Morgunblaðið - 01.05.1980, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1980
. . . &
S KI PAUTíiC RÐ RIKISINS
Coaster
Emmy
fer frá Reykjavík þriöjudaginn
6. maí vestur um land til
Akureyrar og tekur vörur á
i eftirtaldar hafnir: Patreksfjörð,
(Tálknafjörö og Bíldudal um
Patreksfjörö), Þingeyri, ísafjörð,
(Flateyri, Súgandafjörö og Bol-
ungarvík um ísafjörð), Akureyri,
Siglufjörð og Sauðárkrók.
Vörumóttaka alla virka daga til
5. maí.
Einhell
vandaöar vörur
Rafsuðuvélar
Ódýrar, handhægargerðir.
Skeljungsbúðin
Suðulandsbciut 4
srn 38125
Heidsölubirgðir: Skejungur hf.
SmeMörudeid-Lajgavegi 180
sími 81722
Einhell
vandaöar vörur
Súluborvélar
Tværstæröir, hagstætt verö
Skeljungsbúðin
Suöurlandsbfajt 4
simi 38125
Heidsöiubirgðir: Skejungur hf.
Smáwörudeild-Laugawegi 180
sími 81722
EiraHell
vandaöar vörur
Rafkapals-
tromlur
10og20 metra.
Afar hagstætt verð.
Skeljungsbúðin
Suðurlandsbraut 4
srni 38125
Heildsölubirgðir: Skeljungur hf.
Smávörudeild-Laugavegi 180
sími 81722
Útvarp í kvöld:
Stofnfundur verkalýðsfélagsins
í kvöld kl. 21.15 verða fluttir í
útvarpi þættir úr þriðju bók
„Sölku Völku" eftir Halldór
Laxness, undir nafninu „Stofn-
fundur verkalýðsfélagsins".
Þorsteinn Ö. Stephensen bjó
þættina til flutnings í útvarpi og
er jafnframt sögumaður og leik-
stjóri. Með helstu hlutverk fara
Guðrún Þ. Stephensen, Gísli
Halldórsson, Gísli Alfreðsson,
Lárus Pálsson, Valur Gislason
og Valdemar Helgason. Flutn-
ingur verksins tekur klukku-
stund. Það var áður flutt í
útvarpi 1966.
Arnaldur, ungur kommúnisti,
er kominn „að sunnan" til að
vekja verkalýðinn á Óseyri við
Úr Sölku
Völku eftir
Halldór Laxness
Axlarfjörð. Þar hefur Bogesen
kaupmaður ráðið lögum og lof-
um, og hann er að sjálfsögðu
lítið hrifinn af þessari „sendi-
ngu“. Fundur er boðaður til að
stofna verkalýðsfélag og greini-
legt þegar í upphafi að nú á að
láta sverfa til stáls.
Halldór Laxness fæddist í
Reykjavík árið 1902. Hann tók
gagnfræðapróf 1918, var einn
vetur í menntaskóla, en stundaði
síðan nám erlendis. Fyrsta bók
hans, „Barn náttúrunnar“ kom
út 1919, en síðan hefur hann sent
frá sér fjölda skáldsagna, rit-
gerða, ferðabóka, leikrita og
endurminninga. Bækur hans
hafa verið þýddar á fjölmörg
tungumál og sumar þeirra kvik-
myndaðar, þ.á m. „Salka Valka“.
Sú saga kom út á árunum
1931—32 og var undanfari
skáldsagnabálkanna miklu um
Ólaf Kárason Ljósvíking og Jón
Hreggviðsson á Rein. Leikrit
Laxness hafa bæði verið sýnd
hér á sviði (í Þjóðleikhúsinu og
Iðnó) og í sjónvarpi. Útvarpið
hefur flutt mörg þeirra, ýmist í
heild eða kafla úr þeim, auk þess
Halldór Laxness
sem leikgerðir hafa verið unnar
upp úr nokkrum þeirra.
Halldór Laxness er sennilega
víðförlastur íslenskra höfunda
og hefur dvalið langdvölum er-
lendis, bæði við nám og störf.
Hann hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels 1955.
