Morgunblaðið - 18.04.1980, Side 36
PIERPODT
OUARTZ — úr
Þessi heimsþekktu úr
fást hjá flestum úr-
smiöum.
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980
Ríkisskattstjóri um tekjuskattstillögur ríkisstjórnarinnar:
Meiri skattahækkun hjá einstakl
ingum og einstæðum foreldrum
Sjöttu bekkingar í Verzl-
unarskóla íslands dimmit-
teruðu með miklum tilþrif-
um í gær og var þessi
mynd tekin við það tæki-
færi. Var aldeilis líf og fjör
í tuskunum eins og sjá má
á þessari mynd sem Val-
geir tók.
ÞÆR niðurstöður ríkisskattstjóra, að
tekjuskattstillögur ríkisstjórnarinnar
þýði skattahækkun á einhleypingum og
einstæðum foreldrum með lágar tekjur
urðu til þess að fjármálaráðherra fékk í
gær frestað útvarpsumræðu um skatta-
mál, sem átti að vera í gærkvöldi.
Samkvæmt útreikningum ríkisskatt-
stjóra vérður ekki um sömu skattbyrði
að ræða milli álagningar gamla kerfis-
ins og tillagna stjórnarliðsins fyrr en í
kring um 6 milljóna króna skattgjalds-
tekjur einhleypinga , en að því marki
hafa tillögur ríkisstjórnarinnar í för
með sér skattahækkanir og hafa breyt-
ingar stjórnarliðsins á Alþingi á upp-
haflegum tekjuskattstillögum fjármála-
ráðherra aukið þann mun.
hópi einstæðra foreldra með
eitt barn miðað við gömlu
skattalögin.
Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson forseti efri deildar
sagði í samtali við Mbl. í gær,
að hann hefði fallizt á ósk
fjármálaráðherra um frestun
3ju umræðu í efri deild fram
yfir helgi, en gert væri ráð
fyrir að óhaggað stæði sam-
komulag flokkanna um að
umræðunni yrði útvarpað.
Umræður urðu í gær um
málið utan dagskrár í Samein-
uðu þingi og stóðu þær frá
klukkan 14 til 16 og áfram
eftir fundarhlé frá klukkan
17:30 til klukkan 19.
Sem dæmi úr niðurstöðum
ríkisskattstjóra má nefna, að
álagður tekjuskattur á ein:-
stakling með 3 milljónir 1
tekjusskattstofn yrði sam-
kvæmt tillögum stjórnarliðs-
ins 227.250 krónur, en eftir
fyrra kerfi hefði tekjuskattur-
inn orðið 166.023 krónur,
skattahækkun 61.227 krónur.
Við fjórar milljónir yrði
skattahækkun einhleypings
samkvæmt tillögum stjórnar-
liðsins 111.594 krónur, en við
sex milljón króna markið
lækkar hins vegar tekjuskatt-
ur einhleypingsins samkvæmt
tillögum stjórnarliðsins um
31.396 krónur. Tillögur stjórn-
arliðsins virðast hafa í för
með sér allt að 40% skatta-
hækkun hjá lágtekjufólki í
Verðkönnun Verðlagsstofnunar:
Verðmismunur á 50
vörutegundum 37,2%
Samninga- og verkfallsmálin á Vestf jörðum:
Samkomulag í burð-
arliðnum á Flateyri
Viðræður á Suðureyri og verkfallsboðun þar á morgun?
NIÐURSTÖÐUR verðkönnunar.
sem Verðlagsstofnun hefur gert,
sýna ótvírætt mikinn verðmis-
mun í verzlunum á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Var mismunur á
hæsta og lægsta verði á 50
vörutegundum 37,2%
Verðlagsstofnun framkvæmdi
þessa könnun 14. og 15. apríl sl.
sem fyrr segir náði könnunin til 50
vörutegunda í 25 verzlunum á
Egilsstaðir:
32 þús. kr.
