Morgunblaðið - 12.04.1980, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 12.04.1980, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1980 Falla mörg met á íslandsmótinu í lyftingum? Alvarleg ásökun Formaður Skíðasambands íslands, Sæmundur Óskarsson, sakar landsliðsmenn á skíðum um drykkjuskap í mjög svo harðorðri grein í Dagblaðinu og Vísi í fyrradag. Mun vera átt við þá Sigurð Jónsson og Iiauk Jóhannsson. í grein sinni segir Sæmundur m.a.: „í tveimur utanlandsferðum af þremur sem formaðurinn hefur verið fararstjóri í hefur hann þurft að ávíta piltana fyrir meðferð áfengra drykkja.“ í tilefni þessarar yfirlýsingar formannsins í blöðum sem eru einsdæmi sneri Mbl. sér til þeirra Sigurðar Jónssonar og Hauks Jóhannssonar og innti þá eftir þvi hvað þeir vildu um málið segja. „Eg hef ekki farið í neina keppnisferð í vetur á vegum Skiðasambands íslands þar sem áfengi hefur verið haft um hönd,“ sagði Sigurður Jónsson. „Þessar ásakanir eru mjög alvarlegar fyrir nýbakaða íslandsmeistara á skíðum, ég satt að segja skil ekki af hverju við erum svona sterkir skíðamenn ef við erum drykkjumenn. Annars mun ég svara þessu í blöðunum," sagði Sigurður. „Ég er orðlaus yfir þessum ásökunum, þessar aðdróttanir eiga ekki við mig,“ sagði Haukur Jóhannsson. „Það hefur aldrei verið drykkjuskapur í þeim keppnisferðum sem ég hef farið í. Nóg er nú á sig lagt í þessu þó að maður fái nú ekki svona yfir sig eftir að hafa staðið í þessu í 10 ár og ávallt verið toppmaður. Ég mun svara þessu opinberlega." —.Þr. Viðar Guðjohnsen ráðinn landsliðsþjálfari í Judo ísland sigraði ÍSLENSKA unglingalands- liðið í handknattleik sem nú keppir i Helsinki á Norður- landameistaramótinu lék tvo landsleiki við Hollend- inga áður en farið var til Finnlands. fyrri leikurinn tapaðist. en sá siðari vannst með þriggja marka mun 23 — 20, eítir að staðan hafði verið 12-9 í háifleik IIol- lendingum í vil. -þr. Minni-bolti ÍSLANDSMÓT í Minni- Bolta verður haldið í Fella- skóla um helgina 11.—13. apríl á vegum KKÍ og KR sem sér um mótið. Niu félög hafa tilkynnt þátttöku i tveimur aldurs- hópum. 10 ára og yngri, sem leika í 1 riðli og 11 — 12 ára sem leíka í 4 riðlum. Félag Yngri Eldri UBK 1 ÍR 1 2 Valur 1 Fram 2 UMFS 1 UMFN 1 2 ÍBK 1 KR 12 Haukar 1 Samtals 160 þátttakendur. Mótið hefst kl. 19:00 föstu- daginn 11. apríl og verður leikið til kl. 22:00. A laugar- dag 12. apríl verður byrjað kl. 13:00 og leikið til kl. 19:00, síðan verður kvöldvaka í Fellahelli með ýmsum skemmtiatriðum. A sunnudag hefst keppni kl. 10:00 og leikið til kl. 17:00, en þá fara fram verðlauna- afhendingar og mótsslit. Golf fundur Á MORGUN sunnudag gengst Golfklúhbur Reykja- víkur fyrir fræðslufundi í Golfskálanum f Grafarholti. Ólafur Bjarki mun flytja erindi um golfreglur, og fjalla um hverja eina út af fyrir sig. Þá verður sýnd golfkvikmynd. Fundurinn hefst kl. 15.00. Skíðaganga í DAG kl. 14.00 fer fram _ Reykjavíkurmót í 30 km * skíðagöngu við skíðaskál- ann í Hveradölum. Þá fer einnig fram boðganga fram- haldsskólanna á sama tíma. Breiðholts- hlaup ÍR Breiðholtshlaup ÍR hefj- ast á morgun sunnudag kl. 14 við Brciðholtskjör í neðra Breiðholti. Ákveðin hafa verið sex hlaup, og fara þau fram næstu sex sunnudaga. þannig að síðasta hlaupið verður 18. maí. Hlaupinn verður sami hringur og undanfarin ár og er vegalengdin um 800 metr- ar. Hlaupin cru öilum opin, en keppt er i aldursflokkum þar sem miðað er við fæð- ingarár keppenda. AHir sem Ijúka fjórum hlaupum hljóta sérstaka viðurkenningu, en sigurvegari i hverjum ald- ursflokki úrskurðast sá sem hlýtur skemmstan tíma úr fjórum hiaupum. Væntan- legir keppendur eru beðnir að mæta til skráningar helzt eigi síðar en kl. 13.30. Meistaramót íslands i lyftingum það ellefta í röðinni verður hald- ið á senunni i Laugardalshöilinni á laugardag og sunnudag. Keppni hefst báða dagana kl. 14. Á laugardeginum verður keppt i léttari flokkunum (52,0 kg—75,0 kg), en þeim þyngri á sunnudag- inn. Þetta íslandsmeistaramót er sérstætt að því leyti að þar munu leiða saman hesta sína fimm væntanlegir Olympíu þátttakend- ur, auk þess sem a.m.k. 2—3 aðrir