Morgunblaðið - 01.05.1980, Page 40
Síminn
á afgreiöslunni er
83033
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
JH*rcimbIabií>
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 1980
1. maí:
Sendiherrar hundsa
hátíðarhöld í Moskvu
— Sendiherra Islands mætir að sögn AP
SENDIHERRAR nokkurra vest-
rænna ríkja hafa ákveðið að
hundsa 1. maí hátíðahöldin í
Moskvu samkvæmt heimildum
AP-fréttastofunnar í gær til þess
að mótmæla innrás Rússa í Afg-
anistan, en samkvæmt heimildun-
um er líklegt að sendiherrar
íslands og Frakklands mæti við
hátíðahöldin.
Að sögn diplómata voru sendi-
herrar Bretlands, Belgíu, Noregs,
Danmerkur, Portúgals, Italíu og
Astralíu meðal þeirra sem ætluðu
ekki að mæta við hersýninguna á
Rauða torgi og senda lægra setta
fulltrúa í staðinn. Vestur-þýzki
sendiherrann var ekki í Moskvu og
ekki var vitað hver yrði fulltrúi
Vestur-Þj óðverj a.
Banaslys á Hellissandi
TVEIR drengir, 10 og 11 ára
gamlir, urðu undir sandbarði á
Hellissandi í fyrrakvöld og beið
annar þeirra bana. Drengirnir
höfðu verið að leik þegar slysið
varð.
Varð fyrir
vörubíl
og slapp
lítt meiddur
„ÉG get víst örugglega hrós-
að happi að slasast ekki
meira en raun ber vitni,“
sagði Magnús Árnason i
samtali við Morgunblaðið i
gærkvöldi, en hann lenti í
þeirri óskemmtilegu reynslu-
að verða fyrir vörubíl á
Suðurlandsbrautinni og oln-
bogabrotna, auk þess að
skrámast litillega á hné.
„Það er í raun alveg óskilj-
anlegt hvernig þetta gat skeð
á beinum og breiðum vegin-
um, ég sá vörubílinn ekki og
vörubílstjórinn sá mig ekki.
Þetta er sennilega bara ell-
in,“ sagði Magnús ennfremur,
en hann er nú á 74. aldursár-
inu.
Þegar drengirnir komu ekki
heim á tilskildum tíma fór faðir
annars drengsins að svipast um
eftir þeim. Hann fann son sinn
grafinn í barðinu, en hinn dreng-
urinn var þá látinn, en hann var
11 ára gamall.
• Morgunblaðið heiðraði i gær átta íþróttamenn fyrir afrek þeirra á síðasta ári og vetri. Fór
verðlaunaafhending fram í veitingahúsinu Hollywood. Á meðfylgjandi mynd Emilíu Björnsdóttur
getur að lita flokkinn, en að þessu sinni og framvegis var fólk úr fleiri íþróttagreinum en áður
heiðrað. íþróttafólkið er talið að ofan frá vinstri: Kristinn Jörundsson, Jón Sigurðsson, Árni
Indriðason, Kristján Arason. Neðri röð frá vinstri, Hugi Harðarson, Guðríður Guðjónsdóttir,
Haraldur Sveinsson framkvæmdastjóri Árvakurs, Steinunn Sæmundsdóttir og Oddur Sigurðsson. Sjá
nánar á íþróttasíðu.
Eiginlegri vertíð lokið víða sunnanlands:
I>orsk\ ciöibann gengið
í gildi hjá bátaflotanum
Vertíðin viðast mjög góð — Friðrik Sigurðsson ÁR aflahæstur
UM ÞESSI mánaðamót gekk í
gildi netaveiðibann fyrir Suður-
og Vesturlandi, sem gildir til 21.
mai en i öðrum landshlutum má
veiða i net til 6. maí. Jafnframt er
þorskveiðibann i gildi hjá öllum
togbátum 1.—7. mai að báðum
dögum meðtöldum. Vetrarvertíð á
að Ijúka 15. mai en vegna veiðitak-
markana er Ijóst að vertiðinni er i
raun lokið í helstu verstöðvunum
sunnanlands. Það er helst i Vest-
mannaeyjum að bátar ætli á tog-
veiðar fyrri hluta mánaðarins, en
þorskur má ekki vera yfir 15% af
afla bátanna. Vertíðin sunnan-
lands og vestan hefur i heildina
verið mun betri en í fyrra þó ekki
jafnist hún á við vertíðir hér fyrr
á árum. Atvinna hefur verið mjög
mikil i öllum sjávarplássum.
í Vestmannaeyjum lágu ekki
fyrir í gær nákvæmar tölur um
vertíðaraflann um mánaðamótin
en hann er á bilinu 25—28 þúsund
tonn. Er það 35% meiri afli en
kominn var á land á sama tíma í
fyrra. Vertíðin hefur fyrst og
Kjaraskerðingin
frá 1977 um 20%
KJARASKERÐINGIN frá því
er sólstöðusamningarnir tóku
gildi á árinu 1977 og fram til
dagsins í dag er orðin á bilinu
17 til 20% hjá þeim aðilum, sem
ekkert hafa fengið i staðinn,
þ.e.a.s. svokallaður félagsmála-
pakki nær ekki til. Svo er t.d.
um alla félaga innan BSRB og
BHM. Hins vegar hafa nokkur
atriði félagsmálapakkans náð
til ASÍ-félaga, en hann var i
heild metinn til 3ja prósenta.
Þvi er kjaraskerðingin meðal
ASÍ-fólks minni, sem því nem-
ur.
