Morgunblaðið - 01.05.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1980 \ 5
Þorkell Helgason:
í frétt á baksíðu Morgunblaðs-
ins þann 17. apríl sl. segir, að
fjármálaráðherra hafi óskað
frestunar á útvarpsumræðu um
skattamál. Segir síðan, að ráð-
herra hafi „óskað eftir frestinum
vegna nýrra útreikninga frá ríkis-
skattstjóra, en niðurstöður þeirra
væru ekki í samræmi við þá mynd,
sem fyrri útreikningar hafa gefið
varðandi áhrifin af tekjuskatts-
tillögum stjórnarliðsins á Al-
þingi“.
Daginn eftir, eða 18. apríl, er
enn grein á baksíðu Morgunblaðs-
ins undir aðalfyrirsögninni:
„Meiri skattahækkun hjá ein-
staklingum og einstæðum foreldr-
um.“ Þar segir orðrétt:
„Sem dæmi úr niðurstöðum
ríkisskattstjóra má nefna, að
álagður tekjuskattur á einstakl-
ing með 3 milljónir í tekjuskatt-
stofn yrði samkvæmt tillögum
stjórnarliðsins 277.250 krónur,
en eftir fyrra kerfi hefði tekju-
' skatturinn orðið 166.023 krónur,
skattahækkun 61.227 krónur.
Við fjórar milljónir yrði skatta-
hækkun einhleypings sam-
kvæmt tillögum stjórnarliðsins
111.594 krónur en við sex millj-
ónir króna markið lækkar hins
vegar tekjuskattur einhleyp-
ingsins samkvæmt tillögum
stjórnarliðsins um 31.396 krón-
ur.“
Fleiri talnadæmi eru ekki nefnd
í greininni.
Þennan sama dag, 18. apríl,
leitaði blaðamaður Morgunblaðs-
ins símlega álits míns „á þeim mun
varðandi skattahækkun einhleyp-
inga og einstæðra foreldra, sem
fram kemur í útreikningum
(Reikni)stofnunarinnar og út-
reikningum ríkisskattstjóra, sem
Mbl. skýrði frá í gær“, eins og
blaðamaðurinn kemst sjálfur að
orði í inngangi viðtalsins, sem
birtist 19. apríl.
Nauðsynlegt er að endurtaka
hér heildarefni þess, sem blaðið
hefur eftir mér:
„Ríkisskattstjóri reiknar með
10% föstum frádrætti bæði í
gamla og nýja kerfinu, en það
segir Þorkell að sé ekki raun-
hæfur samanburður, m.a. þar
sem meðalfrádráttur einhleyp-
inga hafi áður verið miklu
minni en 10% regla nýja kerfis-
ins býður upp á.
„í okkar útreikningum hækk-
uðu þessir einhleypingar líka,
en mun minna, en hjá ríkis-
skattstjóra," sagði Þorkell.
„Mesta meðaltalshækkun hjá
einhleypingi samkvæmt okkar
útreikningum var 30 þúsund
krónur á tekjubilinu 4 til 5
milljónir króna.
Vissulega er mikil dreifing á
þessum breytingum á skattin-
um. Meðal þeirra, sem teknir
eru í okkar úrtaki, eru einstakl-
ingar sem hækka um hundruð
þúsunda, en aðrir lækka. Það er
einfaldlega ekki hægt að koma
svona skattkerfisbreytingu á
öðru vísi en að einhverjar til-
færslur verði á báða bóga.““
Reyndar má skjóta því inn í, að
fyrirsögn sú sem Mbl. velur þessu
viðtali, „Meðaltalshækkun ein-
hleypinga 30 þús. kr.“, er í full-
komnu ósamræmi við efni viðtals-
ins og óskaði ég eftir leiðréttingu
þar að lútandi. Sú athugasemd
birtist á 19. síðu blaðsins næsta
dag, 20. apríl, en er óskiljanleg.
Þá gerðist það 24. apríl sl., að
Mbl. birtir athugasemd frá ríkis-
skattstjóra, Sigurbirni Þor-
björnssyni. Er þar vitnað til
fyrstu málsgreinar í ofangreindu
viðtali blaðsins við mig. Síðan
heldur ríkisskattstjóri áfram:
„Hér er rangt farið með stað-
reyndir en ætla verður að Þor-
kell Helgason, dósent, hafi vitað
hvað um var að ræða. Ég lét
reikna út opinber gjöld skv.
framtölum 40 manna í Reykja-
vík gjaldárin 1979 og 1980. Við
útreikning tekjuskatts sam-
kvæmt lögum nr. 68/1971 með
síðari breytingum reiknaði ég
vitanlega ekki með „10% föstum
frádrætti" enda slíkur frádrátt-
ur ekki heimill samkvæmt þeim
lagaákvæðum.
