Morgunblaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1980
Elísabet var óánægð með áróður- Kristinn Sæmundsson Þórjón Pétursson
inn á unglingana í Breiðholti.
„Ósamræmi í
fréttaflutningi44
Ragnar
Magnússon
segir frá
fundi, sem
nokkrir
klúbbar
héldu
í Fellahelli
HÉR birtist síðari hluti frá fundi
klúbbanna sem haldinn var í
Fellahelli 25. 3. sl. Tillaga sú sem
einn framsögumanna mælti fyrir
og kom fram í fyrri hiuta frás-
agnarinnar sem birtist i Mbl. sl.
laugardag. hvort áhugi væri á
því meðal fundargesta að taka til
hendinni og hreinsa kringum
skólann, var hraustlega fylgt
eftir að morgni þess 26. Það má
segja, að þá hafi svæðið kringum
Fellaskóla verið hvít skúrað.
Hvort framhald verður á þessu er
að sjálfsögðu undir ýmsu komið,
en það kom fram vilji til þess, að
láta þetta ekki verða einhverja
loftbólu sem hyrfi snarlega í djúp
minninganna, heldur láta hér
verða upphaf stefnubreytingar
hvað varðar umgengni í hverf-
inu.
Kristinn Sæmundsson:
Ekkert mál — ef
allir stæðu saman
Það sem ég ætla að fjalla um er
betri umgengni við KRON. Ég
talaði við nokkra verslunarmenn
og þeir sögðu að það fyrsta sem
þyrfti að gera væri að mála og
hreinsa til kringum búðirnar,
fjölga ruslakörfum og hætta að
brjóta rúður. Það væri ekkert mál
að gera þetta ef allir stæðu saman
við að bæta umgengnina í hverf-
inu. Verslunarmennirnir við
KRON tóku vel undir þessi orð því
að viðskiptavinirnir eru hættir að
þora að koma vegna krakkaskríls
og láta.
Þegar við spurðum verslunar-
mennina um álit þeirra á að setja
þak á sperrurnar fyrir framan
bankann og bekki þar undir, sögðu
þeir að ef þetta yrði gert myndu
krakkarnir safnast þar saman og
gera þennan stað að Hallærisplani
2. Aftur á móti sögðu þeir að
sniðugt væri að byggja skýli hér í
grenndinni þar sem unglingarnir
gætu safnast saman, þegar Fella-
hellir væri lokaður og hafa það
þannig að ekkert væri hægt að
eyðileggja.
Tryggingafélögin fara að hætta
að borga skemmdirnar á verslun-
um vegna þess hve mikið er
eyðilagt. Og ef af því verður endar
það með því að verslanirnar fara á
hausinn vegna skemmdarstarf-
semi. Þetta væri allt hægt að
lagfæra, ef allir stæðu saman um
að bæta hverfið. Þá með því að við
myndum koma saman um helgar
og hreinsa til, t.d. gætum við gert
það fyrsta sunnudag í hverjum
mánuði.
Ósamræmi í
fréttaflutningi
Að framsöguræðum loknum
tóku nokkrir til máls og voru
ræðumenn með ýmsar góðar hug-
myndir.
Geirharður Þorsteinsson, einn
af þeim sem skipulögðu Breiðholt
3, mætti á fundum og ræddi um
hugsanlegar breytingar sem
mætti gera, t.d. í Fellagörðum.
Geirharður var ekki hrifinn af
þeirri hugmynd að hafa alla hluti
svo úr garði gerða, að ekki gæti
neitt undan látið.
Að fundi loknum átti ég þess
kost að ræða við nokkra unglinga.
Þórjón Pétursson sagði að krökk-
um í Breiðholti væri kennt um allt
mögulegt, jafnvel að brjóta hend-
ur lögreglumanna. Þórjón var
mjög argur vegna þeirra skrifa
sem hafa birst um Breiðholtið og
hvað öllu er slegið upp ef minnst
er á Breiðholtið. Sérstaklega var
hann sár út í Dagblaðið og taldi að
skrif þess blaðs mættu gjarnan
breytast. Undir þetta tóku félagar
hans, Þórir og Ásgeir.
Síðan ræddi ég við Ingu Birnu
Úlfarsdóttur, Hjalta Guðmunds-
son, sem var fundarritari, Þóru M.
