Morgunblaðið - 05.03.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1980
23
Þorsteinn Guðbrands-
son — Minningarorð
Fæddur 1. október 1900.
Dáinn 20. febrúar 1980.
Þorsteinn fæddist 1. febrúar
árið 1900 að Bolafæti í Hruna-
mannahreppi í Arnessýslu en lést
hinn 20. febrúar 1980 í Borgarspít-
alanum, og jarðarförin fór fram
frá Fossvogskirkju hinn 26.
febrúar. Heilsu hans hafði farið
hrakandi síðan í ágúst síðastliðn-
um en rúmfastur var hann síðustu
vikurnar.
Foreldrar hans voru hjónin
Hólmfríður Hjartardóttir og Guð-
brandur Tómasson. Þegar Þor-
steinn var hálfs árs að aldri
fluttist hann með foreldrum
sínum að Önundarholti í Villinga-
holtshreppi og þaðan svo fimm
ára að Skálmholti í sömu sveit og
þar ólst hann upp með foreldrum
sínum og systkinum. Systkinahóp-
urinn var stór, en þau voru 13 og
ein fóstursystir, en á lífi eru nú 7
systkini og fóstursystirin.
Þorsteinn var snemma vinnu-
samur og duglegur og vann ýmsa
sveitavinnu og almenna verka-
mannavinnu, en árið 1935 gerðist
hann ráðsmaður hjá Sigurjóni
Péturssyni á Álafossi, en var
búinn að starfa hjá Sigurjóni í
nokkur ár.
Hinn 19. maí 1934 kvæntist
Þorsteinn eftirlifandi eiginkonu
sinni Guðrúnu Guðmundsdóttur
ættaðri úr Fljótum í Skagafirði.
Bjuggu þau fyrstu árin að Álafossi
og þar fæddist þeim einkabarn
þeirra, Njáll. Eftir 10 ára veru á
Álafossi fluttist fjölskyldan til
Reykjavíkur og var búsett á Leifs-
götu 22 næstu 10 árin.
Mín fyrstu kynni af Þorsteini
voru er hann var starfsmaður við
Matvælageymsluna við Langholts-
veg, en hann var einnig einn af
eigendum hennar. Áttu þeir félag-
ar einnig matvöruverzlun við
sömu götu og auk þess prjónastof-
una Iðunn, sem þá var til húsa í
gamla hesthúsinu við Fríkirkju-
veg 11. En árið 1950 var þessum
fyrirtækjum skipt upp á milli
eigenda og kom prjónastofan í
hlut Þorsteins.
Það var nú ekkert glæsilegt á
þeim tíma að taka við og eiga að
reka prjónastofu með gömlum og
úreltum vélum í harðri sam-
keppni. Allur garninnflutningur
var háður gjaldeyris- og innflutn-
ingsleyfum auk ýmissa annara
óþæginda. Prjónastofuna flutti
Þorsteinn svo fljótlega í kjallara
hússins við Leifsgötu 22. Þar gerði
hann sér fljótt ljóst, að ætti hann
að geta staðist samkeppni þyrfti
hann að bæta vélakostinn. Hann
fór þó hægt í sakirnar til að byrja
með.
Árið 1955 kaupir Þorsteinn hús-
eignina Nýju-Grund á Seltjarn-
arnesi og flutti þangað með
prjónastofuna. Notaði hann kjall-
ara hússins fyrir prjónastofuna en
byggði auk þess viðbyggingu þegar
hann fékk fyrstu sjálfvirku
prjónavélarnar. En fyrirtækið óx
svo ört í höndum hans að þetta
húsnæði varð fljótt of lítið. Festir
hann þá kaup á lóðinni Skerja-
braut 1 og þar stendur nú ein
glæsilegasta og best vélvædda
prjónaverksmiðja landsins, sem
framleiðir prjónavöru bæði fyrir
innlendan og erlendan markað.
Þessi 30 ára þróun frá hesthús-
inu við Fríkirkjuveg til hinnar
glæsilegu verksmiðju við Skerja-
braut er ævintýri líkust. Að vísu
stóð Þorsteinn ékki einn. Kona
hans hefir staðið dyggilega við
hlið hans og á sinn stóra þátt í
ævintýrinu. Sonurinn Njáll byrj-
aði snemma að hjálpa föður sínum
og vinna í verksmiðjunni og er
Ingimar Halldórsson
sjómaður — Minning
Fæddúr 2. október 1925.
Dáinn 25. febrúar 1980.
