Morgunblaðið - 29.02.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980
Vestmannaeyjar:
Miklir greiðsluerfið-
leikar frystihúsanna
— ÞAÐ ER mjög alvarlegt
ástand í Vestmannaeyjum og
brýnt að finna úrræði til lausnar
þeim vandamálum. sem við er að
glíma. sagði Steingrímur Her-
mannsson er Mbl. spurðist
fregna af ferð hans tii Eyja á
miðvikudag.
Sagði hann að vandinn mætti
greina í tvennt. Annars vegar
skammtímavandamál t.d. vegna
loðnunnar, sem ekki kom í ár, en í
fyrra framleiddu Eyjamenn
loðnuafurðir fyrir um 4 milljarða
króna. Hins vegar önnur vanda-
mál, t.d. minnkandi fiskafla
Fidelio næsta
óperuverkefni
SÍÐUSTU áætluðu tónleikar
óperunnar La Traviata féllu
niður í fyrrakvöld vegna veik-
inda Ólafar Kolbrúnar Harð-
ardóttur söngvara og ekki var
unnt að bæta við tónleikum
vegna þess að hljómsveitar-
stjórinn þurfti að fara af landi
brott. Sjö hundruð miðar
höfðu selzt á síðustu tónleik-
ana og voru þeir endurgreidd-
ir. Samkvæmt upplýsingum
Sigurðar Björnssonar söngv-
ara og framkvæmdastjóra
Sinfóníunnar er ákveðið að
næsta óperuverkefni verði
Fidelio og verður hún flutt að
ári.
INNLENT
síðustu 10 árin og önnur sem rekja
mætti til gossins.
Sagði Steingrímur að fisk-
vinnslan í Eyjum væri í miklum
greiðsluerfiðleikum og væri Út-
vegsbankinn þar kominn í þrot
með aðstoð við þá, þar sem
frystihúsin væru komin með það
mikinn yfirdrátt. Sagði hann ferð-
ina til Eyja hafa verið mjög
gagnlega og hana hafa verið vel
undirbúna af Vestmannaeyingum.
Metaðsókn að
„Landi og sonum“
KVIKMYNDIN „Land og syn-
ir“ hefur nú verið sýnd í fimm
vikur í Austurbæjarbíói og
hafa um 40 þús. manns séð
hana, sem er metaðsókn að
sýningum í bíóinu.
Enn er lítið lát á aðsókn, en
sýningum fer þó fækkandi úr
þessu. Metaðsókn hefur einnig
verið á Norðurlandi þar sem
myndin hefur verið sýnd.
Sænska skáldið og sérfræðingurinn Tomas Tranströmer er’
gestur Norræna hússins um þessar mundir. í fyrrakvöld kynnti
hann skáldskap sinn i Norræna húsinu og var þá þessi mynd
tekin. Ljósm. Mbl. RAX.
Frystingarloðnan hefur
að mestu farið í bræðslu
ÚTGERÐARMENN hafa farið
fram á, að loðnuskipunum verði
leyft að veiða það magn strax, sem
leyft verður að veiða á vertíðinni.
Sjávarútvegsráðherra hefur mál
þetta nú til athugunar. en hátt í
viku er liðið síðan gaf til veiða. Um
1500 tonn af loðnu, sem veidd var
til frystingar, eru nú komin á land,
en aðeins um 100 tonn hafa verið
fryst, hitt hefur farið í bræðslu.
Kristján Ragnarsson, formaður
LIÚ, sagði í gær, að það væri dýrt að
geyma loðnuna. Fituinnihald hennar
minnkaði um 10% á viku hverri og
bræðsluverðmæti lækkaði því ört.
Þá sagði hann bræðsluloðnuna núna
vera verðmætari en þegar hún yrði
nothæf til hrognatöku, þannig að
hrognin vægju ekki upp rýrnunina
vegna fitunnar.
— í fyrsta lagi viljum við fá að
taka þessi 750 tonn strax, sem ætluð
eru hverjum báti til veiða í fryst-
ingu, sagði Kristján. — Það vill
enginn kaupa loðnu til frystingar og
ef einhverjir eru, þá geta þeir fengið
af þessum 750 tonnum. Það magn,
sem þá verður eftir, e.t.v. 30—40
þúsund tonn, verði leyft að veiða
strax og þá t.d. með meðalkvóta á
þau skip, sem ekki fara á net, sagði
Kristján.
