Morgunblaðið - 29.02.1980, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980
í ,til .
Islands
ferma skipin
sem hér
segir:
AMERÍKA
PORTSMOUTH
Brúarfoss 29. febr.
Bakkafoss 6. marz
Bakkafoss 27. marz
Selfoss 2. apríl
Brúarfoss 9. apríl
BRETLAND
MEGINLANDIÐ
ANTWERPEN
Skógafoss 29. febr.
Bifröst 6. marz
Reykjafoss 11. marz
Skógafoss 20. marz
Bifröst 27. marz
ROTTERDAM
Bifröst 5. marz
Reykjafoss 10. marz
Skógafoss 19. marz
Bifröst 26. marz
FELIXSTOWE
Dettifoss 3. marz
Mánafoss 10. marz
Dettifoss 17. marz
Mánafoss 24. marz
HAMBORG
Dettifoss 6. marz
Mánafoss 13. marz
Dettifoss 20. marz
Mánafoss 27. marz
WESTON POINT
Kljáfoss 12. marz
Kljáfoss 26. marz
NORÐURLOND
EYSTRASALT
KRISTIANSAND
Úðafoss 11. febr.
Tungufoss 25. marz
MOSS
Álafoss 29. febr.
Tungufoss 7. marz
Úöafoss 14. marz
Álafoss 21. marz
Tungufoss 27. marz
BERGEN
Tungufoss 4. marz
Álafoss 17. marz
HELSINGBORG
Lagarfoss 4. marz
Háifoss 10. marz
Lagarfoss 17. marz
Háifoss 24. marz
GAUTABORG
Tungufoss 6. marz
Úöafoss 13. marz
Álafoss 19. marz
Tungufoss 26. marz
KAUPMANNAHÖFN
Lagarfoss 5. marz
Háifoss 10. marz
Lagarfoss 19. marz
Háifoss 26. marz
TURKU
Múlafoss 29. febr.
írafoss 17. marz
Múlafoss 25. marz
GDYNIA
Múlafoss 3. marz
írafoss 19. marz
Múlafoss 27. marz
sími 27100
ámánudögumtil
AKUREYRAR
ÍSAFJARÐAR
á miðvikudögum til
•gii
VESTMANNAEYJA
EIMSKIP
í kastljósi í kvöld verður meðal annars fjallað um afleysinga-
þjónustu í sveitum sem nú skal greidd af ríkinu, en oft hefur því
verið haldið fram að bændur séu eina stéttin í landinu sem ekki á
þess kost að taka orlof sem aðrir landsmenn, og jafnvel geti
bændur ekki leyft sér þann „munað“ að verða veikir eins og þó
kemur fyrir alla einhvern tíma,-
Kastljós í kvöld klukkan 21.30:
Vöruflutnmgar innanlands og
afleysingaþjónusta í sveitum
Kastljós er á dagskrá sjónvarps
í kvöld klukkan 21.20 og er
umsjónarmaður þáttarins að
þessu sinni Helgi E. Helgason.
Honum til aðstoðar er Sæmund-
ur Guðvinsson blaðamaður á
Vísi.
I þættinum í kvöld verður
fjallað um vöruflutninga hér
innanlands, og um samkeppni
þeirra aðila sem vöruflutninga
annast, svo sem Skipaútgerðar
ríkisins og vöruflutningabíla
sem flytja vörur um þjóðvega-
kerfi landsins.
I þessu sambandi verður rætt
við þá Guðmund Einarsson for-
stjóra Skipaútgerðar ríkisins,
Stefán Pálsson framkvæmda-
stjóra Landsfélags vörubifreiða-
eigaenda og Helga Bergs bæjar-
stjóra á Akureyri. Munu þessir
menn skiptast á skoðunum um
þessi mál, sem eru brýnt hags-
munamál landsbyggðarfólks,
sem og raunar allra lands-
manna.
í öðru lagi verður svo í þættin-
um fjaliað um afleysingaþjón-
ustu fyrir bændur, sem kostuð
skal af ríkissjóði. í umræðum
um það mál taka þátt þeir Eiður
Guðnason alþingismaður og
Egill Bjarnason ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Skagafjarðar.
Bandarísk sjónvarpskvikmynd í kvöld:
Hver mun bjarga
börnum okkar?
Á dagskrá sjónvarps i kvöld
er athyglisverð bandarisk sjón-
varpskvikmynd, sem fjallar um
sigilt vandamál sem alltaf ann-
að slagið kemur upp; hver á að
hafa umráðarétt yfir börnum.
Um þetta málefni var meðal
annars rætt nokkuð í Katljósi
fyrir viku síðan, en þá var
raunar einungis tekið fyrir hve
lítinn rétt feður hafa til um-
gengni við óskilgetin börn sín.
Myndin í kvöld fjallar hins
vegar um tvö börn, sem komið er
fyrir hjá barnlausum hjónum
vegna þess að réttir foreldrar
þeirra eru taldir ófærir um að
ala upp börn. Fósturforeldrarnir
taka brátt miklu ástfóstri við
börnin og vilja gera ráðstafanir
til að ættleiða þau. Þá koma
foreldrar barnanna til sögunnar
á ný, og taka börnin til sín á ný.
Um þau átök sem þarna verða,
tilfinningalegs eðlis, verður
fjallað í myndinni, en í málum
sem þessum er vafasamt að
nokkur einn hafi alfarið rétt
fyrir sér, heldur verður að taka
tillit til allra aðstæðna og til-
finningalífs fjölda fólks.
