Morgunblaðið - 01.04.1980, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1980 1 1
Tálkni hf. fær
nýtt skutskip
— frá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts hf.
áhorfandann frá tilfinningum
leiksins þannig að hann skynji
stöðu sína enn frekar. T.d.
gerist sjálft leikritið um
„Hemma“ sem uppfærsla
Leikhóps Skipavíkur. Áhorf-
endur eru þannig minntir á að
þeir eru að horfa á leikrit.
Ekki gefið færi á að gleypa
gagnrýnislaust við endursköp-
uðum raunveruleika. Þá eru
leikararnir settir fram sem
táknmyndir þjóðfélagshópa,
verkamanna, atvinnurekenda
o.s.frv. eins og áður var
minnst á. Þannig verður erfið-
ara fyrir áhorfendur að lifa
sig inn í persónulegar tilfinn-
ingar leikaranna. Efnislega er
sjálf afstaða „Hemma“ til
móður sinnar og „feðra" í
samræmi við framandleika-
kenningu Brechts sem eitt
sinn sagði:
„Til að sjá móður sína sem
eiginkonu manns þarfnast
maður framandleikaáhrifa,
þetta kemur t.d. þegar maður
eignast stjúpföður."
Þetta er nú gott og blessað
og framan af leiknum er hin
erfiða jafnvægislist sem fylgir
framandleikabrögðum Brechts
iðkuð af all miklu öryggi.
Leikararnir standa spölkorn
utan við hlutverk sín — með-
vitaðir um að þeir séu að leika,
eins og vera ber. En svo vill
höfundur fara að blanda til-
finningum inn í spilið með
Ofelíu. Gróðahyggjan á sem sé
að smjúga inn í hið allrahelg-
asta, ástarlífið, og brenna upp
hjörtun smáu sem rúma
sannleikann og ástina. Hér er
hinn brechtíski agi af höfundi
— hann hyggst gleyma stétta-
andstæðunum og stíga oná þá
gangstétt sem við öll stöndum
á mismunandi rykug á fótun-
um. Hér vill hann líkt og
Shakespeare gamli rífa
áhorfendur með sér, láta þá
gripa í skottið á skáldgyðjunni
og svífa svo inn á ódáinslend-
ur. En því miður, hin
brechtíska spennitreyja hefur
svo læst sig um áhorfendur að
þeir mega sig ekki hræra í
sætunum. Kannski misskil ég
bara Véstein — er ekki bara
endirinn svo magnaður vegna
þess að þar nær þessi herðing
segldúksins blauta hámarki?
Spyr sá sem ekki veit til allrar
hamingju.
Um leikarana verður ekki
fjallað hér þar sem þeir voru
að mestu flytjendur texta höf-
undar og hefðu þess vegna
getað borið grímur — voru
hlutlausar táknmyndir ákveð-
inna þjóðfélagshópa. Hemmi í
allkraftmiklum meðförum
Harald G. Harald er hér
undantekning. Hann verður
fremur leiksoppur, spegill
stéttaátakanna. Einnig
Hrefna gamla í sannfærandi
túlkun Sigríðar Hagalín.
Hrefna er fulltrúi lífsviskunn-
ar. Þess boðskapar að það
skipti máli hvað uppskorið sé.
Hrefna ræktar kartöflur og
verður þetta atriði til að vekja
ýmsar spurningar. T.d. hvort
hún sé ekki frá ákveðnu sam-
félagi austanlands þar sem
útsæði var étið og girðingar-
staurum brennt. Þá er einnig
spurning hvort verkalýðsfor-
inginn var ekki í raunveruleik-
anum tengdur Hrefnu og
hvort örlög hans voru ekki
ráðin með svipuðum hætti og
segir í leikritinu. Ekki verður
hér ráðið í fyrirmyndir höf-
undar frekar en hvort þetta
nýjasta leikrit hans verður
enn ein blaðsíða í íslenskri
leiklistarsögu, eða neðanmáls-
grein, um það verður tíminn
að dæma. Hann einn hefur
yfirsýnina enda
„... fugl sem kann að fljúga".
Skipasmíðastöð Þorgeirs og
Ellerts hf., afhenti sina 34.
nýsmiði á Sundunum á föstudag,
er Tálkni hf. tók við nýju skut-
skipi. Sölva Bjarnasyni BA 65.
Sölvi Bjarnason er teiknaður af
Benedikt Erlingi Guðmundssyni
skipaverkfræðingi hjá Þorgeir og
Ellert hf. og að öllu leyti hannað
og byggt af starfsmönnum fyrir-
tækisins. Skipið er byggt sem
skuttogari fyrir botn- og flot-
vörpu, en jafnframt útbúið til
veiða með nót. Það er 46,7 metrar
á lengd og mælingarstærð 404,5
brúttórúmlestir. Lestarrými er
550 rúmmetrar og tekur 200 tonn
af ísuðum fiski í kassa, en af loðnu
getur skipið borið 800 tonn. Meðal
tækjabúnaðar skipsins, sem allur
er af nýjustu og vönduðustu gerð,
er haggæzlureiknir frá Tæknibún-
aði hf., sem sýnir hversu vel
brennsluefni nýtist og finnur hag-
kvæmustu eldsneytisnotkun aðal-
vélar hverju sinni en hún brennir
svartolíu.
Hjá Þorgeiri og Ellert hafa
farið um 180.000 vinnustundir í
þetta skip og kaupverð þess er fast
að tveimur milljörðum króna.
Þorgeir og Ellert hf. hafa nú
byrjað smíði 450 rúmlesta skut-
togara fyrir Hjálmar Gunnarsson
og Gunnar Hjálmarsson, Grund-
arfirði, er áætlað er að afhenda
skipið um mitt næsta ár. Hjá
Þorgeiri og Ellert hf. vinna nú um
130 manns.
Kaupandi Sölva Bjarnasonar
BA 65 er Tálkni hf, Tálknafirði en
aðalhluthafar eru Arsæll Egilsson
og Bjarni Andrésson. Skipstjórar
verða Ársæll og Sigurður Bryn-
jólfsson, 1. vélstjóri Már Jónsson
og 1. stýrimaður Jón Þórðarson.
Sölvi Bjarnason mun landa á
Bíldudal.
Sölvi Bjarnason siglir inn i Reykjavíkurhöfn sl. föstudag. Á litlu innfelldu myndinni eru Jósef
Þorgeirsson, Þorgeir Jósefsson, Ársæll Einarsson, Sigurður Brynjólfsson og Bjarni Aðalsteinsson.
Segulband fyrir rafhlöður.
Innbyggður hljóðnemi.
Verö kr. 54.560.-
Utvarpstæki LB og MB
Aðeins fyrir rafhlööur.
Verð kr. 14.217,-
Sambyggt útvarp og segulband, fyrir rafhlöðu
og rafmagn. LB, MB og FM.
Innbyggður hljóðnemi. Verö kr. 134.704.-
Hárblásari — 400
Verð kr. 23.323.-
Segulband fyrir bæði rafhlöður og rafmagn
Innbyggður hljóðnemi.
Verð kr. 62.240,-
Rakvél með 2,
12 blaða hnífum
Verð kr. 48.231.-
Plötuspilari með innbyggðum magnara
Hátalarar fylgja. Verö kr. 120.215.-
heimilistæki hf
Morgunhani með LM, MB og FM
Gengur alveg hljóðlaust.
Verö kr. 37.780.-
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
Útvarpstæki LB MB og FM.
Bæði fyrir rafhlöður og rafmagn
Verð kr. 36.336,-
Hárburstasett meö 4 fylgihlutum. 800 W.
Verö kr. 33.596,-