Morgunblaðið - 01.05.1980, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1980
Jóhanna Sigurðardóttir alþm.
Helgi Seljan fór eins og köttur í
kringum heitan graut, þegar hann
reynir að svara því sem fram
kemur í grein minni frá 15. apríl
sl., enda hvergi komist að kjarn-
anum í svari Helga, og því rök
hans harla léttvæg í minum huga.
í grein minni var sýnt fram á
fernt.: í fyrsta lagi: Hvað málefni
framlög til Framkvæmdasjóðs ör-
yrkja hafa verið skert verulega frá
því framlagi sem samþykkt var á
Alþingi. Fyrir því voru færð tölu-
leg rök í grein minni. — Því var
fullyrðingum og tölum hnekkt frá
því sem fram kemur í grein Helga
í Þjoðviljanum 3. apríl sl. og vísa
ég í því sambandi óhikað til
greinar minnar 15. apríl sl. fyrir
Voru orð Helga bara
lélegur brandari?
þroskaheftra og þá sérstaklega
sérkennslumálefni þeirra hafa
lengi setið á hakanum og lítið
fjármagn fengist til uppbyggingar
þeirra, — og þá hve mikil nauðsyn
var á stofnun Framkvæmdasjóðs
öryrkja með 1000 milljón króna
verðtryggðu framlagi ár hvert. —
í öðru lagi: Hvað framlög til
þessa sjóðs hafa verið skert frá
því Alþingi samþykkti hann á sl.
ári, — auk þess sem til stendur að
bæta á hann mörgum verkefnum,
án aukins fjármagns. — í þriðja
lagi: Sýnt fram á að tillaga mín og
fleiri þingmanna sem flutt var við
afgreiðslu fjárlaga, var einungis
flutt í því skyni að halda utanum
það fjármagn sem áunnist hefur í
þágu öryrkja og þroskaheftra,
bæði áður fyrr og á Alþingi sl. vor.
t fjórða lagi: — Þar sem Helgi
Seljan gaf tilefni til í viðtali við
Þjóðviljann 3. apríl sl., þegar að
því er látið liggja að framlag til
Framkvæmdasjóðsins hafi ekki
skerst og talað um sýndartillögu,
sem flutt var í því skyni að halda
utanum það sem áunnist hefur. —
Þá er í grein minni sýnt fram á
breytta afstöðu Helga frá því
Framkvæmdasjóðurinn var til
umræðu sl. vor á Alþingi, — en
Helgi greiddi atkvæði gegn tillög-
unni við afgreiðslu fjárlaga.
I engu reynir Helgi Seljan að
svara kjarnanum í minni grein en
einbeitir sér að því í grein sinni að
reyna að hrekja sín eigin orð í
Alþingistíðindum, — sem virka á
hann, eins og fram kemur í hans
grein eins og lélegur brandari. —
Kjarninn í minni grein er m.a. að
þá sem hafa vilja það sem sannara
reynist, — og hirði ekki um að
endurtaka það sem fram kom þar.
Þegar framkvæmdasjóðurinn
var samþykktur á Alþingi var
áfram gert ráð fyrir að vistheimili
vangefinna yrðu fjármögnuð á
fjárlögum, enda sagði Helgi við
það tækifæri: „Við skulum gæta
vel að því hvað kann að verða gert
við undirbúning fjárlaga næsta ár
varðandi hina einstöku liði, sem
gætu hugsanlega fallið undir
Framkvæmdasjóð. — Við skulum
vera vel á verði um að ekki verði
alltof mikill hluti af þeim verk-
efnum sem nú eru t.d. á fjárlög-
um færður undir framkvæmda-
sjóðinn, svo tilgangnum með
stofnun hans verði náð. Síðan
varaði Helgi við því að sú hætta
vofði yfir að í meðferð fjárlaga- og
hagsýslustofnunar yrði reynt að
kippa út verkefnum sem nú væru
á fjárlögum og færa þau undir
framkvæmdasjóðinn. — Helgi var
sannspár í því efni.
