Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980
33
séð hefur um brezka hluta Con-
corde-áætlunarinnar, um athuganir
á smíði hljóðfrárrar farþegaþotu, og
hefur náðst samkomulag um sam-
vinnu við hönnun vélarinnar.
McDonnel-verksmiðjurnar hafa í
huga smíði vélar sem yrði talsvert
hagkvæmari í rekstri en Concorde og
öllu hljóðlátari og vél sem gæti flutt
yfir tvöfalt fleiri farþega en Con-
corde. Það sem haldið hefur aftur af
hönnun og smíði slíkrar vélar er
gífurlegur kostnaður, en reynslan af
Concorde hefur nú breytt aðstæðum.
Búa brezkir og franskir flugvéla-
hönnuðir yfir mikilli reynslu á þessu
sviði vegna Concorde vélanna, en þær
eru einu hljóðfráu flugvélarnar, og
eru herflugvélarnar þá meðtaldar,
sem flogið hafa daglega í langan
tíma með tvöföldum hraða hljóðsins.
í hverri flugferð hefur verið safnað
upplýsingum sem hjálpað hafa til við
athuganir á áhrifum hins mikla
hraða og mikillar flughæðar á
skrokk, vængi, hreyfla og stjórntæki
vélarinnar, en þannig hefur fengist
reynsla sem verður ómetanleg við
hönnun næstu kynslóðar hljóðfrárra
farþega-flugvéla.
Keflavikurflugvelli 27. septem-
ber 1977, en þá kom Concorde
öðru sinni til íslands.
Flug
Umsjón:
ÁGÚST ÁSGEIRS-
SON JÓN
GRÍMSSON OG
RAGNAR
AXELSSON
kom fram með hugmynd um
flugstjórnarsvæði við San Diego
og 44 aðra velli rigndi 45,000
mótmælabréfum einkaflug-
manna og flugvélaeigenda yfir
stofnunina. Forstöðumaður
flugskólans sem átti Skyhawk-
inn er lenti í árekstrinum við
þotu PSA sagði og, að það hefði
ekki komið í veg fyrir árekstur-
inn þótt Lindbergh-völlur hefði
þá verið flugstjórnarsvæði.
Einkaflugmenn óttuðust að með
auknum farþega- og vöruflutn-
ingum í lofti hefði það í för með
sér að þeir yrðu að víkja með
tímanum. Þegar í upphafi yrði
stórum hluta rýmisins í reynd
lokað fyrir smærri flugvélar.
Vilja þeir að endurbætur verði
fyrst og fremst miðaðar við að
takmarka aðflug stóru vélanna
þannig að þær hefji aðflug að
Lindbergh inn um „þröngar
dyr“ í 60 km fjarlægð austur af
vellinum.
Af þessum sökum hefur loft-
ferðaeftirlitið unnið að nýjum
hugmyndum er miða að auknu
öryggi í lofti við San Diego, og
verða þær kynntar bráðlega.
Verður þar miðað við að San
Diego verði sérstakt flugstjórn-
arsvæði, og að það verði að
raunveruleika um miðbik 1980,
eftir að leitað hefur verið álits
almennings við „réttarhöld". í
þessum tillögum verður frátek-
ið loftsvæði sem flugvélum án
radarsvara verður leyft að
fljúga í og út úr svæðinu. Búist
er við að þessar hugmyndir falli
ekki í góðan farveg hjá einka-
flugmönnum, en að almenning-
ur lýsi fylgi við þær vegna
aukinnar hræðslu við hugsan-
lega árekstra í lofti, og muni
loftferðaeftirlitið því ekki slaka
frekar á tillögum sínum.
Á kút-
maga-
kvöldi
var
kyrjaður
söngur
LIONSKLÚBBURINN
Ægir hélt hefðbundið kút-
magakvöld að Hótel Sögu
fyrir skömmu og var hús-
fyllir og ríflega það. Á
boðstólum voru tugir
sjávarrétta og m.a. gull-
lax. Stemmning var mikil
á kútmagakvöldinu,
skemmtiatriði sem menn
gerðu góðan róm að og
gestur kvöldsins og ræðu-
maður var Matthías
Bjarnason alþingismaður
og fyrrverandi sjávarút-
vegsráðherra. Sagði hann
gamansögur af Vestfjörð-
um og víðar og reyndu
brandarar hans meira á
magavöðva flestra sam-
komugesta en hinir fjöl-
mörgu réttir, því slíkar
voru hláturhviðurnar.
Mjög er vandað til allr-
ar framreiðslu á
kútmagakvöldinu og hef-
ur áhugi manna víða um
land aukist á slíkum
veizluhöldum með
íslenzkum sjávarréttum.
Steingrimur Hermannsson sjáv-
arútvegsráðherra á bakborðs-
rólinu á kútmagakvöldi og
syngur Kátir voru karlar ásamt
borðfélögum sinum.
Ásgeir Gunnarsson kyngir ein-
um af bröndurum Matthíasar
Bjarnasonar.
Matthias Bjarnason alþingismaður. Þórhallur Arason formaður
Ægis og Stefán Kristjánsson iþróttafulltrúi taka lagið á kútmaga-
kvöldinu.
Kokkarnir á Sögu mættu i hátiðabúningi að loknu áti.
Ásgeir óskarsson í Gúmmibátaþjónustunni og Hörður Barðdal
ásamt þriðja manni sem var að fara fjórðu ferðina að matborðinu.
Það var kátt á hjalla á kútmagakvöldinu eins og sjá má hjá þessu
vigalega liði. Ljósmyndir Mbl. Árni Johnsen.
Hlaðborð sjávarrétta.
Kæru vinir.
Þakka þátttöku í átt-
ræðisafmælinu 8. marz.
Guð blessi ykkur öll.
Eyja.
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aöstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
Vökvamótorar
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
AÓstoÓum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
Lokuó
vökvakerfi
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-WÓNUSTA