Morgunblaðið - 29.02.1980, Side 47

Morgunblaðið - 29.02.1980, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980 47 Margir skipta um félög Tveir markverðir ganga úr Þrótti MIKIÐ hefur verið um það að undanförnu að leikmenn knatt- spyrnufélaganna fari úr einu félaginu í annað. Hér áður fyrr var slikt afar fátítt. Þrír mark- verðir hafa skipt um félög, allir úr 1. deild. Guðmundur Asgeirs- son, hinn ungi og efnilegi mark- vörður Vals, hefur gengið til liðs við Breiðablik, nýliðana í 1. deild. Ólafur ólafs, sem varði mark Þróttar með prýði mikinn hluta siðasta keppnistimabils, hefur VÍST er, að bresk ferðaskrifstofa hefur gert KSÍ tilboð um að greiða fyrir heimsókn einhvers liðs úr ensku 1. deildinni eða 2. deild. KSÍ er að athuga þetta tilboð, en svona fyrirtæki eru fjárhagslegt hættu- spil hérlendis. Lið, sem nefnd voru hins vegar gengið í Val. Egill Steindórsson, Þrótti, hefur geng- ið til liðs við sína gömlu félaga i Ármanni. Kristinn Björnsson, framherj- inn marksækni hjá ÍA, er hættur hjá félaginu, en ekki kominn annað í bili. Óttar Sveinsson hefur gengið í Fram úr FH, þriðja félag Ottars á jafn mörgum sumrum. Fram hefur einnig endurheimt Gústaf Björnsson, sem þjálfaði og lék með Tindastól í 3. deild síðasta í þessu sambandi, voru m.a. Aston Villa, WBA, Ipswich, Norwich, Sunderland, Newcastle og Luton. Ef af þessu verður, léki viðkom- andi lið þrjá leiki, annaðhvort á tímabilinu 10.—20. maí eða 19.— 29. júlí. sumar. Þá má einnig geta þess, að Þórður Marelsson, einn sterkasti leikmaður Reynis í Sandgerði um árin, hefur gengið í Víking. En alls hafa 59 leikmenn úr deildunum þremur tílkynnt félagaskipti á tímabilinu frá 6. desember síðast- liðnum til 21. febrúar. Selfoss ekki með í 2. deild? 2. deildar lið Selfoss í knatt- spyrnu hefur nýlega sent KSÍ bréf þess efnis, að sökum áhugaleysis og manneklu í plássinu sjái félagið sér ekki annað fært en að draga sig út úr íslandsmótinu. Eftir er að sjá framvindu þessa máls, en KSÍ hefur fullan hug á því að reyna að telja Selfyssingum hug- hvarf, enda gæti þetta torveldað mjög störf mótanefndar. Þá yrði að skera úr um hvaða lið skyldi taka stöðu Selfoss og þannig mætti lengi telja. Aston Villaeóa Ipswich til íslands? • íslenska badmintonfólkið sem keppir fyrir ísland i NM-unglinga i Danmörku um helgina. 9 manna hópur fer á NM-unglinga í badminton VALINN hefur verið níu manna hópur til þess að keppa fyrir ísiands hönd á Norðurlanda- meistaramóti unglinga í bad- minton sem fer fram í Álaborg í Danmörku um helgina. Á móti þessu verða um 70 keppendur frá öllum Norðurlöndunum, helm- ingur þeirra frá Danmörku og Sviþjóð, en þessar þjóðir eru meðal sterkustu badmintonþjóða heims, einkum Danir. íslenska hópinn skipa eftirfar- andi: Kristín Magnúsdóttir TBR, Sif Friðleifsdóttir KR, Ragnheiður Jónsdóttir í A, Laufey Sigurðardóttir IA, Þórunn Óskarsdóttir KR, Guðmundur Adolfsson TBR, Þorgeir Jóhannsson TBR, Skarphéðinn Garðarsson TBR, Birgir Ólafsson TBV. I þessari ferð verða einnig leiknir tveir landsleikir. Verður sá fyrri við B-lið Svía, en sá síðari gegn A-liði Einna. Fara leikir þessir fram í dag og í kvöld. Þess má að lokum geta, að fararstjóri hópsins verður Garðar Alfonsson. Wallace til sölu SKOSKI landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Ian Wallace hjá Coventry, er kominn á sölulista hjá félagi sínu. Er ljóst að hann fer ekki fyrir neinn smápening, en engar tölur hafa verið gefnar upp um kaupverð