Þýðandi myndarinnar er Ósk-
ar Ingimarsson, en með helstu
hlutverk fara þau Shirley Jones
og Len Cariou. Hér er á ferðinni
mynd sem óhætt ætti að vera að
mæla með, en hún er á dagskrá
sjónvarps klukkan 22.20 í kvöld.
Börnin Marjory og Tommy lukkuleg með lífið i leik við
fósturforeldra sína, barnlaus hjón sem tóku við þeim vegna þess að
foreldrar þeirra voru taldir óhæfir uppalendur.
Útvarp Reykjavík
FÖSTUDKGUR
29. febrúar
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna;
Ilallveig Thorlacius heldur
áfram að lesa „Sögur af
Hrokkinskeggja*' í endur-
sögn K.A. Mullers og þýð-
ingu Sigurðar Thorlaciusar
(9).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
, fregnir.
10.25 „Mér eru fornu minnin
kær“
Einar Kristjánsson rithöf-
undur frá Hermundarfelli
sér um þáttinn.
11.00 Morguntónleikar
Edith Mathis og Peter
Schreier syngja Þýzk þjóð-
lög í útsetningu Jóhannesar
Brahms; Karl Engel Jeikur á
píanó / Jón Sigurbjörnsson,
Gunnar Egilsson, Jón Sig-
urðsson. Stefán Þ. Stephen-
sen, Sigurður Markússon og
Hans Franzson leika Sextett
1949 eftir Pál P. Páisson /
Concertgebouw-hljómsveitin
í Amsterdam leikur Tvö-
hljómsveitarverk „Morgun-
söng trúðsins" og „Spánska
rapsódíu" eftir Maurice Rav-
el; Bernard Haitink stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
' fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa
Léttklassísk tónlist og lög úr
ýmsum áttum.
14.30 Miðdegissagan: „Myndir
daganna“, minningar séra
Sveins Víkings
Sigríður Schiöth les (3).
15.00 Popp. Vignir Sveinsson
kynnir.
15.30 Lesin dagskrá næstu
viku
15.50 Tilkynningar
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Litli barnatíminn:
Heiðdís Norðfjörð stjórnar
barnatíma á Akureyri.
16.40 Útvarpssaga barnanna:
„Dóra verður 18 ára“ eftir
Ragnheiði Jónsdóttur
Sigrún Guðjónsdóttir ies (4).
17.00 Síðdegistónleikar
Þuríður Pálsdóttir syngur
iög eftir Björn Franzson;
Jórunn Viðar leikur á píanó
/ Dennis Brain, Max Salpet-
er og Cyril Preedy leika Tríó
í Esndúr op. 40 eftir Johann-
es Brahms / Wladyslaw Ke-
dra og Fíiharmoníusveitin í
Varsjá leika Píanókonsert
nr. 2 í A-dúr eftir Franz
Liszt; Jan Krenz stj.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
KVÖLDID___________________
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Viðsjá. 19.45 Til-
kynningar.
20.00 Frá tónleikum Lúðra-
sveitarinnar Svans í Há-
skólabíói í fyrravor
Stjórnandi: Sæbjörn Jóns-
son. Kynnir: Guðrún Ás-
mundsdóttir.
20.35 Kvöidvaka
a. Einsöngur: Jóhann Már
Jóhannsson bóndi í Keflavík
í Hegranesi syngur lög eftir
Jóhann Ó. Haraldsson, Þór-
arinn Guðmundsson, Jón
Björnsson, Pétur Sigurðsson
og Jón Þórarinsson. Kári
Gestsson, Dalvík, leikur á
píanó.
b. Hlaupársdagur. Dr.
Þorsteinn Sæmundsson
stjörnufræðingur flytur er-
indi um uppruna þessa af-
brigðis i timatalinu.
c. Flutningur milli lands og
Eyja. Magnús Finnbogason á
Lágafelli í Austur-Landeyj-
um talar við Magnús Jónas-
son frá Hólmhjáleigu um
gripaflutninga til Vest-
mannaeyja og þaðan.
d. Kvæði eftir Guðmund
Frímann skáld. Baldur
Pálmason les.
e. Stofnað til hjúskapar um
miðja síðustu öld. Séra Jón
Kr. ísfeld flytur fyrri hluta
frásögu sinnar.
f. Kórsöngur: Karlakór
K.F.U.M. syngur. Söngstjóri:
Jón Halldórsson.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Lestur Passíusálma (23).
22.40 Kvöldsagan: „Úr fylgsn-
um fyrri aldar“ eftir Friðrik
Eggerz
Gils Guðmundsson les (13).
23.00 Áfangar
Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
FðSTUDAGUR
29. febrúar
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og
dagskrá
20.40 Reykjavíkurskákmótið
Friðrik Ólafsson fiytur
skákskýringar.
20.55 Prúðu leikararnir
Gestur leikbrúðanna að
þessu sinni er leikkonan
Dyan Cannon. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
21.20 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason fréttamaður.
22.20 Hver mun bjarga börn-
um okkar?
Bandarisk sjónvarpskvik-
mynd. Aðalhlutverk Shir-
ley Jones og Len Cariou.
Foreldrar Marjory og
Tommy eru gersamlega
ófærir uppalendur og því
er börnunum komið fyrir
hjá barnlausum hjónum,
Söru og Matt. Þeim þykir
brátt afar vænt um börnin
og gera ráðstafanir til að
ættleiða þau, en þá koma
foreldrarnir til sögunnar
og táka börnin frá þeim.
Þýðandi óskar Ingimars-
son.
23.55 Dagskrárlok