Morgunblaðið - 01.05.1980, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1980
MORGUNBLAÐIÐ aíhenti í gærdag hluta af þeim
viðurkenningum til íþróttafólks sem venja er ár hvert.
Fór afhendingin fram í veitingahúsinu Hollywood og
var með nokkru öðru sniði en verið hefur. Helstu
breytinguna frá því sem áður hefur verið má nefna, að
Mbl. tók þann kostinn að heiðra íþróttafólk í fleiri
greinum en áður. Mbl. afhenti nú slík verðlaun í 9.
skiptið og fyrstu 7 árin var aðeins um verðlaun til
handa knattspyrnu- og handknattleiksmönnum að ræða.
Á síðasta ári bætti Mbl. körfuknattleiksmönnum við
sem viðurkenningu á hinum öra vexti þeirrar íþróttar
hérlendis. Og ekki var látið þar við sitja, að þessu sinni
bætti Mbl. við verðlaunum fyrir skíðamann ársins,
frjálsíþróttamann ársins og sundmann ársins, auk þess
sem veitt voru í fyrsta skiptið verðlaun til handknatt-
leikskonu ársins.
Knattspyrnumennirnir voru
ekki með að þessu sinni, enda er
þeirra keppnistímabil varla hafið.
En knattspyrnuverðlaun verða af-
hent í haust í lok keppnistímabils-
ins. Hver veit nema að þá verði
einnig veitt verðlaun fyrir nýjar
íþróttagreinar. Hins vegar er
óljóst enn hvort Mbl. muni í
framtíðinni afhenda einu sinni
eða tvisvar á ári. Hófið sem fram
fór í Hollywood eins og áður sagði
fór annars fram á hefðbundinn
hátt, eða með því að Haraldur
Sveinsson framkvæmdastjóri
Árvakurs flutti stutt ávarp og
síðan tók Þórarinn Ragnarsson
fréttamaður við og kynnti þá
íþróttamenn sem íþróttafrétta-
menn Mbl. höfðu valið.
Nú voru því átta íþrótta-
mönnum veitt verðlaun fyrir
framúrskarandi árangur á sínu
sviði. Verðlaunamenn Morgun-
blaðsins voru að þessu sinni eftir-
taldir: Jón Sigurðsson leikmaður
Islandsmótsins í körfu og Kristinn
Jörundsson stigakóngur, en Mbl.
mun framvegis veita Islendingum,
þessi verðlaun þó svo að einhverjir
Bandaríkjamenn hafi skorað
meira. Verðlaun þessi eru nefni-
lega hugsuð sem hvatning til
íslenskra íþróttamanna. Leik-
maður íslandsmótsins í hand-
knattleik var valinn Árni Indriða-
son úr Víking og markakóngurinn
var FH-ingurinn ungi Kristján
Arason. Nýju greinarnar fjórar
voru skíði, frjálsar, sund og hand-
knattleikur kvenna. Skíðamaður
ársins var Steinunn Sæmunds-
dóttir, frjálsíþróttamaður ársins
var Oddur Sigurðsson, sundmaður
ársins Hugí Harðarson og hand-
knattleikskona ársins var auðvit-
að Guðríður Guðjónsdóttir úr
Fram. 1 ræðu sinni í hófinu lýsti
Þórarinn Ragnarsson í stuttu máli
ágætum þessa fólks.
Um Árna Indriða sagði hann:
„Árni Indriðason sigraði í eink-
unnagjöf Mbl. með fáheyrðum
yfirburðum. Lék Árni alla leiki
Víkings eða 14 að tölu og fékk
samtals 45 stig. Það gerir 3,21 að
meðaltali og er það einhver hæsta
meðaleinkunn sem Mbl. hefur
veitt einstökum leikmanni. Er
Árni sannarlega vel að sigrinum
kominn. Lið Víkings hafði algera
yfirburði á íslandsmótinu og oft
bar meira á félögum Árna heldur
en honum sjálfum. En hann er
þannig leikmaður, að vafasamt
verður að teljast að Víkingur hefði
sigrað með jafn miklum glæsibrag
nyti Árna ekki við ...“
Um Kristján Arason sagði hann
m.a. .. Kristjan tekur við nafn-
• Markakóngurinn í handknattleiknum. Kristján Arason, annar frá hægri. Lengst til hægri er þjálfari
Kristjáns. Geir Hallsteinsson, sem var markakóngur siðast í fyrra. Með þeim á myndinni eru Bergþór
Jónsson, formaður FH, og Ingvar Viktorsson, formaður handknattleiksdeildar FH.
ingurinn á mótinu, skoraði 462
stig ...“
Steinunn Sæmundsdóttir: „Það
kemur líklega fáum á óvart að
Steinunn Sæmundsdóttir var val-
in sem skíðamaður ársins 1979—
80, en hún náði afbragðsárangri
bæði hér heima og erlendis. Hún
hefur um all langt skeið verið
keppnistímabil var án alls efa
Oddur Sigurðsson spretthlaupar-
inn úr KA. Oddi skaut upp á
stjörnuhimininn með miklum
hraða og óhætt að fullyrða að
hann sé sannkallað náttúrubarn í
íþrótt sinni. Árið 1979 var fyrsta
árið sem Oddur keppti í frjálsum
íþróttum, en samt náði hann
• F.v. Kristinn Jörundsson. stigakóngur í körfu, Einar Ólafsson þjálfari hans, Jón Sigurðsson leikmaður
íslandsmótsins i körfuknattleik annað árið í röð.
bótinni „markakóngur íslands-
mótsins" af núverandi þjálfara
sínum Geir Hallsteinssyni, sem
varð markakóngur á síðasta
keppnistímabili."
