Morgunblaðið - 18.04.1980, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980
35
• Ólafur H. Jónsson skorar glæsilega eitt af mörkum sinum. Ljósm. Kristinn.
Þróttur í 1. deild á ný
— Vann ÍR auðveldlega í gærkvöldi
ÞRÓTTUR vann sig upp í 1.
deildina í handknattleik með þvi
að vinna sigur á ÍR i síðasa leik
liðanna. Lokatölur leiksins i gær
urðu 17—13 fyrir Þrótt, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 7—5
fyrir Þrótt. Þróttur vann einnig
fyrri leikinn, 21 — 19, vann þvi
samanlagt 38—32. Þróttur verð-
EINS og skýrt hefur verið frá á
íþróttasíðu Mbl. voru Valsmenn á
höttum eftir rússneskum hand-
knattleiksþjálfara.
Nú hefur endanlega verið
gengið frá samningum og sam-
komulag undirritað um að þjálf-
arinn, sem heitir Barsnikov,
komi til landsins og taki til
starfa 1. júli. Handknattleiks-
deild Vals er mikill fengur i að fá
þennan þjálfara sem er mjög
„JÁ, ég er út af fyrir mig
ánægður með þennan árangur.
Ég átti að vísu 76 metra kast, en
datt út úr atrennubrautinni á
síðasta augnabliki. Var því
óheppinn, en þetta kemur bara
næst og metið fellur sjálfsagt
bráðlega,“ sagði spjótkastarinn
bráðefnilegi Sigurður Einarsson
Glimufélaginu Ármanni í viðtali
við Mbl. i gær, en hann stórbætti
sig í spjótkasti á frjálsíþrótta-
móti í West Valley í Kaliforníu
fyrir skömmu er hann kastaði
áhaldinu 73,52 metra. Sigurður
átti bezt áður 71,34 metra, en
þeim árangri náði hanr. á Laug-
Sigurður Einarsson.
Þróttur: 17;-|3
skuldaði sannarlega sigurinn í
báðum leikjunum og á skilið að
fá tækifæri til að spreyta sig i 1.
deild.
þekktur i heimalandi sinu og
hefur meðal annars annast þjálf-
un rússneska landsliðsins i hand-
knattleik. Hann er með æðstu
gráðu i iþróttamenntun sem
hægt er að hafa út úr iþrótta-
skóla í Rússlandi. Þá hefur hann
marga landsleiki að baki, og
hefur margsinnis orðið Rúss-
landsmeistari i handknattleik
með félagsliði sínu.
ardalsvelli í fyrrahaust. íslands-
metið í greininni á Óskar Jak-
obsson ÍR, 76,32 metrar, sett
1977.
Árangur Sigurðar er nýtt
drengjamet, og má gera ráð fyrir
að hann vegi að íslandsmeti Ösk-
ars, og jafnframt unglingameti,
sem er 75,80, þegar á næstu
vikum. Sigurður hefur í vetur
dvalist við æfingar í San Jose í
Kaliforníu, ásamt fjölmörgum
öðrum íslenzkum frjálsíþrótta-
mönnum, og hafa skólar vestra
falast eftir Sigurði í sínar raðir í
haust.
Sigríður Kjartansdóttir KA
keppti um helgina á Bruce Jenner
Classic, frjálsíþróttamótinu
mikla, og jafnaði aftur sinn bezta
árangur í 400 metra hlaupi, fékk
tímann 55,6 sekúndur. Sigríði hef-
ur gengið vel á æfingum ytra og að
sögn fróðra manna aðeins tíma-
spursmál hvenær hún bætir ár-
angur sinn.
Friðrik Þór Óskarsson ÍR sigr-
aði í þrístökki á frjálsíþróttamóti
í Texas um helgina er hann stökk
15,29 metra. Átti Friðrik tæplega
16 metra stökk er dæmt var ógilt.