Magnúsdóttur, Kristin Sæ-
mundsson og Þóri Björnsson.
Þau voru öll sammála um það,
að mikið ósamræmi væri í
fréttaflutningi. Ef atburðurinn
gerist í Breiðholti þá er því slegið
upp, en frétt um þjófnað á 25
kartonum af sígarettum að verð-
mæti 250.000 kr. þykir ekki frétt,
né heldur ef rúður eru brotnar,
götuljós skemmd þegar skoðað er
það pláss, sem fréttin fær, af því
að það gerðist ekki í Breiðholti.
Þau viðurkenndu, að óknytta-
unglingar væru til í hverfinu, en
þetta væri fámennur og harð-
snúinn hópur. Því væri ekki rétt
að dæma alla unglinga í Breiðholti
út frá því.
Þau sögðust ætla sannarlega að
fylgja vel eftir þeim tillögum sem
samþykktar hefðu verið á fundin-
um, t.d. með hreinsunina.
Þetta kvöld sem fundurinn var
haldinn komu í heimsókn ungl-
ingar úr Oddeyrarskóla, á Akur-
eyri. Ég spurði Tótu, Fíu og Dídí
hvort hliðstæð vandamál væru á
Akureyri sem lýst hefði verið á
fundinum. Ekki vildu þær stöllur
meina að svo væri, en að sjálf-
sögðu eru fyrir hendi ákveðin
vandamál en þau eru kannski
minni í sniðum. Okkur finnst sitt
hvað hér vera nokkuð stórt í
sniðum. Hér eru stórar byggingar
og mikið fjölmenni og það er
kannski þess vegna sem meira ber
á ýmsu hér.
Það verður að segjast eins og er,
að þessi fundur sem klúbbarnir í
Fellahelli efndu til, tókst með
miklum ágætum. Slíkir fundir
ættu að vera fastur liður í starfi
Fellahellis. Ég geri það að tillögu
minni, að á næsta fund bjóðið þið
foreldrum og eftir að hafa talað
nokkur velvalinn orð við foreldra
sem hugsanlega kæmu á fundinn
þá mætti gefa þeim tækifæri til að
svara fyrir sig. Klúbbarnir sem
stóðu að fundinum eru: 'Kyn-
fræðsluklúbbur, Ferðaklúbbur,
Afbrotaklúbbur og Fíkniefna-
klúbbur.
Fundinum til trausts og halds
voru þeir Sverrir Friðþjófsson
forstj. Fellahellis og Skúli
Björnsson.
íslenzk kvikmynda-
vika í Regnboganum
HIÐ nýstofnaða Kvikmyndafje-
lag gengst um þessar mundir
fyrir íslenzkri kvikmyndaviku í
'egnboganum í Reykjavík og
?ndur hún til 2. apríl. Verða á
'kmyndavikunni sýndar
trar íslenzkar kvikmyndir,
jæði heimildamyndir og leiknar
myndir, sem teknar hafa verið á
síðustu árum eða allt frá árinu
1921.
Að sögn forráðamanna Kvik-
myndafjelagsins er ætlunin að fá
hingað til lands erlendar kvik-
myndir, sem ekki koma í kvik-
myndahúsin og gangast öðru
hverju fyrir sérstökum kynning-
um og kvikmyndavikum. Þetta
fyrsta framtak félagsins er til að
sýna hvað gert hefur verið af
íslenzkum kvikmyndagerðar-
mönnum og til að sýna hve
mikilvæg atvinnugrein kvikmynd-
in er ekki sízt þegar um varðveizlu
heimilda er að ræða.
Þeir kvikmyndagerðarmenn,
sem eiga tnyndir á kvikmynda-
hátíðinni eru Óskar Magnússon,
Óskar Gíslason, Ósvaldur Knud-
sen, Ásgeir Long, Reynir Oddsson,
Þorsteinn Björnsson, Hrafn
Gunnlaugsson, Róska. Magnús
Jónsson og Kvik sf.
Nokkrir stjórnarmanna Kvikmyndafjelegsins, f.v.: Gestur Ólafsson,
Leifur Þorsteinsson, Sverrir Hólmarsson og óíafur Haukur Simonar-
son, en auk þeirra eiga sæti í stjórninni Eyjólfur Halldórsson og
Þorsteinn Jónsson. Ljósm. Mbi. KHstján.