Morgunblaðið - 29.02.1980, Side 5

Morgunblaðið - 29.02.1980, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980 5 Landkynning í heimsborginni Vígalegur vikingur, Hilmar Jónsson nemur enska yngismær á brott. „ÞESSI ferð tókst ákaflega vel og vakti mikla athygli." sagði Hilmar Jónsson, veitingastjóri á Hótel Loftleiðum. í samtali við blaða- mann Mbl. en hann er nýkominn heim úr landkynningarferð til Frakklands og Englands. Ásamt Flugleiðum stóðu Ferðamálaráð, Sölustofnun lagmetis, SÍS, Út- flutningsmiðstöð iðnaðarins. Ála- foss og Hilda að þessari kynn- ingarferð. „Markmiðið var að kynna Ísland, selja islenzkar ull- arafurðir. sjávarafurðir og að ógleymdu lambakjötinu," sagði Hilmar ennfremur. í mánaðarbyrjun, var farin land- kynningarferð á vegum þessara Sendiherra íslands. Sigurður Bjarnason og kona hans, Ólöf Pálsdóttir ræða við Magnús Magnússon. Hilmar Jónsson. hinn vígalegi víkingur ásamt þátttakendum á Hótel Gloucester, frá vinstri: Auður Guðmundsdóttir, Tom Holton úr Hildu, Birgir Þorgilsson, Margrét Birgisdóttir, David Bellamy, þekktur sjónvarpsmaður í Bretlandi. Hann mun í sumar vinna að landkynningarmynd um ísland. Jóhann Sigurðs- son, Hólmfríður GísladóttirT' Magnús Magnússon. Steinunn Benediktsdóttir og Tony Crawford, framkvæmdastjóri hótelsins. aðila til Frakklands og komið við í þremur borgum, Strassbourg, París og Lyon. I framhaldi af Frakk- landsferðinni var svo haldið til Lundúna í tengslum við ár víkings- ins, 1980, í heimsborginni. Jóhann Sigurðsson, forstjóri Flugleiða í Lundúnum, stóð fyrir dvölinni þar í borg. Á Gloucester-hótelinu í Lundúnum var haldin mikil land- kynningarhátíð á mánudag. Þar var boðið upp á íslenzkan matseðil en hótelið hefur um hálfs mánað- arskeið haft íslenzkan mat á boð- stólum. í hádeginu var haldinn blaðamannafundur og voru boðs- gestir m.a. úr röðum tízkublaða- manna. Um kvöldið var síðan boðið ferðaskrifstofufólki og blaða- mönnum, sem sérhæfa sig í að skrifa um mat. Tízkusýningar voru haldnar og sýndu stúlkur úr Mód- eisamtökunum. Sýndar myndir frá íslandi. Meðal gesta var Sigurður Bjarnason, sendiherra íslands í Lundúnum, og kona hans, Ólöf Pálsdóttir. Þetta framtak hefur vakið mikla athygli og hafa birst myndir í brezkum blöðum. Þá verða viðtöl við þátttakendur í BBC. Páfi ávarpar íslendinga í Morgunpósti í MORGUNPÓSTI Útvarpsins í dag verður útvarpað ávarpi Jóhannesar Páls páfa II, en þeir Páll Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson, stjórnendur þáttarins, skrifuðu páfa bréf 15. mai í fyrra og var því komið á framfæri í Páfagarði af dr. Henrik Frehen, biskupi kaþólskra á Íslandi. Páll Heiðar sagði í gær, að bréf þetta hefði verið sent án þess að þeir hefðu gert sér nokkrar raunveru- legar vonir um að svar bærist. — Við Jóhannes Páll páfi II urðum því undrandi og glaðir þegar við fréttum fyrir þremur vikum að segulbandsspóla með ávarpi páfa væri komin til landsins, sagði Páll Heiðar. íframhaldi af þessu ávarpi páfa þótti okkur við hæfi að helga einn morgunpóst efninu kristni í nútíma þjóðfélagi. Til að ræða þetta efni m.a. höfum við fengið Sigurbjörn Ein- arsson biskup og dr. Henrik Frehen, þannig að þarna koma saman lút- erski biskupinn og sá kaþólski og það er í fyrsta skipti, sem slíkt gerist í útvarpinu, sagði Páll Heiðar. Umsókn Lofts var ekki dæmd VEGNA fréttar um skipan Svein- björns Rafnssonar í stöðu prófess- ors við Háskóla íslands, þar sem getið var umsækjenda, skal það tekið fram, að Loftur Guttorms- son dró umsókn sína til baka áður en dómnefnd hafði lokið störfum og fjallaði hún því ekki um hans umsókn. vegna mikillar eftirspurnar þrutu birgðir okkar af fermingarfatnaði Nú eru þau komin aftur Dragtir með pilsi eða/og buxum. Föt eða stakur jakki og buxur. Skyrtur — Blússur — Skór — Bindi — Kápur o.m.fl. 1. flokks efni og 1. fl. ísl. framleiðsla. MJÖG HAGSTÆTT VERÐ. Afít ^ TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS nTMOímist'tt V Glæsibæ — Laugavegi 6b Simi fra skiptiboröi 85055 | Austurstræti 22. Sími frá skiptiboröi 85055. 'Si'Sp'S'

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.