Morgunblaðið - 18.04.1980, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980
JV
„Holmes er gamalmenni
ég fer létt með hann“
— segir Mohammed Ali sem
berst við hann 11. júlí
MOHAMMED Ali, heimsmeistar-
inn þrefaldi i hnefaleikum. boð-
aði fréttamenn á sinn fund, ekki i
fyrsta skiptið og örugglega ekki
það síðasta, fyrir skömmu. Þar
skýrði hann heiminum frá því að
hann væri hættur við að lumbra á
John Tate, hættur við að lumhra
á nýja WBA heimsmeistaranum
Mike Weaver, en myndi þess í
stað lumbra á Larry Holmes,
heimsmeistara WBC-samtak-
anna. Er búið að gera samning
og fer leikurinn fram i Rio De
Janeiro 11. júlí.
Ali, sem nú er 38 ára gamall,
hefur ekki stigið inn í hringinn í
alvörukeppni síðan hann sigraði
Leon Spinks og varð heimsmeist-
ari í þriðja skipti fyrir einu og
hálfu ári. „Ég fer létt með Holmes,
hann er orðinn gamalmenni, hann
er 31 árs,“ sagði Ali á fundinum, í
fúlustu alvörn
• Mohammed Ali lemur húðirnar. Trymbillinn til hægri heitir Big
Black og mætti með trumburnar á æfingu hjá Ali. Barði hann tæki sin
sundur og saman meðan að Ali afgreiddi æfingafélaga sinn i
hringnum. Þegar lotunni lauk. þurfti Ali ekki að hvíla sig, heldur
þusti til og tók að berja trommurnar í grið og erg.
35 milljónir
skiptast á milli
17 sérsambanda
Á síðasta sambandsráðsfundi ÍSÍ var gengið frá úthlutun um styrk
til sérsamhanda ÍSÍ. Á töflunni sem birtist hér neðst á síðunni má sjá
hvernig skiptingin er á milli sérsambandanna. Einnig er fróðlegt að
sjá hvaða iðkendafjölda sérsamböndin gefa upp, en samkvæmt þeim
upplýsingum eru sextíu og fjögur þúsund og fimm hundruð virkir
þáttakendur í iþróttahreyfingunni hér á landi. Alls eru það 35
milljónir króna sem skiptast á milli sérsambandanna 17. Hér á eftir
fara svo reglur þær sem úthlutunin fer eftir.
1. 5o% af heildarfjárhæð þeirri, sem til ráðstöfunar er á hverju ári,
verði skipt jafnt á milli sérsambandanna.
2. 30% af heildarfjárhæð verði skipt í hlutfalli við iðkendafjölda,
enda liggi fyrir á hverjum tíma glöggar skýrslur um iðkendafjölda
innan hvers sérsambands.
3. 20% af heildarfjárhæð skipti stjórn Í.S.Í. milli sérsambandanna
og hafi þá einkum í huga sérstök fjárfrek verkefni, sem einstök
sérsambönd takast á hendur og ekki eru árviss, tímabundna
greiðsluerfiðleika þeirra o.fl.
ÞR;
nnnnnn
liJLiinu
• Rétt einu sinni sveik bekkpressan Skúla.
Bekkpressan tók
gullið af Skúla
SKÚLI Óskarsson varð annar í
75 kg flokknum á heimsbikar-
keppninni í kraftlyftingum sem
fram fór í London fyrr í vikunni.
Skúli lyfti 295 kg í hnébeygju,
reyndi þar við Evrópumet, 305
kg, en mistókst. í bekkpressu
lyfti hann 125 kg, en varð fyrir
því óláni að togna. í réttstöðu-
lyftu lyfti Skúli síðan 300 kg og
reyndi auk þess við 312,5 kg sem
hefði verið Evrópumet. En upp
fór það ekki. Samanlagt lyfti
Skúli því 720 kg.
Sigurvegarinn í 75 kg flokknum
varð hins vegar Svíinn Lars Back-
lund, sem varði titil sinn. Hann
tók 272,5 í hnébeygju, 180 á
bekknum og 280 kg í réttstöðu-
lyftu, eða samanlagt 732,5 kg. Það
er meira en athyglisvert, að ár-
angur Skúla bæði í hnébeygju og
réttstöðulyftunni er mun betri
heldur en hjá Svíanum. Gæfu-
muninn gerir hins vegar bekk-
pressan, sem verið hefur veika
hlið Skúla. Þar notar Backlund
tækifærið og stingur Skúla af.