ódýrara
að fljúga
en aka
— ef bifreiðin eyðir
20 lítrum á hundraði
EF EINN maður ekur frá
Reykjavík til Egilsstaða á bif-
reið. sem eyðir 20 lítrum á
hundraðið kostar bensínið í
ferðina 62 þúsund krónur. Ef
sami maður fer til Egilsstaða
flugleiðis kostar fargjaldið
26.100 krónur. Mismunurinn er
32 þúsund krónur. Ef bifreiðin
eyðir 10 lítrum á hundraðið
kostar bensinið 31 þúsund krón-
ur og mismunurinn er 5 þúsund
krónur.
Ef maður ekur til Akureyrar á
bifreiö sem eyðir 20 lítrum kost-
ar bensínið 38 þúsund krónur en
19 þúsund krónur ef bifreiðin
eyðir 10 lítrum. Fargjald milli
Ákureyrar og Reykjavíkur kost-
ar 19.450 krónur aðra leiðina. Ef
maður ekur til ísafjarðar á
bifreið sem eyðir 20 lítrum kost-
ar bensínið 45 þúsund krónur en
22.500 krónur ef bifreiðin eyðir
10 lítrum. Fargjald milli Reykja-
víkur og ísafjarðar aðra leiðina
kostar 18.300 krónur. Miðað er
við fullt fargjald með flugvall-
argjaldi og án afsláttar.
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Ef
neytandinn keypti þær 50 vöruteg-
undir, sem könnunin náði til á
hæsta verði, myndu þær kosta kr.
46,849 samanborið við kr. 34,140 ef
þær væru keyptar þar sem verðið-
var lægst. Mismunurinn er kr.
12.709 eða 37,7%.
I tilkynningu frá Verðlagsstofn-
un segir að tilgangur verðkönnun-
arinnar sé sem fyrr að vekja
athygli neytenda á mismunandi
verði á sömu vöru og hvetja þá til
að leita eftir hagkvæmustu inn-
kaupum. Ennfremur segir að nöfn
viðkomandi verzlana verði ekki
birt að þessu sinni, en fólk geti
notfært sér könnunina m.a. með
því að bera hana saman við verð í
þeim verzlunum, sem það skiptir
alla jafna við.
Sjá niðurstöður verðkönnun-
ar á bls. 13.
11.88%.
Birgir ísl. Gunnarsson fylgdi
tillögum sjálfstæðismanna úr
hlaði og sagði m.a. „Niðurstöðutöl-
ur borgarsjóðs eru nú tæplega 40
milljarðar og er það um 65%
hækkun frá fyrra ári. Þetta er
annað árið í röð sem svo gífurleg
hækkun skellur yfir borgarbúa,
hækkun sem er umfram verð-
bólgu. Þetta ber vott um aukna
eyðslu, aukna þenslu hjá borginni
og minnkandi aðhald og lítinn
áhuga á ráðdeild og sparnaði.
Þetta er einkenni þeirra tveggja
fjárhagsáætlana sem vinstri-
meirihlutinn ber ábyrgð á“.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR haía
staðið yfir undanfarna daga bæði
á Flateyri og Suðureyri og í
gærkveldi bentu líkur til að
samkomulag væri ekki langt und-
an á Flateyri. Hins vegar munu
viðræðurnar á Suðureyri eitthvað
hafi þyngzt síðdegis i gær og
samkvæmt heimildum Morgun-
Síðan sagði Birgir: „Það eru
helstu áhugamál vinstri meiri-
hlutans að krefjast stöðugt meiri
tekna, hækka stöðugt skatta og
seilast æ lengra í vasa skattborg-
aranna, en að þeim er nú sótt á
tvær hendur, bæði af ríkisvaldinu
og borgaryfirvöldum".