Veiting prófessorsembættis við heimspekideild HI:
Hætta á að embætti
verði veitt eftir for-
múlum klíkunnar
- segir Vilmundur Gylfason fyrrv. menntamálaráðherra
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til Vilmundar Gylfasonar
fyrrverandi menntamálaráðherra og innti eftir áliti hans á þeirri
ákvörðun Ingvars Gíslasonar menntamáiaráðherra að veita dr.
Sveinbirni Rafnssyni prófessorsembætti í sagnfræði við heimspeki-
deild Háskóia íslands. Fer svar Vilmundar hér á eftir:
Ég held að það hafi verið röng
ákvörðun menntamálaráðherra
að ganga frá þessari stöðuveit-
ingu nú með þessum hætti. Það
hefur verið kirfilega upplýst í
almennri umræðu nú síðustu
vikurnar, að heimspekideild Há-
skóla íslands — þ.e. meirihluti
hennar hafi orðið á alvarleg
mistök.
Dómnefnd sú, sem skipuð var,
vann vel. Hins vegar skilaði
formaður hennar, Björn Þor-
steinsson, séráliti, sem var með
endemum. Allt þetta hefur verið
tíundað í fjölmiðlum og óþarfi
að hafa um það lengra mál.
Aðalatriðið var það, að þar var
kappkostað að telja einn um-
sækjanda hæfan, fræðimanns-
heiður tveggja annarra dreginn í
efa og öllum tiltækum ráðum
beitt í þessu skyni.
Atkvæðagreiðsla í heimspeki-
deild fór svo þannig, að ætla
hefði mátt að þessi dómur hefði
verið staðfestur. Þar með var
þessi málatilbúnaður allur orð-
inn mjög vefengjanlegur.
Ég veit ekki hvort fólk hefur
almennt áttað sig á því að þetta
mál er allt flóknara. Annað
sagnfræðiembætti við Háskóla
íslands er laust, en dómnefnd
þar hefur ekki skilað áliti. Ég
hef opinberlega áður bent á þá
hættu, að í lítilli háskóladeild
kunni að safnast 'saman hópur
persónulegra og/eða pólitískra
vina, sem veiti embætti eftir
formúlum klíkunnar. Ég vil
benda á eitt í þessu sambandi.
Sveinbjörn Rafnsson sækir einn-
ig um hitt embættið, sem er í
gamalíslenzkri sögu. Um það
embætti sækir einnig Gunnar
Karlsson. Mér hefur veið sagt,
að hann sé kandidat „meirihlut-
ans“ í það embætti, hvort sem
það er satt eða logið. Sveinbjörn
Rafnsson er sérfræðingur í
gamalíslenzkri sögu. Gunnar er
aftur sérfræðingur í síðari hluta
19. aldar. Það eru hins vegar
augljósir hagsmunir Gunnars,
að Sveinbjörn fái þetta embætti
nú, þar með er skæður keppi-
nautur ekki til staðar í síðara
embættið.
Gunnar Karlsson hefur tekið
þátt í þessum leik og er einn
þeirra, sem skrifaði nýlega undir
þrýstibréf til menntamálaráð-
herra, þar sem dómnefndarálit
Björns var að vísu dregið í efa en
engu að síður lagt að ráðherran-
um að skipa Sveinbjörn. — Slík
vinnubrögð þættu satt að segja
ekki til fyrirmyndar, ef stjórn-
málamenn ættu í hlut.
Þetta mál er auðvitað flókið.
Kjarninn er sá, að enginn dregur
lengur í efa, að með fullum
rökum hefur verið sýnt fram á,
að annarleg sjónarmið hafa veg-
ið þungt og fræðileg sjónarmið
hafa að sama skapi verið léttvæg
að því er varðar afgreiðslu
meirihluta heimspekideildar
Háskóla íslands.
Þess vegna tel ég, að Ingvar
Gíslason hafi tekið ranga
ákvörðun, sem getur reynst mjög
skaðleg. Sjálfstæði Háskóla
íslands á auðvitað að vera sem
mest. En mikið liggur við að
Háskólinn sé hafinn yfir allan
grun. Það er hann ekki í þessu
máli. Þess vegna hefði átt að
skipa nýja dómnefnd. Það hefði
ekki átt að skipa í embættið fyrr
en niðurstöður dómnefndar
varðandi seinna embættið liggja
fyrir, og skipa síðan í þau
saman. Og umfram allt. Það er
ófyrirgefanlegt að skipa í stöð-
una í samræmi við aðfarirnar
fyrir Sveinbjörn og gegn þeim
Inga og Þór.