Skerðingin fer vaxandi þeim
mun lengra sem líður vegna
ákvæða svonefndra Ólafslaga,
sem breyttu umsömdum verð-
bótaákvæðum og mun nú vera
orðin á almennum launum
verkamanna um 50 þúsund krón-
ur á mánuði. Fyrir hvert 1%,
sem vísitala framfærslukostnað-
ar stígur, hækkar verðbótavísi-
talan aðeins um 0,85%.
Hluti kjaraskerðingarinnar
stafar frá efnahagsráðstöfunum,
sem ríkisstjórn Olafs Jóhannes-
sonar gerði hinn 1. desember
1978. Þá átti kauphækkun sam-
kvæmt vísitölu að verða 14,13%,
en varð aðeins 6,12%. 8,01% átti
að bæta launþegum í þrennu
lagi: með skattalækkun til lág-
tekjufólks 2,00%, með auknum
niðurgreiðslum 3,01% og með
félagslegum umbótum 3,00%.
Eins og áður er sagt, hefur
félagsmálapakkinn svonefndi
ekki komið opinberum starfs-
mönnum að neinu til góða og enn
hafa sjómenn ekki séð efndir
þeirra félagslegu umbótaloforða,
sem þeir fengu gegn launalækk-
uninni 1. desember 1978. Hins
vegar hafa ASÍ-félagar fengið
efndir að einhverju leyti á þeim
loforðum, sem þeim voru gefin.
Þar mun stærst vera löggjöf um
slysa- og veikindatilfelli og bæt-
ur fyrir þau. Sá hængur er þó á
að ekki er unnt að meta þessa
félagslegu umbót, þar sem engar
tölfræðilegar upplýsingar voru
til um veikindi og slys. Renna
menn því gjörsamlega blint í
sjóinn með vægi þessa.
Fleira, sem var í félagsmála-
pakkanum, var um vexti af
innstæðum oflofsþega í póstgíró-
stofu yrðu hækkaðir úr 5% í
22% og nýlega voru þeir aftur
hækkaðir í 26%. Þá var ákvæði
um afnám eftirvinnu á föstudög-
um, sem sett var með lögum í
maí í fyrra. Þá hafa greiðslur í
lífeyrissjóði verið gerðar
lögtækskræfar og einnig hefur
verið sett löggjöf um ríkisábyrgð
á launum við gjaldþrot. Þá er
enn óafgreidd löggjöf um aðbún-
að, hollustuhætti og öryggi á
vinnustöðum. Þá var og ákvæði
um fjárveitingar til verkalýðs-
hreyfingarinnar og ákvæði um
húsnæðismál.
fremst verið góð hjá netabátunum
og togurunum en mun lakari hjá
togbátunum. Aflahæsti báturinn er
Þórunn Sveinsdóttir með rúm 1196
tonn og Gjafar er í öðru sæti með
1067 tonn. Netabátarnir fara nú á
troll eða í „skveringu" en einhverjir
fara á net aftur þegar það verður
leyft 21. maí.
í Þorlákshöfn hefur vertíðin ver-
ið mun betri en í fyrra en ekki lágu
fyrir nákvæmar tölur um aflann í
gær. Friðrik Sigurðsson er afla-
hæsti báturinn með tæp 1504 tonn
og er hann jafnframt aflahæstur
allra vertíðarbáta á landinu. Skip-
stjóri á Friðrik Sigurðssyni er
Sigurður Bjarnason. Höfrungur III
er annar í röðinni með 1322 tonn og
Jón á Hofi þriðji með tæp 1315
tonn. Þessir bátar eru hættir veið-
um í bili og munu því ekki koma
með meiri afla að landi á þessari
vetrarvertíð.
í Grindavík voru í gær komin á
land 26.400 tonn og er það um 5
þúsund tonnum meiri afli en á
sama tíma í fyrra. Aflahæsti bát-
urinn er Vörður með 1260 tonn,
Kópur er næstur með 1084 tonn og
þriðji í röðinni er Jóhannes Gunn-
ar með 1033 tonn. Næstu 11 bátar
eru með 8—900 tonn svo að sjá má
að vertíðin hefur verið góð hjá
Grindavíkurbátum. Hlé verður nú
á veiðum Grindavíkurbáta, svo þar
er lokið hinni eiginlegu vetrar-
vertíð, að sögn fréttaritara Mbl.
þar.
Guðmundur J. og skattalagafrumvarpið:
Mætti ekki á
nefndarfundi
— Gaí ekki út nefndarálit
„ÞAÐ er rétt,“ sagði Matthías Á.
Mathiesen, alþingismaður, er Mbl.
spurðist fyrir um afgreiðslu frum-
varpsins um tekjuskatt og eigna-
skatt í gærkvöldi, „að Guðmundur
J. Guðmundsson, fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins i fjárhags- og við-
skiptanefnd, var ekki mættur á
fundi nefndarinnar þegar málið
var afgreitt og hefur ekki ennþá
gefið út nefndarálit.
Komið er nefndarálit frá sex
nefndarmönnum, þremur sjálf-
stæðismönnum, sem flytja breyt-
ingartilögur við frumvarpið, og frá
fulltrúa Alþýðuflokksins og full-
trúa Framsóknarflokksins," sagði
Matthías ennfremur.
Þá hafði Guðmundur ekki tekið
þátt í umræðum á Aiþingi um
málið þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöldi né gefið út nefndarálit.
Ætlunin var að ljúka afgreiðslu
skattafrumvarpsins í gærkvöldi
eins og gert hafði verið ráð fyrir.
Að síðustu sagði Matthías, að það
vekti athygli að frá Guðmundi
heyrðist ekki neitt þegar verið væri
að auka skattbyrði almennings í
landinu og hlut ríkissjóðs sem
hlutfall af þjóðarframleiðslu, auk
þess sem kaupmáttur fólksins í
landinu færi síminnkandi.