Morgunblaðið - 29.02.1980, Síða 27

Morgunblaðið - 29.02.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980 27 INNLENT TÓNLEIKAR á vegum Tónlist- arskólans í Reykjavík og Sinfóníu- hljómsveitar Islands verða haldn- ir í Háskólabíói n.k. laugardag 1. mars kl. 14.30. Einleikari í píanó- konsert nr. 1 eftir Liszt verður Jónas Sen, nemandi í Tónlistar- skólanum í Reykjavík, og er það liður í einleikaraprófi hans frá skólanum. Önnur verk á tónleik- unum eru forleikur að óperunni Rúslan og Lúdmíla eftir Glinka og Rapsódía nr. 1 eftir Georges Enesco. Hljómsveitarstjóri er Páll Pampichler Pálsson. Þetta er í annað sinn sem Tónlistarskólinn í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveit íslands hafa samvinnu á þennan hátt. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. V atnslitamy ndir á Snerru-lofti MAGNÚS Jóhannesson sýnir eða frá síðastliðnu sumri. Sýn- um þessar mundir 21 vatnslita- ingin er opin alla daga á verslun- mynd á SNERRU-lofti í MOS- artíma og um helgar frá 14.00 til FELLSSVEIT. Myndirnar eru 18.00 fram til 10. mars. Aðgang- allar til sölu og eru flestar nýjar ur er ókeypis. Þessar bráðfallegu ungu stúlkur frá Víðistaðaskóla í Hafnarfirði voru í tvo daga í vikunni í starfskynn- ingu á Morgunblaðinu. Litla grein sögðust þær stöllur hafa gert sér fyrir þeirri miklu og fjölþættu vinnu, sem býr að baki blaðaútgáfu, en vonandi eru þær nú að fróðari. Á myndinni eru Ólöf Magnúsdótt- ir og Sif Gunnlaugsdóttir en á myndina vantar Arnfríði Methúsalemsdóttur. Ráðstefna um móðurmáls- kennslu LAUGARDAGINN 1. mars gang- ast Samtök móðurmálskennara fyrir ráðstefnu um íslensku- kennslu á framhaldsskólastigi. Ráðstefnan yerður haldin í Kenn- araháskóla íslands og hefst klukk- an 13.00. Undanfarna mánuði hefur starfað nefnd skipuð af mennta- málaráðherra eftir tilnefningu Samtaka móðurmálskennara. Var nefndinni falið-að gera tillögur um samræmda námsskrá í íslensku fyrir framhaldsskólastigið. A ráðstefnunni á laugardaginn mun nefndin leggja fram fyrstu hug- rnyndir sinar í þessu efni til untræðu og athugunar fyrir fé- lagsmenn. Söfnun til hjálp- ar flóttafólki frá Afganistan NÝLEGA harst Kauöa krossi íslands hjálparheiðni frá Alþjóða- samhandi Rauða kross félaga vegna flóttafólks frá Afganistan. sem streymir yfir landamærin inn í Pakistan. Stjórn RKÍ ákvað þá þegar að senda 2 milljónir krónáúr hjálparsjóði félagsins til aðstoðar þessu fólki. 1 skeyti Alþjóðasambandsins segir. að miðað við núverandi ástand sé þörf á fjárframlögum að uppha'ð 14 milljónir svissneskra franka. Fratn- lög til hjálparstarfsins námu þá rúmlega einni milljón franka. Talið er að allt að 500.000 flóttamenn geti enn bæst við þau 500.000 sem þegar hafa flúið land. Fólk þetta fer matar- og klæðlítið yfir fjallvegi og er talið að þegar hafi margt harna orðið úti á leiðinni. Upplýsingafulltrúi Alþjóða RK, David Bedford, sem heimsótti norðvestur-héruð Afghanistans um ntiðjan þennan mánuð, telur að mikil neyð eigi enn eftir að koma í Ijós þar unt slóðir. Sagðist hann hafa séð aldrað fólk sofa úti, klæðlítið. — I tjaldbúðum sem ég heimsótti, sagði hann, — hlupu börn unt berfætt og hósti þeirra yfirgnæfði önnur hljóð. Þúsundir flóttamanna þarna eru hvergi skráðar sem slíkir og hafa engrar hjálpar notið. Óttast er að með vorinu, þegar mjög hitnar í veðri á þessu svæði, geti farsóttir brotist út. Rauði kross íslands vill benda þeini sem vilja aðstoða flóttafólk frá Afganistan á gírónúmer hjálparsjóðs félagsins, 90000—1. Þótt skanimt sé stórra högga í milli í erlendri neyðar- hjálp, þá er vonast til að enn sé möguleiki á að fólk geti lagt eitthvað af ntörkum. (Fréttatilkynning frá Rauða kross íslands) Skuggi er á hjá mörgum bændum þar sem efnaleg afkoma er til muna verri nú en áður og ekki sjáanleg breyting þar á. Fiskafli togara hefur verið með ágætum góður og má segja að varla hafi hafst undan Jónas Sen við flygilinn. Tekur einleikarapróf frá Tónlistarskólanum í Rvík Brákaðist á hrygg er bíllinn f auk Hveragerði. 