Morgunblaðið - 18.04.1980, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980
Osta- og smjörsalan
flutt í nýtt húsnæði
OSTA- og smjörsalan sf. er um
þessar mundir að flytjast í nýtt
húsnæði við Bitruháls 2 í
Reykjavík, en hún hcfur lengst
af verið við Snorrabraut og
verður þar áfram starfrækt
ostabúðin. Páimi Jónsson land-
búnaðarráðherra lagði í gær
hornstein í anddyri hússins og
voru ýmsar upplýsingar um
fyrirtækið skráðar á bókfell.
Framkvæmdir við hið nýja
hús Osta— og smjörsölunnar
hófust í marz 1978. Utveggir eru
úr verksmiðjuframleiddum ein-
ingum og var lokið við að reisa
þá ári seinna. Unnið var síðan að
innréttingum og frágangi og
frystigeymsla tekin í notkun í
september sl. og meginhluti
hússins fyrr í þessum mánuði.
Síðar á árinu er gert ráð fyrir að
sett verði upp verzlun. Gólfflöt-
ur byggingarinnar er rúmir 5
Mýbygging Osta- og smjörsölunnar sf. við Bitruháls í Reykjavík.
Pálmi Jónsson landbúnaðarráð
herra lagði hornstein að bygg
ingunni.
þúsund fermetrar og er stærð
hússins miðuð við að geta rúmað
með góðu móti nærri 3 mánaða
sölubirgðir mjólkurafurða fyrir
þéttbýlið við Faxaflóa. Bygg-
ingarkostnaður er kominn í
rúman milljarð, sem er álíka
mikið og verðmæti þeirra smjör-
birgða er húsið getur geymt.
Við athöfn í nýbyggingunni í
gær fluttu ávörp og ræöur þeir
Pálmi Jónsson landbúnaðarráð-
herra, Erlendur Einarsson
stjórnarformaður Osta- og
smjörsölunnar og Oskar H.
Gunnarsson framkvæmdastjóri
hennar, en viðstaddur var fjöldi
gesta, sem þáði ýmsa ostarétti
og aðrar veitingar og skoðaði
síðan húsið. í því er m.a. sér-
stakt fundarherbergi og mun
þar í dag fara fram aðalfundur
fyrirtækisins.
Margt gesta var viðstatt athöfn-
ina og voru burnir fram ýmiss
konar réttir.
Ljósm.: ól. K. M.
Tekinn í landhelgi 35 mílum
innan við 12 mílna mörkin
VÍlUtÁTlKINN Kaldur
VK. som gcrAur »-r úf frá
IIoÍnósí. \ar sfartinn aö
óliiKli'Kum vciöum mílur
innan viö 12 milna fisk
| vcióimórkin innarli'Ku á
I SkatfaíirAi. á Jiriójiidag'
mortfun. Kóttarhiildum
i- yfir skipvcrjum hátsins «-r
i lokiö. cn dómur hcfur ckki
I vcrió kvcóinn upp cnn af
mariívíslcjfum orsiikum.
Portisch í efsta sæti
Frétt Morgunblaðsins um töku Falds 5. september 1978.
Dæmdur fyrir
landhelgisbrot
þrátt f yrir neitun
KVEÐINN var upp í gær í
Hæstarétti íslands dómur í máli
skipstjóra, sem ákærður hafði
verið fyrir ólöglegar togveiðar
á Skagafirði. nánar tiitekið 35
sjómíiur innan 12 mílna mark-
anna. Skipstjórinn neitaði harð-
lega sakargiftum og kvaðst
hafa togað fyrir utan mörkin en
aðrir skipverjar viðurkenndu
að hafa verið á ólöglegum tog-
veiðum. Þótti sannað að hann
hafi verið á togveiðum innan 12
milna markanna og var hann
dæmdur til þess að greiða 2,4
milljónir króna í sekt til Land-
hclgissjóðs og staðfest voru
ákvæði héraðsdóms um upp-
töku afla svo og greiðslu sak-
arkostnaðar.