Þriðji í þessum flokki varð
Thomson frá Ástralíu. Hann tók
260 í hnébeygju, 172,5 í bekkpressu
og 270 kg í réttstöðulyftu, eða
Wales-búar koma
ÍSLENSKA unglingalandsliðið i
körfuknattleik leikur fjóra
landsleiki við jafnaldra sína frá
Wales næstu dagana. Fyrsti leik-
urinn fer fram í Hagaskólanum á
laugardaginn og hefst hann
klukkan 14.00. Síðan verður leik-
ið i Njarðvík klukkan 20.00 á
mánudaginn. Þriðji leikurinn fer
fram í Hafnarfirði á miðvikudag-
inn klukkan 20.00 og loks fer
síðasti leikurinn fram á fimmtu-
daginn klukkan 13.30 í íþrótta-
húsinu í Borgarnesi. Búið er að
velja 15 manna landsliðshóp, en
hann skipa eftirtaldir leikmenn.
Axel Nikulásson ÍBK
Benedikt Ingþórsson ÍR
Hálfdán Markússon Haukum
Helgi Jensson Haukum
Hörður Arnarsson Ármanni
Jón Kr. Gíslason ÍBK
Leifur Gústafsson Val
Pálmar Sigurðsson Haukum
Sigurður Sigurðsson ÍBK
Sverrir Hjörleifsson Haukum
Valdimar Guðlaugsson Ármanni
Valur Ingimundarson UMFN
Viðar Vignisson ÍBK
Viðar Þorkelsson Fram
Willum Þórsson KR
702,5 kg. samanlagt.
Sjö þjóðir áttu þátttakendur á
heimsbikarmótinu að þessu sinni,
en á mót þetta er jafnan boðið
þrem bestu í hverjum þyngdar-
flokki. Hér fer á eftir listi yfir
sigurvegarana í hverjum flokki og
talan sem þeim fylgir, er heildar-
þyngdin sem hver þeirra lyfti.
52 kg fl. Bhairo Bretl. 522,5 kg
56 kg fl. Niemi Finnl. 540,0
60 kg fl. Lampela Finnl. 572,5 kg
67.5 kg fl. Salih Bretl. 672,5 kg
75 kg fl. B.lund Svíþj. 732,5
82.5 kg fl. Collins Bretl. 807,5 kg
90 kg fl. Mattson Svíþj. 845,0 kg
100 kg fl. Nodele Bretl. 882,5 kg
110 kg fl. Patuzson USA 897,5
yfirvigt Zeolovski Bretl. 947,5 kg
Iðkenda-
Sérsambóndin: fjöldi 1978 50% 30% 20% Samtals:
Blaksamband Island 2501 1.093.750.- 406.660,- 100.000.- 1.600.410.-
Badmintonsamband íslands 4099 1.093.750,- 666.490,- 200.000,- 1.960.240.-
Borðtennissamband íslands 1996 1.093.750.- 324.550.- 100.000,- 1.518.300,-
Frjálsiþróttasamband íslands 7404 1.093.750,- 1.203.880,- 1.300.000.- 3.597.630,-
Fimleikasamband íslands 2923 1.093.750,- 475.280,- 550.000,- 2.119.030.-
Glímusamband íslands 396 1.093.750.- 64.390.- 1.158.140.-
Golfsamband íslands 1422 1.093.750.- 231.210.- 250.000,- 1.574.960,-
Handknattleikssamband íslands 9257 1.093.750.- 1.505.170.- 1.200.000,- 3.798.920.-
Judosamband íslands 564 1.093.750.- • 91.710,- 250.000.- 1.435.460,-
Körfuknattleikssamband íslands 3781 1.093.750.- 614.790.- 750.000,- 2.458.540.-
Knattspyrnusamband íslands 14960 1.093.750.- 2.432.480.- 500.000,- 4.026.230.-
Lyftingasamband ísiands 623 1.093.750.- 101.300.- 250.000,- 1.445.050.-
Siglingasamband íslands 574 1.093.750.- 93.330,- 50.000.- 1.237.080.-
Skíðasamband íslands 8798 1.093.750.- 1.430.550.- 750.000,- 3.274.300.-
Sundsamband íslands 4706 1.093.750.- 765.190.- 750.000.- 2.608.940,-
Skotsamband íslands 572 1.093.750,- 93.020.- 1.186.770.-
Íþróttasamband fatlaðra (327) Sérstök fjárveiting
Samtals: 64.576 17,5 millj. 10,5 millj. 7 millj 35 millj.
V