Morgunblaðið - 18.04.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980
17
Leikkonan Suzanne Abou Taled í hlutverki Mishu
prinsessu Saudi Arabíu í sjónvarpsmyndinni „Dauði
prinsessunnar“, sem valdið hefur mikilli reiði yfir-
valda í Saudi Arabíu, en myndin hefur nú verið sýnd í
sjónvarpi í Bretlandi og Hollandi, og verður væntan-
lega sýnd víðar á næstunni.
Gagnbylting fór út
um þúfur í Líberíu
Freetown, Sierre Leone. 17. april. AP.
HÓPUR líberískra her-
manna hafa gert mis-
heppnaða gagnbyltingu
gegn hinni nýju stjórn
Samuel K. Doe liðþjálfa,
en flestir uppsreisnar-
mennirnir voru handtekn-
ir samkvæmt fréttum sem
hafa borizt frá diplómöt-
um í höfuðborg Líberíu,
Monróvíu.
Embættismenn nýju stjórnar-
innar sögðu vestrænum diplómöt-
um að 36 hermenn hefðu verið
handteknir fyrir tilraun til að
myrða nýskipaðan yfirmann her-
búðanna Camp Jackson í Bong-
héraði. Diplómötunum var sagt að
uppreisnarmönnunum yrði „stefnt
fyrir rétt og refsað".
Diplómatarnir segja að flestir
hermenn landsins virðist hollir
nýju stjórninni sem virðist traust
í sessi í höfuðborginni og á
landsbyggðinni.
Frá fréttaritara Mbl. i Ósló í gær.
MEIRIHÁTTAR vinnu-
deilu hefur verið afstýrt í
Noregi og samkomulag
tekizt um tæplega 12%
beinar og óbeinar launa-
hækkanir 200.000 laun-
þega.
Samtök launþega og vinnuveit-
enda náðu samkomulaginu tveimur
tímum eftir að lokafrestur rann út,
eftir nær stanzlausa fundi með
ríkissáttasemjara í 43 tíma.
Til þess að samkomulag næðist
varð ríkið að leggja fram 1,4
milljarða (norskra) króna, því að
Yfirvofandi
hungursneyð
Nairobi, Keneya, 17. apríl — AP.
í útvarpstilkynningu ríkis-
stjórnar Eþíópíu í dag segir að
hungurvofan ógni nú um einni
milljón íbúa austurhéraða Eþí-
ópíu vegna þurrka. Segir í til-
kynningunni að nokkrir hafi
þegar látizt úr hungri að undan-
förnu í héruðunum Wollo, Jigjiga
og Degahbur. og að um helming-
ur alls nautpenings á þessu svæði
hafi drepizt.
Fregn þcssi bendir til þess að
yfirvofandi séu svipaðar hörm-
ungar á þcssum slóðum og í
þurrkunum miklu fyrir sex árum
þegar hundruð þúsunda Eþiópiu-
búa létust úr hungri.
Jigjiga er á Ogaden-svæðinu,
sem Sómalía gerir tilkall til, og
Sómalía og Eþíópía börðust um á
árunum 1977—78. í fregnum frá
Sómalíu segir að 1.300 þúsund
flóttamenn hafi leitað inn í Sóma-
líu frá Ogaden vegna ástandsins.
barnabætur eiga að hækka um 900
n.kr. á barn og frá 1. júlí fá
Norðmenn 1% skattalækkun. Auk
þess er búizt við 9,5% verðhækkun
og það fá launþegár einnig bætt.
Bein laun hækka um 5%, en að
viðbættum öllum óbeinum kjara-
bótum nemur launahækkunin 12%
eins og launþegasamtökin höfðu
krafizt.
Láglaunafólk hagnast mest á
samningunum. Enginn launþegi
má fá minna en sem svarar 85%
meðaltekjum launþega, sem nú
nema 70.000 n.kr. á ári. Sumt
láglaunafólk fær um 20% launa-
hækkun, sem verður greidd úr
svokölluðum láglaunasjóði sem all-
ir launþegar greiða í 19 aura af
tímakaupi sínu. Öll fyrirtæki og
ríkissjóður greiða einnig í sjóðinn.