Um Jón Sigurðsson: .. Jón
Sigurðsson er leikmaður Islands-
mótsins í körfuknattleik annað
árið í röð. Hann hlaut flest stig í
einkunnagjöf blaðamanna Mbl. en
nú var mjórra á mununum en
síðast."
Kristinn Jörundsson: „...
Kristinn varð stigahæsti íslend-
ókrýnd skíðadrottning íslands
u
Hugi Harðarson: „ ... sá sund-
maður sem varð fyrir valinu fyrir
síðasta keppnistímabil var hinn
bráðefnilegi Hugi Harðarson úr
HSK. Hugi, sem er aðeins 16 ára
gamall, gerði sér lítð fyrir og setti
36 ný Islandsmet í sundi á árinu
1979. Leikur enginn vafiá, að Hugi
á mikla framtíð fyrir sér í sund-
íþróttinni."
Oddur Sigurðsson: „Stjarna
íslenskra frjálsíþrótta síðasta
ótrúlega góðum árangri. Oddur
varð fimmfaldur Islandsmeistari
utanhúss, hlaut fimm gullverð-
laun í Kalottkeppninni og eitt gull
og eitt silfur á Norðurlandamóti
unglinga. Einnig tryggði hann sér
tvenn gullverðlaun og eitt silfur á
Reykjavíkurleikunum."
Guðríður Guðjónsdóttir: „Hand-
knattleikskona síðasta keppnis-
tímabils var kjörin Guðríður Guð-
jónsdóttir úr Fram. Guðríður bar
höfuð og herðar yfir kynsystur
sínar á síðasta íslandsmóti. Hún
• Steinunn Sæmundsdóttir tekur við verðlaunum sinum.
Guðríður Guðjónsdóttir er að sjá glaðhlakkaleg með feng sinn.
er styrkasta stoð meistaraflokks
Fram í handknattleik, en lið
hennar á að baki einstaka sigur-
göngu í íslenskum handknattleik
og hefur sigrað á hverju íslands-
mótinu af öðru, hirt bikarinn hvað
eftir annað. Sem dæmi um yfir-
burði Fram á síðasta keppnis-
tímabili má benda á, að liðið
tapaði ekki einum einasta leik,
skoraði 247 mörk og fékk á sig
aðeins 143. Guðríður skoraði 112
af mörkunum 247 og segir það
mikla sögu.“
Allir verðlaunaþegarnir tóku
við gripum sínum úr höndum
Haraldar Sveinssonar fram-
kvæmdastjóra Árvakurs. En er
íþróttafólkið hafði hlotið verðlaun
sín vildu ýmsir rísa úr sætum og
halda ræður, eða „segja nokkur
orð“ eins og það er gjarnan kallað.
Aðeins tveir sögðu nokkur orð og
er það í alminnsta lagi á sam-
kundu sem þessari. Örn Eiðsson
og Júlíus Hafstein, formenn FRÍ
og HSÍ voru mennirnir á mæl-
endaskrá. Örn sagði m.a. „Mér er
bæði ljúft og skylt að þakka
Morgunblaðinu fyrir að sýna
íþróttum á íslandi slíkan velvilja
og stórhug, ekki síst er blaðið
hefur fært út kvíarnar með því að
fjölga verðlaunum. Að vísu er
nokkuð langt síðan að tímabili
frjálsíþróttamanna lauk, en þessu
fylgir góður hugur. Það er mín
skoðun, að Morgunblaðið sé sá
fjölmiðill íslenskur sem sinnir
íþróttum mest og best, sérstaklega
hvað varðar frjálsar íþróttir sem
eru mitt hugðarefni.
íþróttir tilheyra menningar-
málum og yfirvöld í landinu ættu
að sýna íþróttafólki meiri skilning
og styðja betur við bakið á því
heldur en gert hefur verið. Afreks-
fólk í íþróttum er einhver besta
landkynning sem hugsast getur.
Það hlýtur að koma að því að
yfirvöld komi fram með mun
meiri stuðning heldur en verið
hefur.“
Júlíus Hafstein formaður HSÍ
tók nokkru síðar til máls og sagði
m.a. „Það er mjög ánægjulegt að
Morgunblaðið skuli hafa fjölgað
íþróttagreinum í verðlaunaveit-
ingu sinni, því miður er of lítið um
það hérlendis að kostur sé á því að
heiðra íþróttafólk eins og það á
skilið fyrir elju sína og samvisku-
semi, því að hvergi býr afreksfólk
í íþróttum við jafn slæman kost til
æfinga og hér á landi, því á
Morgunblaðið þakkir skildar fyrir
að standa í þessu. Auk þess vil ég
þakka Mbl. fyrir hlutlausan og
yfirvegaðan fréttaflutning á
íþróttasíðum." — &£■
IVIorgunblaóió heióraói
átta íþróttamenn í gær
á
'M