Morgunblaðið - 16.02.1980, Blaðsíða 44
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
16 ráðherrar á launum:
Hækkun launa
ráðherra rúm
106 þús. verka-
manns 17. þús.
LAUNAHÆKKUN forsætisráð-
herra landsins um næstu mánaða-
mót verður 106.162 krónur á mán-
uði vegna hækkunar verðbótavísi-
tölu, sem hækkar um 6,67%. Á sama
tíma hækka laun Dagsbrúnar-
verkamanns, sem fær greitt sam-
kvæmt 4. taxta og hefur unnið í 4 ár
um 16.922 krónur. Hækkun forsæt-
isráðherrans er því 6,3 föld hækkun
Dagsbrúnarmannsins. Hækkun
Reyndi að
stela bað-
mottunni og
dritaði á
gluggatjöldin
VINALEGUR hrafn heimsótti
nokkra íbúa við Sæviðarsund í
Reykjavík fyrir skömmu og
gerði þar ýmsar kúnstir heima-
mönnum til skemmtunar.
Húsmóðir við Sæviðarsund
var að þvo baðherbergið hjá sér
og hafði hún borið baðmottur út
á hlað. Þar gerði krummi fyrstu
atlöguna og reyndi að ná bað-
mottunni. Þegar því var afstýrt
gerði hann sig heimakominn og
vildi komast inn í húsið, en ekki
leizt húsráðendum á það. Þá
gerði krummi sér lítið fýrir og
kippti inniskó af einum á heimil-
inu og síðan hélt hann áfram að
stríða og skemmta fólkinu.
Brauð var honum boðið og borð-
aði hann býsn. Fjölda fólks bar
að og tók krummi gestum vel og
gantaðist í aliar áttir. Skyndi-
lega tók hann flugið að næsta
húsi þar sem einnig var verið að
þrífa og forláta gluggatjöld
héngu til þerris úti á svölum.
Útflúraði krummi gardínurnar
með driti sínu, en hélt síðan
aftur í fyrri féiagsskap og tyllti
sér á axlir nokkurra í hópnum
áður en hann flaug á brott.
Krumminn góði á húsvegg að
gantast við mannskapinn.
Sáttafundur í
Flugleiðadeilunni
FYRSTI sameiginlegi fundur
deiluaðila í Flugleiðadeilunni, þ.e.
Flugleiða, Flugfélags íslenzkra at-
vinnuflugmanna og Loftleiðaflug-
manna, verður haldinn hjá Guð-
laugi Þorvaldssyni sáttasemjara
n.k. þriðjudag kl. 2.
annarra ráðherra er 100.500 krónur
á mánuði eða 5,9 föld hækkun
verkamannsins.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær eru
laun Dagsbrúnarverkamanns, sem
fær greitt samkvæmt 4. taxta og
hefur unnið í 4 ár 253.704 krónur á
mánuði. 6,67% hækkun um næstu
mánaðamót hækka laun verka-
mannsins í 270.626 krónur á mánuði.
Mismunurinn er eins og áður segir
16.922 krónur.
Laun forsætisráðherra eru nú
905.490 krónur á mánuði og hækka í
965.886 krónur vegna verðbóta. Auk
þess hafa ráðherrar þingfararkaup
eins og alþingismenn allir, sem er
686.142 krónur og verður 731.908
krónur. Samanlögð laun forsætisráð-
herrans eru því 1.591.632 krónur á
mánuði og verða um mánaðamótin
1.697.794 krónur. Hækkunin er
106.162 krónur.
Aðrir ráðherrar hafa samanlögð
laun og þingfararkaup 1.506.739
krónur á mánuði og hækka um
mánaðamótin í 1.607.239 krónur.
Hækkunin nemur 100.500 krónur á
mánuði. Hækkun þingfararkaups um
mánaðamótin er 45.760 krónum. Þess
má geta, að í málefnasamningi ríkis-
stjórnarinnar er það sérstaklega
tekið fram, að stefna ríkisstjórnar-
innar sé, „að jafna lífskjör og bæta
kjör hinna lakast settu í þjóðfélag-
inu.“
Þess má að lokum geta, að 16
ráðherrar eru nú á launum hjá
ríkissjóði, þar af 2 á forsætisráð-
herralaunum. Mun þetta ástand þó
eigi vara lengur en til mánaðamóta,
en þeir 6 alþýðuflokksráðherrar, sem
nýlega hættu störfum hafa ekki
biðlaun í 6 mánuði, þar sem þeir
þurfa að hafa setið 2 ár í ráðherra-
stól til þess að fá biðlaun.
V
s
Sævar á strandstað í gær, fullur af sjó, en í nótt átti að reyna að dæla sjónum úr bátnum á fjörunni og
landa 10 tonnum af línufiski sem voru um borð. Ljósmynd Heimir Stígsson.
