Morgunblaðið - 18.04.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980
29
fclk í
fréttum
KLERKARNIR þrír sem fóru frá Bandaríkjunum um páskana til Teheran til þess að flytja
páskaguðsþjónustur fyrir sendiráðsstarfsfólkið sem þar er í haldi. — Lengst til vinstri er
presturinn Jack Bremer, í miðið Darrell Rupier og þriðji presturinn heitir Nelson Thompson. —
Sjónvarpið í íran hafði gert 24 mín. sjónvarpsþátt í sendiráðinu við þetta tækifæri, sem svo þrjár
helztu sjónvarpsstöðvarnar í Bandaríkjunum sendu svo. Höfðu 32 amerísku gíslanna komið fram í
sjónvarpsmyndinni og þeir fengið tækifæri tii að senda ástvinum sínum heima nokkur kveðjuorð.
+ Þetta er mjög nýleg götumynd frá New York. Hún þykir m.a.
óvenjuleg fyrir það, að í verkfalli vagn- og lestarstjóra þar í borginni
mátti sjá í hinni æðislegu umferð á götum stórborgarinnar fólk á
reiðhjóli. Slíkt er sjaldgæf sjón, einkum þó um miðbik borgarinnar,
þar sem myndin er tekin. Sjálfboðaliði við umferðarstjórn aðstoðar
hjólareiðafólkið á leið til vinnu sinnar.
Músík
í Tókýó
+ Fyrir skömmu lauk í Tók-
ýó 9. Tókýó-tónlistarhátíð-
inni, en þetta mun vera
dægurlaga-tónlistarhátíð.
Ameríska söngkonan
Dionne Warwick hlaut
fyrstu verðlaun, 12.000 doll-
ara (ísl kr. nær 5 milljónir).
Hún hafði slegið í gegn í
laginu „Feeling Old Feel-
ings“. Önnur amerísk söng-
kona, Karla Bonoff að
nafni, hreppti 4.000 dollara
verðiaunin í söngkeppninni
ásamt söngflokknum „Dool-
eys“ frá Bretlandi. Hafði
hún sungið lagið „Trouble
Again“ en Bretarnir sungu
„Body Language".__
+ Þessi fréttamynd var tekin austur í Varsjá fyrir skömmu. Mun óhætt að fullyrða að
mennirnir tveir séu hvor um sig persónugervingar kommúnisma og kapítalisma. — Maðurinn
til vinstri er sjálfur Edward Girek leiðtogi pólska kommúnistaflokksins. Maðurinn til hægri
er bandarískur iðjuhöldur og einn af framámönnum bandaríska stórfyrirtækisins Occidental
Petroleum, Armand Hammer, að nafni. Girek og kapítalistinn höfðu verið lengi á fundi og
rætt um langtímasamstarf á sviði efnahagsmála, einkum á sviði efnaiðnaðar.
Fáskrúðsfjörður:
3800 tonn komin á
land frá áramótum
FáskrúAsfirAi 16. apríl.
HEILDARBOLFISKAFLINN á
land frá áramótum er orðinn
3.800 tonn. Skuttogarinn Ljósa-
fell hefur landað 892 tonnum og
Hoffell 1461 tonni. en báðir
leggja upp hjá Hraðfrystihúsi
Fáskrúðsfjarðar hf. brír neta-
bátar leggja upp hjá Pólarsíld
og er Sólborg komin með mest-
an afla 619 tonn. Þorri er með
426 og Guðmundur Kristinn
með 400 lestir.
Vorverk eru hafin hjá vega-
gerðarmönnum með þungatak-
mörkunum á vegum og er nú
aðeins leyfður jeppaakstur um
veginn milli Fáskrúðsfjarðar og
Stöðvarfjarðar.
Virðist svo sem
vegagerðarmenn séu vel búnir
tækjum til að vigta bíla, en hins
vegar vanti eitthvað á tækjabún-
aðinn til lagfæringa.
Fróttaritari.
Fílharmonia
Afmælishóf í tilefni af 20 ára afmæli Söngsveitarinnar
Fílharmoniu veröur haldiö aö Hótel Borg laugardag-
inn 26. apríl n.k. og hefst kl. 19.00.
Eldri félagar og aörir velunnar Söngsveitarinnar eru
velkomnir.
Pantanir í símum: 27787 — 74135 — 24524.
• Beach Boys
Okkar verð
■ Keepin’ The Summer Alive 8.950.- i|v;
Billy Joel — 52nd Street 6.900,- :.
, Lena Lovich — Flex 8.950.-
Manhattan Transfer — Live 8.700,-
Police — Ragatte De Blanc 8.950.-
Clash — London Coming 9.900.- |j§
Kenny Rogerts — Kenny 9.900,-
Elvis Costello — Get Happy 9.600.- V-
. ■ Gibson Brothers — Cuba 8.950.-
Classic Rock — Second Movement 9.300,-
■ v, s "/y z,'"1'" \.....■
Sendum samdægurs í póstkröfu
Einnig vekjum viö athygli á þvf aö verslun okkar er nú
sneisafull af nýjum og góöum plötum.
Kíktu viö í Glæsibæ Bæjaríns bestu kjör