Þessi „launasprenging" láglaun-
aðra hefur vakið mikla ánægju í
samtökum þeirra, en fjölmennasta
verkalýðsfélagið, félag járn- og
málmverkamanna, er sáróánægt.
Félagsmenn þess fá há laun og fá
því ekki eins miklar óbeinar kjara-
bætur.
Strax í dag var efnt til verkfalla
í nokkrum skipasmíðastöðvum til
að mótmæla samkomulaginu, en
þrátt fyrir mótmæli frá mörgum
verður samningurinn trúlega sam-
þykktur af miklum meirihluta fé-
lagsmanna launþegasamtakanna.
Samkvæmt samkomulaginu
mega starfsmenn fyrirtækja og
stjórnir þeirra semja sín í milli um
launahækkanir aðeins einu sinni á
ári í stað tvisvar siniium.
— Lauré.
Þetta gerðist 18. apríl
1978 — Öldungadeild Bandaríkja-
þings samþykkir afsal Panama-
skurðar í áföngum.
1974 — Egyptar hætta að kaupa
vopn frá Rússum.
1962 — Ríkjasamband Vestur-
Indía lagt niður.
1955 — Fyrsta Bandung-ráðstefn-
an hefst.
1954 — Gamal Abdel Nasser
verður forsætisráðherra Egypta.
1951 — Kola- og stálsamsteypa
Evrópu stofnuð.
1949 — Lýðveldið Eire formlega
stofnað í Dyflinni.
1946 — Þing Þjóðabandalagsins
leyst upp.
1942 — Loftárásir James Dool-
ittle hershöfðingja á Tokýo.
1927 — Kuomintang-flokkurinn
klofnar í stuðningsmenn Chiang
Kai-shek og róttækari leiðtoga.
1912 — Tyrkir loka Dardanella-
sundi.
1906 — Jarðskjálftinn mikli í San
Francisco þegar borgin nánast
eyddist í eldi og 700 fórust.
1864 — Ósigur Dana við Dybböl
og innrás Þjóðverja í Danmörku.
1847 — Winfield Scott hershöfð-
ingi tekur hæðina Cerro Gordo,
Mexíkó.
1797 — Austurríkismenn og
Frakkar undirrita bráðabirgðafrið
í Löben.
1775 — Paul Everes fer frá
Charleston til Lexington („Bret-.
arnir koma“.)
1663 — Tyrkir segja Leopold
keisara I stríð á hendur.
1521 — Varnarræða Lúthers í
Worms („Hér stend ég og get ekki
annað“).
Afmæli. Adolphe Thiers, franskur
stjórnmálaleiðtogi (1797—1877) —
Franz von Suppé, austurrískt
tónskáld (1819—1895) — Leopold
Stokowski, bandarískur hljóm-
Sex manna herdómstóll hefur
hafið yfirheyrslur yfir Joseph
Chesson fyrrum dómsmálaráð-
herra og Reginald Townsend fyrr-
um formanni Whig-flokksins sem
hafa verið ákærðir fyrir landráð,
spillingu og mannréttindabrot.
Þeir neituðu sakargiftum. Yfir-
heyrslurnar fóru fram fyrir lukt-
um dyrum, en líberískir blaða-
menn fengu aðgang.
Nokkrir aðrir fyrrverandi ráð-
herrar og háttsettir embættis-
menn auk nokkurra ættingja WiH-
iam Tolbert fyrrverandi forseta
verða líklega leiddir fyrir rétt
fyrir sömu sakir. Mannfjöldi
grýtti lík Tilberts þegar því var
komið fyrir í fjöldagröf í gær.
Búizt var við að flugvellir yrðu
aftur opnaðir í dag. Útgöngubann
er enn eftir myrkur, en stjórn-
arskrifstofur, verzlanir, bankar og
skólar eru opnir. Olíuhreinsun-
arstöð hefur aftur verið opnuð svo
að lokið er bensínskorti sem gerði
vart við sig.
