Morgunblaðið - 01.04.1980, Side 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1980
viw
MORö-dfv
kafr/Nd \
■te
GRANI GÖSLARI
Trúnaðarlæknirinn sagði, að ég
ætti að vera eins mikið úti við
og ég gæti. Ykkur vantar ekki
svo sem aðstoðarf járhirði?
Villibráðin kemur eftir 15 mín.
herra!
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Oft er gott og getur komið sér
vel að sýna með afkasti sinu
styrk i ákveðnum lit svo, að
makker sé ekki i vafa um hvaða
lit best er að hann spili. En aðgát
skal höfð og ekki má gleyma, að
fleiri fá þessar sömu upplýsingar
og geta jafnvel haft gagn af.
Suður gaf, allir á hættu.
Norður
S. KDG4
H. 54
T. ÁD64
v * L-983 * *
Vestur Austur
S. 753 S. 2
H. KG102 H. 9873
T. G10875 T. 92
L. 7 0 , L. ÁKDG64
Suður
S. Á10986
H. ÁD6
T. K3
L. 1052
COSPER
... Þá tekur frummælandi, ungfrú Jóna, til máls og
fjallar um spurninguna: „Eiga konurnar að taka
völdin í þjóðfélaginu?"
Samábyrgð
Velvakandi góður!
Tugmilljónatjón af völdum
árekstra og allt vegna ölvunar við
akstur! En hversu mikið er það
tjón sem maðurinn sjálfur bíður,
bæði á sál og líkama, þegar hann
eftir nokkurra ára drykkju er ekki
einasta orðinn flak, heldur þjóð-
félagsbyrði? En þrátt fyrir þetta
er hamrað á því sama: Engin boð
og bönn, fleiri áfengisholur! Ætla
mætti að þessir menn vildu höfuð-
smiðju boða og banna á íslandi,
sjálft Alþingi, feigt. — Og kannski
er Móselög orðin úre)
þessara spekinga. Ýmsir sveitar-
stjórnarmenn virðast gengnir á
mála þeirra siðlausu afla sem
græða á eymd annarra. Þeim bæri
þó fremur að spyrna við fótum og
vera ungmennum til eftirbreytni.
Þetta kom mér í hug þegar ég las
viðtal við forseta bæjarstjórnar á
Seltjarnarnesi.
Þar taldi hann lífsspursmál að
hjálpa náunga sínum til að ná í
áfengi með sem minnstri fyrir-
höfn með því að stuðla að opnun
áfengisútsölu út á Seltjarnarnesi.
En hann var ekkert að aumka
Seltirninga þó að þeir þurfi að
sækja ýmsa nauðsynlega þjónustu
til Reykjavíkur, til að mynda
framhaldsnám að loknum grunn-
skóla og sérverslanir ýmsar. Nei,
það liggur eitthvað annað á bak
við en áhugi á velferð almennings.
Þar skyldi þó ekki einhver
„hræsni" leynast eins og talað er
um?
Sveitarstjórnir, sem vita að
áfengisneysla færist í aukana,
bölið vex, og fleiri starfandi hend-
ur lenda í klóm umboðslýðs Bakk-
usar, sjálfum sér og þjóðfélaginu
til tjóns, geta varla verið á réttri
Vestur og austur sögðu báðir
alltaf pass en norður svaraði
spaðaopnun suðurs með þrem
spöðum og lokasögnin varð fjórir
spaðar.
Eðlilega spilaði vestur út ein-
spili sínu í laufinu og austur tók
sæll og ánægður fyrstu þrjá slag-
ina. En í annan og þriðja slaginn
lét vestur hjartagosa og tvist.
Hann greip sem sé tækifærið og
sagði makker sínum fyrir verkum.
Og austur gerði eins og til var
ætlast, skipti í hjartaníu.
Undir öllum eðlilegum kring-
umstæðum hefði suður svínað
hjartanu og einfaldlega tapað sínu
spili. En eftir þessi afköst vesturs
var svíningin dæmd til að mistak-
ast. Sér í lagi, þar sem hann
þekkti vestur og vissi, að hann var
hrekklaus og ekki sérstaklega
hugmyndaríkur spilari. Og einnig
var sagnhafa fullkomlega ljóst, að
vestur var mun líklegri til að eiga
fleiri tígla en austur og þar með
var fyrir hendi annar möguleiki
en svíningin til að vinna spilið.
Sagnhafi tók því hjartaníuna
með ásnum og tók trompslagina
alla fimm. Og áður en lauk varð
vestur annaðhvort að gefa eftir
vald sitt á tíglinum eða láta
hjartakónginn. Unnið spil.
Auðvitað gat vestur varist bet-
ur. T.d. látið lágan tígul í annan
laufslaginn, trompað þann þriðja
og spilað tígulgosa. Þetta gæfi
sagnhafa engar upplýsingar um
hjartaleguna og hann yrði að ráða
fram úr spilinu sjálfur.
Sýningí
Hveragerði
— til styrktar Noregsför
nemenda grunnskólans
Ilvoli. Ölfusi
í byrjun maí-mánaðar
n.k. fara nemendur 9. bekkj-
ar Grunnskólans í Hver-
agerði í 11 daga ferð til
Sigdal vinabæjar Hvera-
gerðis í Noregi. Sjóðurinn
„Þjóðhátiðargjöf Norð-
manna“ hefur veitt mjög
myndarlegan styrk til far-
arinnar og á næstunni ráð-
gera nemendur, foreldrar
þeirra og kennarar að vinna
sameiginlega að ýmsum
fjáröflunarverkefnum fyrir
ferðasjóð nemenda.
Miðvikudaginn 2. apríl n.k.
kl. 14 verður opnuð handa-
vinnusýning nemenda í fé-
lagsheimili Ölfusinga (í
næsta húsi við Eden) í
Hveragerði. Þar verða til
sýnis olíu- og vatnslitamynd-
ir, teikningar og ljósmyndir,
fatnaður og hannyrðir, ýmsir
smíðisgripir og skúlptúrverk
úr tré og járni, hugmynd að
skipulagi skóla- og íþrótta-
svæðis þorpsins og önnur
hugmynd að framtíðarhóteli
á Hamrinum fyrir ofan
Hveragerði, báðar útfærðar í
tré og pappamassa, og ýmis-
legt fleira áhugavert. Til sölu
verður sýningarskrá með
upplýsingum um ýmsa þætti
Hópvekefni. Nemendur ásamt kennara sínum.
skólastarfsins í Hveragerði.
Kaffiveitingar verða á boð-
stólum alla sýningardagana
og verður meðlætið allt
heimabakað, unnið af nem-
endum með dyggri aðstoð
foreldra sinna að sjálfsögðu.
Auk þessa er í undirbúningi
ýmislegt fleira er gæti orðið
ferðasjóði nemenda til
styrktar.
Við opnunina syngur
skólakórinn og skólahljóm-
sveitin leikur nokkur lög og
vænta nemendur þess að sem
flestir leggi lykkju á leið sína
og styrki þá til Noregsferð-
arinnar.
Sýningin verður opin dag-
lega kl. 14—22 til og með 5.
apríl n.k.
BES