Morgunblaðið - 29.02.1980, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980
Vöruskemman á Rockville. Matínús og Björn komu út um dyrnar nær, en við hornið fjærst á myndinni
st<ið einn varnarliðsmannanna er miðaði á þá ok skipaði þeim að rétta upp hendurnar.
einhverjum orsökum átt í úti-
stöðum við Varnarliðið og oft
geta menn kennt sjálfum sér um,
þeir hafa e.t.v. ekki farið að
tilmælum og reglum. En það
hefur líka komið of oft fyrir að
menn eru áreittir af Varnarliðs-
mönnum þar sem íslendingar
álíta sig á ferð utan varnar-
svæða. Því er t.d. haldið fram að
Hafnavegurinn, þar sem margt
fólk fer um daglega, sé innan
varnarsvæðis og það má vera, en
það veit fólk hreinlega ekkert
um. Það vantar víða merkingar
sem segja til um hvar varnar-
svæðin eru og meðan svo er
getur komið til árekstra. Hefi ég
reyndar grun um að svona at-
burðir hafi gerzt miklu oftar en
fram hafa komið í dagsljósið, þó
kannski ekki svo alvarlegir sem
þessi."
Varðandi atburðinn á mánu-
dag kváðust þeir Björn og Magn-
ús ekki gera ráð fyrir að hann
hefði neina eftirmála í för með
sér, enda væri aðalatriði málsins
það, að hann væri mönnum víti
til varnaðar. Hér væri alls ekki
um að ræða neinn fjandskap við
herinn, en hér væri vissulega um
óþægilegan atburð að ræða, sem
þeir kærðu sig ekki um að lenda
aftur í og óskuðu engum manni
slíks.
— „Það sem var óþægilegast
og við vorum mest hræddir við,
var að standa fyrir framan
byssurnar sem hermennirnir
miðuðu á okkur. Þeir beinlínis
miðuðu á okkur með fingur á
gikknum og það er allt annað en
að beina byssu að manni. Okkur
var skipað upp að vegg með
uppréttar hendur og það var
ekki síður óþægilegt að vita af
byssuhlaupunum svona rétt
fyrir aftan okkur og þannig
urðum við að standa heila eilífð
að okkur fannst, en gera má ráð
fyrir að allt þetta hafi tekið
kannski 15—20 mínútur."
Þeir Björn og Magnús kváðust
margoft koma þarna vegna
starfa sinna, einu sinni, tvisvar í
viku og eiga þar erindi eftir
varningi í frystigeymslu í vöru-
skemmunni, sem er í útjaðri
Rockville- svæðisins, skammt
frá hliðinu. Eftir að þeir koma
inn á svæðið sækja þeir lykil,
fara síðan í geymsluna, skila
lyklinum og aka út af svæðinu
aftur. Kváðust þeir þekkja einn
hermanninn, sem hlut átti að
máli, en ekki gátu þeir útskýrt
þetta skyndilega upphlaup
þeirra, en vafalaust væru þeir
þar að fara eftir sínum reglum,
þótt þeim fyndist þeir hafa
gengið fulllangt í þetta sinn.
Vonum að slíkur atburð
ur endurtaki sig ekki
- segja tvímenningarnir sem varnarliðsmennirnir ógnuðu
MÁL starfsmannanna á Kefla-
víkurflugvelli. sem ógnað var
af hermönnum Varnarliðsins sl.
mánudag á Rockville- svæðinu.
er nú til athugunar hjá varn-
armáladeild utanríkisráðuneyt-
isins, en Þorgeir Þorsteinsson
lögreglustjóri á Keflavíkur-
flugvelli kvað rannsókn síns
embættis lokið. Ekki er vitað
um niðurstöður athugana ráðu-
neytisins ennþá. Perry Bishop
blaðafulltrúi Varnarliðsins
sagði skýrslur Varnarliðsins
um málið hafa verið sendar
ráðuneytinu.
Þeir Magnús Gíslason, annar
tvímenninganna, sem er formað-
ur Verzlunarmannafélags Suð-
urnesja og Ásbjörn Eggertsson,
varaformaður félagsins, áttu á
miðvikudag fund með utanríkis-
ráðherra. Hafði sá fundur verið
ákveðinn áður en atburðurinn á
mánudag varð, en Magnús sagði
í samtali við Mbl. þá hafa
upplýst ráðherra um ýmis mál-
efni Verzlunarmannafélagsins,
er sneru að Varnarliðinu, en hjá
því starfa kringum 280 félagar í
Verzlunarmannafélagi Suður-
nesja. Lítillega hefði og verið
fjallað um atburðinn á mánudag,
en þar hefði þó ekkert nýtt
komið fram.
— „Mér finnst aðalatriði
málsins það,“ sagði Magnús í
samtali við Mbl. í gær,„ að
atburður sem þessi endurtaki sig
ekki og að hann verði mönnum
víti til varnaðar. Það hefur alltof
oft komið fyrir að menn hafi af
Björn Stefánsson (t.v.) og Magnús Gíslason. Ljósm. Kristján.