Utvarp Reykjavlk
FIMMTUDkGUR
1. maí
MORGUNINN
Hátíðisdagur verkalýðsins
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10. Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Gunnvör Braga heldur
áfram að lesa söguna „Ögn
og Anton“ eftir Erich Kástn-
er í þýðingu Ólafíu Einars-
dóttur (8).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morguntónleikar
National-fílharmoníusveitin
leikur þætti úr „Gayaneh-
ballettinum“ eftir Aram
Katsjatúrjan; Loris Tjekna-
vorjan stj.
11.00 Iðnaðarmál. Umsjón:
Sveinn Hannesson og Sig-
mar Armannsson. Rætt við
Benedikt Davíðsson og Guð-
mund Þ. Jónsson um stöðuna
í samningamálum.
11.15 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
Tónleikasyrpa
Léttklassísk tónlist, dans- og
dægurlög og lög leikin á
ýmis hljóðfæri
SÍÐDEGIÐ_____________________
14.25 Útvarp frá Lækjartorgi
Frá útifundi Fuiltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, BSRB og íðn-
nemasambands íslands.
Flutt verða ávörp, Lúðra-
sveitin Svanur og Lúðrasveit
verkalýðsins leika, Ásbjörn
Kristinsson syngur baráttu-
söngva og sönghópur stend-
ur fyrir almennum söng.
15.35 Sinfóníuhljómsveit
íslands leikur lög eftir
Bjarna Þorsteinsson og Sig-
fús Einarsson. Stjórnandi;
Páll P. Pálsson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlistartími barnanna
Stjórnandi; Egill Friðleifs-
son.
16.40 Síðdegistónle.kar
Kammersveit Reykjavíkur
leikur þrjú hdenzk þjóðlög i
útsetningu Jóns Ásgeirsson-
ar / Alþýðukórinn syngur
ísienzk og erlend iög; Hall-
grimur Helgason stj. / Sin-
fóníuhljómsveit íslands leik-
ur „Á krossgötum“, hljóm-
sveitarsvítu eftir Karl O.
Runólfsson.
17.40 Tónieikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLPID
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Mælt mál
Bjarni Einarsson flytur þátt-
inn
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja
20.00 Fræðslu- og félagsmála-
starf verkalýðshreyfingar-
innar
Dagskrárþáttur í samantekt
Hallgrims Thorsteinssonar
fréttamanns. í þættinum
verða m.a. viðtöl við fólk í
Félagsmálaskóla alþýðu í
Ölfusborgum.
20.45 Lúðrasveit verkalýðsins
leikur i útvarpssal
Stjórnandi: Ellert Karlsson.
21.15 „Stofnfundur verkalýðs-
félagsins“
Þættir úr þriðju bók Sölku
Völku, „Öðrum heimi“, eftir
Halldór Laxness, leiknir og
lesnir. (Áður útv. 1966 og
1972). Þorsteinn Ö. Steph-
ensen tók saman og er leik-
stjóri og sögumaður.
Persónur og leikendur:
Saika Valka/ Guðrún Þ.
Stephensen. Arnaldur/ Gísli
Halldórsson. Angantýr
Bogesen/ Gísli Alfreðsson.
Beinteinn í Króknum/ Lárus
Pálsson. Sveinn oddviti/
Valdemar Heigason. Katrín-
us verkstjóri/ Valur Gísla-
son. Jón Jónsson barnakenn-
ari/ Jón Aðils. Guðmundur
kadett/ Flosi Ólafsson.
Fundarmenn: Sigmundur
Örn Arngrímsson, Sigurður
Karlsson, Bergljót Stefáns-
dóttir og Helga Þ. Stephen-
sen.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Reykjavíkurpistill
Eggert Jónsson borgarhag-
fræðingur talar við Eðvarð
Sigurðsson, formann Verka-
lýðsfélagsins Dagsbrúnar.