Þessu næst rakti Birgir tillögur
sjálfstæðismanna um lækkun á
útgjöldum. í aðalatriðum eru til-
lögurnar byggðar á því að ekki
verði ráðið í ýmsar nýjar stöður
hjá borginni, framlög til gatna og
hoiræsagerðar og til ýmissa bygg-
ingaframkvæmda lækki um 5%,
blaðsins, gerðu sjómenn útgerð-
armönnum þar til tilboð í gærdag
og óskuðu svara fyrir kvöldið,
ella myndu þeir boða til verkfalls
í dag með lögboðnum fyrirvara.
Á Flateyri var í gærkveldi
boðaður fundur í stjórn og trúnað-
armannaráði Verkalýðsfélagsins
Skjaldar, þar sem samkomulags-
framlag til SVR lækki um 150
milljónir og verði 1.850 milljónir.
Framlag til BÚR verði lækkað úr
1350 milljónum króna í 1000 millj-
ónir. Ýmsar aðrar tillögur til
lækkunar útgjalda voru bornar
fram á fundinum. Samtals nema
tillögur sjálfstæðismanna um
lækkun tæplega 1500 milljónum
króna. Að auki fluttu sjálfstæð-
ismenn tillögu um hækkun nokk-
urra tekjuliða.
Lækkunartillögur sjálfstæð-
ismanna miða að því að komast
hjá því að hækka útsvar á borgar-
búa, en ef farið yrði að tillögum
vinstri meirihlutans, þá myndi
það þýða um 1700 milljóna aukna
skattlagningu á borgarbúa.
Þegar Morgunblaðið fór í prent-
un í nótt hafði enn ekki verið tekin
ákvörðun um útsvarsmálin, en frá
því verður greint í blaðinu á
morgun.
drögin voru til umræðu. Þó átti
ekki að taka endanlega afstöðu til
þess fyrr en um helgina, er
fyrirhugað er að halda félagsfund
í félaginu, enda viðræðum milli
samninganefndar félagsins og út-
vegsmanna ekki að fullu lokið.
Hendrik Tausen, formaður Skjald-
ar, sagði í viðtali við Morgunblað-
ið í gærkveldi, að fyrir lægi að
unnt yrði að semja á svipuðum
nótum og í Bolungarvík, en sjó-
menn vonuðust til að fá eitthvað
betra fram yfir sjómenn á línubát-
um.
Samningafundir stóðu yfir á
Suðureyri frá því klukkan 09.30 í
fyrradag til klukkan 00.30 í fyrri-
nótt. Samkvæmt upplýsingum
Sveinbjörns Jónssonar, formanns
Verkalýðsfélagsins Súganda, voru
viðræður opnar og farið var yfir
kröfugerð sjómannanna lið fyrir
lið. Síðan hittust aðilar aftur
klukkan 17 í gær og voru þá
viðbrögð útvegsmanna orðin allt
önnur. Buðu þeir Bolungarvíkur-
samkomulagið til stutts tíma, en
sjómenn gerðu gagntilboð í anda
þess, sem um hafði verið rætt í
fyrradag og gáfu frest til kvölds.
Þó kvað Sveinbjörn sjómenn hafa
komið til móts við útvegsmenn í
þessu tilboði. „Þetta er því ekki
spurning um ágreining, heldur
ytri aðstæður. Við værum búnir
að ná samkomulagi, ef við værum
einir í heiminum. Nú er þetta
spurning um það, hvort útvegs-
menn hafa hugrekki til að standa
að þessu.“
Vinstri meirihlutinn vill hækka útsvör um 1700 milljónir króna:
Alveg ónauðsynlegt
— segir Birgir ísl. Gunnarsson
BORGARFULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins lögðu í gærkveldi fram í
borgarstjórn ýmsar tillögur um lækkun á útgjöldum borgarsjóðs og
jafnframt tillögu um lækkun útsvars. Sýndu þeir fram á að
ónauðsynlegt væri að nota nýsamþykkta lagaheimild um hækkun
útsvara, en tillögur vinstriflokkanna gera ráð fyrir að hækka útsvör í