Ég bað heimspekideild á
sínum tíma að fara aftur yfir
þetta mál. Tillögur um slíkt voru
bornar upp á deildarfundi að því
er mér hefur verið tjáð og í
samræmi við bréf mitt en þær
voru felldar. Þessi fundur átti
sér stað á sömu mínútum og við
Ingvar Gíslason vorum að skipt-
ast á lyklum uppi í stjórnarráði.
Málið var j>ar með úr mínum
höndum. Ég veit að Ingvar
Gíslason er friðarins maður. En
of mikill friðarvilji verður
stundum að hugleysi. Og það
held ég að sé lóðið að þessu sinni.
Rætt um lækkun
af urðalána í dag
TÓMAS Árnason viðskiptaráð-
herra mun i dag eiga fund með
bankastjórum Seðlabankans þar
sem rætt verður um afurðalán, en
lækkun þeirra hefur verið mjög
til umræðu að undanförnu.
Tómas sagði í gær, að hann
hefði þegar rætt þessi mál við
Seðlabankann, sem hefði tekið vel
hugmyndum um að athuga þessi
mál nánar. Aðspurður sagðist
hann líta svo á, að Seðlabankinn
réði afurðalánum, en eðlilegt væri
að hafa samráð um þau við
ríkisstjórn á hverjum tíma.
V etraríþróttahátíðin
á Akureyri:
Setningu frestað
vegna veðurs
FRESTA varð setningu vetrar-
íþróttahátíðar ÍSÍ norður á
Ákureyri í gærkvöldi vegna veð-
urs. Fer setningin þess í stað
fram í kvöld klukkan 20.30 ef
veður leyfir.
Hins vegar var opnuð sögu- og
vörusýning sem haldin er samfara
vetrarhátíðinni, enda sýning sú
haldin innanhúss og óháð veðri.
Sýning þessi sem haldin er í
Alþýðuhúsinu er haldin á nýjustu
vetraríþróttavörum annars vegar
og fornum gripum til sömu iðkana
hins vegar. Þykir það forvitnilegt.
Þrátt fyrir frestun á hátíðar-
setningunni, verður keppt í dag
samkvæmt dagskrá. í svigi ungl-
inga, skíðagöngu, öllum flokkum,
og skautahlaupi. Einnig í ísknatt-
leik.
Gagntilboð til BSRB:
Málið rætt aftur
á ríkisstjórnar-
fundi á þriðjudag
„ÞAÐ er misskilningur, að það sé
endilega von á gagntilboði öðru
hvorum megin við helgina. Þetta er
meira mál en það,“ sagði Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra, er Mbl.
spurði hann í gærkvöldi, hvort
ríkisstjórnin hefði á fundi í gær-
morgun gengið frá gagntilboði til
BSRB. „Við ræddum málið á ríkis-
stjórnarfundinum í morgun og ég
gerði grein fyrir þeim viðræðum,
sem fram hafa farið. Málin verða
íhuguð yfir helgina og rædd aftur á
ríkisstjórnarfundi á þriðjudaginn."
Gengissig eða
aðrar leiðir
EKKI hefur verið ákveðið í ríkis-
stjórninni á hvern hátt verður
brugðist við vanda frystihúsanna.
Steingrímur Hermannsson sjávar-
útvegsráðherra sagði í gær, að þetta
mál hefði verið rætt á fundum
ríkisstjórnarinnar síðan forystu-
menn frystihúsanna lögðu fram sin
vandamál. Þá sagði hann að Jón
Sigurðsson forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar hefði látið stjórninni í té álit
sitt, en málið væri ekki afgreitt.
— Það er enginn vafi á því að
gengið verður annaðhvort að síga
eða þá að finna aðrar leiðir til að
létta greiðslubyrði frystihúsanna, en
staða þeirra er mjög erfið, sagði
Steingrímur Hermannsson.
Akraborgin ekki í
ferðum 10-14 daga
AKRABORGIN verður tekin í slipp
á sunnudaginn í árlega klössun og
vélarupptöku. Er búist við því að
skipið verði 10—14 daga í slipp og
verða engar ferðir sjóleiðis milli
Reykjavíkur og Akraness á meðan.
Hins vegar mun Sæmundur í Borg-
arnesi halda uppi rútuferðum á
meðan Akraborgin verður stopp.