23.00 Danslög
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDbGUR
2. maí
MORGUNINN____________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10. Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Gunnvör Braga heldur
áfram að lesa söguna „Ögn
og Anton“ eftir Erich Kástn-
er í þýðingu Ólafíu Einars-
dóttur (9).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður
10.25 „Mér eru fornu minnin
kær“
Einar Kristjánsson frá
Hermundarfelli sér um þátt-
inn. Þar verður fram haldið
minningum Gyðu Thorlac-
iusar sýslumannsfrúar og
frásögn af henni.
11.00 Morguntónleikar
Wilhelm Kempff leikur á
píanó „Kinderszenen“,
barnalagaflokk op. 15 eftir
Robert Schumann / Janos
Starker og György Sebök
leika Sellósónötu í g-moll op.
65 eftir Fréderic Chopin /
Kvartett Tónlistarskólans í
Reykjavík leikur „Dauða og
líf“, strengjakvartett op. 21
eftir Jón Leifs.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar._______________
SÍDDEGID_____________________
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tónleikar
Tónleikasyrpa
Dans- og dægurlög og létt-
klassísk tónlist
14.30 Miðdegissagan: „Kristur
nam staðar í Ebolí“ eftir
Carlo Levi
Jón Óskar les þýðingu sína
(6).
15.00 Popp. Vigmr Svemsson
kynnir.
0
15.30 Lesin dagskrá næstu
viku. 15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Litli barnatíminn
Heiðdís Norðfjörð sér um
timann.
16.40 Ungir pennar
Harpa Jósefsdóttir Amin sér
um þáttinn.
17.00 Síðdegistónleikar
Fílharmoníusveit Lundúna
leikur Inngang og allegro
op. 47 eftir Edward Elgar;
Sir Adrian Boult stj. / Suisse
Romande-hljómsveitin ieikur
„Pelléas et Mélisande“ eftir
Gabriel Fauré; Ernest Ans-
ermet stj. / Hljómsveit
franska útvarpsins leikur
„Brasilíuþrá“, dansasvítu
eftir Darius Milhaud; Man-
uel Rosenthal stj.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins._________________
KVÖLDIO _____________________
19.00 Fréttir. Víðsjá. 19.45 Til-
kynningar.
20.00 Sögusinfónían op. 26 eft-
ir Jón Leifs
Sinfóníuhljómsveit íslands
leikur; Jussi Jalas stj.
20.45 Kvöldvaka
a. Einsöngur: Elísabet Er-
lingsdóttir syngur lög eftir
Jórunni Viðar. Höfundurinn
leikur á píanó.
b. Brúarsmíði fyrir 60 ár-
um. Hallgrímur Jónasson
rithöfundur flytur miðhluta
frásögu sinnar.
c. „Kall hörpunnar“. Hug-
rún skáldkona fer með frum-
ort ljóð, áður óbirt.
d. Sauðfé í ógöngum
Guðmundur Bernharðsson
frá Ástúni á Ingjaidssandi
segir frá. Óskar Ingimars-
son les frásögnina.
e. Það er margt, sem við
vitum ekki hvað er. Laufey
Sigurðardóttir frá Torfufelli
flytur frásöguþátt.
f. Kórsöngur: Þjóðleikhús-
kórinn syngur lög eftir Jón
Laxdal. Söngstjóri: Dr. Hall-
grímur Helgason.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Kvöldsagan: „Oddur frá
Rósuhúsi“ eftir Gunnar
Benediktsson
Baldvin Halldórsson leikari
les (10).
23.00 Áfangar
Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJÁNUM
FÖSTUDAGUR
2. maí.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og
ftftortilrrá
20.40 Prúðu leikararnir
Gestur að þessu sinni er
söngvarinn John Denver.
Þýðandi Þrándur Thor-
oddsen.
21.05 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Ingvi
Hrafn Jónsson.
22.10 Gróður í gjósti
(A Tree Grows in Brook-
lyn)
Bandarisk sjónvarpsmynd
frá árinu 1974, byggð á
sögu eftir Betty Smith.
Sagan hefur komið út i
íslenskri þýðingu.
Aðalhlutverk Cliff Robert-
son og Diane Baker.
Myndin lýsir högum fá-
tækrar, írskrar f jölskyldu í
New York árið 1912.
Þýðandi Rannveig
Tryggvadóttir.
23.20 Dagskrárlok.