Bátsstrand við innsiglinguna í Sandgerði:
Lagðist á móti flóðinu og fyllti
Sandgerði, 15. febrúar.
VÉLBÁTURINN Sævar KR 19 strand-
aði kl. rúmlega sjö í morgun sunnan við
syðri grjótvarnargarðinn við höfnina í
Sandgerði. Sævar, sem er sjötíu og
þriggja lesta eikarbátur, byggður í
Danmörku 1960, var að koma úr
var
Stóð báturinn nær kjölréttur á
fjörunni í dag og virtist mjög lítið
eða ekkert skemmdur. Vonuðust
menn til að hann næðist á flot á
flóðinu í dag um kl. 18. En um kl.
15.30 lagðist báturinn skyndilega
á hliðina og sjór tók að streyma
línuróðri inn til Sandgerðis með um 10
lesta afla þegar óhappið varð. Virðist
sem bátnum hafi verið siglt fram hjá
innsiglingaropinu og í strand en til
þess að komast inn í höfnina þarf að
taka nær vinkilbeygju á þessum stað.
inn í hann og á flóðinu í kvöld var
hann að mestu á kafi í sjó.
Áhöfnin á Sævari var um borð í
bátnum þar til hann lagðist á
hliðina, en þá sóttu félagar úr
björgunarsveitinni Sigurvon skip-
verjana á gúmmíbát. Nú er verið
að undirbúa björgunaraðgerðir og
til stendur að dæla sjónum úr
bátnum og taka úr honum fiskinn
á fjörunni í nótt, um 10 tonn og
síðan á að reyna að ná bátnum á
flot á flóðinu í fyrramálið.
— Jón
Hjálmar Vilhjálmsson á Bjarna Sæmundssyni:
„Ég held að austurgangan
hrygni á suðaustursvæðinu44
„MÉR sýnist að þó dálítið sé
eftir af hrygningarloðnunni hér
ennþá, en aðeins lítill hluti
miðað við það sem var í fyrra,“
sagði Hjálmar Vilhjálmsson leið-
angursstjóri á Bjarna Sæ-
mundssyni þar sem þeir voru
staddir á Vestfjarðarmiðum í
gær.
„Ég held að hér sé efniviður í
einhverja vesturgöngu, en eftir
mínum kokkabókum að dæma
yrði hún mun minni en í fyrra. í
fyrra skiptist loðnan til helminga
eða þar um bil til austurs og
vesturs, en nú virðist aðeins um
V% eða Vt vera eftir og það má
gera ráð fyrir því að hún haldi
suður á bóginn þótt svo kunni að
fara eins og varð 1978 þegar hún
hrygndi á staðnum.
Hins vegar held ég að austur-
gangan hrygni á suðaustursvæð-
inu, þ.e. varla vestar með Suður-
landi en á móts við Hornafjörð-
Meðallandsbugt. Austurgangan
er ennþá úti af Langanesi með
um 10% hrognafyllingu, en þann-
ig hefur staðan venjulega verið
þegar loðnan hefur verið á móts
við Hornafjörð. Þess ber að gæta
að þótt það virðist vera svipað
magn og sl. ár sem gengur nú
austur og suður með landinu þá
vantar miðað við s.l. ár stórlega á
hinn endann, þ.e. gönguna sem
fer væntanlega suður með Vest-
urlandi."
Viðrædur launþegasamtaka
og st jórnvalda ef tir helgi
INNAN Alþýðusambands
íslands hefur verið kjörin
þriggja manna nefnd til við-
ræðna við stjórnvöld um kjara-
málin. Nefndin, sem í eiga sæti
Snorri Jónsson, starfandi for-
seti ASÍ, Ásmundur Stefánsson,
framkvæmdastjóri og Björn
Þórhallsson, formaður Lands-
sambands islenzkra verzlun-
armanna, mun eiga fundi með
forsætisráðherra eftir helgina.
Samninganefnd Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja hefur
verið kölluð saman næstkom-
andi þriðjudag klukkan 14, þar
sem fjallað verður um kjaramál-
in, en síðan munu fulltrúar
BSRB síðari hluta næstu viku
ganga á fund ráðherra og ræða
samningsgerðina við þá. Þessar
upplýsingar fékk Morgunblaðið í
gær hjá Kristjáni Thorlacius,
formanni BSRB. Hann kvað full-
trúa BSRB hafa áréttað við
ráðherra, að fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkissjóðs gerði BSRB
gagntilboð um kjaramálin.
Kristán kvað fundardag með
ráðherra enn ekki hafa verið
ákveðinn.
Kristján kvað ráðherra hafa
lýst því yfir, að áður en ríkið
gerði opinberum starfsmönnum
gagntilboð, vildu þeir ræða við
fulltrúa BSRB. Hann kvað til-
gang þessara viðræðna vera
þann, að ráðherrarnir vildu
kynna sér málið til hlýtar.