28. febr. TVEIR ungir menn úr Hvera- gerði meiddust er bíll þeirra fauk neðst á Sandskeiði í óveðr- inu á mánudagsmorgun. Fór bifreiðin, sem er Willys-jeppi með blæjum, a.m.k. eina veltu og stöðvaðist loks á hliðinni. Er hún mikið skemmd, m.a. lögðust blæjurnar alveg saman. Eigandi bílsins, Haukur Svavarsson, er talinn brákaður á hrygg og er á sjúkrahúsi en farþeginn, Ari Axelsson, skarst í andliti en fékk að fara heim að rannsókn Tantrisk hugleiðsla, endurholdgun, „karma“, hugvíkkun HVERN laugardagseftirmið- dag kl. 14.00—16.00 er í Aðalstræti 16, 2. hæð, opið kynningarnámskeið í hug- myndafræði PROUT. Hvern laugardag eru tekin fyrir ákveðin atriði hugmynda- fræðinnar. Heimilt er að sækja hluta námskeiðsins og er það opið nýjum þátttak- endum á meðan það stendur yfir, en því lýkur laugardag- inn 22. mars. Næstkomandi laugardag 1. mars (kl. 14.00—16.00), verður fjallað um tantríska hug- leiðslu, hagnýtar þroskaæf- ingar, endurholdganir, „karma", gervivitund/sjálf, orkumiðstöðvar líkamans. Út- skýrð verða hugtök eins og „samskara", „guru“, „tan- matra" o.fl. Þeir, sem hafa áhuga á að læra hugleiðslu, líkamlegar jógaæfingar eða fá aðrar hag- nýtar leiðbeiningar, geta feng- ið aukatíma. Námskeiðið og öll kennsla ér ókeypis. (Fréttatilkynning frá Þjóð- málahreyfingu Islands. lokinni. Þeir félagar stunda nám í Reykjavík og voru á leið í skólann að loknu helgarleyfi. Hér í Hveragerði var hið versta veður þennan dag en ekki er mér kunnugt um önnur slys eða óhöpp en þess má geta, að rafmagn- og símasamband hef- ur verið mjög skrykkjótt hér síðustu daga. — Sigrún Aukasýning á Kabarett ARISTÓFANES, leikklúbbur nemenda í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, verður með sérstaka aukasýningu á söngleiknum Kaba- rett í Breiðholtsskóla í kvöld klukkan 20.30. Uppselt hefur verið á síðustu sýningar og því var ákveðið að hafa þessa aukasýn- ingu. Um 20 leikendur eru í þessari uppfærslu á Kabarett auk hljómsveitar, en leikstjóri er Sig- rún Björnsdóttir. Höfðaströnd: Ba‘. Höfðaströnd, 28. feb. MJÖG óstillt er til lands og sjávar. Stórviðri hafa komið, þar sem jafnvel bílar hafa fokið af vegum, en manntjón hefur ekki orðið, svo vitað sé. Skaga- fjörður mun jafnvel stund- um hafa orðið miili veðra. Jörð er að mestu rauð, klaki u.þ.b. eitt og hálft fet í jörðu og mjög lítill þar sem snjór liggur yfir. Fén- aði hefur víða verið beitt en gefið kjarnfóður með beit- inni. Hafa því hey sparast mjög mikið en kjarnfóður verið mikið keypt. Hross eru í haustholdum. Víða sér maður nýborinn húsdýra- áburð á túnum og yfirleitt er tíðarfarið mjög ólíkt og 1979. Vegir eru alls staðar auðir en nokkuð misjafnir vegna þíðviðra sem hafa komið og mikillar umferð- ar. Á þorranum var blótað mjög víða og leið ekki sú helgi að hákarl, súrmatur og annað sælgæti væri ekki á borðum. Er þetta orðið vani og einnig er nú að koma tími árshátíða félaga. Eru því Skagfirðingar að venju syngjandi glaðir enda hafa söngkórar verið mjög mikið við æfingar. Karlakórinn Heimir æfir til utanlandsferðar og margir aðrir kórar eru við æfingar. að vinna. Margar húsmæð- ur í sveitinni eru í vinnu í frystihúsinu á Hofsósi en láta bændum sínum eftir húsverkin en ungbarna- pössun hefur verið komið upp á Hofsósi vegna mikill- ar vinnu, sem foreldrarnir þurfa að inna af hendi. Annars veit ég ekki nema vellíðan sé yfirleitt hjá fólki. — Björn. Óstillt vedur til lands og sjávar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.