortmund. Það yrði saga til næsta
bæjar ef Valsliðið kæmist þangað.
Og á því eru góðir möguleikar ef
vel tekst til.
Spánverjar eru ekki síður
spenntir og mun fyrri leiknum
sem fram fer í Madrid verða
sjónvarpað beint um allan Spán
og að sjálfsögðu lýst í útvarpi.
Spánverjar eru bjartsýnir á að
komast í úrslit í keppninni og er
ekki laust við að sigurvissu gæti
hjá þeim. Það ætti að koma
Valsmönnum vel. -þr.
hvor. Önnur víti hafa hirt þeir
Kristján Sigmundsson, Víkingi,
(5), Gunnar Einarsson, Haukum,
(4), Sverrir Kristinsson, FH, (4),
Brynjar Kvaran, Val, (4), Gissur
Ágústsson, Fram, (3), Jens Ein-
arsson Víkingi, (3), Sigurður Þór-
arinsson, Fram, (2), Gísli Felix
Bjarnason, KR, Magnús Ólafsson,
FH, Birgir Finnbogason, FH, Ás-
grímur Friðriksson, ÍR, Gunn-
laugur Gunnlaugsson, Haukum,
og Snæbjörn Ásgrímsson, Fram,
eitt vítakast hver.
Reikna má með því að a.m.k.
jafn mörg vítaköst hafi farið
forgörðum á annan hátt. — gg-
XIIIOLYMPIC
Dagskráin í Lake
Placid um helgina
Ólympiuleikarnir í Lake
Placid verða á fleygiferð um
helgina og ekkert slakað á. í dag
verður keppt í 5000 metra
skautahlaupi karla, 20 kílómetra
göngu og skotkeppni karla, á
tveggja manna bobseðla og smá-
sleða með einum manni. Á morg-
un verður síðan keppt i ísdansi á
skautum, 1000 metra skauta-
hlaupi kvenna, bruni kvenna, 70
metra stökki karla og 15 kíló-
metra skiðagöngu karla. Þar
verða islensku piltarnir meðal
keppenda og vonandi tekst þeim
betur upp en i 30 kilómetra
göngunni.
Breiðablik leiðir í 3. deild
STJARNAN sem hefur verið í
stórsókn undanfarið í 3. deildinni
og var farin, ásamt Akranesi, að
ógna Breiðabliki í forystunni svo
um munaði. fékk heldur betur á
baukinn þegar Breiðabiik mætti í
Ásgarði á miðvikudagskvöldið og
tók heimamenn i kennslustund
þess sem valdið hefur. Breiðablik
tók nú upp þráðinn frá fyrri
hluta keppninnar í deildinni og
sýndi á ný sínar bestu hliðar og
við því átti Stjarnan ekkert svar,
þótt margt væri reynt. Á sunnu-
daginn hafði Stjarnan sigrað
Keflavik suðurfrá og var því
orðin aðeins einu stigi á eftir
Breiðabliki eins og Akranes. Og
Akranes á erfiðan leik fyrir
hödnum, þegar þeir mæta hinum
ungu natvinnumönnum“ Gróttu á
sunnudaginn kemur. Þetta eru
sem sagt uppgjörsdagar í 3.
deildinni, þótt keppnin sé auðvit-
að hvergi nærri búin. Og m.a.
eiga Stjarnan og Akranes eftir að
leika seinni leik sinn.
^ Stjarnan sigraði Keflavík
^ í jöfnum leik — 22:17
Leikur Stjörnunnar og Keflavíkur í
, íþróttahúsi Njarövíkur á sunnudaginn
var lengst af jafnari en úrslitin gefa til
I kynna. Næstum allan fyrri hálfleikinn
^ hðföu Keflvíkingar frumkvæöiö, og
h þaö var ekkf fyrr en á þrem síðustu
^ mínútunum aö Stjörnumenn sneru
I dæminu sér í hag og staöan var 12:9
^ fyrir þá í hléi. Þetta endurtók sig
^ nánast í seinni hálfleik, nema hvaö
k nú áttu Keftvíkingar á brattann aö
2 sækja. Þeir minnkuöu muninn í
17:16, en mistókst í áhættusamri
úrslitabaráttu og Stjörnumenn sigr-
uöu meö 22:17.
í liði Keflvíkinga báru tveir menn
af, Björn Blöndal sem skoraöi nú 7
mörk úr 10 tilraunum, og markvörö-
urinn Magnús Jónsson sem varði 18
skot og þar af 2 víti. Hjá Stjörnunni
blómstraöi enn tvístirniö Viöar og
Eggert með 16 mörk samtals!
