Morgunblaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRIL 1980
19
Grund fær lægri daggjöld en aðrir:
„Viljum sanngimi — tölum
ar skipta ekki máliu
„VIÐ ERUM mjög óhressir
með þá þróun sem átt hefur
sér stað í daggjaldamálum.
Þar erum við beittir miklum
órétti, okkar sjúklingar eru
hreinlega metnir lægra en
sjúklingar annarra sambæri-
legra stofnana.“ sagði Gisli
Sigurbjörnsson forstjóri Elli-
heimilisins Grundar í
Reykjavík í samtali við Mbl.
„Eftir síðustu hækkun fáum við
— segir Gísli
Sigurbjörnsson
forstjóri Grundar
11.100 krónur fyrir hvern sjúkling,
en t.d. Sólvangur í Hafnarfirði
fær 23.500 krónur á dag, Hrafnista
hefur 16.000 krónur á dag og
Arnarholt hefur 27.100 krónur.
Þar sem um mjög svipaða sjúkl-
inga er að ræða liggur þa£>. í
augum uppi að um ákveðna mis-
munun er að ræða. Við erum
ekkert að kvarta yfir tölunum sem
slíkum.
Það sem við viljum er hreinlega
að okkur sé sýnd fyllsta sanngirni
í samanburði við aðra. Ég er
ekkert að segja að við séum að
fara á hausinn, en það er ekki
stjórnvöldum að þakka,“ sagði
Gísli ennfremur.
Þá kom það einnig fram hjá
Gísla að nú eru 325 sjúklingar á
Grund.
Heita vatnið hverf-
ur við umbrotin en
kemur aftur síðar
Bæ, Höfðaströnd, 31. marz.
Á REYKJARHÓLI í Austur-
Fljótum býr nú Guðmundur Al-
freðsson. Reykjarhóllinn er um
150 m hár, en í toppi hans er um
70 gráða heit uppspretta. Vitan-
lega eru húsin á Reykjarhóli
hituð upp með sjálfrennandi
heitu vatni, sem er um 65 gr.
heitt heimkomið.
Árið 1963 27. marz er jarð-
skjálftarnir gengu hér yfir þá
hvarf vatnið alveg úr hólnum og
kom ekki aftur fyrr en eftir
nokkurn tíma. Núna skeður það,
að þegar umbrotin voru í Kröflu
um daginn kemur það sama fyrir.
Nú brjótum við heilann um það af
hverju þetta gerist, er eitthvert
samband þarna á milli. Finnst
mönnum þetta einkennilegt, en
vatnið er nú að byrja að koma
aftur.
Björn.
Kristján Benediktsson:
arcodan lof tnetskerf i ■
arcodan lof tnetskerf i
Loftnetsuppsetninga
hvort sem er fyrir:
— Einbýlíshús — Raðhús — Stór sambýlishús —
— Kaplakerti tyrir heil íbúðahverti eöa bæi.
Loftnet TV—FM—AM Loftnetsfestingar Kaplar Filter
Deilibox— Magnarar— Tengidósir— Loftnetsplöggar.
Getum innan skamms útvegaö íslenska útgáfu af vöru og verðlistum yfir
efnisúrval okkar. — Hringið eða heimsækiö okkur til nánari upplýsinga.
Aðstoöum við val efnis fyrir hvert einstakt kerfi — Kerfisuppbygging, sem
byggð er á áratuga reynslu loftnetssérfræöinga Arcodan.
Danska fyrirtækið Arcodan er stærsti aðili Norðurlanda í framleiðslu og
uppsetningum á loftnetskerfum. beir hafa meðal annars leyst paö verkefni að
tengja 25.000 notendur viö sama loftnetiö og þá að sjálfsögöu með möguleika
á að tengjast sameiginlegu myndsegulbandi og FM-músik-útsendingum.
Dönsk lög um loftnetskerfi eru þau ströngustu í heiminum í dag, og að
sjálfsögöu fullnægir Arcodan þeim gæöakröfum i einu og öllu.
Kjörorö okkar er „Gæöin fyrir öllu“.
FJJ5
heimilistæki hf
SÆTÚNI8.SÍMI 24000.
Viö bjóöum góöa
greiösluskilmála og ger-
um tilboö ef óskaö er.
Lánum stórar prufur tíl
skoöunar.
13 ára reynsla tryggir góö
teppi og góöa þjónustu.
13 ára reynsla
í sölu gólfteppa á stigahús hefur
sannað slitþol hinna níðsterku 100%
nylonteppa. Lykkjuofin og þétt teppi
henta bezt á slíka fleti. Enn hefur ekki
þurft að endurnýja fyrstu teppin sem
lögö voru á fyrir 13 árum. Teppin í dag
eru jafnvel enn betri, því þau eru varin
gegn óhreinindum með Scotchguard-
húó.
Reyndir fagmenn skila 1. flokks vinnul
TÉPPfíLfíND
Grensásvegi 13. Símar 83577 og 83430.
NIÐSTERK GOLF-
TEPPI í 5 GERÐUM
OG 15 LITUM
Guðrún Helgadóttir alþingis-
maður og borgarfulltrúi ritar
grein í Morgunblaðið s.l. laugar-
dag.
Þótt ég hafi ýmislegt að athuga
við sumt af því, sem þar kemur
fram, mun ég ekki elta við það
ólar, a.m.k. ekki að sinni. Þar á ég
einkum við vangaveltur hennar
um Höfðabakkabrúna og þá tor-
tryggni sem hún telur, að gæti hjá
mér og borgarfulltrúum Alþýðu-
flokksins gagnvart þeim nefndum
sem Alþýðubandalagið veitir for-
ystu.
Það sem ég vil leiðrétta strax er
sú fullyrðing, að embættis-
mönnum borgarinnar sé um að
kenna að breytingar á annarri
setustofu í húsinu Langahlíð 3
hafa tekið nokkuð lengri tíma en
e.t.v. hefði þurft. Hvorki borgar-
verkfræðingur né aðrir embætt-
ismenn eiga sök á þeim drætti.
Skýringin er einfaldlega sú að
nokkur ágreiningur kom upp varð-
andi hvora setustofu hússins ætti
að taka fyrir íbúðir. Þá hefur
verktakinn verið lengur að fram-
kvæma þessar breytingar en þurft
hefði. Þess ber hins vegar að gæta
að breytingar á húsnæði vilja oft
vera tafsamar. Ibúðirnar verða
hins vegar fullbúnar um miðjan
apríl bæði mér og Guðrúnu til
óblandinnar ánægju.
Kristján Benediktsson
Hlaut styrk
úr leiklistar-
sjóði Brynjólfs
Veitt var úr Leiklistarsjóði
Brynjólfs Jóhannessonar í
sjöunda sinn á aðalfundi Fé-
lags íslenskra leikara 25.
febr. sl.
Sigurður Karlsson leikari,
hlaut styrkinn að þessu sinni
að upphæð kr. 700.000-
Formaður sjóðsstjórnar er
Valur Gíslason.
Páskakerti hjá
Hvöt í dag
í dag verður markaður með páskakerti í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, á vegum fjáröflunarnefndar
Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík.
Kertin eru íslensk framleiðsla af ýmsum stærðum,
en öll í hinum gula lit páskanna. Kertamarkaðurinn
er opinn frá kl. 5—7 síðdegis í dag.
Athugasemd