Morgunblaðið - 18.04.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980
21
ystu í þeim málum í Bolungarvík-
inni síðustu daga.
Sverrir lauk ræðu sinni á því að
ræða um þá áráttu ríkisstjórnar-
innar að auka skattaálögur sífellt
á landsmönnum. Jafnvel væri ætl-
unin að leggja á skatta sem ekki
væri þörf fyrir, eins og þegar átti
að leggja hærri söluskatt á en þörf
var fyrir í það tiltekna verkefni að
jafna hitunarkostnað lands-
manna.
Þá tók til máls dr. Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra.
Kvaðst hann fyrst vilja taka fram,
að fullyrðingar um að útvarps-
umræðum hefði verið frestað
vegna þess að hann hefði ekki
verið á mælendaskrá væru alrang-
ar, tilhæfulausar með öllu. Þá
kvað forsætisráðherra það von-
andi vera óþarft að rifja upp
umræður um fyrri útvarpsumræð-
ur, og þyrftu menn ekki að
endurtaka fyrri rangfærslur um
það mál. Fyrir lægi úrskurður
forseta þess efnis að ekki ætti
lengur við það ákvæði þingskapa
er fjallaði um stefnuræðu forsæt-
isráðherra. Eldhúsdagsumræður
sagði hann hins vegar verða fyrir
þinglausnir í vor. Trúlegt yrði að
þá yrðu veitt afbrigði, vegna
óvenjulegrar stöðu forsætisráð-
herra í öðrum þingflokki stjórnar-
andstæðinga.
Þá vék Gunnar að því, að því
væri haldið fram að ríkisstjórnin
væri vegvillt í skattamálum og
stefndi að auknum sköttum á
landsmenn. Þetta sagði hann al-
rangt. Astæða þeirrar óvissu sem
nú ríkti í skattamálum væri sú, að
verið væri að taka í gildi lög frá
1978, er ekki væri fyllilega vitað
hvernig virkuðu. Um þá lagasetn-
ingu hefði hins vegar náðst sæmi-
leg samstaða á sínum tíma, en eitt
af því sem nú gerði mönnum erfitt
fyrir væri það, að samkvæmt þeim
ætti að koma á staðgreiðslukerfi
skatta, en svo hefði enn ekki orðið.
Allt annar skattstigi ætti því við
nú þegar lögin tækju gildi en gert
hefði verið ráð fyrir.
Ræður stjórnarandstöðunnar
dag eftir dag um þyngingu skatta
væru hins vegar blekkingar einar.
Þvert á móti myndu skattar
lækka, til dæmis hjá hjónum með
tvö börn. Sums staðar hækkuðu
skattar hins vegar, til dæmis þar
sem eiginkona hefði háar tekjur.
Forsætisráðherra sagðist vilja
mótmæla því sem sagt hefði verið,
að stjórnleysi væri ríkjandi og að
ríkisstjórnin hefði ekki' tök á
landsstjórninni. Því væri þveröf-
ugt farið. Mætti til dæmis minna
Myndirnar t»k Ólafur K. MaKnússon.
á samningu og afgreiðslu fjárlaga.
Það, að verðbólguvandinn væri
enn fyrir hendi, mætti hins vegar
að verulegu leyti rekja til starfs-
stjórnar Alþýðuflokksins, sem
hefði látið vandamálin hrannast
upp án þess að aðhafast.
Athugasemdir
fyrir þinghlé
Pétur Sigurðsson, forseti sam-
einaðs þings, tilkynnti nú, að gera
þyrfti fundarhlé vegna þess að
boðaðir hefðu verið þingflokks-
. I |B|| Jflftj »m & í íí /ÆíM
■rl ...Ærfil ' mk'W'Wai ý Jt
bessa mynd tók Ragnar Axelsson ljósmyndari í fundarsal sameinaðs Alþingis í gær, um klukkan 17.45. bá hafði verið gert hlé vegna þess að
enginn ráðherranna var í þinghúsinu og eru allir ráðherrarstólarnir auðir eins og sjá má. Fundur hófst síðan aftur kiukkan 18. er Gunnar
Thoroddsen kom i þinghúsið.
fundir í tveimur flokkanna. Aður
en hlé yrði gert myndi fjármála-
ráðherra hins vegar gera stutta
athugasemd, þar sem hann gæti
ekki verið við umræðuna eftir hlé.