Mðrk Koflavikur: Björgvin Björgvinsson
3, Björn Blöndal 7, Grétar Grétarsson 1, Jón
MaxnúsKon 1, Jón Ólsen 4, Magnús Garðar-
son 1.
Mörk Stjörnunnar: Egxert ísdal 7, Gunn-'
ar SigurKeirsson 1, Hilmar RaKnarsson 1,
Kristján SÍKurxeirsson 1, Magnús Andrés-
son 2, Pétur Andrésson 1, Viðar Simonarson
9.
Breiðablik sýndi yfirburði
og vann Stjörnuna - 27:17
Asgarösleikur Stjörnunnar og
Breiöabliks á miövikudagskvöldið
hófst meö hörkubaráttu á báöa bóga
— og taugastríöi fyrstu 18 mínúturn-
ar, en þá stóö 5:5. Þá hrökk
markavél Breiöabliks í gang en alit í
baklás hjá Stjörnunni, og skipti
sköpum aö Breiöabliksmenn tóku
Viöar Símonarson úr umferð frá
upphafi, en viö þaö varö sóknarleikur
Stjörnunnar hreint fálm. Þegar flaut-
að var til leikhlés var staöan oröin
12:6 fyrir Breiöablik.
Frá upphafi seinni hálfleiks héldu
Breiöabliksmenn uppteknum hætti
og einangruöu Viöar, en Stjörnu-
menn komu nú meö mótleik og settu
tvo Breiöabliksmenn í gæslu, Hörö
Má og Hallvarö, og reyndu jafnframt
aö loka miöjunni meö þriöja gæslu-
manninum. En allt kom fyrir ekki,
Breiöablik skipti nú nýjum skyttum
inná og þegar 17 mínútur voru liönar
af hálfleiknum var staöan oröin 21:12
fyrir Breiöablik. Þá reyndu Stjörnu-
menn aö leika maöur á mann og um
leiö var einn Breiöabliksmaöur rek-
inn út af, og munurinn mínnkaöi aftur
í 6 mörk. Þaö stóö þó stutt og enda
þótt Stjarnan beröist um á hæl og
hnakka endaöi leikurinn 27:17 fyrir
Breiöablik. Ef eitthvaö var, heföi
munurinn átt aö veröa nokkrum
mörkum meiri.
Mörk Stjörnunnar: Eggert Isdal 1, Gunn-
ar Björnsson 4, Ililmar Ragnarsson 2,
Magnús Andrésson 2, Pétur Andrésson 2,
Viðar Simonarson 6.
Mðrk Breiðahliks: Björn Jónsson 4, Brynj-
ar Björnsson 2, Hallvarður Sigurðsson 6,
Hilmar Hreinsson 1, Hörður Már Kristjáns-
son 3, Július Guðmundsson 2, Kristján
Halldórsson 1, Ólafur Björnsson 4, Sigurður
Svcinsson 3, Sigurjón Rannversson 1.
Dómararnir Brynjar Kvaran og Pétur
Guðmundsson stóðu sig þokkalega, voru
dálitið mismunandi smámunasamir, en það
skipti ekki máli að þessu sinni.
Staðan í deildinni
B.blik 10 8 1 1 262:192 17
Akranes 9 6 2 1 200:173 14
Stjarn. 10 6 2 2 252:199 14
óðinn 9 4 3 2 214:193 11
Keflavík 9 3 1 5 178:180 7
Grótta 9 3 1 5 208:222 7
Dalvik 8 1 0 7 164:211 2
Selfoss 8 0 0 8 144:249 0
Nestu leikir
Laugardagur 16.2.: Dalvik — Keflavik á
Dalvik Id. 15.
Sunnudagur 17.2.: Selfoss — Óðinn á
Selfossi Id. 15 og Grótta — Akranes á
Seltjarnarnesi kl. 17.
• EINAR Þorvarðarson er við öllu búinn í markinu. Þarna fiskaði
Haukamaðurinn vitakast, enda Ragnar ólafsson inni i teignum er
hann brýtur af sér. En það er ekkert gamanmál að skora úr
vítaköstum gegn Einari markverði, hann hefur varið 11 slik skot á
þessu keppnistimabili.
Lilja með tvenn verðlaun
LILJA Guðmundsdóttir frjáls-
iþróttakona úr ÍR hirti tvenn
verðlaun á sænska innanhúss-
meistaramótinu i frjálsiþróttum
þótt hún gengi ekki heil til
skógar, væri með smávegis kvef.
Fyrri dag mótsins keppti Lilja
í 1.500 metra hlaupi og varð í
öðru sæti á 4:32,0 minútum.
Seinni daginn hljóp Lilja 800
metra, varð þriðja á 2:11,5 mínút-
um. írsk stúlka sigraði og sænsk
stúlka varð rétt á undan Lilju.