hans, beðið er eftir tilboðum. KR: Ágúst Líndal 1. Árni Guðmundsson 2, Birgir Guðbjörnsson 2. Geir Þorsteinsson 3, Gunnar Jóakimsson 1. Þröstur Guðmundsson 1. Jón Sigurðsson 3, Garðar Jóhannsson. FRAM: Björn Magnússon 2, Björn Jónsson 1. Guðmundur Hallsteins- son 1. Hilmar Ilaraldsson 1, Símon Ólafsson 4, Þorvaldur Geirsson 2. GÖMUL meiðsi rifu sig upp í öxlinni á óskari Sigurpálssyni lyftingakappa, er hann reif upp lóðin fyrir sjónvarpsáhorfend- ur i Englandi, en hann tók þátt í óvenjulegu lyftingamóti, nokkurs komnar millistigi milli venjulegra lyftinga og kraft- lyftinga. Boðið var ýmsum tröllum. einkum frá Bandaríkj- unum og Englandi. enn fremur einum Svía. Norðurlandameist- aranum Lars Iledlund og tveim- ur íslendingum. óskari og norðurhjaratröllinu svokallaða, Artúri Bogasyni. Oskar meiddist en stóð þó vel að vígi Artúr gat ekki þekkst boðið, en Óskar lét sig ekki vanta og hafði náð næst besta saman- lagða árangrinum þegar hann varð fyrir fyrrnefndum meiðsl- um. óskar jafnhattaði 185 kg og lyfti síðan 325 kg í réttstöðulyft- unni. Það var í jafnhöttuninni sem hann meiddist, ýfði upp gömul meiðsl. Bill Kazimair frá Bandaríkj- unum, heimsmeistari í kraftlyft- ingum í yfirþungavigt, varð sig- urvegari, jafnhattaði 170 kg, 380 kg í réttstöðuiyftu, en í þriðju greininni, sem fólst í því að lyfta 55 kg lóði eins oft og kostur var með annarri hendi, lyfti sá stóri lóðinu 17 sinnum! UMFN mætir Val í undanúrslitunum! DREGIÐ hefur verið til fjög- urra liða úrslita i bikarkeppni KKÍ. Að vísu er enn eftir einn leikur í 8-liða úrslitum, leikur Grindavíkur og KR, en sigur- vegarinn úr þeim leik mætir ÍS í Laugardalshöllinni á þriðju- daginn klukkan 20.00. Meiri stórleikur er þó viður- eign Njarðvíkur og Vals í hinum leiknum. Leikurinn fer fram í Njarðvík á miðvikudaginn kl. 20.00. Lið þessi berjast sem kunnugt er um íslandsmeistara- titilinn og má því vænta hörku- leiks. Úrslitaleikurinn fer síðan fram í Höllinni miðvikudaginn 19. mars. Þá var á dagskrá úrvalsdeildarleikur Vals og KR, en sá leikur hefur verið færður fram til 17. mars. Er ljóst að mikið mun mæða á KR-ingum komist þeir í úrslitin, en þá þurfa þeir að leika tvo erfiða leiki á 3 dögum. Auðveldur sigur Frakka FRAKKAR sigruðu Grikki í vináttulandsleik í knattspyrnu í París í fyrrakvöld, höfðu Frakkar mikla yfirburði í leiknum þrátt fyrir að margir nýliðar væru í franska iiðinu. Lokatölur leiksins urðu 5—1 fyrir Frakkland og skoruðu tveir af nýliðunum mark í sínum fyrsta iandsleik. Það voru þeir Christopher og Stopyra. Fræg- asti knattspyrnumaður Frakka, Michel Platini var hins vegar fremstur í flokki, skoraði tvíveg- is og var maðurinn á bak við hin mörkin þrjú. Dominique Bathen- ay skoraði fimmta markið. Eina mark Grikkja skoraði Thomas Mavros. Agúst skorar og skorar Ágúst Svavarsson er nú næst markhæsti handknattleiks- maðurinn í 2. deild i Vestur- Þýskalandi. - En Spenge er samt í bullandi fallhættu lR-ingurinn sterki, Ágúst Svav- arsson, sem leikur með 2. deild- ar liði Spenge í vestur-þýska handknattleiknum. gerir það gott, þó ekki sé hægt að segja það sama um félagið. Spenge er i bullandi fallhættu og tapaði t.d. siðasta leik sinum fyrir Dortmund 18—23. Ágúst lætur slíkt hins vegar lítið á sig fá og er yfirburða- maður í liðinu. Hann skoraði 10 mörk af umræddum 18, aðeins 3 úr vítaköstum. Ágúst er nú annar markhæsti leikmaður 2. deildar, hefur skorað 117 mörk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.