Morgunblaðið - 22.02.1980, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
44. tbl. 67. árg.
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Áhrif arík mótmæli í
Kabul gegn Rússum
Afganskir uppreisnar-
menn sýna herfang sitt,
sovézkan stríðsvagn, aust-
an við Kabul. Heimildir
herma að nær öll aðflutn-
ingsleiðin frá landamær-
um Pakistans til höfuð-
borgar Afganistans sé á
valdi uppreisnarmanna.
Kabul, 21. febrúar. AP.
FLESTUM verzlunum í höfuðborg Afganistans var
lokað í dag og þetta voru áhrifaríkustu mótmælin sem
hefur verið gripið til gegn hernámi Rússa til þessa.
Aðeins örfáir búðareigendur færðust undan áskorun
uppreisnarmanna um að fordæma íhlutunina með því að
lama viðskiptalíf höfuðborgarinnar þrátt fyrir ein-
dregnar tilraunir stjórnvalda til að neyða þá til að hafa
verzlanirnar opnar.
Þúsundir borgarbúa stóðu á götum úti þrátt fyrir
úrkomu til að fylgjast með árangri mótmælanna og
voru greinilega sigri hrósandi.
„Við höfum unnið mikinn sigur í
dag,“ sagði búðareigandi nokkur.
„Við höfum sýnt Rússunum hvað
afgönsku þjóðinni finnst um þá.“
Afganskir lögreglumenn og her-
menn voru hvarvetna á verði.
Sums staðar sáust óeinkennis-
klæddir lögreglumenn reyna að
neyða búðareigendur til að fjar-
lægja rimla frá gluggum sínum.
Eigendurnir hlýddu yfirleitt, en
komu rimlunum aftur fyrir þegar
lögreglan var farin.
Vestrænir fréttamenn sáu emb-
ættismenn aka um aðalverzlun-
arsvæðin í fylgd lögreglu og fylgj-
ast felmtri slegnir með lokuninni.
Sovétstjórnin hafnaði 1 dag til-
lögu Efnahagsbandalagsins um
brottflutning Rússa frá Afganist-
an og gaf í skyn að hún væri
runnin undan rifjum Bandaríkja-
manna.
Cyrus Vance, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, viðurkenni í kvöld
að honum hefði ekki tekizt að
tryggja einróma stuðning við
ákvörðunina um að hundsa
Ólympíuleikana í Moskvu í
Evrópuferð sinni.
Eftir ferð sína til Bonn, Rómar,
Parísar og viðræður í London
getur Vance aðeins treyst á ein-
dreginn opinberan stuðning Breta.
Ráðherrann mætti harðastri mót-
stöðu í París, þar sem honum
tókst ekki að fá Frakka ofan af
þeirri skoðun að slökunarstefnan
geti orðið fyrir skakkaföllum ef
Olympíuleikarnir verða hundsað-
ir.
Jörgensen
með aðild
Færeyinga
Frá íréttaritara Mbl. í I>«rsh«fn i
Færeyjum í ga*r.
DANSKA stjórnin hefur hvatt
til þess að rannsakað verði
hvernig Færeyjar og Dan-
mörk geti sent sjálfstæða full-
trúa á fundi Norðurlandaráðs
samkvæmt brcfi scm Anker
Jörgensen försætisráðherra
hefur sent færeysku land-
stjórninni.
Stjórnin telur þetta æski-
legt með tilvísun til stöðu
Færeyja samkvæmt heima-
stjórnarlögunum frá 1948 og
þar sem staða Grænlands sé
nú orðin hin sama og Færeyja.
Síðan 1. janúar 1970 hefur
Lögþing Færeyja valið tvo full-
trúa í nefnd Danmerkur á
fundum Norðurlandaráðs auk
þess sem einn fulltrúi fær-
eysku lands'tjórnarinnar hefur
átt sæti í nefndinni. — Arge.
Kosygin kemur
upp á yfirborðið
Moskvu, 21. tebrúar. AP.
ALEXEI Kosygin, forsætisráðhcrra
Rússa, kom í dag fram i dagsljósið
eftir f jögurra mánaða hlé og veittist
harkalega að Bandaríkjamönnum
fyrir að sveigja inn á braut „hreinn-
ar vitfirringar“ með harðnandi
stefnu um allan heim.
Kosygin sagði þetta í 45 minútna
rseðu sem hann flutti á 76 ára
afmæli sinu í Bolshoi-leikhúsinu til
undirbúnings kosningunum til
Æðsta ráðsins á sunnudaginn.
Leonid Brezhnev forseti flytur sina
framboðsræðu á morgun.
Forsætisráðherrann virtist við
góða heilsu en rak í vörðurnar
nokkrum sinnum í ræðunni. Hann
sást síðast opinberlega 17. október
þegar hann kvaddi Hafez Assad
Sýrlandsforseta. Fréttir herma að
hann hafi fengið hjartaáfall, en
engin opinber skýring var gefin á
fjarveru hans og Kosygin minntist
heldur ekki á hana í ræðunni.