Mótið fór fram i Gautaborg.
Lilja hljóp 1,500 metra á 4:30.0
mínútum á móti í Norrköping
fyrir skömmu. Á mótinu í Gauta-
borg stökk sænska stúlkan Ann-
ette Tannander 1,90 metra í há-
stökki sem er sænskt met. I þeirri
grein í karlaflokki stökk Rune
Almen 2:20 metra.
Guðmundur R. Guðmundsson úr
FH, er einnig dvelst í Svíþjóð
keppti ekki í Gautaborg, fann til
gamalla meiðsla þegar á hólminn
var komið, en hann hefur stokkið
2:03 metra í hástökki á æfingu. í
keppni hefur hann stokkið 1,98
metra að sögn Lilju.
— ágás.
Stjörnublót í Höll-
inni á þriójudaginn
MEIRI háttar atburður mun eiga
sér stað í Laugardalshöllinni á
þríðjudagskvöldið næstkomandi,
en þá fer þar fram stjörnublót
KKI. Verður þar mikið um dýrð-
ir eins og vænta má úr þeirri átt.
Hápunktur kvöidsins verður
svokallaður kóngaslagur. Krist-
inn Jörundsson og Jón Sigurðs-
son hafa valið hvort sitt liðið og
munu þau leika af fullum krafti
fyrir væntanlega fullu húsi.
Lið Kristins skipa auk hans,
Tim Dwyer, Mark Holmes, Ted
Bee, Danny Shouse, Guðsteinn
Ingimarsson, Kristján Ágústsson,
Símon Ólafsson, Þorvaldur
Geirsson og Geir Þorsteinsson. Á
móti koma Jón Sigurðsson, Trent
Smock, Mark Christiansen, Mon-
nie Ostram, Darrel Shouse, Kol-
beinn Kristinsson, Gunnar Þor-
varðarson, Jónas Jóhannesson,
Garðar Jóhannsson og Torfi
Magnússon. Líklegt er því að
áhorfendur fái að sjá körfuknatt-
leik eins og hann gerist bestur hér
á landi.
En fleira verður á dagskrá.
Landsliðsnefnd KKÍ, Mark Chris-
tiansen, Einar Bollason o.fl., hefur
skorað á íþróttafréttamenn í
handknattleik og hafa fréttamenn
tekið þeirri áskorun. KKÍ-menn
munu hins vegar styrkja lið sitt
með tveimur valkyrjum úr meist-
araliði Fram, þeim Guðríði Guð-
jónsdóttur og Oddný Sigsteins-
dóttur. Að leik loknum hefst
annar leikur og mæta þar nokkrir
kunnir popparar til leiks með
Magnús Kjartansson í farar-
broddi. Leika þeir gegn kvennaliði
KR í körfuknattleik.
Þá verður tískusýning og fara
Karon-samtökin á kostum. Síð-
asta atriðið fyrir kóngaslaginn
verður úrslitaleikur í Píuleikunum
í knattspyrnu. Píuleikarnir eru
náskyldir Ólympíuleikunum og er
nafnið stytting. Hér mætast erki-
fjendurnir Ómárs-all stars og
íþróttafréttamenn. Vilja Ómar og
félagar ekki að hér sé um HM-
keppni að ræða, vilja ekki hætta
titli sínum í leiknum. Þetta verður
spennandi leikur, fréttamenn hafa
nefnilega fullan hug á að verða
píumeistarar.
Dagskráin hefst stundvíslega
klukkan 20.00.
Oddur til San Jose
ODDUR Sigurðsson frjálsiþróttamaður úr KA heldur i dag til San
Jose í Kaliforniu þar sem hann mun dvelja við æfingar í tvær til þrjár
vikur. Oddur tekur sér bólfestu í fslendinganýlendunni í San Jose, þar
sem fyrir eru átta frjálsiþróttamenn við æfingar og keppni.
Gunnar íþróttamaður
Vestmannaeyja 1979
LYFTINGAKAPPINN Gunnar
Steingrimsson var kosinn
iþróttamaður Vestmannaeyja
1979 af Rótariklúbbi Vestmanna-
eyja. Lyftingamenn hafa gert það
gott siðustu misserin, þannig var
Oskar Sigurpálsson sæmdur
sömu nafnbót 1978.
Gunnar, sem er ekki nema 19
ára gamaíl, hóf að æfa lyftingar
árið 1976, frekar óreglulega fyrstu
tvö árin en síðan af fullum krafti.
Uppgangur hans árið 1979 var
stórkostlegur. Setti hann 17
íslandsmet, 2 Norðurlandamet og
síðast en ekki síst eitt Evrópumet.