Morgunblaðið - 29.02.1980, Síða 44

Morgunblaðið - 29.02.1980, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980 Hurðin, herra minn! unni! Elsku góði. Heldurðu að ég sé með einhvern pabba- komplex? Þú mátt vita það, að ég eyði ekki tímanum mínum á gam- almenni, sem gæti verið afi minn? Löggæzlumenn virði starf sitt Velvakandi sæll. Ég sendi þér þessar línur til birtingar vegna þess að oft virðist almenningsálitið geta breytt ýmsu til bóta ef það nær að taka afstöðu til mála, og því vil ég ekki þegja yfir atviki sem ég varð vitni að. Maður nokkur hafði dottið niður meðvitundarlaus, og þó hann byggi einn þá vildi svo til að hann fannst stundu seinna og var þá strax hringt á slökkvistöðina í von um að sjúkrabíll kæmi með sjúkrakörfu, og ef til vill lækni til skyndihjálpar. Það þurfti heldur ekki að bíða lengi eftir bílnum, en læknir eða sjúkrakarfa voru ekki sjáanleg. Að lítilli stundu liðinni vatt sér svo inn maður sem virtist vera í einkennisbúningi, hann laut snöggt niður að sjúklingnum, snerist á hæli og hreytti út úr sér: „Hann er dauður.“ Síðan stikaði hann út.. Sjúkrabíllinn hvarf en lögreglu- bíla dreif að og drógu þeir óspart að sér athygli hverfisbúa. Við- staddir voru spurðir um nafn og aldur, og síðan vísað burtu. Nærri tveir tímar liðu unz maðurinn sem sagður var dauður var fluttur burtu í lögreglubíl — án sjúkrakörfu. Þeim sem séð hafa slíkar aðferðir verður það minnisstætt. Ætla ég ekki að lýsa því nánar. En eitt enn var það sem vakti furðu mína, þar sem ég hef áður séð lögreglu að verki við áþekk atvik. Að einum undanskildum, sem bar einkennishúfu „á hnakkan- um“, voru allir þessir menn húfu- lausir loðinkollar, beltislausir, með fráflakandi jakka! Það mun vera ætlast til þess að fólk virði og hlýði lögreglunni, en er hægt að búast við því þegar þessir menn virða ekki starf sitt svo mikils að BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson í dag getur þú valið hvort betra sé að stýra sókninni á spil norðurs og suðurs eða ná tölunni í vörn. Vestur Norður S. 874 H. G3 T. 6532 L. KD65 S. 9 H. ÁD86542 T. G10 T. 973 Suður Austur S. ÁG10 H. K97 T. ÁD874 L. 84 S. KD6532 H. 10 T. K9 L. ÁG102 Austur gefur spilið og opnar á einum tígli. Suður segir þá einn spaða, vestur tvö hjörtu, sem austur hækkar í þrjú eftir pass norður. Suður gefst ekki upp, segir þrjá spaða, vestur fjögur hjörtu og þá fær norður málið, segir fjóra spaða, sem austur doblar og verð- ur það lokasögnin. Utspil tígulgosa. Og hvort vilt þú stýra sókn eða vörn? Lítum á möguleikana. Austur tekur fyrsta slaginn með ás og spilar aftur tígli. Suður ætlar austur með trompásinn, spilar laufi á blindan, trompi á kónginn, aftur laufi á blindan en næst tekur austur á trompásinn, spilar hjarta og fær síðan fjórða slag varnarinnar á trompgosann þegar vestur spilar laufi. Velur þú þá vörnina? Ekki víst, suður getur gert betur. Eftir að hafa fengið á trompkónginn spilar hann ekki aftur laufi. Spilar í þess stað hjartatíu. Þá fer innkoma vesturs og austur fær ekki að trompa laufið. Ertu búinn að velja sæti suð- urs? Nei, austur gat gert betur. Hann tekur ekki á tígulásinn í fyrsta slag. Lætur heldur lágt og þá er suður strandaður. Hann getur ekki spilað rauðum lit, austur tekur þá slaginn og spilar tíglunum og trompnían verður að stórveldi. Sama hvort hann trompar hátt eða lágt, vörnin fær tvo slagi á tromp. Og ekki dugir fyrir suður að spila laufi á blindan eftir fyrsta slaginn. Hann fær þá að spila trompi á kónginn en á þá ekkert framhald. Vörnin getur spilað laufinu, búið til trompun með innkomu vesturs annaðhvort á hjarta eða tígultíu. Og þannig verður austur maður dagsins. COSPER ö ' o .