Aðfaranótt 5. sept 1978 fóru
varðskipsmenn langa leið á
gúmbát og komu að vélbátnum
F'aldi VE 138, sem leigður hafði
verið til Hofsóss, þar sem hann
var að draga þorskanet innar-
lega á Skagafirði. Var þá botn-
varpa um borð í bátnum sem var
blaut og önnur ummerki um
borð þóttu gefa vísbendingu um
botnvörpuveiðar.
Skipstjóri bátsins var dæmdur
í sakadómi Skagafjarðarsýslu
12. sept. 1978 í einnar millj. kr.
sekt fyrir botnvörpuveiðar og
botnvarpan ásamt tilheyrandi
dagstrengjum gerð upptæk.
Einnig var skipstjóri bátsins
dæmdur í fésekt fyrir að hafa
haldið bátnum úti um nokkurra
vikna skeið til neta- og togveiða
með fjóra skipverja um borð án
þess nokkur þeirra væri lög-
skráður.
I dómi Hæstaréttar, sem kveð-
inn var upp í gær segir m.a.:
„Af gögnum máls, framburð-
um skipherra og stýrimanns
varðskipsins, framburðum skip-
verja á vélbátnum Faldi, VE 138,
og greinargerð Jónasar Sigurðs-
sonar, skólastjóri Stýrimanna-
skólans í Reykjavík, þykja fram
komnar nægar sannanir fyrir
því, að ákærði hafi verið að
ólöglegum botnvörpuveiðum á
greindum bátu á þeim stað og
tíma, er í ákæru getur, en ákærði
viðurkennir að hafa „kastað einu
„holi“ í umrætt sinn, en ekki í
landhelgí".
Með framburðum ákærða og
áhafnar vélbátsins er sannað, að
hann hefur látið undir höfuð
leggjast að lögskrá skipverja
bátsins, svo sem honum er gefið
að sök í ákæruskjali. Ekki er
ákært út af því, að þeir, er
gegndu störfum stýrimanns og
vélstjóra á bátnum, höfðu eigi
réttindi til að rækja þessi störf.
Kemur þetta því eigi til álita í
máli þessu".
Sektir fyrir landhelgisbrot eru
háðar gullgengi á þeim tíma,
sem dómur er upp kveðinn.
Sækjandi málsins fyrir Hæsta-
rétti var Bragi Steinarsson vara-
ríkissaksóknari en verjandi
skipstjórans bæði heima í héraði
og fyrir Hæstarétti var Örn
Clausen. Dóm Hæstaréttar
kváðu upp hæstaréttardómar-
arnir Björn Sveinbjörnsson,
Ármann Snævarr, Logi Einars-
son, Magnús Þ. Torfason og
Sigurgeir Jónsson.
I
Sýnir á Mokka
Þessa dagana heldur Ásgeir Lárusson (þriðji til vinstri á myndinni)
sýningu á 13 myndum á Mokkakaffi. Þetta er 4. einkasýning Ásgeirs
en hann sýndi síðast í Gallerí Suðurgötu 7. Sýning Ásgeirs mun
standa fram yfir næstu mánaðamót.
Vorgleði Skálhyltinga:
Sýna „Fjötur um
fót“ í Aratungu
Borgfirðinga-
vaka 23.-27.
apríl n.k.
BORGFIRÐINGAVAKA verður í
Borgarfirði dagana 23.-27.
apríl n.k. og verður þá ýmislegt
um að vera i byggðarlaginu. í
samkomuhúsinu i Borgarnesi
verður kvikmyndasýning 26. og
27. april þar sem sýndar verða
borgfirskar myndir stanslasut
kl. 14—23. báða dagana.
Einar Ingimundarson, búsettur
í Borgarnesi, hefur um árabil
tekið kvikmyndir í Borgarfirði.
Þarna verður því fumsýnt heil-
mikið efni og lætur nærri að það
nái yfir tvo áratugi.
