Morgunblaðið - 29.02.1980, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980
i
.1
33
9
\
5
Skemmtileg talnaþraut
Fáðu vin þinn til þess að hugsa sér tölu og bæta einum við, en
síðan að marfjfalda þá tölu með þremur. Síðan biður þú hann að
bæta einum \ið þá tölu ok þar næst að bæta tölunni við, sem
hann hugsaði sér í upphafi. Nú á hann að draga 4 frá þessari tölu
og síðan biðurðu hann að segja þér, hvað útkoman er. Þú deilir í
útkomuna með 4 í huganum og þá hefurðu fundið töluna, sem
hann hugsaði sér í upphafi. Þetta er ekki eins erfitt og það lítur
út fyrir við fyrstu sýn. Við skulum hugsa okkur dæmi:
Hann hugsar sér 8. Bætir einum við = 9. Margfaldar það með 3
« 27. Síðan bætir hann einum við = 28 og bætir svo upphaflegu
tölunni við 28 + 8 = 36. Hann dregur síðan 4 frá og nefnir þér
töluna 32. í huganum deiiir þú í 32 og útkoman verður = 8!
(Lærðu þetta vel og leggðu þrautina fyrir foreldra þína eða
heimilisfólkið).
Lítil gamansaga
Gerður Kristný Guðjónsdóttir. 9 ára. Reykjavík.
Alltaf er gaman að fara til
rakarans ög láta klippa hárið
og snyrta sig.
Rakarinn, sem ég fer til er
alveg frábær.
Hann er alltaf hress og
talar við mig um margt
skemmtilegt.
Einu sinni spurði ég með-
an hann var að klippa mig:
„Þurrkarðu hárið á þér
með hárþurrku?"
„Já,“ sagði rakarinn. „Það
geri ég oftast svo að hárið
verði fallegt.
Svo varð þögn dálitla
stund.
Síðan sagði rakarinn:
„Hvað gerir hann pabbi
þinn?“ og þá átti hann við,
hvaða atvinnu pabbi stund-
aði.
„Hann pabbi, hann þurrk-
ar sér bara með handklæði.“
En þegar ég skildi, hvað
rakarinn átti við og hverju
ég hafði svarað, var mér
skemmt, því að það er víst
ekki merkileg atvinna að
þurrka sér bara með hand-
klæði!
Bréí frá Vest-
mannaeyjum.
Sigríður Sigmarsdóttir, 6
ára, Vestmannaeyjum,
sendi Barna— og fjöl-
skyldusíðunni þessa teikn-
ingu fyrir skömmu ásamt
bréfi, sem hún bað ömmu
sína að skrifa fyrir sig. Hún
segir að mamma hennar
eða amma lesi yfirleitt
fyrir sig textann í blaðinu,
en sjálf skoði hún myndirn-
ar. Henni finnst gaman að
teikna, og þökkum við
henni kærlega fyrir bréfið
og teikninguna og vonum,
að fleiri setjist nú niður á
næstunni og sendi okkur
bréf, teikningar, sögur, ljóð
og annað skemmtilegt, sem
ykkur dettur í hug.
Æskulýðs-
dagur íslensku
þjóðkirkjunnar
Kristin trú er hluti af menningararfleifð þjóðarinnar.
Kristin trú er samofin heildarsögu þjóðar okkar.
Kristin trú hefur verið athvarf einstaklinga frá kyni til
kyns.
Kristin trú mótar líf einstaklinga og markar spor í
lífsferil þeirra.
Kristin trú er trúin á Krist og kærleika hans.
Kristin trú er boðuð í kirkjunni.
Kristin trú á erindi við þig og fjölskyldu þína.
Sriféur
—'—
Átta ára hnáta sendi okkur þessa teikningu af Gunna og Bjössa.
Gunni segir: Heyrðu ég er villtur!
Bjössi: Ég lika, ha ha ha ha!
í f jölleikahúsi.
Dóri fór að sjá sirkus á sunnudaginn.
Þar margt og mikið að sjá.
Þar voru ljón, fílar og trúðar.
Skemmtilegast fannst honum að sjá
trúðinn með hestinn.