Ragnar Arnalds sagðist undr-
ast stórum þann mikla hávaða
sem væri gerður vegna þess að
ákveðið hefði verið að fresta
umræðum um mál í nokkra daga.
Slíkt væri alvanalegt á Alþingi og
hefðu ekki verið gerðar við það
athugasemdir.
Sagði hann Lárus Jónsson hafa
hitt naglann á höfuðið er hann
sagði það kærkomið tækifæri að
fá nú frest til að skoða málin
betur.
Þá vék hann að þeim orðum
þingmanna Alþýðuflokksins, að
hér væri nú ríkjandi stjórnleysi.
Sagði hann það ekki vera, því
hefði lokið þegar Alþýðuflokknum
var ýtt til hliðar.
Halldór Blöndal fékk að gera
örstutta athugasemd vegna þess
að forsætisráðherra hafði beint
orðum sínum til hans er hann
ræddi um blekkingamálflutning
stjórnarandstæðinga um skatta-
hækkanir.
Sagði hann nú lítið vera í
pokanum hjá ráðherranum og lítið
í höfði fjármálaráðherra. Kvaðst
hann vilja fá það skriflegt frá
forsætisráðherra, rökstutt með
útreikningi, að skattar muni
lækka hjá fólki með lág laun og
meðaltekjur. — Kallaði Gunnar
Thoroddsen þá framí og sagði það
sjálfsagt.
Sagði Halldór það einkennilegt,
hvernig forsætisráðherrra hefði
nú snúíst í málum, hann sem hefði
verið flokksbræðrum sínum sam-
mála og ekki gert ágreining áður í
efnahagsmálum og skattamálum.
Er hér var komið sögu gaf
forseti fundarhlé til klukkan
17.30, eða í tæplega eina og hálfa
klukkustund.
Beðið eftir
ráðherrum
Karl Steinar Guðnason (A) var
tekinn við fundarstjórn er fundur
hófst á ný klukkan 17.30. Gaf
hann Kjartani Jóhannssyni orðið,
en hann vildi þá ekki hefja ræðu
sína fyrr en einhver ráðherranna
væri kominn í salinn, helst fjár-
rnálaráðherra, en annars forsætis-
ráðherra. Starfsmenn þingsins
leituðu nú í þinginu að ráðherrum,
en fundu enga.
Var þá gert hlé til klukkan 18, á
meðan leitað var að forsætisráð-
herra. Kom hann í þinghúsið laust
fyrir klukkan 18 og fylgdist með
umræðum er þær hófust aftur.
Var hann þá eini ráðherrann í
salnum, nema hvað Svavar
Gestsson gekk þar inn örstutta
stund en tók sér ekki sæti.
En Kjartan Jóhannsson (A) tók
aftur til máls er forsætisráherra
var kominn. Sagði hann heimtur
lélegar hjá ráðherrum, er 10%
þeirra væru nú komnir, eða mætti
ef til vill kalla það 12,1% þar sem
forsætisráðherra ætti í hlut!
Vék hann síðan að svörum
fjármálaráðherra, og sagði þau
aum, og að greinilegt væri að
ráðherrann hefði fyrst farið að
hugsa kvöldið áður er hann ætlaði
að undirbúa umræðurnar í út-
varpi. Þá hefði hann séð að í óefni
væri komið, að fresta þyrfti mál-
inu og reikna það upp á nýtt. Væri
það vegna þess að hann hefði ekki
kynnt sér málið áður en ekki
vegna þess að hinar tvær útreikn-
ingsaðferðir væru svo misjafnar,
þær hefðu nefnilega verið alveg
samhljóða.
Þá sagði hann það vera rangt
hjá Gunnari, að stjórn Alþýðu-
flokksins væri um að kenna hve
illa væri nú komið í efnahagsmál-
um og peningamálum. Það væri
rangt, og væri ástandið enn verra
ef ekki hefði komið til stjórn
Alþýðuflokksins um tíma.
Hvenær fæddist
Sighvatur
Björgvinsson?
Sighvatur Björgvinsson tók nú
aftur til máls. Ræddi hann meðal
annars um það að Gunnar Thor-
oddsen hefði komið á þing átta
árum áður en hann fæddist, og
raunar áður en flestir þingmenn
Alþýðuflokksins fæddust, og
líklega áður en 40% þingmanna
fæddust. Hann hefði komið á þing
á dögum Weimarlýðveldisins í
Þýskalandi.
