Morgunblaðið - 18.04.1980, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980
Starfsfólk og lðgmenn Lögheimtunnar h.f.
Nýjung í viðskiptum:
Sérhæfð þjónusta
til að innheimta
vanskilaskuldir
Tekjuskattstillögur Alþýðuflokksins:
15% af 2,5 milljónum
30% af næstu 3,5 og
50% yfir 6 milljónir
— persónuafsláttur verði 400.000 krónur
FYRIR skömmu síðan var stofn-
sett í Reykjavík nýtt fyrirtæki,
sem sérhæfir sig í að innheimta
vanskilaskuldir eftir sérstöku
kerfi, auk þess sem fyrirtækið
býður viðskiptavinum sinum
upplýsingaþjónustu varðandi
greiðslugetu og áreiðanleika
fyrirtækja jafnt innlendra sem
erlendra. Fyrirtækið nefnist
Lögheimtan h.f., en starf fyrir-
tækisins verður skipulagt eftir
erlendum fyrirmyndum, svo-
nefndum „Inkasso“-fyrirtækjum,
sem starfað hafa við sams konar
innheimtustörf erlendis i ára-
tugi.
Innheimtur erlendis
Lögheimtan h.f. hefur stofnað
til samstarfs við sambærileg
fyrirtæki erlendis, en með því
samstarfi er hægt að bjóða
íslenskum fyrirtækjum inn-
heimtuþjónustu í flestum lönd-
umheims. í Noregi hefur Lög-
heimtan h.f. samstarf við Kredit-
orforeningen, sem hefur rösklega
80 ára reynslu í innheimtuþjón-
ustu fyrir atvinnulífið, en í
Svíþjóð er samstarf við Kredit-
Inkason AB, dótturfyrirtæki
Svenska Finans.
Bætt greiðslugeta
Tilgangur Lögheimtunnar h.f.
er að minnka vinnu fyrirtækja við
að innheimta vanskilaskuldir,
m.a. með ákveðnum innheimtuað-
gerðum, stöðluðum innheimtu-
bréfum o.fl. Með virkari inn-
heimtu geta fyrirtæki bætt
greiðslustöðu sína og jafnframt
minnkað kostnað af innheimtuað-
gerðum. Skuldareigendur, sem
notfæra sér innheimtukerfi Lög-
heimtunnar h.f., fá mánaðarlega
tölvukeyrt yfirlit sem gefur full-
komnar upplýsingar um á hvaða
stigi hvert mál er.
Greiðsla án
aðstoðar dómstóla
Lögð er höfuðáhersla á að fá
skuldir greiddar án þess að þurfa
að leita til dómstóla. Innheimtu-
bréf Lögheimtunnar h.f. eru send
út í síðasta lagi daginn eftir að
krafa berst.Hringt er til greið-
anda ef talið er að það muni bera
árangur. Ef nauðsynlegt reynist
að fara með mál fyrir dómstóla,
sjá lögfræðingar fyrirtækisins um
lögfræðilega hlið málarekstursins
og eftirfarandi fógetaaðgerða.
Adalstræti 6 simi 25810
Lögmenn
Lögheimtunnar h.f.
Lögmenn Lögheimtunnar h.f.
eru þeir Asgeir Thoroddsen hdl.
og Ingólfur Hjartarson hdl. Munu
þeir sjá um lögfræðilegan mála-
rekstur fyrir hönd fyrirtækisins,
en þeir munu jafnframt veita
viðskiptavinum Lögheimtunnar
h.f. allar nauðsynlegar upplýs-
ingar viðvíkjandi dómsmála-
rekstri.
Lögheimtan h.f. er til húsa á
Laugavegi 18, 6. hæð, sími: 27166.
Skrifstofustjóri fyrirtækisins er
Þórdís Hallgrímsdóttir.
FRÉTTATILKYNNING frá kjör-
dæmisráði Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi.
Kjördæmisráðið hélt aðalfund
sinn í Vestmannaeyjum 12. apríl
1980.
Fundur þessi var mjög fjölmenn-
ur, um 70 fulltrúar voru mættir
hvaðanæva úr kjördæminu. Ríkti á
fundinum mikiil einhugur og sátt-
fýsi.
Fráfarandi formaður ráðsins,
Helgi ívarsson, bóndi í Hólum, setti
fundinn og flutti skýrslu stjórnar.
Rakti hann í stórum dráttum starf
ráðsins sl. hálft annað ár. Þá skýrði
Jón Þorgilsson á Hellu reikninga
ráðsins. Bæði skýrslan og reikn-
ingarnir voru samþykktir sam-
hljóða.
A fundinum kom fram lagabreyt-
ing við 12. og 14. grein laga ráðsins,
sem var samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta fundarmanna.