Fjórðungssamband Norðlendinga
um steinullarverksmiðju:
Eindreginn stuðningur
við frumkvæði og
framtak Skagfirðinga
Sauúárkroki. 28. febrúar.
f GÆR var haldinn á Sauðár-
króki sameiginlegur fundur
fjórðungsráðs og inðþróunar-
og orkumálanefndar Fjórðungs-
sambands Norðlendinga. Fund-
inn sátu sveitarstjórnarmenn á
öllu Norðurlandi, samtals um 20
manns. Á fundinum kom fram
eindreginn stuðningur við
frumkvæði og framtak Skag-
firðinga við þróun nýiðnaðar,
sem nú hefur leitt til þess, að
álitlegt þykir að stofnsetja
steinullarverksmiðju á Sauð-
árkróki. Kemur þetta nánar
íram í ályktun fundarins, sem
var svohljóðandi:
Fjórðungssamband Norðlend-
inga styður frumkvæði og fram-
tak Skagfirðinga við þróun
nýiðnaðar, sem nú hefur leitt til
þess að álitlegt þykir áð stofn-
setja steinullarverksmiðju á
Sauðárkróki. Fjórðungssam-
bandið hefur fylgst með og stutt
þetta mál frá upphafi og jafn-
framt hvatt önnur byggðarlög til
iðnþróunar. Fjórðungssamband-
ið krefst þess að frumkvæði
Skagfirðinga verði metið að fullu
í þessu máli og telur ekki fýsilegt
fyrir menn að leggja í mikla
vinnu og kostnað við athugun og
undirbúning nýiðnaðar, ef þeir
eiga á' hættu að verkefnið verði
tekið úr þeirra höndum þegar
sýnt hefur verið fram á hag-
kvæmni þess. Fjórðungssam-
bandið harmar þau vinnubrögð
iðnaðarráðuneytisins að dreifa
mikilvægum gögnum og upplýs-
ingum á viðkvæmu stigi málsins
til hvers þess, sem sýnir því
áhuga. Fjórðungssambandið
leggur þunga áherslu á að iðnfyr-
irtækjum, sem reka má á hag-
kvæman hátt á landsbyggðinni,
verði valinn þar staður. Fjórð-
ungssambndið hvetur sveitarfé-
lög, fyrirtæki og einstaklinga á
Norðurlandi til að styðja þetta
mál með hlutafé, verði þess
óskað. Jafnframt beinir Fjórð-
ungssambandið því til þing-
manna Norðurlandskjördæm-
anna, að þeir styðji þetta mál.
Fjórðungssambandið metur
stuðning sunnlenzkra sveitarfé-
laga við rannsóknir íslenzkra
jarðefna og hagnýtingu Heklu-
vikurs til iðnaðarframleiðslu.
— Kári.
Gísli Magnússon,
nemandi í M.A., sem
hefur verið í starfs-
kynningu hjá blað-
inu s.l. viku, hafði
samband við
Grímsey, birtist frá-
sögn hans hér:
Ástralíustúlkur salta
og herða í Grímsey
FRÉTTARITARI Mbl. í
Grímsey, Alfreð Jónsson, var
hress í bragði er við slógum á
þráðinn til hans í gær og sagði
hann allt gott að frétta af
mannlífinu þarna norður við
heimskautsbaug.
Alfreð tjáði okkur að þrátt
fyrir dræm aflabrögð það sem af
væri vetri, þá væri létt hljóð í
mönnum. Fimm bátar reru nú
með þorskanet, og væri aflinn
allur saltaður og hertur. Við
þessa atvinnugrein vinna um 60
manns, sagði Alfreð, þar af 2
stúlkur frá Astralíu og líkar
þeim mjög vel við lífið í eynni.
Skemmtanalífið gengur sinn
vana gang, eitt þorrablót var
haldið nýverið og á slíkar
skemmtanir mæta svo til allir
eyjarskeggjar og skemmta sér
með dansi en án áfengis.
Elsti íbúi eyjarinnar, Krist-
jana Þorkelsdóttir, varð áttræð
fyrir skömmu, en engin barns-
fæðing hefur átt sér stað, það
sem af er árinu, það stendur þó
til bóta, sagði Alfreð án frekari
skýringar.
I barna- og grunnskólanum
eru í vetur 17 nemendur á
aldrinum 6—12 ára en íþróttalíf
er ekkert sökum mannfæðar.
Óveðrið á dögunum hafði sem
betur fer engin slys né skemmdir
í för með sér, og voru allir
bátarnir komnir í höfn kvöldið
áður en veðrið skall á.
Aðspurður sagði Alfreð um
skoðanir þeirra eyjarskeggja á
nýju ríkisstjórninni, „að það
væri betra að veifa röngu tré en
engu“, en bætti því við að það
væri hans persónulega álit, hvað
sem aðrir segðu. — G. Magg.