Kosygin réðst á „bandarísk aft-
urhaldsöfl" sem hann sagði reyna að
„grafa undan slökunarstefnu og
kalla fram árekstra" og kvað Rússa
standa vörð um „málstað slökunarst-
efnu afvopnunar og friðsamlegrar
samvinnu".
En hann ræddi aðallega innan-
landsmál, kvað „meginmarkmið" So-
vétríkjanna að bæta lífskjörin og
lagði áherzlu á mikilvægi þess að
hraðað yrði framförum í vísindum og
tækni.
Námsmeraiimir haf a
í hótunran við gíslana
Teheran. 21. febrúar. AP.
NÁMSMENNIRNIR í bandaríska
sendiráðinu í Tehcran sögðu í dag,
að gíslum þeirra yrði cngin vægð
sýnd fyrr en fyrrverandi Iranskeis-
ari hefði verið framseldur.
Nefndin sem SÞ skipaði til að
rannsaka feril keisarans hélt fyrsta
fund sinn í Genf í dag í fjarveru eins
formannsins. Mohamed Bedjaoui,
sem fór óvænt til New York þar sem
hann er fulltrúi Alsírs hjá samtök-
unum. Samningamönnum hefur enn
ekki tekizt að ná samkomulagi um
timasetningu frelsunar gíslanna og
starf nefndarinnar er i sjálfheldu.
Trúarleiðtoginn Khomeini og
Abolhassan Bani-Sadr forseti neit-
uðu því enn að nokkurt samband
væri á milli starfs nefndarinnar og
frelsunar gíslanna og kröfðust fram-
sals keisarans.
Námsmennirnir í sendiráðinu
sögðu að skjöl sýndu að einn þriggja
bandarískra diplómata sem eru í
haldi í íranska utanríkisráðuneytinu,
Victor Tomseh, hefði staðið í tengsl-
um við hryðjuverkasamtökin Forg-
han sem hefðu myrt nokkra stuðn-
ingsmenn trúarleiðtogans og leiða
yrði hann fyrir rétt. Þeir kváðu
einnig skjöl sýna að annar ónafn-
greindur gísl hefði staðið í sambandi
við Forghan.
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóri SÞ, sagði í kvöld að Bedjaoui
hefði farið aftur til New York vegna
aðkallandi mála í alsírsku sendi-
London. 21. febrúar. AP.
FULLTRÚAR frá 40 Samveldis-
löndum sökuðu í dag brezka lands-
tjórann í Rhódesíu. Soames lávarð,
um hlutdrægni sem þeir sögðu valda
„trúnaðarbresti" í undirbúningi
kosninganna í iandinu.
Talsmaður framkvæmdastjórnar
Samveldisins sagði eftir fund full-
trúanna. að stjórnarfulltrúi Zambiu
nefndinni. Talsmaður SÞ kvað ekki
ólíklegt að Bedjaoui þyrfti eínnig að
ræða við Waldheim.
Lögfræðingur Irans í Panamaborg
sagði, að hann byggist við að hafa
undir höndum nauðsynleg skjöl til að
fara fram á framsal keisarans eftir
um hálfan mánuð. Hann hefur frest
til 22. marz.
kvæðist hafa undir höndum óyggj-
andi upplýsingar um veru suður-
afrískra hersveita meðfram landa-
mærum Zambíu og Mozambique.
Brezka utanríkisráðuneytið hafði
áður ítrekað andstöðu sína við er-
lenda íhlutun í Rhódesíu og harmað
yfirlýsingar er gæfu slíkt til kynna.
Fulltrúarnir fólu framkvæmda-
stjóra Samveldisins, Shridath
Ramphal að bera fram við brezka
utanríkisráðherrann fjórar kröfur
sem þeir sögðu að ganga yrði að fyrir
kosningarnar 27.-29. febrúar.
Samkvæmt þeim mundi brezka
stjórnin fela Soames að skipa rhód-
esískum öryggissveitum að fara til
búða sinna, fjarlægja alla suður-
afríska hermenn og hergögn þeirra,
banna rhódesískum heryfirvöldum
að birta „stríðstilkynningar“ og sjá
um að embættismenn Samveldisins
verði viðstaddir á öllum kjörstöðum
til að fylgjast með kosningunum.
Tito getur ekki skrifað
Ljubljana. 21. fchrúar. AP.
LÆKNAR Josip Broz Titos for-
seta gáfu í skyn í dag, að líðan
hans væri óbreytt en lifshættuleg.
Talsmaður stjórnarinnar sagði,
að Tito hefði verið of þungt haldinn
til að undirrita orðsendingar sem
hann ætlaði að senda í byrjun
mánaðarins til Jimmy Carters,
Bandaríkjaforseta, Leonid Brez-
hnevs, forseta Sovétríkjanna, Fid-
els Castros Kúbuforseta og fleiri
leiðtoga.
í þess stað fól Tito Lazar Kolis-
evski varaforseta' að senda orð-
sendingarnar.
Tito liggur enn í sjúkrahúsinu í
Ljubljana sem er talið einn bezti
spítali í Austur-Evrópu.
Soames sakaður
um „hlutdrægni66