„Eitt sinn skal hver deyja"
Óveðursdaginn 25. febrúar 1980,
lést Ingimar Halldórsson af slys-
förum um borð í b.v. Ingólfi
Arnarsyni þar sem togarinn var
að veiðum út af Vestfjörðum.
Ingi en svo var hann kallaður,
var fæddur 2. október 1925 í
Reykjavík, sonur hjónanna Sig-
ríðar Stefánsdóttur og Halldórs
Oddssonar, sem nú lifir í hárri
elli, en Sigríður lést árið 1964.
Sigríður og Halldór áttu sjö börn,
fjóra syni og þrjár dætur, þau
hjónin slitu samvistum. Seinna
átti Halldór tvö önnur börn. Öll
systkini Inga eru á lífi og er hann
því fyrstur þeirra sem fellur frá.
Við mágar hans og einnig systur
þökkum honum allar ánægjulegu
samverustundirnar sem við áttum
með honum gegnum árin. Börn
okkar þakka frænda sínum fyrir
allt sem hann var þeim.
í mörg ár bjó Ingi með móður
sinni og tveim bræðrum meðan
hennar naut við. Ingi syrgði hana
mjög þegar hún féll frá, enda var
hún honum allt, og margar stund-
ir mun hann hafa átt við gröf
hennar, þegar dvalið var í landi.
Ingi vann mörg störf til lands og
sjávar og var ósérhlífinn við alla
vinnu enda vel látinn af öllum
vinnufélögum sínum.
Sjómennskan varð að lokum
hans ævistarf, því hún átti hug
hans allan. Fyrstu árin til sjós var
hann á bátum en seinna réð hann
sig á togara hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur og hafði starfað þar í
mörg ár.
Ingi var tryggur og góður
drengur, tengdur nánum fjöl-
skylduböndum sem aldrei brustu.
Þegar hann kom til hafnar úr
sölutúrum hafði Ingi alltaf eitt-
hvað meðferðis svo hann gæti
glatt systkini sín og börn þeirra
með. Mesta ánægja hans var að
geta glatt og gefið öðrum þyí betra
þótti honum að gefa en að þiggja.
í dag fer fram útför hans frá
Fossvogskirkju kl. 1.30 e.h.
Blessuð sé heimför hans.
Guðmundur og Þórir
Mun minni af li
en var í fyrra
búinn að vera þar í fullu starfi sl.
23 ár. Menntun hans og dugnaður
er ekki hvað síst stór liður í
velgengni fyrirtækisins. Síðar
bætist svo tengdadóttirin í hópinn
og öll fjölskyldan er samhent og
gerir allt auðveldara.
Ég vil að lokum þakka nærri 30
ára samskipti og viðskipti við
Þorstein og hans fyrirtæki. Aldrei
þurfti að gera skriflegan samning.
Þar var staðið við hvert orð sem
sagt var.
Ættingjum hans sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Magnús Þorgeirsson
Hornafiröi. 3. marz.
LÍNUVERTÍÐ lauk hjá Hornafjarð-
arbátum laust fyrir mánaðamót og
öfluðust alls 1912 tonn í 378 sjóferð-
um, en það er 560 tonnum minna en
í fyrra. Hæsti bátur var Freyr með
182 tonn í 37 sjóferðum. Nokkrir
bátar voru aðeins byrjaðir með net
fyrir mánaðamót og var því heildar-
afli orðinn 2345 tonn um mánaða-
mótin, en það er nær 900 tonnum
minni afli en á sama tíma í fyrra.
Aflahæsti báturinn nú er Garðey,
skipstjóri Örn Þorbjörnsson, með
278 tonn, þar af hefur Garðeyin
fengið 161 tonn í net í sex sjóferðum,
en mikill meirihluti þess afla er ufsi.
—Gunnar
, PHILCO
þvottastöoin
þvottavél og þurrkari
í einu tæki
einstaklega fyrirferðarlitlu og þægi-
legu, sem gerir þvottahúsið óþarft.
Krókur í eldhúsi eða baðherbergi nægir.
Þú snertir ekki þvottinn frá því að þú
setur hann í vélina og þar til þú tekur
hann út hreinan og þurran. Philco
þvottastöðin tekur inn heitt og kalt
vatn, hefur 10 þvottakerfi og sparnaðarrofa.
Þessi vél frá Philco er nýjung en Philco
gæði eru engin nýjung, það vita þeir
sem reynt hafa.
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655