Einstaklingum hefur verið
bannað að flytja úr landi meira en
1.000 dollara og fyrirtækjum
meira en 20.000 dollara. Þetta eru
fyrstu gjaldeyrishömlur í Líberíu
síðan leysingjar lýstu yfir sjálf-
stæði landsins fyrir 131 ári.
Weizman ógnar
forystu Begins
Mikilli vinnudeHu
afstýrt í Noregi
Tel Aviv, 17. apríl. AP.
ÞINGFLOKKUR Menachem Beg-
in forsætisráðherra var boðaður
til fundar í dag vegna ógnunar
Ezer Weizman landvarnaráð-
herra við forystuhlutverk Beg-
ins.
ógnunin til þessa við Beginstjórn-
ina sem er samsteypustjórn hóf-
samra, íhaldssamra og trúarlegra
flokka.
Begin sem er í Washington þar
sem hann ræðir Palestínumálið
við Carter forseta neitaði að láta
Weizman
Leiðtogar flokksins lýstu furðu
sinni og reiði vegna þeirrar
óvæntu yfirlýsingar Weizman í
ísraelska sjónvarpinu að hann
væri hlynntur því að efnt yrði til
nýrra kosninga innan sex mánaða
„svö að ísraelska þjóðin gæti
ákveðið hvert hún vildi að stjórnin
stefndi". Þetta er alvarlegasta
sveitarstjóri (1882—1977).
Andlát. 1802 Erasmus Darwin,
eðlisfræðingur — 1940 H.A.L.
Fisher, sagnfræðingur — 1955
Albert Einstein, vísindamaður.
Innlent. 1939 Þjóðstjórnin tekur
við völdum — 1244 d. Björn kægill
Dufgusson — 1728 Nýr gígur
myndast eftir mikla jarðskjálfta
við Leirhnúk — 1780 Tillaga
Leverstow stiftamtmanns um að
Alþingi verði flutt til Reykjavíkur
— 1872 Jarðskjáifti veldur stór-
tjóni á Húsavík — 1894 d. Jóhann
próf. Briem í Hruna — 1903 Fyrsti
stórbruni í Reykjavík: Stórhýsið
Glasgow brennur — 1966 Réttar-
höld í handritamálinu hefjast í
Kaupmannahöfn — 1902 f. Gizur
Bergsteinsson — 1926 f. Indriði G.
Þorsteinsson.
Orð dagsins. Frumleiki er ekkert
annað en yfirveguð eftirlíking —
Voltaire (1694-1778).
Begin
hafa nokkuð eftir sér um ógnun
Weizmans, en samstarfsmenn
hans í Israel segja að Weizman
hafi í rauninni lýst yfir vantrausti
á ríkisstjórnina og verði að segja
af sér. Jafnvel stuðningsmenn
Weizmans í flokknum urðu undr-
andi og sögðust andvígir því að
kosið yrði fyrr en í nóvember 1978
þegar kosningar eiga í réttu lagi
að fara fram.
Weizman sagði í viðtalinu að
hann vildi gjarna verða forsætis-
ráðherra og mundi samþykkja að
verða áfram íandvarnaráðherra
undir forystu Begins „með skilyrð-
um“. Hann útilokaði heldur ekki
að taka sæti í stjórn sem Verka-
mannaflokkurinn myndaði.
Viðtal Weizmans er hápunktur
harðnandi deilna hans og Begins
um markmið og leiðir og forystu
hins síðarnefnda. Weizman hefur
að minnsta kosti sjö sinnum hótað
að segja af sér og blöð segja að
Begin vilji helzt skipa í hans stað
einhvern annan mann sem felli sig
betur við herskáa stefnu hans.
Viðtal Weizmans er kallað
„pólitísk sprengja" í blöðum og
minnir á svipað atvik fyrir tveim-
ur árum er Weizmann lagði til að
mynduð yrði þjóðareiningarstjórn
með þátttöku Verkamannaflokks-
ins þegar Begin var í Bandaríkj-
BAKVAISOKAMKW
BÓKSALAR
17-26. APRIL
AOX atsláttuf
barnabókura'.
BÓKSALAR