Morgunblaðið - 19.02.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTAKÁLFI
41. tbl. 67. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sovétmenn guldu af-
hroð í Badakhshan
karachi. 18. febrúar AP.
AFGANSKIR uppreisnarmonn segjast haía fellt um 200 sovéska hermenn
þegar þeir náðu á sitt vald flunvellinum í Faizabad. höfuðborg
Badakhshan í norð-austurhluta Afganistans. að því er dagblaðið Jang
skýrði frá í Karachi í dag. Uppreisnarmenn segjast hafa tekið 15 sovéska
hermenn til fanga í bardögunum. skotið niður tvær MIG-19 orustuþotur,
eyðilagt 17 skriðdreka og fjórar þyrlur i bardögum um flugvöllinn, sem
stóðu í 10 daga. Bardagar um borgina standa nú yfir og segjast
uppreisnarmenn hafa umkringt hana. að því er hlaðið hefur eftir
fréttamanni sínum meðal uppreisnarmanna.
Danskur sendiráðs-
maður kallar til lög-
reglumanna frá svöl-
um sendiráðsins.
Vinstrisinnar halda 10
gíslum í sendiráðinu.
þeirra á meðal danska
sendiherranum.
Símamynd AP.
YFIR 100 afganskir stjórnarher-
menn féllu í síðustu viku þegar
fjölmennur her stjórnarinnar í Kab-
úl réðst á stöðvar uppreisnarmanna
í Dahana-I-Guri, um 200 kílómetra
norð-austur af Kabúl, að því er
heimildir, sem reynst hafa áreiðan-
legar skýrðu frá. Ekki var getið
mannfalls meðal uppreisnarmanna.
Sovéskir hermenn studdu afgönsku
stjórnarhermennina en tóku ekki
beinan þátt í bardögunum. Þá sögðu
heimildir að til mótmælaaðgerða
hafi komið í Herat í V-Afganistan og
borgunum Polichomri og Baglan.
Ferðamaður sem nýlega var í
Baglan skýrði frá því, að uppreisn-
armenn hefðu myrt 37 stuðnings-
menn Babrak Karmal, forseta lands-
ins og auk þess kveikt i opinberri
byggingu þann 5. febrúar. Tveimur
dögum síðar komu uppreisnarmenn
aftur til borgarinnar og kveiktu þá í
Trudeau
48%
atkvæða
Toronto, 18. febrúar. AP.
FRJÁLSLYNDA flokknum undir
stjórn Pierre Eliiott Trudeaus var
spáð sigri í kanadísku kosningum,
sem fram fóru í dag. Kjörsókn var
liðlega 70%, en alls er talið að
liðlega 10 milljónir manna hafi
neytt atkvæðisréttar síns. Frjáls-
lynda flokknum var spáð 48%
atkvæða, íhaldsflokknum undir
stjórn Joe Clark var spáð 28% og
sósíaldemókrötum 23% atkvæða.
Kjörsókn var góð í austurhluta
landsins. Þar var veður ágætt. Hins
vegar var kjörsókn minni í vestur-
hluta landsins. Þar var ýmist snjó-
koma eða slydduél. Kjörsókn var
venju fremur meiri í Quebec og er
það talið geta ráðið miklu. Frjáls-
lyndir hafa löngum haft sterk ítök
þar.
fleiri opinberum byggingum, þar á
meðal háskólanum í borginni. Hvað
eftir annað hefur komiö til mótmæla
gegn Sovétmönnum í borginni.
I morgun lenti a-þýzk flugvél frá
Afganistan í Berlín með 10 helsærða
afganska stjórnarhermenn. Þeim
var flogið frá Kabúl eftir bardaga
við uppreisnarmenn.
spáð
Paputin
skaut sig
Lundúnum. 18. fohrúar. AP.
BREZKA blaðið The Observer
skýrði frá því í gær, að sovéski
hershöfðinginn Viktor Paput-
in hefði framið sjálfsmorð á
Sheremyetevoflugvellinum í
Moskvu skömmu eftir innrás
Sovétmanna í Afganistan.
Fyrri fréttir hermdu að Paput-
in hefði fallið í Afganistan.
The Observer sagði að Paputin
hefði verið persónulega ábyrg-
ur fyrir öryggi Hafizullah
Amins, forseta Afganistan.
Þegar Sovétmenn réðust inn í
landið hefði Amin verið flutt-
ur til hallar í úthverfi Kabúl,
svo að auðveldara yrði að gæta
öryggis hans.
Afganskir hermenn gættu
hallarinnar. Sovéskir hermenn
komu síðan til hallarinnar og
bardagar brutust út af ókunn-
um ástæðum. Amin lét lífið en
ekki fyrir vopnum sovéskra
hermanna. „Amin var tekinn af
lífi vegna mistaka samkvæmt
nýjum upplýsingum frá
Moskvu," skrifaði The Observ-
er. Blaðið skýrði frá því, að
bæði Amin og Taraki hefðu
beðið um sovéska íhlutun. Pap-
utin var gerður ábyrgur fyrir
dauða Amins og því kallaður
heim. Hann var aðstoðarinn-
anríkisráðherra.
