Morgunblaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1980
.Tilvalið
Margrét
Iljálmarsdóttir.
Jóhannes
Kristinsson
n 'endnm h Hrk
t‘<r noir.r^
1renndZ"lðan''<'rdur6 n',,tnn
Myndir Emilía
Vorsýning
Myndlistaskólans
í Reykjavík:
„Þetta er i fyrsta skipti á
ævinni sem ég reyni að
teikna,“ sagði Rannveig
Magnúsdóttir, einn nemend-
anna. „Ég fékk skyndilegan
og óvæntan áhuga á teikn-
ingu og finnst þetta mjög
gaman." Rannveig er heima-
vinnandi húsmóðir og sagði
að þetta tómstundagaman
væri einmitt tilvalið fyrir
þær. „Það er aldrei of seint
að byrja.“
„Hver vetur er
sá síðasti“
Höggmyndadeildin er eina
deild skólans sem starfar
allan daginn. Mikil vinna
liggur að baki einnar högg-
myndar, of mikil til þess að
árangur náist á kvöldnám-
skeiðum einum. Kennarar í
höggmyndadeildinni eru
Hallsteinn Sigurðsson, Sig-
rún Guðmundsdóttir, Ragn-
ar Kjartansson og Páll J.
Pálsson.
„Þetta er í fyrsta skipti
sem ég er við nám í högg-
myndadeild en fyrir nokkr-
um árum var ég hér að læra
teikningu og vatnslitun,"
sagði Þorbjörg Þórarinsdótt-
ir. „Við lærum hér að móta í
leir og höggva í stein. Þetta
er frekar dýrt tómstunda-
starf en það er þess virði,“
sagði Þorbjörg.
Margrét Hjálmarsdóttir
hefur verið 7 ár í högg-
myndadeild Mynd-
listaskólans en með hléum
þó.
„Skólinn er orðinn mun
betri nú en þegar ég kom
hingað fyrst og aðstaðan hér
er mjög góð,“ sagði Margrét.
Ekki sagðist Margrét vita
það hvort hún héldi áfram í
skólanum „Hver vetur er sá
síðasti hér. Mér finnst þetta
alls ekki dýrt tómstunda-
gaman en það er mikil vinna
sem liggur í því. Kennararn-
ir eru ekki alltaf hjá okkur
en við vinnum hvern dag
nema föstudaga og laugar-
daga.“
„Menntum ekki
einungis listamenn“
Eins og sjá má á viðtölun-
um við nemendur í Mynd-
listaskólanum er þar fólk á
öllum aldri sem hefur áhuga
á myndlist.
„Það vill oft brenna við að
fólk haldi að hingað komi
þeir sem hafa það markmið
að verða listamenn í fram-
tíðinni. En starfssvið skólans
er ekki einungis að mennta
listamenn, heldur að opna
augu fólks og auka skilning
þess á myndlist almennt,"
sagði Katrín Briem skóla-
stjóri Myndlistaskólans í
Reykjavík að lokum.
rmn
Rætt við nemendur
og skólastjóra
Myndlistaskólans
ÁRLEG vorsýning Mynd-
listarskólans í Reykjavík
hófst sl. laugardag í húsa-
kynnum skólans að Lauga-
vegi 118 og verður opin til 7.
apríl kl. 14—18 alla daga.
„Við sýnum nú verk nem-
enda nokkru fyrr en venja
er til, þ.e.a.s. áður en
kennslu lýkur. Með þessu
viljum við gefa fólki kost á
að sjá verk á vinnslustigi,
þá gerir það sér betur grein
fyrir því hvað hér fer fram,“
sagði Katrín Briem skóla-
stjóri Myndlistarskólans er
blm. heimsóttu skólann.
„Við sýnum sem sagt vinnu-
teikningar, hálf unnin verk,
ásamt fullunnum hlutum,
auk þess sem til sýnis verða
hráefnin sem við notum og
áhöldin.“
Myndlistaskólinn skiptist í
19 deildir, ýmsar teiknideild-
ir, málaradeild, höggmynda-
deild og barna- og unglinga-
deildir. Nemendur eru um
300 en kennarar eru 17.
Kennslan er í námskeiða-
formi og fer fram á kvöldin
kl. 17—19.15 nema í högg-
myndadeildinni. Þar er
starfað allan daginn.
„Skemmtilegast
í grafíkinni“
Unglingadeildinni er skipt
í tvo hópa. Annar er ein-
göngu í teikningu en hinn er
eingöngu í mótun. Er blm.
komu að var Katrín að leið-
beina þeim hópi sem fæst
eingöngu við teikningu.
Asdís Ásgeirsdóttir, 13
ára, var að gera grafík-bóka-
merki.
„Ég hef verið í Mynd-
listaskólanum í 3 ár, oftast
bara í teikningu en líka lært
að móta í leir. Mér finnst
langskemmtilegast að vinna
við grafíkina."
Ásdís sagðist hafa hugsað
sér að halda áfram námi við
skólann og ef til vill fara út í
það í framtíðinni að leggja
fyrir sig myndlist.
Jóhannes Kári Kristinsson
var hins vegar nýbyrjaður
við nám í Myndlistaskólan-
um. Hann er 12 ára og fannst
skemmtilegast að fást við
grafík eins og Ásdísi.
„Tilvalið fyrir
heimavinnandi
húsmæður“
I málaradeildinni var Sig-
ríður Björnsdóttir listmálari
að leiðbeina nemendum. í
einu horninu var nokkrum
appelsínum og flöskum stillt
upp. Nemendurnir máluðu
einbeittir á svipinn og Sig-
ríður gekk um og leiðbeindi
eftir þörfum.
„Ég hef afskaplega gaman
af þessu tómstundastarfi
mínu,“ sagði Oddný Guð-
mundsdóttir sem er við nám
í skólanum annað árið í röð.
„Það eru nokkur ár síðan ég
byrjaði að mála en aðeins tvö
ár síðan ég hóf að læra. Við
lærum að byggja upp mynd-
irnar og málum uppstill-
ingar. Þetta er ágætis tóm-
stundastarf fyrir heimavinn-
andi húsmæður sem hafa
lítið að gera heima hjá sér og
hafa áhuga á myndlist,"
sagði Oddný.
Lilja Gísladóttir hefur
verið í Myndlistaskólanum
frá því í janúar sl.
„Ég fór á kvöldnámskeið í
myndlistaskóla í Svíþjóð
fyrir nokkrum árum og lang-
aði til að byrja á þessu
aftur,“ sagði Lilja. „Ég
myndi hins vegar byrja á því
að læra teikningu ef ég væri
að byrja aftur. Ef ég held
áfram í Myndlistaskólanum
hef ég hugsað mér að fara í
einhverja teiknideildina."
Lilja sagði að málun væri
tiltölulega dýrt tómstunda-
starf. „Málningin, spjöldin
og annað sem við notum er
allt mjög dýrt.“
„Ég er að teikna
í fyrsta sinn
á ævinni“
Ragnar Kjartansson var
að leiðbeina byrjendum í
módelteikningu er blm. litu
inn. Voru nemendurnir að
glíma við að teikna andlit
stúlku sem sat á palli fyrir
framan þá.
x.
„Okkar hlutverk er
að opna augu almenn-
ings fyrir myndlist"