„/~Y " 0235 1 qry.... C05PER Út á akbrautina! Ertu frá þér, og eiga á hættu ökuhraðasekt! Svo fljótt áleit ég þó að ekki væri hægt að úrskurða mann látinn, meðan líkamshiti var nær eðlilegur. hlíta lögboðnum reglum þess um snyrtimennsku og lýtalausan ein- kennisbúning með stöðumerki á húfunni. Maigret og vínkaupmaöurinn Eftir Georges Simenon Jóhanna Krist|ónsdóttír sneri á íslensku 58 beðið ykkur að koma hér til mín er sú að ég hef ákveðið að við grípum hann, hvað sem það kostar. Það kann að vera að hann' sé vopnaður en ég held ekki hann muni reyna að skjóta. Þér, Janvier, veljið yður sex menn sem leysa hver annan af tveir í senn hér á Quai des Orfevres. Maðurinn hefur hringt tii mín tvivegis, skrifað mér langt bréf og að minnsta kosti einu sinni hefur hann verið hér í grenndinni til að fylgjast með ferðum mínum. Því miður hvarf hann áður en við gátum handsamað hann. Loítið í herberginu var mett- að af tóbaksreyk. Maigret kveikti á lampanum með græna skerminum á skrifborðinu. en ekki loftljósið og því var hluti skrifstofunnar sem í skugga. — Takið allir niður lýsingu á honum. Hann er lágvaxinn, undir 170 sm á hæð. Hann er ekki feitur, en nokkuð þrekinn þó og hefur kringluleitt andlit. Hann er klæddur í dökkbrún föt og snjáðan regnfrakka. Hann rcykir sígarettur. Hann haltrar á öðrum fæti, en þó ekki mikið nema þegar hann rcyndi að flýta sér. — Dökkt hár? spurði Lour- tie. — Já og dökk augu og þykk- ar varir. Hann kemur ekki fyrir sjónir sem ncinn vesaling- ur, en öllu heldur eins og maður sem er að því kominn að gefast gersamlega upp. Ég skal segja ykkur ástæð- una fyrir því að ég viJ að tveir menn fylgist stöðugt með hon- um — einfaJdlega sú að hann virðist mjög Jaginn i að Játa sig gufa upp. — Eruð þér með á nótunum Janvier? — Já, húsbóndi. Maigrct sneri sér að Lourtie sem var einnig að reykja pípu. — Það sem ég hef sagt við Janvier á einnig við um yður. Hvorugur ykkar þarf að vera á vakt allan timann en þið verðið | að sjá til þess að ykkar mcnn séu á sinum stað og leysi aJltaf hver annan af. — Ekkert sjálfsagðara. — Og svo þér Torrence. Hóp- ur upp á aðra sex. Við verðum að spila djarft. Ég vil ekki eiga á hættu að hann sleppi einu sinni enn milli fingra okkar. Yðar staður er Place des Vosges eða í grennd við hús þeirra Chabuthjóna. Frú Chahut er mjög glæsiJeg kona, um fcrtugt, sérstaklega vel klædd. Ilún hef- ur einkabílstjóra, Mercedes. Stöku sinnum notar hún bil manns síns, sem er rauður Jaguar. Þeir horfðu hver á annan. — Og nú Lucas. Þú fylgist með Quai de Charenton. Það er laugardagur. Það er örugglega enginn á skriístofunum eða á vinlagernum í dag. Heldur ekki á morgun. Ég hef ekki kynnt mér .hvort þeir hafa vaktmann á þessum stöðum. — Skil, húsbóndi góður. — Við verðum sem sagt að ieggja okkur í framkróka við að hafa gát á þeim stöðum, þar sem mestar líkur eru til að hann skjóti upp kollinum. Hann er aldrei langt undan. Hann virðist hreint og beint heillaður af leit okkar og rannsókn og rcynir eftir megni að geta sér til um hvar við berum niður næst. Mér þætti fróðlegt að vita hvort hann ber ekki með sér þá leyndu ósk — að vera handtek- inn. — Og hvað á ég að gera? spurði Lapointe. — Þú verður hér og mér til aðstoðar. Þú verður allan tímann að vera tilbúinn að selflytja mig út og suður, sama á hvaða tíma sólarhrings er. Þú safnar einnig þeim upplýsing- um sem hugsanlega berast til þín og hringir til mín ef þú heldur að þar sé eitthvað sem komi málinu við. Þeir héldu að hann hefði lokið máli sínu, en Maigret benti þeim að hann ætti enn eftir að segja fáein orð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.