Morgunblaðið - 18.04.1980, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. APRÍC 1980
Vltf>
KAttlNU \\ !§
(I §C9i
-Is&H
Það hafa aldrei fundizt nein finsrafor eftir hann!
Júlli og Siggi. — Eruð þið hér?
FWP5. f1 í'i 'Uii
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
í spili dagsins varð suður sagn-
hafi í góðum samningi. En þegar
slæm tromplega ógnaði spilinu
varð að leita á einhver mið eftir
úrslitaslagnum. Og eins og oft er
tilfellið var til vinningsleið en að
vísu dálítið vandrötuð.
Vestur gaf, allir á hættu.
Norður
S K6532
H. Á4
T. Á62
L. ÁK3
Vestur
S G1084
H.10976
T. 98
L. 764
Austur
S. D9
H. G
T. DG103
L. DG9852
° COSPER."""
Suður
S. Á7
H. KD8532
T. K754
L. 10
Suður var sagnhafi í sex hjört-
um og fékk út laufsjö. Blindur tók
slaginn og eftir tvo slagi á tromp
var ljóst, að vestur átti þar slag og
eitthvað þurfti að gera við tap-
slagina í tíglinum.
Suður gafst ekki upp þótt á móti
blési. Hann tók á trompdrottning-
una, ás og kóng í spaða og
trompaði spaða á hendinni. Spil-
aði tígli á ásinn og trompaði
fjórða spaðann. Þá voru eftir
fjögur spil á hendi.
Norður
S. 6
H. -
T. 62
L. Á
Ég verð að biðja yður afsökunar, læknir, en konan
mín er orðin heil heilsu!
„Kona,
hví grætur þú?“
Grein með ofangreindu nafni
birtist í Morgunblaðinu á föstu-
daginn langa, 3. apríl þ.á. og
fjallaði m.a. um altarismynd Egg-
erts Guðmundssonar í Lík-
brennslustofu Reykjavíkurborgar
í Fossvogi. Þar sem ég hef ævin-
lega kviðið því, í hvert sinn sem ég
hef þurft að horfa á þennan
óskapnað, get ég ekki stillt mig
um að segja hér nokkur orð.
Myndin minnir mig einna helzt á
klakabundinn bát og sjómann í
gaddfreðnum stakki. Með fullri
virðingu fyrir listamanninum,
held ég að honum hafi oft eða
oftast tekist betur en þetta. En
sjálfur er hann nokkuð ánægður
með verkið, er hann segir: „Þetta
er dálítið huggandi mótíf.“ Vissu-
lega er „mótífið" háleitt og gott,
en meðferð þess ber síður en svo
vott um trú á upprisuna. Hún er
dauðaleg og stirðnuð, og á enga
samleið með þeim athöfnum sem
fram fara í byggingunni nær
daglega.
Bláfarabygging þessi var teikn-
uð af Sigurði húsameistara Guð-
mundssyni og fyrst og fremst til
slíkra athafna ætluð, en hefur
orðið að helztu útfararkapellu
Reykvíkinga. Þótt byggingin sé að
mörgu leyti geðug utan, er hún að
innan klædd efnislausum kross-
viði, svo einna helzt minnir á
einhverskonar kassagerð eða
vöruskemmu. Því bætir ekki úr
skák að þurfa líka að hafa þar
fyrir augum svo efnisvana og
listvana skilirí sem þar er fyrir
stafni. Hef ég um þetta rætt við
marga menn, og eru allir mér
samdóma um það að þetta verk
Vestur
S. -
H. 10
T. 8
L. 64
Austur
S. -
H. -
T. DG10
L. D
Suður
S. -
H. 8
T. K75
L. -
I þessari stöðu tók sagnhafi á
tígulkóng og spilaði síðan tromp-
inu. Vestur fékk þann slaginn en
varð þá að gefa blindum tvo
síðustu slagina og samningur, sem
virtist tapaður reyndist unninn.
Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar:
Ný tegund kjaraskerð-
ingar hjá ríkisvaldinu
Hinn 10.4. 1980 hélt
Starfsmannafélag Vest-
mannaeyjabæjar aðalfund
sinn. og var hann vel sóttur.
Félagar í Starfsmannafélag-
inu eru um 120 talsins.
Formaður er Valtýr Snæ-
björnsson. Gestur fundarins
var Baldur Kristjánsson
fulltrúi frá B.S.R.B. og sagði
frá gangi samningsmála.
Á fundinum voru sam-
þykktar tvær tillögur.
Þær hljóða þannig:
1. Aðalfundur Starfs-
mannafélags Vestmannaeyja-
bæjar samþykkir að gefa
íþróttamiðstöðinni 200.000kr
til að halda áfram fram-
kvæmdum við útilaugar og
aðra aðstöðu utanhúss fyrir
sundlaugargesti og íþrótta-
fólk.
2. Aðalfundur Starfs-
mannafélag Vestmannaeyja-
bæjar haldinn 10. apríl 1980,
ályktar að víta harðlega þann
óeðlilega seinagang sem við-
gengist hefur í samningamál-
um opinberra starfsmanna á
síðustu mánuðum. Fundurinn
skorar á ríkisvaldið, sveitar-
stjórnir og samninganefnd
B.S.R.B. að setjast niður í
fullri alvöru til þess að semja
um kaup og kjör opinberra
starfsmanna.
Aðalfundurinn vill vekja
athygli á því, að sú afstaða
ríkisvaldsins og sveitar-
stjórna að reyna leynt og
ljóst að draga samningagerð
á langinn er í raun og veru ný
tegund kjaraskerðingar.
Stjórn Starfsmannafélagsins:
Fremri röð frá vinstri: Kristinn
Sigurðsson og Valtýr Snæ-
björnsson formaður. Aftari röð
frá vinstri: Jóhann Á. Krist-
jánsson, Guðmunda Bjarnadótt-
ir og Ilelgi Bernódusson.