En sennilega var þetta bara
lélegur brandari, — því nú túlkar
Helgi í grein sinni þessi orð
þannig: „En varðandi það, sem
Jóhanna vitnar í úr ræðu minni,
— þá er það jafnljóst þá og nú að
ég tel að vistheimili vangefinna
eigi að fá fé úr sjóðnum". —
Hvernig geta þessar tvær fullyrð-
ingar komið heim og saman.
I grein sinni talar Helgi einnig
um að skoðanir okkar fari ekki í
öllu saman, — og bendir á í'því
sambandi að eðlilegasta skipan
þessara mála sé að fjármagna
málefni þroskaheftra beint á fjár-
lögum. — Það er misskilningur
hjá Helga að við séum ekki
sammála um að þetta sé æski-
legasta leiðin, — enda kom það
fram í grein minni. — Hitt er ef til
vill annað mál, — að hugsanlega
greinir okkur á um raunhæfar
leiðir til að ná því marki sem að er
stefnt. — Helgi talar um reynsl-
una af styrktarsjóði vangefinna,
— en minnist í engu á reynsluna
af framlögum til þroskaheftra
beint af fjárlögum eins og t.d.
sérkennslumálefni sem fjármögn-
uð hafa verið á fjárlögum, — sem
er þó einmitt hrópandi dæmi um
að finna verður aðra leið til
fjármögnunar verkefna þroska-
heftra, — meðan fjárveitingavald-
ið hefur ekki meiri skilning á þeim
en raun ber vitni. — Hygg ég að
samtök þroskaheftra geti tekið
undir mat mitt á þessu máli, — og
þekki vel reynsluna af fjármögnun
beint á fjárlögum.
Þar sem Helgi treystir sér ekki
til að gagnrýna kjarnann í grein
minni, — telur hann sig geta náð
höggstað á mér, með því að eyða
löngu máli í það að fjárlagafrv.
Alþýðuflokksins hafi verið með
sama hætti hvað framkvæmda-
sjóðinn varðar og fjárlagafrv.
Ragnars Arnalds, — og telur
Helgi að mér hefði verið í lófa
lagið að koma inn leiðréttingu þá.
Nú veit Helgi mæta vel hvernig
slíkt gengur fyrir sig. — Ef ég hef
ekki sömu skoðun og fjármálarh.
Alþ.fl. í þessu máli, — þá hef ég
enga aðra leið til að koma henni á
framfæri en með breytingartil-
lögu við fjárlögin. — Lítið svig-
rúm gafst til leiðréttinga á frv.
Alþ.fl. í þessu efni, — vegna þess
að fyrir því var ekki mælt fyrr en
daginn áður en minnihlutastjórn
Alþ.fl. fór frá, — þess vegna fékk
það ekki eðlilega umfjöllun á
Alþingi.
Bæði frv. Ragnars og Sighvats
voru eins er þetta mál varðar
þegar þau voru lögð fram og kom
það fram i grein minni. — Sú litla
leiðrétting sem fram fékkst í frv.
Ragnars kom ekki fyrr en við aðra
og þriðju umræðu fjárlaga, — og
efalítið önnur þeirra byggingar-
styrkur til Sjalfsbjargar, sem aft-
ur var tekin inná fjárlög tilkomin
vegna breytingartillögu þeirrar
sem fram var komin. Hefði það
sem sannara reynist komið fram
hjá Helga, hefði hann átt að geta
þess í grein sinni, — að fram kom
í minni grein, — að ég hefði flutt
þessa umræddu breytingartillögu
sem hann kallar sýndartillögu á
Alþingi, hvort sem um frv. Alþ.fl.
ráðherra var að ræða eða einhvers
annars. — Það er kjarni málsins
og kom skýrt fram í minni gein.