Þá átti Friðrik þrjú stökk um og
yfir 7,50 metra í langstökki, en
þau urðu öll hárfínt ógild þar sem
hann átti í erfiðleikum með at-
rennuna. Hann náði gildu stökki
upp á 7,13 metra. — ágás
ÍR var að vinna leikinn í gær
með meiri mun en tveimur mörk-
um. Það gætti nokkurs misskiln-
ings í grein um aukaleiki í blaðinu
í gær varðandi fjölda aukaleikja. í
þessu tilviki hefðu þeir aldrei
orðið fleiri en tveir, nema ef svo
ólíklega hefði viljað til að liðin
ynnu hvort sinn leikinn með sömu
markatölu. En hvað um það. Sem
fyrr segir varð ÍR að vinná með
meiri mun en 2 mörkum, en það
verður að segjast eins og er, að
það leit aldrei út fyrir að það
myndi takast. Leikmenn liðsins
virtust taugaslappir og gerðu hver
mistökin af öðrum. Kannski ekki
að furða. Við það bættist, að
talsverður dofi færðist í leik
liðsins framan af síðari hálfleik,
þegar Þróttur jók forskotið jafnt
og þétt. Síðustu tíu mínúturnar
freistuðu ÍR-ingar þess að taka
LAUGARDAGINN 26. apríl kl. 2
eítir hádegi, verður 5 km skíða-
ganga fyrir almenning við
skíðaskálann í Hveradölum.
Flokkaskipting verður sem hér
segir:
Konur 40 ára og yngri
konur 41 árs og eldri
karlar 40 ára og yngri
karlar 41—45
karlar 46—50
karlar 51—55 og
karlar 56 og eldri.
Verðlaunabikarar í þessum
flokkum voru gefnir í fyrra af Jóni
Aðalsteini Jónssyni, eiganda
verslunarinnar Sportvals í
PÉTUR Pétursson og félagar
hans hjá Feyenoord töpuðu fyrri
leik sínum gegn nágrannaliðinu
Sparta Rotterdam í undanúrlsit-
um hollensku bikarkeppninar í
fyrrakvöld. Á sama tíma sigraði
Ájax lið PSV Eindhoven 2—1 á
heimavelli sinum. Síðari leikirnir
fara fram eftir tvær vikur.
Feyenoord sótti án áfláts á
leikvelli Spörtu, en framherjum
liðsins gekk brösulega að finna
leið fram hjá sterkum varnar-
mönnum mótherjanna, sem gripu
til allra ráða til þess að stöðva þá.
Eina mark leiksins og sigurmark
Spörtu skoraði síðan varnar-
maðurinn Adri Van Tiggelen á 35.
mínútu leiksins. 25.000 áhorfendur
þrjá Þróttara úr umferð en réðu
illa við þá leikaðferð. Hefði hugs-
anlega verið meira vit að láta
nægja að taka tvo úr umferð, en
það gaf nokkuð góða raun í fyrri
leiknum og hefði þá getað skipt
máli ef bragðinu hefði verið beitt
fyrr í leiknum.
Fyrri hálfleikurinn var lengst af
jafn og lítið skorað. Aðeins einu
sinni náði IR eins marks forystu. í
síðari hálfleik jók Þróttur muninn
ört og komst mest 4 mörkum yfir
og hélt sínum hlut frekar auð-
veldlega. Hjá Þrótti báru tveir af,
þeir Páll Ólafsson og markvörður-
inn Sigurður Ragnarsson, en í
heild átti liðið ágætan dag. Sig-
urður Sveinsson var tekinn úr
umferð allan tímann. Hjá ÍR kom
Ásgrímur í markinu vel frá sínu
og Sigurður Svavarsson hætti
aldrei að berjast, en í heild lék ÍR_>
illa og virtist skorta allt sjálfs-
traust. Dómgæsla þeirra Björns
Kristjánssonar og Rögnvalds Erl-
ingssonar var tii fyrirmyndar
lengst af.
Mörk Þróttar: Páll 8, Ólafur H.,
Magnús Margeirsson og Sigurður
Sveinsson 3 hver.
Mörk ÍR: Bjarni Hákonarson 4
(4), Guðmundur Þórðarson 3 (1),
Bjarni Bessason 2, Pétur Valdem-
arsson, Hörður Hákonarson, Sig-
urður Svavarsson og Ársæll Haf-
steinsson 1 mark hver.
- gg.
Fylkir beiö
bráöabana
FYLKIR átti ekki lan'glífi að
fagna i bráðabananum gegn KR,
er liðin skildu jöfn eftir venju-
legan leiktima á Reykjavíkur-
mótinu í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Eftir 90 minútur stóð
0—0, en KR setti markavélina í
gang i bráðabana, skoraði fjögur
mörk gegn engu. Stefán Jó-
hannsson markvörður KR sýndi
snilldartakta. varði allar spyrn-
ur Fylkismanna.