Þá var svohljóðandi tillaga sam-
þykkt samhljóða:
„Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurlandskjör-
dæmi, haldinn í Vestmannaeyjum
Magnús Jónasson
KJARTAN Jóhannsson fulltrúi
Alþýðuflokksins í fjárhags- og
viðskiptanefnd efri deildar lagði
þar fram tillögur Alþýðuflokks-
ins að tekjuskattstiga, sem byggj-
ast á 15% skatti af fyrstu 2,5
milljón krónunum, 30% skatti af
næstu 3,5 milljónunum og 50%
skatt af skattgjaldstckjum um-
fram 6 milljónir króna. Persónu-
afsláttur verði 400.000 krónur og
barnabætur með fyrsta barni
140.000 krónur, en 215.000 krón-
ur með hverju barni umfram eitt.
Barnabótaauki með börnum
yngri en 7 ára verði 55.000
krónur, en barnabætur með börn-
um einstæðra foreldra verði
270.000 krónur.
I nefndaráliti segir Kjartan að
með þessum skattstiga verði
tekjuskattur einstaklinga um 35
milljarðar króna í stað um 46
milljarða samkvæmt tillögum
stjórnarliðsins og miðar Kjartan
þá í báðum tilvikum við 47%
tekjuaukningu milli áranna 1979
og 80, eins og nýjasta áætlun
Þjóðhagsstofnunar kveður á um.
Innheimtur tekjuskattur yrði um
7,5 milljörðum lægri en fjárlög
gera ráð fyrir og vísar Kjartan til
tillagna Alþýðuflokksins um sam-
svarandi niðurskurð ríkisútgjalda.
Kjartan segir tekjuskattstillög-
12. apríl 1980, lýsir yfir eftirfarandi:
Að með lagabreytingum, sem kjör-
dæmisráð hefur samþykkt í dag og
varða ákvarðanatöku um framboð
flokksins í kjördæminu, hafi sá
ágreiningur verið jafnaður, sem reis
í kjördæmisráði vegna framboðs við
síðustu Alþingiskosningar."
Á aðalfundi þessum var kjörin ný
stjórn, en hana skipa nú:
Formaður Magnús Jónasson, Vest-
mannaeyjum, varaform. Ólafur
Þórðarson, Vík, Vestur-Skaftafells-
sýslu, ritari Ingibjörg Johnsen, Vest-
mannaeyjum, gjaldkeri Óskar
Magnússon, Eyrarbakka, Árnes-
sýslu, meðstj. Jón Þorgilsson, Hellu,
Rangárvallasýslu.
Varastjórn skipa: Björn Þorláks-
son, V-Skaftafellssýslu, Hilmar Jón-
asson, Hellu, Sigrún Sigfúsdóttir,
Hveragerði, Gísli Guðlaugsson,
Vestmannaeyjum, og Eyjólfur Mar-
teinsson, Vestm.eyjum.
Þá var á fundi þessum kjörið í
flokksráð, blaðstjórn blaðsins Suð-
urlands og endurskoðendur.
Eins og áður segir var fundur
þessi mjög fjölmennur og ríkti þar
góður andi.
Helgi ívarsson
ur stjórnarliðsins fela í sér skatta-
lækkun á einum hópi skattþegna,
þeim sem hafi haft hæstu tekjurn-
ar, en samkvæmt tillögunum
lækki skattbyrði þess hóps um"85
þúsund krónur. Hins vegar stór-
aukist skattbyrði á lægstu tekjum,
sérstaklega hjá einhleypingum og
einstæðum foreldrum með eitt
barn, en tillögur stjórnarliðsins
auki skattbyrði einstæðra foreldra
um 40% frá gömlu skattalögun-
um, þar sem tillögur Alþýðu-
flokksins þýði hins vegar að skatt-
byrðin yrði létt um 60%.
Kjartan tekur m.a. samanburð-
ardæmi um tekjuskatt af 3 millj-
ónum króna með 5% og 10%
frádrætti. Samkvæmt gömlu
skattalögunum yrði tekjuskattur-
inn 121.000 og 90.000 krónur.
Samkvæmt tillögum stjórnarliðs-
ins 189.000 og 152.000 krónur, en
samkvæmt tillögum Alþýðu-
flokksins 80.000 og 35.000 krónur.
Varðandi einstætt foreldri með
eitt barn segir Kjartan, að tillögur
stjórnarliðsins þýði aukna álagn-
ingu um 120.000—149.000 krönur
eða um tvöföldun.
RAUÐA
F.IÖÐRIN
til hjálpar
hev marskertu m
Söludagar:
18., 19. og 20. apríl
(Fréttatilkynning).
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins:
Einhugur og sátt
fýsi á Suðurlandi