Sagði Sighvatur Gunnar Thor-
oddsen ekki geta breytt þingsköp-
um þrátt fyrir þetta og yrði hann
annaðhvort að vera innan þing-
flokks sjálfstæðismanna eða utan
og fá ræðutíma í útvarpsumræð-
um í samræmi við það. Endurtók
Sighvatur þessar fullyrðingar
sínar nokkrum sinnum, og kvað
augljóst að Gunnar yrði að stofna
sérstakan þingflokk fyrir sig og
menn sína.
Þá tók til máls Vilmundur
Gylfason (A). Kvaðst hann vilja
byrja á því að leiðrétta Sighvat,
sem hefði farið rangt með sagn-
fræðilegar staðreyndir. Weimar-
lýðveldið hefði nefnilega liðið und-
ir lok árið 1933, er Adolf Hitler
tók við völdum í Þýskalandi.
Gunnar Thoroddsen hefði hins
vegar ekki komið á þing fyrr en
1934.
Þá vék hann að því að Gunnar
ætti að varast að segja þingmönn-
um til um hvað væru lög og hvað
ekki, hvernig ætti ^ð fara að
þingsköpum og hvernig ekki.
Sagði Vilmundur það hafa tíðkast
hér á landi, að hinir færustu menn
segðu fram lögin á Alþingi, ef vafi
kæmi upp. Fyrst hefði þetta gert
Bjarni heitinn Benediktsson, og
farist vel úr hendi. Þegar hann féll
frá, hefði verið leitað til Ólafs
Jóhannessonar, og hefði það verið
mun verri kostur, þar sem Ólafur
væri verri lögfræðingur en Bjarni
hefði verið og mun ósvífnari eins
og hann orðaði það. En fyrst tæki
nú steininn úr er Gunnar Thor-
oddsen ætlaði að fara að túlka
lögin að eigin geðþótta.
Gunnar Thoroddsen tók næstur
til máls. Sagði hann þá Vilmund
og Sighvat ekki geta hugsað nema
í gegnum flokksræði. Auðvitað
væri eðlilegast að breyta þing-
sköpum eða veita afbrigði frá
þeim, þegar svo óvenjulega hátt-
aði til eins og nú á Alþingi. Gera
yrði slíkar ráðstafanir til að
tryggja fullt réttlæti. Þingsköp
væru ekki neinn óumbreytanlegur
sannleikur, sem standa þyrfti um
aldur og ævi.
Kjartan Jóhannsson gerði að
lokum örstutta athugasemd, og
sagði að ekki þyrfti að gera neinar
breytingar vegna þessara að-
stæðna, þar eð Gunnar væri í
þingflokki sjálfstæðismanna. Ef
Gunnar vildi hins vegar ekki una
því, þá yrði hann að segja sig úr
þingflokknum, og þá fengi hann
sinn ræðutíma í nýjum þingflokki
eða sem utanþingflokkamaður.
Þegar hér var komið sögu kall-
aði Stefán Jónsson (Abl.) fram í
fyrir Kjartani og sagði hann vera
„kerfiskall". Kjartan brást hinn
versti við og hrópaði hárri röddu
svo heyrðist um allt þinghúsið
„Það er rangt“.
Voru það síðustu orðin í þessari
löngu umræðu utan dagskrár á
Alþingi í gær. Vegna umræðnanna
var ekki unnt að ræða önnur mál
og voru þau tekin út af dagskrá.
Virtust þingmenn vera misjafn-
lega ánægðir með umræður þenn-
an dag í þingi og höfðu sumir á
orði á göngum Alþingis að umræð-
ur þessar væru ekki merkilegt
innlegt í umræður um þau vanda-
mál er nú blöstu við þjóðinni.
- AH.
I
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins
veröa til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum
frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekið á móti hvers kyns
fyrirspurnum og ábendingum og er öilum borgarbúum
boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 19. apríl veröa til viðtals Magnús L.
Sveinsson og Bessí Jóhannsdóttir. Magnús er í
atvinnumálanefnd, framkvæmdaráöi, stjórn Inn-
kaupastofnunar sjúkrasamlagsstjórn, umhverfis-
málaráöi. Bessí er í stjórn Borgarbókasafns, félags-
málaráöi, stjórnarnefnd dagvistunarstofnana Reykja-
víkurborgar, æskulýösráöi.