í félagsheimilinu Lyngbrekku
og félagsheimilinu Heiðarborg
verða kvöldvökur á sumardaginn
fyrsta og 27. apríl n.k. Hefjast þær
báðar kl. 21. Þar verður m.a.
minnst 70 ára afmælis Búnaðar-
sambands Borgfirðinga og þar
koma einnig fram nokkur söng- og
leikatriði.
I Iþróttamiðstöðinni í Borgar-
nesi verða Sinfóníutónleikar undir
stjórn Páls P. Pálssonar miðviku-
daginn 23. apríl kl. 21. Er þetta í
fyrsta skipti sem þar fara fram
slíkir tónleikar.
Sunnudaginn 27. apríl kl. 15
verður samsöngur í Félagsheimil-
inu Logalandi. Kirkjukór Hvann-
eyrarskóla syngur undir stjórn
Ólafs Guðmundssonar og kirkju-
kór Borgarness undir stjórn Jóns
Þ. Björnssonar. Kórarnir syngja
bæði hvor í sínu lagi og saman.
Laugardaginn 26. apríl kl. 21 er
í Logalandi harmonikudansleikur.
I fyrra var stofnað Harmoniku-
unnendafélag Vesturlands og er
þetta fyrsta samkoma þess félags.
Leiðrétting
í DRÖGUNUM að bókun um
viðræður ríkisstjórna Islands og
Noregs um Jan Mayen málið, sem
birt voru í Morgunblaðinu í gær,
er í inngangi þeirra birt málsgrein
þar sem annars vegar er vísað til
laganna um efnahagslögsögu ís-
lands og hins vegar til laganna um
efnahagslögsögu Noregs. Þessi
málsgrein var í upphaflegri gerð
draganna frá embættismanna-
nefndinni en var felld úr þeim
eftir frekari viðræður innan henn-
ar. Hún er því ekki lengur hluti að
þeim skjölum, sem liggja fyrir
eftir viðræðufundinn:
NEMENDUR Skálholtsskóla
halda árlega vorgleði sína föstu-
dag 18. apríl í félagsheimilinu
Aratungu og hefst samkoman kl.
21. Leikmennt hefur um árabil
verið fastur liður á stundaskrá
lýðháskólans í Skálholti og er svo
enn og á vorgleðinni munu leik-
menntanemendur sýna gaman-
leik eftir norska höfundinn Osk-
ar Braaten: Fjötur um fót, en
hópurinn hefur nokkuð hagrætt
verkinu.
Með helztu hlutverk fara:
Kristján Gunnarsson, Selma Eyj-
ólfsdóttir, Guðmundur Yngvason,
Skafti Helgason og Ásdís Ólafs-
dóttir. Er sviðssetningin nokkuð
nýstárleg og stígur hópur nem-
enda m.a. dans á salargólfi meðan
leikurinn er fluttur á sviðinu. Af
öðrum dagskráratriðum má nefna
að miðskólanemar fara með lát-
bragðsleik undir leiðsögn Jörund-
ar Ákasonar kennara, Glúmur
Gylfason stjórnar almennum söng
og annar hópur lýðháskólanema
skemmtir með söng við gítarund-
irleik Magnúsar Ármanns Sig-
urðssonar og Are Berg.
í frétt frá Skálholtsskóla segir
m.a. að vorgleði þessi sé eins
konar lokaáfangi í félagslífi nem-
enda, sem verið hefur einn snar-
asti þátturinn í skólalífinu. Segir
að húsnæðisvandræði valdi því að
skólinn sé svo fámennur og verði
jafnan á haustin að vísa mörgum
umsækjendum frá. Að lokum segir
að frekari sýningar á leiknum
Fjötur um fót séu fyrirhugaðar.
Leiðrétting
í MORGUNBLAÐINU í gær urðu
þau mistök með grein Pálma
Jónssonar formanns Sjálfstæðis-
félagsins á Sauðárkróki birtist
mynd af Pálma Jónssyni alþing-
ismanni og landbúnaðarráðherra.
Eru viðkomandi beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum, en hér
birtist mynd af formanninum.