hyggjast gera harða hríð að alþjóða Olympíu lágmörkunum og fullvíst verður að telja að einhverjum þeirra takist að ná þeim áfanga. Búast má við að keppni í einstökum flokkum verði sérlega skemmtileg og tvísýn. Má þar nefna 67,5 kg flokkinn þar munu tveir unglingalandsliðsmenn bítast um sigurinn. í 75,0 kg flokknum er það sama uppi á teningunum, þar verður eflaust hörð barátta milli tveggja met- hafa í flokknum, þeirra Haraldar Ólafssonar og Freys Aðalsteins- Eins og knattspyrnuáhugamenn muna væntanlega, þá sigruðu Englendingar Búlgari í landsleik í knattspyrnu á Wembley-Ieik- vanginum eigi alls fyrir löngu. Þar lék sinn fyrsta landsleik Glenn Hoddle, stjarnan unga hjá Tottenham. Ilann þótti standa sig með ólíkindum vel i sinum fyrsta landsleik og kórónaði siðan allt saman með þvi að skora annað mark Engla í 2—0 sigrin- um. Enskir fréttamenn héldu varla vatni yfir snilli Hoddle og voru margir þeirra gagnrýndir fyrir oflof. Gengu sumir svo langt að líkja Hoddle við Bobby Charlton, þegar hann lék sinn fyrsta lands- leik 20 árum áður. Þetta þótti ekki við hæfi og komust nokkrir sonar. Sá flokkur sem keppnin verður hvað tvísýnust í er 90.0 kg flokkurinn, þar munu eigast við fjórir af bestu lyftingamönnum Islands þeir: Guðgeir Jónsson, Guðmundur Sigurðsson, Guð- mundur Helgason og Kristján Falsson. Ekki má heldur gleyma þungavigtinni, þar munu eigast við tröllin Ágúst Kárason og Gústaf Agnarsson. Báðir hafa þessir kappar náð árangri yfir gildandi Olympíulágmarki og víst verður að teljast að ekkert verði gefið eftir í glímunni við lóðin. Ef litið er á þessa upptalningu og þann árangur sem íslenskir lyftingamenn hafa náð undanfar- ið, má fullyrða að enginn þeirra sem mætir í Höllina um helgina verður svikinn af þeirri skemmtan sem þar verður á boðstólum. Stjórn Lyftingasambands Islands sér um alla framkvæmd á mótinu og er markmið hennar að mótð gangi hratt og vel fyrir sig, þannig að það verði skemmtilegra í heildina en ella, bæði fyrir áhorfendur, keppendur og starfs- menn. fréttamenn í klípu. En i rauninni var ekki verið að bera saman Hoddlc og Charlton sem leik- menn, heldur frekar að báðir léku svo vel í sínum fyrsta landsleik. Ástæðan fyrir því að ýmsir hlupu á sig í gagnrýni á viðkomandi fréttamenn var þó talin vera sú, að síðast er nýliði í enska landsliðinu sýndi slíka snilldartakta, þá reyndist það vera ekkert annað en blaðra sem loftið lak æði hratt úr. Það var einmitt þegar Alan Hudson lék sinn fyrsta landsleik gegn Vest- ur-Þjóðverjum fyrir 4 árum. Hann sýndi snilldartakta er England vann 2—0. En hann var enginn bógur og hvarf af sjónar- sviðinu jafn fljótt og hann birtist þar. Judosamband íslands hefur ráðið hinn kunna judomann Viðar Guð- johnsen landsliðsþjálfara í judo, og tekur hann við starfinu af Yoshihiko Jura sem nú er á förum til Japans. Viðar mun æfa lansliðshópinn. fram að Olympíuleikunum í sumar samkvæmt sérstakri æf- ingaáætlun. Á þessu timabili eru nokkur stórmót bæði innlend og eins erlend mót sem íslenskir judomenn áforma að taka þátt í. M.a. er Evrópumeistaramótið i Vínarborg í næsta mánuði, og auk þess má nefna 8 landa keppni i San Marino i júní. Þá er Opna breska meistaramótið i lok þessa mánaðar, en islenskir judo menn náðu þar góðum árangri i fyrra. Ekki er enn vitað um þátttöku í þvi móti nú þar sem hún er háð umsókn einstakl- inganna sjálfra. Viðar hefur valið fleiri judo menn í landsliðsæfinga-hópinn en áður voru þar og var mikið líf og fjör á fyrstu æfingunni undir hans stjórn sl. fimmtudag. Viðar hefur þjálfað hjá JFR síðan um áramót og reynst frábær þjálfari. Lagði JSÍ áherslu á að fá hann til liðs við þjálfun úrvalshóps judomanna núna og hyggur gott til starfs hans. Judomennirnir í úrvalshópi Við- ars eru úr fimm íþróttafélögum, þar af tveir frá Akureyri, sem að vísu eiga ekki hægt um vik að sækja landsliðsæfingar til Reykjavíkur. Landsliðsþjálfarinn Viðar Guðjohnsen fremstur á myndinni, i glímu við einn af landsliðsmönnunum. Myndin er tekin á fyrstu æfingu landsliðsins. Ljósm. Rax. Enskir smeykir um frama Glenn Hoddle

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.