Morgunblaðið - 18.04.1980, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980
25
„Aðaláherslan lögð á vöru-
flutning milli íslands og
Lúxemborgar44
Rætt við Leo
Wecker flugfrakt-
stjóra Flugleiða
í Evrópu
VÖRUFLUTNINGA Flugleiða
milli íslands og Lúxemborgar
tvöfölduðust á sl. ári miðað við
árið þar á undan en vöruflutning-
ur milli Lúxemborgar og Banda-
ríkjanna drógust heldur saman
að því er Leo Wecker flugfrakt-
stjóri Flugleiða í Evrópu sagði í
samtali við Mbl. er hann var
staddur hér á landi fyrir nokkru.
Wecker sagði að Flugleiðir ættu
í mikilli samkeppni í vöruflutning-
um á Atlantshafsflugleiðinni og
því væri aðaláherslan nú lögð á
flutninga milli Lúxemborgar og
Islands en í tengslum við þá eru
vörur fluttar á bílum um Þýska-
Leo Wecker flugfraktstjóri
Flugleiða i Evrópu.
Ljósm. Emilia.
land, Frakkland, Belgíu, Sviss,
Austurríki og Holland og lítils-
háttar um Ítalíu. Wecker sagði, að
aukningin hefði aðallega verið á
flutningum frá íslandi vegna mik-
illa fiskflutninga.
Hann sagði að óhjákvæmilegt
yrði að takmarka vöruflutninga
við fjölda farþega hverju sinni en
þó gætu DC-8 vélarnar tekið 7—8
tonn fullskipaðar farþegum.
„Hagkvæmast er að sameina
vöru- og farþegaflutninga, þ.e.a.s.
flytja hvort tveggja í sömu flug-
vél. Tap er þá sjaldan á vöruflutn-
ingunum þa- sem það rými sem
undir fraktina er notað væri
annars ónotað. Nýting vöruflutn-
ingarýmis hjá flugfraktdeild
Flugleiða í Lúxemborg er nú
100%,“ sagði Wecker.
Wecker sagði að Flugleiðir ættu
einnig í mikilli samkeppni um
vöruflutninga í Evrópu, þá helst
við flutninga á sjó. En sú sam-
keppni hefði aðeins haft gott eitt í
för með sér og eflt starfsemina.
Starfsmenn flugfraktdeildar
Flugleiða í Lúxemborg eru alls 4
en afferming og ferming flugvél-
anna er í höndum Lux Air.
Sviðsmynd úr uppfærslu Leikfélags Keflavíkur á „Sjóleiðinni til
Bagdad".
„Sjóleiðin til Bagdad44
í Félagsbíói Keflavík
LEIKFÉLAG Keflavíkur frum-
sýndi „Sjóieiðina til Bagdad" eftir
Jökul Jakobsson í Stapanum mið-
vikudaginn 9. apríl s.l.
Leikstjóri er Þórir Steingríms-
son. Aðstoðarleikstjóri er Aslaug
Bergsteinsdóttir og leikmynd og
lýsing er eftir aðstandendur sýn-
ingarinnar. Með hlutverk í leikrit-
inu fara Hrefna Traustadóttir,
Ingibjörg Hafliðadóttir, Jóhann
Gíslason, Magnús Jónsson, Dagný
Haraldsdóttir, Þór Helgason og
Árni Ólafsson. Næstu sýningar
verða í Félagsbíói í Keflavík á
föstudag og laugardag og hefjast
þær kl. 21.
Óháði söfnuð-
urinn 30 ára
Hjólastólabraut komið fyr-
ir á tröppum kirkjunnar
ÓHÁÐI söfnuðurinn í Reykjavík
og kvenfélag hans minnast 30
ára afmæiis síns við guðsþjón-
ustu í safnaðarkirkjunni nk.
sunnudag, 20. april, kl. 11 árdeg-
is.
í tilefni af afmælinu hefur
kvenfélag kirkjunnar komið upp
hjólastólabraut á kirkjutröppun-
um til þess að auðvelda lömuðum
aðgang að kirkjunni og verður
braut þessi vígð við athöfnina á
sunnudaginn.
Við afmælisguðsþjónustuna á
sunnudaginn mun formaður
Kvenfélags Óháða safnaðarins
ennfremur afhenda Styrktarfélagi
vangefinna, sem stofnað var í
Kirkjubæ 1958, peningagjöf, sem
kvenfélagskonurnar hafa ákveðið
að gefa til vistheimilisins Bjark-
aráss við Blesugróf, en Styrktar-
félagið rekur það heimili.
Nýja hjólastólabrautin á tröppum kirkju Óháða safnaðarins.
Hilmar Karlsson
skákmeistari TS
MEISTARAMÓTI Taflfélags
Seltjarnarness lauk fyrir
nokkru. Skákmeistari TS varð
Hilmar Karlsson og hlaut hann
titilinn annað árið i röð.
Mótið var opið og tefldu í því
nokkrir gestir. Jón Pálsson Tafl-
félagi Kópavogs hlaut flesta vinn-
inga eða 7, næstur kom Haraldur
Haraldsson Mjölni með 6’á vinn-
ing og Hilmar Karlsson varð
þriðji með 4 'k vinning.
I unglingaflokki sigraði Jón G.
Jonsson, hlaut 10 ‘A vinning af 12
mögulegum og hraðskákmeistari
varð faðir hans Jón Þorsteinsson
með 15 V4 vinning af 18 möguleg-
um.
Sportskór sem endast
//
K
SNORRABRAUT 56 SÍM113505
Austurstræti
: 27211