Morgunblaðið - 20.02.1980, Qupperneq 1
32 SIÐUR
42. tbl. 67. árg.
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Kosningarnar í Kanada:
„Ástarævintýri
flokks og þjóðar
Ottawa. 19. febrúar. AP.
FRJÁLSLYNDI flokkurinn í
Kanada undir forystu Pierre Ell-
iott Trudeaus, fyrrum forsætis-
ráðherra, vann stórsigur í þing-
kosningunum í landinu á mánu-
dag. Flokkur Trudeaus hefur
þegar tryggt sér 146 þingsæti af
281. en íhaldsflokkur Joe Clarks,
fráfarandi forsætisráðherra, hef-
ur fengið 103 sæti og Nýi demó-
Hittust Ghotbzadeh
og Jordan í París?
Gení. Teheran. París, 19. febrúar. AP.
í KVÖLD var von á mönnunum
fimm, sem rannsaka eiga feril
keisarastjórnarinnar í íran á
vegum Sameinuðu þjóðanna, til
Genfar, en þaðan er ráðgert að
þeir fljúgi til Teheran í fyrra-
málið. Waldheim framkvæmda-
stjóri S.Þ. hefur enn ekki látið
uppi hvert formlegt umboð
nefndarinnar verður og bíður
hann skjalfestrar tilkynningar
stjórnarinnar í íran um að hún
fallist á umboðið og þá. sem
tilnefndir hafa verið í nefndina.
Slík staðfesting hefur þó borizt
Waldheim símleiðis.
Khomeini trúarleiðtogi í íran
fól í dag Bani-Sadr forseta öll
yfirráð yfir herafla landsins.
Velta menn því nú fyrir sér í
Teheran, hvort Bani-Sadr muni
senn láta til skarar skríða gegn
fólki því, sem hefur gíslana í
sendiráði Bandaríkjanna á valdi
sínu. Einnig er getum að því leitt
að hann kunni brátt að reyna að
vinna bug á uppreisnarmönnum í
Kúrdistan, en þar hefur verið
barizt undanfarna mánuði.
Sadeg Ghotbzadeh utanríkis-
Líðan Títós
enn óbreytt
Helgrad. 19. íebrúar. AP.
LÆKNAR Títós Júgóslavíufor-
seta sögðu í dag, að forsetinn
væri enn mjög alvarlega veikur,
þótt nýru hans störfuðu nú
eðlilegar en áður. Talið er, að vél
hafi verið sett í samband við
nýrun til að hreinsa blóðið en
það er talið geta aukið þrýsting-
inn á hjartað, sem læknar höfðu
miklar áhyggjur af fyrir.
Tveir járnbrautarvagnar úr
einkalest Títós hafa verið fluttir
frá Belgrad til Ljubliana, þar sem
hann liggur á sjúkrahúsi, og
rennir það stoðum undir þá
skoðun, að fyrirhugað sé að flytja
lík hans með lest til Belgrad með
viðkomu á ýmsum stöðum, lifi
hann ekki af veikindin.
Helztu ráðamenn í Júgóslavíu
hittust í Belgrad og ræddu að
sögn „skipulagsleg" og „stjórn-
arfarsleg" málefni. Einnig kom
miðstjórn júgóslavneska komm-
únistaflokkdns saman til fundar
í dag.
ráðherra írans hélt í gær heim-
leiðis eftir nokkurra daga dvöl í
Frakklandi, þar sem hann ræddi
m.a. við hinn franska starfsbróð-
ur sinn. Þær fregnir komust á
kreik í París í dag, að Ghotbza-
deh hefði átt leynilegan fund með
Hamilton Jordan, skrifstofu-
stjóra Carters Bandaríkjaforseta,
sem einnig var staddur í borg-
inni, en báðir hafa þeir vísað
þessum fréttum á bug.
krataflokkurinn. sem er jafnað-
armannaflokkur, 32 þingsæti. Á
þinginu í Ottawa sitja 282 þing-
menn, en kosningu í einu kjör-
dæmi var frestað. þar sem einn
frambjóðendanna féll frá í kosn-
ingabaráttunni.
Stjórn Joe Clarks hefur aðeins
verið við völd í níu mánuði, en hún
féll á vantrausti í þinginu í
janúar. Talið er að tillaga stjórnar
Clarks um að leggja 18 senta
aukaskatt á hvert gallon af
benzíni hafi ráðið miklu um úrslit
kosninganna.
