Morgunblaðið - 26.03.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
29
vkLVAKANDI
SVARAR í SÍMA 10100
KL. 13-14 FRÁ
MÁNUDEGI TIL
FÖSTUDAGS
• Hundaæði og
gáleysi
Vegna nýbirtrar áminningar
landlæknis og yfirdýralæknis um
hættu, sem af því getur stafað,
ekki sízt vegna hundaæðis, að
flytja til landsins í heimildarleysi
lifandi spendýr eða fugla, kemur
mér í hug að rétt sé að segja frá
eftirgreindu atviki:
Fyrir nokkrum árum var ég
ásamt hópi íslendinga á leið frá
Spáni til íslands í flugvél, og
skyldi stanzað í London til 3ja
daga dvalar. Vélin lenti á Heat-
hrow-flugvelli. Allir farþegar
bjuggust til útgöngu, og voru
sumir komnir út á landgöngupall,
sem ekið var að flugvélinni sam-
kvæmt venju. Þá varð allt í einu
undarleg stöðvun á útgöngu far-
þeganna, og leið nokkur tími, þar
til birt var ósk um /að allir
farþegar skyldu snúa aftur til
sæta sinna. Því næst var tilkynnt,
að staðarlögregla teldi sig hafa
komizt að því, samkvæmt hrað-
boði frá samstarfsmönnum (sen-
nilega leynilögreglu) á Spáni, að í
vélinni væri falinn hundur, en
slíkur innflutningur til Bretlands
í heimildarleysi væri stranglega
bannaður, og yrði engum mönnum
hleypt út úr vélinni fyrr en málið
væri upplýst.
Kom þegar í ljós, að upplýsingar
um hinn falda hund voru réttar.
Gáfu eigendur sig fram, og var
mér sagt, að þeir hefðu viðurkennt
að hafa falið undinn í pappakassa,
eftir að hafa látið sprauta hann og
svæfa hann, svo að hann léti ekki
á sér kræla.
Mér var sagt, að umræddur
hundur hefði verið settur í sóttkví
í Bretlandi, og tel ég víst, að
eigendur hafi orðið fyrir sektum
og kostnaði í þessu sambandi, en
hvort hundurinn var svo fluttur
áfram til íslands er mér ekki
kunnugt. Vona hins vegar, að
viðvörunin í Bretlandi hafi orðið
hlutaðeigendum nægjanlega lær-
dómsrik. En fyrir íslendinga alla
er varasemi Breta og árangur á
umræddu sviði til fyrirmyndar,
þar eð Bretland, með sínar miklu
og fjölþættu samgöngur við um-
heiminn, telst nú meðal örfárra
landa, sem laus eru við hinn
voðalega sjúkdóm, hundaæði.
Guðjón F. Teitsson
Þessir hringdu . .
• Biðraðamenning
í Skálafelli
Skíðaunnandi hringdi:
„Mér datt í hug að beina því
til umsjónarmanna skíðalandsins
í Skálafelli, hvort ekki megi á
einhvern hátt fá meiri reglu í
biðraðamenninguna í lyfturnar
þar. Það getur verið mjög hvim-
leitt að þurfa að bíða í hálfa til
heila klukkustund eftir að komast
í lyftu, og horfa upp á sömu
aðilana, dag eftir dag, helgi eftir
helgi troða sér fram fyrir.
Þetta er ekkert vandamál í
Bláfjöllum. Má ekki setja upp
plaströr þarna í Skálafelli þannig
að fólk verði að halda sig í röð.
Einnig vilja langar raðir sveigja
inn á skíðabrekkuna, í stað þess að
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
\l í.LYSIM. \-
SIMINN l'.K:
22480
vera beinar, og styttist því brautin fyrir, að auðvitað á skíðafólkið
sem því nemur. sjálft að sýna þá kurteisi að vera í
Að öðru leyti vil ég þakka góða réttri röð, en þarna virðist þurfa
þjónustu og ég geri mér grein aðhald..“
HÖGNI HREKKVÍSI
0 vo o o
WIKA
Þrýstimælar
Allar stæörir og geröir.
,J>'öxn)©©©cri) & (S(p)
Vesturgötu 16 simi 13280
mrnmrn m ^mmmmmmmm ®
SlKfí
Hitamælar
120
MYNDAMÓTHF.
PRENTMYNDAGERO
AÐALSTRÆTI 6 SÍMAR: 17152-17355
SöM(FflcmD§)(U)(r'
& (Qv)
Vesturgótu 16,
simi 1 3280
Saumaðir stólar, rennibrautir,
strengir, píanóbekkir og í borð.
Heklaðir og y
saumaðir dúkar, v
margar tegundir
og stærðir
Snorrabraut 44
Laugaveg 63.
SIGGA V/öGá £ AfLVtRAN
BÁTUR TIL SÖLU
Til sölu er vélbáturinn Kári Ve 95, sem er 91. lesta eikarbátur.
Báturinn sem er í góöu standi er búinn 600 hestafla Stork
aöalvál frá árinu 1977/1978, lítið keyrð, 52. hestafla
Mannheim Ijósavál frá árinu 1972, Decca radar og sjólfstýr-
ingu, Koden dýptarmæli og miöunarstöð, Simrad asdici og
dýptarmæli, Sailor W.H.F. og talstöö (sjálfseignarstöö).
Báturinn selst meö togveiöafærum og reknetabúnaöi (ekki
hristara og blökk) svo og ýmsum búnaði til þorsknetaveiða.
Báturinn selst á góöu veröi og meö góðum greiðsluskilmálum.
Upplýsingar gefur útibússtjóri Útvegsbanka islands, Vest-
mannaeyjum.