í grein sinni telur Helgi mig
þurfa á fyrirgefningu að halda, —
vegna þessa frumhlaups , eins og
hann orðar það, — að flytja
breytingartill. til að halda utanum
það fjármagn sem áunnist hefur í
þágu öryrkja, — og ég hafi með
gjörðum mínum unnið til þess
nafns sem hann gaf tillögunni, —
þ.e. sýndartillaga.
Ja — lítið leggst fyrir jafn
ágætan mann og Helga Seljan —
að telja að þeir þurfi á fyrirgefn-
ingu að halda, — sem fara að
orðum hans sjálfs, — þ.e. að reyna
af fyllstu sanngirni að vera á verði
um að öryrkjar fái þó ekki nema
það fjármagn sem Alþingi hefur
af náð sinni samþykkt til þeirra.
— Ég frábið mér slíka fyrirgefn-
ingu. — Helgi þyrfti frekar á
fyrirgefningu þeirra að halda, sem
tóku mark á orðum hans í fyrra og
litu ekki á þau sem lélegan
brandara. — Orð mín standa því
óhögguð, — að hafa skal það sem
sannara reynist.
Að lokum nokkur orð til Helga:
Undir orð þín get ég vel tekið að
ekki sé það málefni þroskaheftra
til framdráttar að tveir stjórn-
armenn úr þeirri nefnd á vegum
stjórnvalda, sem um málefni
þroskaheftra fjalla — eigi í opin-
berum ritdeilum. — Það hefðir þú
betur haft í huga, þegar þú gafst
tilefni til þessara orðaskipta okk-
ar í viðtalinu sem haft var við þig
í Þjóðviljanum, enda þó þú við
afgreiðslu fjárlaga varðandi þetta
umrædda mál, hafir gefið mér
ærið tilefni til að fjalla um
afstöðu þína þá í blaðagrein. Með
það í huga sem þú réttilega nefnir,
— að það sé ekki málefni þroska-
heftra til framdráttar, lét ég kyrrt
liggja þá. — I viðtalinu við
Þjóðviljann hefðir þú betur mun-
að — að í upphafi skyldi endirinn
skoða.
Jóhanna Sigurðardottir.
Hundavinir
með blóma- og
kaffisölu
í Torfunni
Hundavina- og Hundarækt-
arfélög íslands gangast fyrir
blóma- og kaffisölu í dag, 1. maí,
í Bernhöftstorfu. Húsið opnar kl.
14, allur ágóði rennur til hags-
munamála hunda.
Vonast aðstandendur félag-
anna til að hundavinir og hur.da-
eigendur fjölmenni á Torfunni í
dag.
radauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Heimdallur —
Hvöt — Óöinn:
Opiö hús í dag í Valhöll
í dag 1. maí, alþjóölegum degi verkamanna
er opiö hús í Sjálfstæöishúsinu Valhöll,
"i»ui«|eKra.it 1 H 1ft
nuareiuai/iawt •, »*». . —
1. Guömundur H. Garðarsson flytur ávarp.
2. Kaffiveltingar.
Allir velkomnir.
Austurlands-
kjördæmi —
Stjórnmála-
fundir
Alþingismennirnir Egill Jónsson og Sverrir
Hermannsson halda félagsfundi í Sjálfstæö-
isfélögum í Austurlandskjördæmi sem hér
segir:
Seyöisfiröi fimmtudagínn 1. maí kl. 20.30.
Neskaupstaö föstudaginn 2. maí kl. 20.30.
héyðSfíírðl laugardaginn 3. maí kl. 14.00.
Eskifiröi laugardaginri 3. .T!2! kl- 17.00.
Egilsstööum sunnudaginn 4. maí kl. 13.0U.
Húsvíkingar —
Þingeyingar
Fundur veröur í Sjálfstæöisfélagi Húsavík-
ur og Sjálfstæöisfélagi Suöur-Þingeyjar-
sýslu aö Hótel Húsavík, föstudagskvöldlð
kl. 21.
Alþingismennirnir Lárus Jónsson og Hall-
dór Blöndal ræöa stjórnmálaviöhorfiö.