Trudeau sagði, þegar úrslit
kosninganna lágu fyrir, að þau
væru til vitnis um gamalt ástar-
ævintýri frjálslynda flokksins og
kanadísku þjóðarinnar. Trudeau
var búinn að ákveða að láta af
starfi leiðtoga Frjálslynda flokks-
ins í næsta mánuði, en hann hefur
nú sagt, að hann muni verða
forsætisráðherra í 2—3 ár en
eftirláta öðrum þá völdin.
Utanríkisráðherrar EBE:
Trudeau, sem nú verður á ný forsætisráðherra í Kanada, í hópi
stuðningsmanna sinna í Ottawa í fyrrakvöld, þegar kosningaúrslitin
lágu fyrir. Trudeau, sem nú er sextugur, var forsætisráðherra Kanada
á árunum 1968 — 79. Símamynd AP.
Bjóðast til að tryggja
hlutleysi Afganistans
Róm. Bunn. Washinntun, 19. febrúar. AP. I samningum og Sovétmenn hverfi | un um þátttöku landanna í Ól- álitshnekki.
Utanríkisráðherrar Efnahags-
bandalagslandanna níu lögðu í
dag til, að hlutleysi Afganistans
verði tryggt með alþjóðlegum
jafnhliða brctt úr landinu með
herlið sitt. Ráðherrarnir, sem
funduðu daglangt i Róm, ákváðu
að slá á frest endanlegri ákvörð-
200 bílar í árekstri
— Einn mesti árekstur, sem
sögur fara af, varð á Normandy-
hraðbrautinni skammt frá París á
mánudag. Alls lentu um 200 bílar í
árekstrinum, sem varð í niðaþoku.
Tvéir létust í slysinu og 20 slösuð-
ust alvarlega.
Um helgina varð einnig mikill
árekstur skammt utan við Ósló,
þegar 18 fólksbílar og áætlunarbíll
rákust á við mynni neðanjarðar-
ganga. Fyrsti bíllinn lenti á vegg
ganganna, en síðan komu hinir
allir i kjölfarið. Mikil hálka var,
þegar slysið varð og einnig sól,
sem talið er að hafi blindað
ökumann fyrsta bílsins. Einn
maður beið bana í þessum árekstri
og 20 slösuðust.
ympíuleikunum í Moskvu, þar til
Sovétmenn haía svarað boði
þeirra.
Tillaga sú, sem ráðherrarnir
samþykktu, var fram borin af
Carrington lávarði, utanríkisráð-
herra Bretlands. Carrington sagði
eftir ráðherrafundinn, að hann
hefði í huga svipaða hlutleysis-
tryggingu og samið var um fyrir
Austurríki árið 1955. Fréttaskýr-
endur telja, að með tillögu þessari
sé verið að gefa Sovétríkjunum
kost á því að hverfa frá Afganist-
an með herlið sitt án þess að bíða
Vance utanríkisráðherra
Bandaríkjanna var hafður með í
ráðum um samningu þessarar
tillögu, en hann er nú í Bonn og
mun eiga þar viðræður við
v-þýzka ráðamenn um Afganist-
anmálið.
Carter Bandaríkjaforseti sagði í
ræðu í kvöld, að samningar um
takmörkun gereyðingarvopna
væru enn mikilvægari en áður
eftir atburðina í Suðvestur-Asíu
og að hann hefði ekki lagt Salt-
2 samkomulagið endanlega á hill-
una.
Daufleg vist í
sendiráði Dana
Mexíkóborg, 19. íebrúar. AP.
LÖGREGLUMAÐUR á verði fyr-
ir framan danska sendiráðið i
Mexíkóborg sagði í dag, að mót-
mælaaðgerðirnar í sendiráðinu
væru „hljóðlegar og leiðinlegar“.
Sama mun hafa verið uppi á
teningnum í belgíska sendiráðinu
i borginni.
Lítill hópur vinstri manna kom
sér fyrir í sendiráðunum tveimur í
gær og krafðist þess, að fangar,
sem sagðir voru í haldi af pólitísk-
um ástæðum, yrðu látnir lausir.
Jafnframt var þess krafizt, að
lífskjör í Mexíkó yrðu bætt.
Starfsmenn sendiráðanna fá að
fara óhindraðir ferða sinna og ekki
hefur komið til neinna átaka vegna
þessara mótmæla.
Herlög í Izmir?
Ankara. 19. febrúar. AP.
TYRKNESKA stjórnin ákvað
í dag að óska eftir því við þing
landsins, að herlög taki gildi í
Izmir-héraði á Eyjahafsströnd
Tyrklands og í Hatay-héraði í
suðurhluta landsins, en miklar
óeirðir hafa verið á þessum
stöðum undanfarið. Gengið
verður til atkvæða um þessa
tillögu stjórnarinnar í þinginu
á miðvikudag.