Skorað er á Þorkel Helgason,
dósent, að skýra frá því hvar í
útreikningum mínum er að
finna stoð fyrir framangreindri
fullyrðingu hans“.
Ljóst má vera, að blaðamaður
Mbl. leitar til mín vegna talna
þeirra, sem nefndar eru í fréttinni
18. apríl, og eru sagðar frá ríkis-
skattstjóra komnar. Óhjákvæmi-
legt er að upplýsa í hvaða plagg
þessar tölur er sóttar, en það er
bréf ríkisskattstjóra til Fjárhags-
og viðskiptanefndar Efri deildar
Alþingis, sem dagsett er 14. apríl
1980, fylgiskjal II-2. Með leyfi
starfandi formanns nefndarinnar,
Guðmundar Bjarnasonar, alþm.,
birti ég með svari þessu umrætt
fylgiskjal. Hef ég þar undirstrikað
þær tölur, sem Mbl. notfærði sér.
Jafnframt bendi ég sérstaklega á
skýringu yfir töflunni, en þar
stendur:
„Tekjuskattsstofn (Tskst.)
= Vergar tekjur (Vt) (= hreinar
launatekjur)
að frádregnum 10% föstum frá-
drætti."
Tölur þær um skattupphæðir,
sem birtar eru í töflunni, fá ekki
staðist nema gamli tekjuskattur-
inn (dálkur I) og tillaga að nýjum
(í þessu tilviki dálkur III) séu
reiknaðir af þessum sama tekju-
skattstofni.
Vænti ég þess, að hér með sé því
svarað hvaðan ég hef heimildir
um reikniforsendur ríkisskatt-
stjóra.
Skylt er að benda á það í þessu
sambandi, að í nefndri töflu ríkis-
skattstjóra er ekki að finna þær
mismunatölur, sem Mbl. nefnir í
grein sinni 18. apríl og sagðar eru
sýna hækkun skatta einhleypinga
og einstæðra foreldra, heldur virð-
ist fréttaskrifari Morgunblaðsins
framkvæma þann frádrátt upp á
eigin spýtur, enda þótt hann
tilfæri þær sem niðurstöður ríkis-
skattstjóra. Ríkisskattstjóri hefur
þó ekki séð ástæðu til að andmæla
þessari túlkun blaðsins.
í áðurnefndu bréfi ríkisskatt-
stjóra til þingnefndarinnar er
einnig að finna fylgiskjal I, þar
sem sýndar eru niðurstöður um
álögð gjöld 40 einstaklinga 1979
svo og útreiknuð gjöld þeirra 1980,
samkvæmt þeim skattstiga stjórn-
arliða er fyrir lá. Að sjálfsögðu
reiknar ríkisskattstjóri hér ein-
ungis með fasta 10% frádrættin-
um við álagningu 1980. Benti ég
blaðamanni Mbl. svo og þeim
ráðamönnum, er til mín leituðu í
sama skyni og hann, á að skoða
þessar niðurstöður gaumgæfilega,
enda væru þær hinar fróðlegustu
og þær einu sem tiltækar væru og
byggðu á raunverulegum framtöl-
um ársins 1980 og þar með á
réttum skattstofni bæði 1979 og
1980. Væri ólíkt meiri og betri
fróðleik úr þessum útreikningum
að hafa en úr títtnefndu fylgi-
skjali II-2, sem var því miður efst
í huga allra þessara viðmælenda.
T.d. mætti lesa úr þessu úrtaki, að
meðalskattbyrði þeirra 11 ein-
hleypinga, sem þar er að finna,
lækkar, gagnstætt því sem menn
teldu sig sjá úr töflunni á fskj.
II-2.
Sjá má á áskorunarskrifi
ríkisskattstjóra til mín, að hann
er með hugann við þetta fylgiskjal
I og telur ummæli mín eiga við
það. Af framansögðu ætti að vera
ljóst, að þetta er byggt á misskiln-
ingi hans.
í þeirri skattamálaumræðu,
sem nú fer fram, er mikið karpað
um tölur, og er mér nær að halda,
að allur almenningur eigi erfitt
með að átta sig á réttu og röngu í
þeim efnum. Því teldi ég ólíkt
mikilvægara, að ráðamenn og
ráðgjafar reyndu að gefa almenn-
ingi einhverja yfirsýn yfir þessi
mál heldur en að vera með opinber
brigsl um óheiðarleika. í samræmi
við þessa skoðun er ég með í
smíðum greinargerð um útreikn-
inga okkar á Reiknistofnun Há-
skólans á áhrifum áformaðra
skattstiga og þær niðurstöður,
sem við vitum réttastar. Mun
þessi greinargerð send til birtingar
næstu daga. Hefði ég kosið að láta
þar við sitja, en illt er að sitja
undir því ámæli að hafa farið
rangt með staðreyndir og það
gegn betri vitund. Því vildi ég
svara áskorun ríkisskattstjóra.