Reykjavík. Þessi ganga er ekki
eingöngu bundin við Reykja-
víkursvæðið heldur er öllu áhuga-
fólki heimil þátttaka. í fyrra
gengu 60 manns en í ár vonast
Skíðafélag Reykjavíkur eftir því
að þessi tala tvöfaldist. Þátttöku-
tilkynningar verða í Skíðaskálan-
um í Hveradölum á keppnisdaginn
kl. 12—2. Þeir sem unnu bikara í
fyrra eru beðnir að hafa samband
við Ellen Sighvatsson í síma
12371, hið fyrsta. Skíðafélag
Reykjavíkur sér um framkvæmd
mótsins, en allar nánari upplýs-
ingar eru veittar á skrifstofu
félagsins að Amtmannsstíg 2 í
síma 12371.
sáu leikinn. Feyenoord á þrátt
fyrir ósigurinn ágæta möguleika á
því að komast í úrslit, þarf liðið að
sigra 2—0 eða meira.
Ajax vann minni sigur gegn
PSV á heimavelli sínum heldur en
heppilegt var, útileikurinn verður
nefnilega vafalaust mjög erfiður.
En leikmenn PSV eiga enga mögu-
leika á því að vinna titilinn lengur
og lögðu því allt í sölurnar gegn
Ajax. Willy Van Der Kuylen
skoraði snemma leiks fyrir PSV
og freistaði liðið síðan að halda
fengnum hlut. Það tókst þó ekki,
Martin Van Geel jafnaði fyrir
Ajax snemma í síðari hálfleik, og
þegar tíu mínútur voru til leiks-
loka, skoraði Frank Arnesen sig-
urmark Ajax.
Rússneski þjálfarinn
kemur til Vals 1. júlí
- þr.
Sigurður stefnir á
metið í spjótkasti
Skíðaganga fyrir almenning
Feyenoord tapaði
bikarleiknum
— en fær annað tækifæri innan skamms
w.
2-2 á
Spáni
Tékkar og Spánverjar
gerðu jaíntefli í vináttuleik í
knattspyrnu sem fram fór í
Gijon á Spáni í fyrrakvöld.
Skoruðu bæði liðin tvö
mörk. Leikurinn fór fram i
úrhellisrigningu að við-
stöddum 25.000 áhorfendum.
Tékkarnir höfðu forystu í
hálfleik, Nehoda skoraði
fyrir þá á 33. minútu leiks-
ins. Migueli jafnaði fyrir
Spánverja á 48. mínútu. en
Nehoda var ekki hættur.
hann skoraði annað mark
sitt og Tékka á 54. mínútu.
Það stóð 2—1 fyrir Tékka
þar til á 68. minútu. en þá
tókst Quini að jafna fyrir
Spán.
Celtic
lifnaði
Celtic tók aftur við sér í
skosku deildarkeppninni eft-
ir nokkra slæma leiki, og
sigraði Kilmarnock 2—0 í
fyrrakvöld. Náði Celtic þar
með fjögurra stiga forystu,
eftir að hafa misst enn meiri
forystu niður í tvö stig á
siðustu vikum.
Aberdeen. liðið sem komið
var í skottið á Celtic, gerði
engar rósir þetta sama
kvöld, lék á heimavelli gegn
botnliðinu Hibernian og
mátti sætta sig við annað
stigið. jafntefli. 1 — 1.
Enskir
fengu
skell
Enska landsliðið i
knattspyrnu skipað leik-
mönnum 21 árs og yngri,
fékk slæman skell i fyrra-
kvöld, er liðið lék fyrri leik
sinn gegn Austur-Þjóðverj-
um í undanúrslitum Evrópu-
keppni landsliða. Fór leikur-
inn fram i Sheffield og lauk
með sigri Þjóðverja. 2—1.
Sigurmarkið skoraði maður
að nafni Dennestadt þegar
aðeins tvær mínútur voru til
leiksloka. En aðeins sex
mínútum áður hafði Justin
Fashanu tekist að jafna met-
in fyrir England. þar sem
Júrgen Raah hafði skorað
fyrir Þjóðverja á 60. minútu.
Síðari leikurinn fer fram í
Jena i næstu viku.
Knattspyrnu-
skóli í
Breiöholti
Breiðhyltingar opna
knattspyrnuskóla fyrir 6—8
ára börn á sunnudaginn. Til
að byrja með verður kennt
innanhúss, en síðan úti.
Hefst skólinn klukkan 17.00
í íþróttahúsinu við Fella-
skóla. Þátttökugjaldi verður
mjög í hóf stillt.
Úrslitaleikur
á Skaganum:
ÍA mætir Þór
AKRANES og Þór frá Akur-
eyri leika síðari leik sinn um
lausa sætið i 2. deildinni i
handknattleik á Akranesi í
kvöld og hefst leikurinn
klukkan 20.30.