Mexíkó:
Sendiráð Dana
og Belga tekin
Mexikúborg. 18. lebrúar. AP.
VINSTRISINNAR tóku í kvöld
sendiráð Danmerkur og Belgíu í
Mexíkó. Takan fór friðsamlega
fram og krefjast vinstrisinnarnir
að öllum pólitiskum föngum í
Mexíkó-verði sleppt úr haldi og
betri kjara til handa fátæku fólki í
landinu. Vinstrisinnarnir segjast
hafa danska sendiherrann, sex
danska sendiráðsmenn og þrjá
mexíkanska starfsmenn sendiráðs-
ins í haldi. Embættismaður. sem fór
inn í bygginguna sagði að nær
sanni væri að tala um setu vinstri-
sinna í sendiráðinu.
Talsmaður belgíska utanríkis-
ráðuneytisins staðfesti í kvöld að
belgíska sendiráðið hefði verið tekið.
Hins vegar hafði ekkert frést frá
danska utanrikisráðuneytinu en að
sögn var danski sendiherrann í
Sakharov misþyrmt
hrottalega af KGB
Moskvu. 18. íebrúar. AP.
ANDÓFSMAÐURINN og Nóbels-
verðlaunahafinn Andrei Sakh-
arov sagði í dag í yfirlýsingu, að
hann og kona sín. Yelena Bonner,
hefðu verið „hrottalega barin af
lögreglumönnum KGB“. Yfirlýs-
ingin var lesin fyrir vestrænum
fréttamönnum í Moskvu í dag en
ættingjar komu bréfinu til
Moskvu. Sakharov sagðist hafa
sent yfirmanni KGB, Yuri Andro-
pov bréf, þar sem hann lýsti
atvikum og mótmælti aðförum
lögreglumanna KGB harðlega.
Atvikið átti sér stað á föstudag.
í'bréfi sínu til Andropov skrifaði
Sakharov: „Vinur minn, Shikhano-
vich, sem var að koma í heimsókn,
var stöðvaður án nokkurrar
ástæðu við inngang íbúðarhúss
okkar og fluttur burt. Lögreglu-
menn neituðu að segja mér hvers
vegna Shikhanovich hefði verið
handtekinn og hvert hann hefði
verið fluttur." í yfirlýsingu sinni
sagði Sakharov að þau hjónin
hefðu síðan farið til lögreglustöðv-
ar til að spyrja hverju handtaka
Shikanovich sætti. „Þeir köstuðu
okkur í gólfið og börðu okkur.
Slógu konu mína í augun en hún á
við augnsjúkdóm að stríða. Síðan
köstuðu þeir okkur út,“ skrifaði
Sakharov til Andropovs.
í yfirlýsingu 4. febrúar skýrði
Sakharov frá því, að lífi hans hefði
verið ógnað af tveimur vopnuðum
mönnum. Þá sagðist hann enn-
fremur hafa fengið hótunarbréf. í
yfirlýsingu 12. febrúar skýrði
hann frá því, að daglega fengi
hann milli 20 og 25 bréf. Um
helmingur þeirra kæmi erlendis
frá, en þau bréf sem kæmu
innanlands frá lýstu ýmist stuðn-
ingi við hann eða andúð.
stöðugu sambandi við stjórnvöld í
Kaupmannahöfn. Haft var eftir
diplómat. að Watteeuw, sendiherra
Belga, væri í haldi í sendiráðinu en
aðrir starfsmenn komist undan þeg-
ar ráðist var til atlögu. Fréttir
stönguðust á um atburði og sam-
kvæmt öðrum fréttum þá átti Watt-
eeuw að hafa komist undan.
Samkvæmt fréttum frá Mexíkó
voru það 20 manns, sem tóku danska
sendiráðið og um 12 manns sem tóku
það belgíska. Bæði sendiráðin hafa
aðsetur sín í háhýsum. Talsmaður
Mexíkóstjórnar hélt því fram að
engir pólitískir fangar væru í land-
inu en vinstrisinnar segja þá rétt um
100. Samkvæmt fréttum frá Mexíkó í
kvöld, eru starfsmenn sendiráðanna
ekki í bráðri hættu. Lögregla um-
kringdi byggingar sendiráðanna.
Fréttir hermdu að vinstrisinnarnir
væru ekki vopnaðir.
Tító í nýrnavél?
BclKrad. 18. fcbrúar. AP.
LÆKNAR Titos Júgóslavíuforseta
sögðu í dag. að líðan hans væri enn
óbreytt. Um helgina var starfsemi
nýrnanna veikari. í tilkynningu
lækna sagði, að meðferð hins aldur-
hnigna forseta miðaðist nú einkum
að starfsemi nýrna. Það þykir renna
stoðum undir þá kenningu, að nýrna-
vél hafi verið sett í samband til að
hreinsa blóð hans. Heimildir sögðu
að slík meðferð hefði í för með sér
aukið álag á hjarta.