29. apríl 1980,
Þorkell Helgason
Tekjuskattur meó 1% álagi (fjárhæðir innan sviga: ónýttur persónuafsláttur)
Tekjuskattsstofn (Tskst.) ■ Vergar tekjur (Vt.) (- hreinar launatekjur) aó frádregnum 10% föstum frádrætti.
Dálkur merktur I * Skv. lögum nr. 63/1971 miöaó viö skattvisitölu 464; Fskj. II-2.
Dálkur merktur II - Skv. frv. á þskj. 0219; Dálkur merktur III - Skv. brtt. vió þskj. 0219.
vt. Tskst. Einhleypingur Einhleypingur og einstætt foreldri Einstætt foreldri Hjón - eiginkonan teknalaus
I II III I I II III
1.111.200 1.000.000 (250.080) (240.000) (275.000) (472.800) (472.800) (680.000) (800.000)
1.888.900 1.700.000 (110.080) (100.000) (100.000) (332.800) (332.800) (540.000) (625.000)
2.222.300 2.000.000 ( 50.080) ( 40.000) ( 25.000) (272.800) (272.800) (480.000) (550.000)
2.333.400 2.100.000 ( 30.080) ( 20.000) - 0 - (252.800) (252.800) (460.000) (525.000)
2.444.500 2.200.000 ( 10.080) - 0 - 25.250 (232.800) (232.800) (440.000) (500.000)
2.500.500 2.250.400 - 0 - 10.180 37.976 (222.720) (222.720) (429.920) (487.400)
2.777.800 2.500.000 50.419 60.600 101.000 (172.800) (172.800) (380.000) (425.000)
3.172.700 2.855.400 122.210 132.390 190.738 (101.720) (101.720) (308.920) (336.150)
3.333.400 3.000.000 166.023 161.600 227.250 ( 58.340) ( 72.800) (280.000) (300.000)
3.549.500 3.194.500 224.957 230.355 296.005 - 0 - ( 33.900) (211.925) (231 .925)
3.737.800 3.364.000 276.315 290.274 355.924 51.368 - 0 - (152.600) (172.600)
4.222.300 3.800.000 408.423 444.400 510.050 183.476 88.072 - 0 - ( 20.000)
4.285.800 3.857.200 425.755 464.620 530.270 200.808 99.626 20.220 - 0 -
4.441.600 3.997.400 468.236 514.180 579.830 243.288 127.946 69.780 49.580
6.199.600 5.579.600 1.107.444 1.073.488 1.139.138 882.497 607.353 629.088 608.888
6.345.300 5.710.700 1.173.650 1.119.832 1.185.482 948.703 '647.076 675.432 655.232
6.666.700 6.000.000 1.319.746 1.222.100 1.287.750 1.094.799 763.953 777.700 757.500
7.222.300 6.500.000 1.572.246 1.474.600 1.464.500 1.347.299 965.953 1.030.200 934.250
7.777.800 7.000.000 1.824.746 1.727.100 1.641.250 1.599.799 1.167.953 1.282.700 1.111.000
8.157.500 7.341.700 1.997.305 1.899.658 1.813.808 1.772.358 1.306.000 1.455.258 1.283.558
8.888.900 8.000.000 2.329.746 2.232.100 2.146.250 2.104.799 1.638.442 1.787.700 1.616.000
1) Vægi nýtingar ónýtts persónuafsláttar fer misjafnlega eftir ákvæöum laga um sjúkratryggingagjald og beitingu hámarksheimildar
hundraóshluta útsvara. Til þess aó gera sér grein fyrir raunverulegum áhrifum þyrfti aö taka sjtrgj. og ú-álagningu meó í myndina.
2) Vægi barnabóta fer eftir fjölda barna og samsetningu barna í aldursflokka.
3) Samanburöur á tekjuskatti hjóna er miöaöur viö aö eiginmaöurinn afli teknanna einn.
Til þess aö fá fullkominn samanburö á heildarskattbyröi einhleypings og einstæös foreldris þyrfti aó taka tillit til aths 1) og 2)
oq s aths. aö þvi er hjon varóar auk þess sem allan samanburö vantar hjá hjónum séu hjónin bæói tekjuaflandi einstaklingar.
Svar við áskorun
ríkisskattstjóra
1. maí kaffi Svalanna
Hótel sögu — kl. 14.00
Hlaðið borö af kræsingum — Úrvals vinningar í skyndi-
happdrætti.
Tískusýningar kl. 14.30 og kl. 15.30. Félagar sýna tískufatnaö frá URÐI og
LOTUS.
Svölukaffi svíkur engan. Allur ágóöi rennur til líknarmála.
Svölurnar, félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja.